Þjóðviljinn - 23.11.1986, Qupperneq 16
Leggjum allt
af mörkum!
Frásögn af ráðstefnu samtaka kvenna á
vinnumarkaði. Ásdís Steingrímsdóttir:
Stofnað til ráðstefnu vegna aðgerðarleysis
verkalýðshreyfingarinnar
Það var stofnað til ráðstefn-
unnar vegna aðgerðarleysis
verkalýðshreyfingarinnar og með
það markmið að hafa áhrif á þró-
un mála í komandi kjarasamning-
um, sagði Ásdís Steingrímsdóttir
talsmaður Samtaka kvenna á
vinnumarkaði um ráðstefnu sem
samtökin stóðu fyrir um síðustu
helgi undir yfirskriftinni kröfur
kvenna í komandi kjarasamning-
Ráðstefnuna sóttu konur úr
hinum ýmsu stéttarfélögum, en
11 fulltrúar þeirra fluttu stuttar
framsögur áður en ráðstefnugest-
ir ræddu málin í hópum og al-
mennum umræðum. Eins og
fram hefur komið í fjölmiðlum
leiddu umræðurnar til ályktunar
þar sem skýrar kröfur eru settar
fram: krafan um 36 þúsund króna
lágmarkslaun fyrir dagvinnu og
krafan um óskertar vísitölubæt-
ur.
í framsöguræðunum brugðu
fulltrúarnir upp mynd af því á-
standi sem konur í stéttarfélögum
þeirra búa við. í þessu sambandi
var brugðið upp mynd af al-
mennum launakjörum innan
stéttarinnar og því faunamisrétti
sem ríkir á milli karla og kvenna
en auk þess var talað um hin sér-
stöku vandamála sem blasa við
hverri starfsgrein. Dæmin sem
tekin voru um launamisrétti karla
og kvenna á sama vinnustað
sanna enn einu sinni að það
launamisrétti heyrir ekki sögunni
til. Kristín Friðriksdóttir verka-
kona í kjötvinnslu sagði t.d. frá
unga manninum sem fyrir stuttu
var ráðinn til starfa í þeirri 13
manna deild sem hún vinnur í og
sem reynslulaus fór á byrjunar-
laun sem voru rúmum 4 þúsund
krónum hærri en þau laun sem
hún var á með með 4urra ára
starfsreynslu. Um svipað leyti og
pilturinn var ráðinn voru tvær
stúlkur ráðnar en á meðan þeirra
byrjunarlaun voru rúmar 20 þús-
und krónur voru byrjunarlaun
unga mannsins 28 þúsund krón-
ur! Svipaða sögu sagði Lilja
Eyþórsdóttir bankamaður en í
máli hennar kom fram að sam-
kvæmt könnunum sem gerðar
hafa verið í bönkum er launa-
munur karla og kvenna þar tæp
14% þegar frá er dregin starfs-
reynsla, menntun og aðrir þættir
sem hugsanlega geta skýrt
launamuninn.
Laufey Jakobsdóttir (í ræðustól) segir frá stöðu ellilífeyrisþega á ráðstefnunni. Ljósm. KGA.
Hver starfsgrein hefur sín sér-
stöðuvandamál og voru þau að
sjálfsögðu tíunduð í framsögun-
um. Vilborg Þorsteinsdóttir for-
maður Snótar í Vestmannaeyjum
sagði frá þeim vanda sem fisk-
vinnslukonur í Vestmannaeyjum
hafa í auknum mæli orðið fyrir
vegna gámaflutninganna. Þeir
hafa haft þau áhrif að minna hrá-
efni kemur í frystihúsin, og einn
og einn starfsdagur dettur út hjá
konunum. Þetta hefur veruleg
áhrif á tekjurnar jafnvel þó að um
fastalaun sé að ræða því bónus-
inn, sem er lyftistöngin á hin
smánarlegu föstu laun, minnkar
þar með þegar á heildina er litið
sem og yfirvinnan. Þá er hráefnið
sem kemur í húsin verra en það
sem flutt er út en það hefur jafn-
LÖGGILTIR EHDURSKOÐENDOR
VIÐSKIPTAFRÆÐINGAR
HAGFRÆÐINGAR
LÖGFRÆÐINGAR
REKSTRARVERKFRÆÐINGAR
REKSTRARTÆKNIFRÆÐINGAR
Með lögum nr. 12/1986 var ríkisendurskoðun flutt um 5etí stjórnskipun
landsins. Frá 1. janúar 1987 mun stofnunin starfa á vegum Alþingis og er frá
þeim tíma óháð ráðuneytum og öðrum handhöfum framkvæmdavaldsins.
Auk hefðbundinnar endurskoðunar á sviði reikningsskila og að reikningar
séu T samræmi við heimildir fjárlaga og annarra laga verður T auknum mæli
lögð áhersla á svonefnda stjórnsýsluendurskoðun, með könnunum á nýtingu
og meðferð rTkisfjár.
Fyrirkomulag þetta krefst breyttra starfshátta og starfsmanna með sér-
þekkingu á ýmsum sviðum opinberrar stjórnsýslu og atvinnumála þjóðarinnar.
RTkisendurskoðun er á höttunum eftir starfsmönnum sem hafa þekkingu og
getu til að takast á hendur verkefni af þessu tagi.
Hefur þú áhuga á
► að geta bent á hvað úrskeiðis fer T rekstri ríkisins og gera
tillögur um úrbætur?
► að taka þáttT nýjum vinnubrögðum og móta þau?
Þá stendur þér til boða
► að starfa að meiri háttar verkefnum þar sem skyggnst er um
gervallt stjórnkerfi ríkisins.
► að fá útrás fyrir framtakssemi og frumkvæði við lausn
óþrjótandi verkefna.
Ef áhugi er fyrir hendi, sendið þá skriflegar upplýsingar um æviferilsatriði
(nafn, aldur, menntun og fyrri störf) til ríkisendurskoðanda, og veitir hann allar
nánari upplýsingar.
RÍKISEHDURSKOÐUN
Laugavegi 105 - sími 22160 - 150 Reykjavík
framt áhrif á bónusinn, en hann
er byggður á stöðlum þar sem
gert er ráð fyrir blönduðu hrá-
efni.
Bergljót Guðmundsdóttir
fóstra sagði í sinni framsögu frá
þeim vanda sem steðjaði að
hennar stétt vegna þeirrar tillögu
sem lögð hefur verið fram og
rædd á Alþingi um skóla til hliðar
við Fóstruskólann sem bjóði
uppá styttra nám en það sem er
nú er. Með þessu móti er hægt að
fá fólk til starfans sem hægt er að
borga ver en fóstrum en fóstrur
óttast augljóslega að nái þessi til-
laga í gegn að ganga hafi hún
áhrif á launastöðu fóstra sem nú
þegar er í slíku hörmungará-
standi að fóstrur flýja í hópum í
önnur betur launuð störf. Þá er
að óttast að fari rekstur dagvist-
arstofnana í auknum mæli í hend-
ur einkaaðila er hætta á því að
umönnun barna verði mest eða
að öllu leyti í höndum „nám-
skeiðsfólksins“. Meðal vanda-
mála annarra hópa sem ráðstefn-
ugestir fengu innsýn í eru vanda-
mál ellilífeyrisþega, en Laufey
Jakobsdóttir gerði grein fyrir
þeim málum.
Hvað baráttuna framundan
áhrærir, sagði Bjamfríður Leós-
dóttir frá samningunum sem
gerðir vom á Akranesi nýverið,
en þar fær ekkert ófaglært starfs-
fólk sjúkrahússins undir 35 þús-
und krónur í lágmarksfastalaun.
Svipaðir samningar voru gerðir í
Vestmannaeyjum í kjölfar Akr-
anessamninganna. í samningun-
um sem gerðir voru á Akranesi
fékkst það jafnframt framgengt
að starfsfólki er, fyrsta árið eftir
að það hættir störfum, greidd full
laun. Lögð var áhersla á fordæm-
isgildi þessara samninga og mikil-
vægi þess að þeir verði notaðir
sem slíkir í komandi samningum.
Eins og fram kemur í ályktun ráð-
stefnunnar þá hlýtur áherslan í
næstu samningum að vera á
hækkun lægstu launataxtanna.
„Við þurfum ekki að hafa áhyggj-
ur af hinum, “ sagði Bima Þórðar-
dóttir. En til þess að kröfurnar
um 36 þúsund króna lágmarks-
laun og óskertar vísitölubætur
geti orðið að kröfum með slag-
þunga og áhrifum þurfa konur,
hver á sínum vinnustað og í al-
mennri umræðu, að leggja allt af
mörkum. Tíminn er naumur og
mannsæmandi líf er í húfi.
-K.Ól.
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkraliðar
Sjúkrahúsið Patreksfirði óskar að ráða hjúkrun-
arfræðinga og sjúkraliða nú þegar, eða eftir nán-
ara samkomulagi.
Allar upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
94-1110.
Hjúkrunarforstjóri
A
Umsjónarfóstra
Laus er til umsóknar staða umsjónarfóstru að
Félagsmálastofnun Kópavogs.
Meginverksvið er fólgið í eftirliti og umsjón með
daggæslu í heimahúsum.
Staðan veitist frá 1. janúar 1987.
Umsóknarfrestur er til 8. desember n.k.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á Félagsmála-
stofnun Digranesvegi 12.
Nánari upplýsingar veitir dagvistarfulltrúi í síma
45700.
Félagsmálastjóri