Þjóðviljinn - 23.11.1986, Blaðsíða 15
r^firíir-i
Útlitsteikning Benjamíns Magnússonar að Listasafni Gerðar Helgadóttur. Húsið mun rísa austan Kópavogskirkju
r
i 4 S K Á- :
Listasafn Gerðar að rísa
Fyrsta skóflustungan að glœsilegri
safnbyggingu tekin sl. föstudag. Krist-
jón Guðmundsson bœjarstjóri: fóir
gera sér grein fyrir hvílíkur listamaður
Gerður Helgadóttir var
Gerður Helgadóttir batt föst tengsl við Kópavog, en þar bjuggu foreldrar hennar
lengi og þar var hennar heimili á íslandi.
Nú eru hafnarframkvæmd-
ir við Listasafn Gerðar Helga-
dóttur í Kópavogi. Fyrsta
skóflustungan var tekin af
Snorra bróður hennar sl
föstudag og samkvæmt áætl-
un mun þar rísa glæsilegt
listasafn, sem mun geyma öll
verk Gerðar sem gefin voru
Kópavogskaupstað eftir lát
hennar. Þá mun safnið hýsa
mikið listaverkasafn sem Vífill
Magnússon gaf Kópavogi að
foreldrum sínum látnum, þeim
Barböru Árnason og Magnúsi
Á. Árnasyni. Auk þess á Lista-
og menningarsjóður hundruð
verka eftir ýmsa listamenn og
munu þau varðveitt í safninu.
Gerður Helgadóttir var fædd á
Norðfirði 11. apríl 1928 og voru
foreldrar hennar Helgi Pálsson
og Sigríður Erlendsdóttir. Níu
ára gömul flutti hún til Reykja-
víkur og hóf listnám að loknu
gagnfræðaprófi í Handíðaskólan-
um. Tæplega tvítug hélt Gerður
til Ítalíu til náms í Listaakademí-
unni í Flórenz og síðar í Grande
Chaumiére listaskólanum í París
og hjá myndhöggvaranum Za-
dkine. Eftir það bjó Gerður
lengst af í París og stuttan tíma í
Hollandi. Hún fluttist heim til ís-
lands hálfu öðru ári áður en hún
lést í maímánuði árið 1975, að-
eins 47 ára að aldri.
Eins og áður sagði ákváðu erf-
ingjar Gerðar að gefa Lista- og
menningarsjóði Kópavogs öll
þau verk sem hún lét eftir sig,
þ.e. allar frummyndir í dánarbú-
inu, eitt eintak af afsteypum sem
þar voru, skissur, teikningar og
ýmsar tillögur að verkum sem
hún var með í vinnslu þegar hún
Iést. Gjafabréfinu fylgdu á móti
þau skilyrði að byggt yrði Lista-
safn í Kópavogi er bæri nafn
Gerðar og geymi verk hennar. Pá
skuli það og gegna öðrum hefð-
bundnum verkefnum listasafns.
Gert er ráð fyrir að formleg af-
hending verkanna fari fram þegar
safnhúsið verður fokhelt en
þangað til verði verk Gerðar
geymd í vörslu erfingjanna og í
samráði við fulltrúa Kópavogs-
kaupstaðar.
Undirbúningur að byggingu
safnsins hefur dregist úr hömlu
en nú hefur fyrsta skrefið verið
stigið. Kristján Guðmundsson
bæjarstjóri í Kópavogi var beð-
inn um að skýra áætlanir um upp-
byggingu Listasafns Gerðar
Helgadóttur:
10 óra óœtlun
„Það var sl. vor sem við gerð-
um samning við Snorra Helga-
son, eina eftirlifandi systkini
Gerðar, um sérstaka fram-
kvæmdaáætlun varðandi upp-
byggingu safnsins. Nú er allri
teiknivinnu lokið og framkvæmd-
ir við grunn byggingarinnar hafn-
ar. Botnplata og leiðslukjallari
verður tilbúið í vetur og á næsta
ári munum við steypa upp 1. hæð
hússins. 2. hæðin verður steypt
upp ári síðar og árið 1989-90 á ytri
frágangi við húsið að verða lokið.
Síðan mun haldið sleitulaust
áfram við þetta mikla verk og ætl-
un okkar er að öllum fram-
kvæmdum verði lokið árið 1997.
Hér er þvf um 10 ára áætlun að
ræða, áætlun sem við teljum
raunhæfa. Bæjaryfirvöld í Kópa-
vogi eru staðráðin í því að halda
sér innan þessa ramma því að
okkar mati er til mikils að vinna“.
„Kópavogsbúar eru ákaflega
stoltir af þessari miklu gjöf sem
erfingjar Gerðar Helgadóttur á-
nöfnuðu Lista- og menningar-
sjóði til varðveislu. Það er svo um
Gerði, eins og marga íslenska
listamenn, sem hasla sér völl er-
lendis, að við gerum okkur
kannski ekki fulla grein fyrir því
hve stórkostlegur listamaður hún
var. Þegar hún lést langt um aldur
fram var hún komin í röð fremstu
myndhöggvara í heimi og hér á
Sunnudagur ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
íslandi er mörg verka hennar að
finna. Okkur þykir að sjálfsögðu
vænst um gluggana í Kópavogs-
kirkju, sem Gerður lagði sig alla
fram um að gera sem best úr
garði“, sagði Kristján.
Á 2. þúsund verk
Samtals eru verk Gerðar í
varðveislu Lista- og menningar-
sjóðs á 2. þúsund talsins. í skipu-
Iagsskrá Listasafns Gerðar
Helgadóttur skuldbindur stjórn
þess sig m.a. til að verja nokkrum
fjármunum til þess að gera verk
listamannsins sýningarhæf, þ.e.
með innrömmun mynda, frá-
gangi tillagna o.fl. Bæjarsjóður
mun aðstoða við þetta verk er
miði að því að gefa sem flestum
tækifæri til að kynna sér verk
listamannsins.
„Kópavogskaupstaður er ungt
bæjarfélag, settur á laggirnar árið
1955. Þrátt fyrir öra uppbyggingu
og harðbýli fátæks fólks, var
ákveðið að stofna Lista- og
menningarsjóð á 10 ára afmælinu
árið 1965. 1/2 prósent útsvars-
tekna rennur í þennan sjóð og
fyrir þetta framtak hefur bæjarfé-
laginu tekist að kaupa hundruð
listaverka eftir alla helstu lista-
menn þjóðarinnar. Hlutverk
Listasafns Gerðar Helgadóttur
verður m.a. að koma þessum
verkum á framfæri en verk henn-
ar og hjónanna Barböru og
Magnúsar Á. Árnasonar munu
skipa þar fyrirrúm", sagði Kristj-
án Guðmundsson að síðustu.
Hið nýja listasafn Kópavogs-
búa er hannað af Benjamín
Magnússyni arkitekt og er hið
glæsilegasta. Það mun rísa utan í
Borgarholtinu austan Kópavogs-
kirkju og þar fyrir utan er gert ráð
fyrir höggmyndagarði þar sem
stækkuð verk Gerðar Helgadótt-
ur munu setja svip á bæinn.
/*ja\ Heilsugæslustöð
á Djúpavogi
Tilboð óskast í að reisa og gera fokhelda heilsu-
gæslustöð á Djúpavogi. Auk þess skal ganga að
mestu frá húsinu að utan og vinna lóð að hluta.
Húsið er á einni hæð, 337 m2 að grunnfleti.
Verkinu skal að fullu lokið 30. október 1987.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borg-
artúni 7, Reykjavík, gegn 5.000 kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtudaginn
18. desember 1986, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Borgartúni 7, sími 26844
''//'S/M
Útboð
VEGAGERÐIN
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í verkið:
Norðurlandsvegur um Sigríðarstaði í Ljósa-
vatnsskarði
(Lengd 2,8 km, fylling 37.000 m3, burðarlag
17.000 m3).
Verki skal lokið eigi síðar en 15. ágúst 1987.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
Akureyri og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og-
með 24. nóv. n.k.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 8. desember 1986.
Vegamálastjóri