Þjóðviljinn - 23.11.1986, Side 18
KROSSGATA
Nr. 544
T~ T~ T~ y— W 9? 3- 1 b Y~~ 9 )0 09 11
)Z )4 )2 )0 99 jí>- )& /7- )8 (p 991 11 )°> 7T~
2o 2l T í>j (p 22 10 K? 3 IO (, ý 23 T~
) 24 2í>' (0 y 2v T~ )0 99 24 4 T 22 )ö
/0 9? i 23 (p JO 24 99 2/ 24 )y )4 99 24
n Vb ié 99 21 T~ )> W~ )i (p 9? 14 T~ 2J T
21 (p 24- 99 ;? 20 24- )8 b> 09 )4 $0 2Í
$ (p 2'i 8 WK 99 /f )0 21 )É (p 9? 1 18
i s z/ % 7 23 99 ) >4 8 ) 1 99
1 H 99 ý\ T~ 99 3 2$ )8 )4 23 ? u>
v J8 W § & 9? 25 /4 )b )Ö 9? W~ 20 t) 8
1 ZD b T 3 22 22 V 3/ )b 8 T~ )V (9
u 2 4 )0 7- 7- 99 )# Zz 92 )4 b J b 24 99
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá karl-
mannsnafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til
Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík merkt: „Krossgáta nr. 544“.
Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinnings-
hafa.
1 23 5 JD 24 2$ 3
Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því að með því eru
gefnir stafir í allmörgum oröum. Það eru þess vegna eðlilegustu vinnubrögðin
að setja þessa stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er
rétt að taka fram, að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á
grönnum sérhljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt.
Herborg Gestsdóttir, Skeiðar-
vogi 109, Reykjavík, hlaut verð-
laun fyrir krossgátu nr. 541. Lykil-
orðið var Strandhöfn. Hún fær
bókina Nótt í lífi Klöru Sig. eftir
Stefaníu Þorgrímsdóttur, senda
heim.
Verðlaunin fyrir krossgátuna
þessa vikuna ér myndskreytt út-
gáfa af Galdrakarlinum frá Oz,
eftir L. Frank Baum, sem Fjölvi
gaf út.
SKAK
BRIDGE
Deildakeppnin
Fyrri hluti Deildarkeppni S.í. fór
fram í Reykjavíkdagana 7.-9.
nóvember. Alls sendu 29 félög
sveitirtil keppni og varkeppt í
þremurdeildum, átta lið (fyrstu
deild, átta í annarri og 13 í þriðju.
Keppnin var nokkuð jöfn og enn
hefur ekkert lið náð afgerandi for-
ystu þannig að lokaröðunin
ræðst ekki fyrr en á vordögunum
en þáfersíðari keppnislotan
fram.
Deildakeppin er eitthvert
skemmtilegasta skákmót sem
haldið er hér á landi. Þar mæta til
leiks skákmenn af landinu öllu,
þannig að menn frá öllum lands-
hornum blanda geði yfir taflinu.
Aldursdreifingin er líka harla
ójöfn, rígfullorðnir menn og
óharðnaðir unglingar etja kappi
og sinna ekki um kynslóðabil og
ólíkar kringumstæður. Það eina
sem á skyggir þessa fjölbreytni er
að fáar konur eru með. Þó var
Guðlaug Þorsteinsdóttir í liði
Kópavogs og reyndist fengsæl að
venju.
Margir litríkir skákmenn sækja
mótið. Meðal þeirra er Sigurður
Danfelsson tónlistarkennari á
Blönduósi. Hann teflir jafnan af
miklum látum, fléttur og flækjur
magnast upp í hverri skák og allt í
einu er andstæðingurinn mát. í
annarri umferð kom þessi staða
upp í viðureign Húnvetninga og
Kópavogsmanna:
Hvítt: Sigurður Daníelsson
Svart: Árni Björn Jónasson
Þeims- sem framhjá gengu og
litu á"stöðuna varð að orði að lík-
legá væri eitthvað að Sigga Dan.
Komið er út í endatafl, staðan
ívið betri hjá hvít sem síðustu
leiki hefur sótt að peði svarts á
a7. Það væri svo sem ágætt að
vinna a-peðið því hvítu frelsingj-
arnir á drottningarvæng myndu
tryggja sigur í endatafli - en Siggi
Dan. teflir bara ekki þannig. Sú
varð heldur ekki raunin. Svartur
lék í 28. leik a7-a6 (til að bjarga
peðinu) og þá kom:
29. Rh5-Bh8
30. Hh4-...
Nú er hótunin 31. Rf6+ og 32.
Hxh6 mát. Engin vörn er til.
30. ...-Hb4
31. Rf6+
Svartur gafst upp. Eina vörnin
virðist vera 29. ... fS en þá vinnur
hvítur að minnsta kosti peð með
betri stöðu, nema Sigurði hefði
tekist að finna eitthvert annað
mát. Sannarlega óvænt og snögg
En fleiri tefldu skemmtilega og
er næsta dæmi sótt í viðureign
Akureyringa og Reykvíkinga en
þar eignast skákmenn óragir við
flækjur og hættur.
Hvítt: Gylfi Þórhalisson
Svart: Sævar Bjarnason
1. e4-e5
2. Rf3-Rc6
3. Bb5-g6
4. 0-0-Bg7
5. c3-a6
6. Ba4-d6
7. h3-Rg-e7
8. d4-0-0
9. d5-Rb8
10. c4-c5
Byrjunin er blendingur af
Spánskum leik og Kóngs-
indverja. Hvítur undirbýr að-
gerðir á b-línunni en svartur
kóngsmegin.
11. a3-h6
12. Rc3-Rd7
13. b4-b6
14. Bxd7-Bxd7
15. bxc5-bxc5
16. Hbl-f5
17. exf5 ...
Svartur fær gott hald á mið-
borðinu eftir þessi skipti.
17. Rf-el og f2-f3 er öruggara.
17. ...-gxf5
18. Rel-Rg6
19. f4-e4
20. Re3-Hb8
21. Bd2-Ba4
22. Rc2-Hb3
23. Dcl-Db6
Hvítur er á skipulögðu undan-
haldi en svartur leggur undir sig
línur og reiti. Hann hefur þó ekk-
ert áþreifanlegt ennþá.
24. Re3-Bb2
25. Del-Kh7
26. g4-fxg4
27. hxg4-Bd4
28. Rxd4-cxd4
Hvítur varð að drepa biskup-
inn en nú fær svartur sterk frípeð
á miðju borðinu.
29. Rf5-e3
30. Bb4-Hxbl
31. Dxbl-d3
Staðan verðskuldar stöðu-
mynd því hún er svo flókin og
skemmtileg. Það er ótrúlegt að
hvítur sleppi lifandi úr þessu en
Gylfi er seigur í vörninni.
32. Bxd6-Dxbl
33. Hxbl-d2
34. Rxe3-He8
35. Kf2-Hxe3
36. Kxe3-dlD
37. Hxdl-Bxdl
38. g5-hxg5
Hér er 38. ... h5 of áhættusamt
fyrir svart. Endataflið er nú jafnt
en ekki er að sjá hvar svartur
hefði átt að leika betur.
39. fxg5-Kg7
40. c5-Kf7
41. Kd4-Bf3
42. c6-Ke8
43. Kc5-Kd8
44. a4-Bg2
45. a5-Kc8
46. Bg3-Re7
47. d6-Rxc6
48. g6-Rd8
49. Kb6-Re6
50. Kxa6-Be4
51. Kb5
og hér var sæst á jafntefli.
Góð þótttaka
57 pör mættu til leiks í undanrásir
Reykjavíkurmótsins í tvímennings-
keppni, sem hófust sl. fimmtudag.
Spilað er eftir Mitchell-
fyrirkomulagi, alls þrjár umferðir. 19
efstu pörin komast svo í úrslit.
Eftir 1. kvöldið er staða efstu para
bessi: stig
1. Ingvar Hauksson -
Sverris Kristinsson 523
2. Gissur Ingólfsson -
Gísli Steingrímsson 518
3. Þorlákur Jónsson -
Þórarinn Sigþórsson 516
4. Matthías Þorvaldsson -
Júlíus Sigurjónsson 512
5. Hermann Lárusson -
Ólafur Lárusson 505
6. Magnús Ólafsson -
Páll Valdimarsson 503
7. -8. Steingrímur Steingrímsson -
Örn Scheving 495
7.-8. Björn Eysteinsson -
Guðmundur Sv. Hermannsson 495
9. Guðlaugur R. Jóhannsson -
Örn Amþórssoíi 490
10. Hörður Arnþórsson -
Jón Hjaltason 478
11. Hrólfur Hjaltason -
Oddur Hjaltason 471
12. Kristján Blöndal -
Jónas P. Erlingsson 467
13. Murat Serdar -
Þorbergur Ólafsson 464
14. Ásgeir P. Ásbjörnsson -
Aðalsteinn Jörgensen 456
15. Hjálmar S. Pálsson -
Jörundur Þórðarson 451
16. Gunnar Karl Guðmundsson -
Þórður Jónsson 450
Undanrásum verður framhaldið
laugardaginn 29. nóvember.
ÓLAFUR
LÁRUSSON
Portoroz-stórmótið
í gærkvöldi hófst á Loftleiðum
Opið stórmót á vegum Bridgesam-
bands íslands og Samvinnuferða/
Landsýnar. Tilefnið er koma ítalska
bridgesnillingsins Giorgio Bella-
donna hingað til iands.
30 para úrvalskeppni var sett upp.
Spilaður er barometer með tveimur
spilum milli para, allir v/alla. Áætlað
er að keppni ljúki um kl. 17.30 í dag.
Á morgun er svo áætlað að setja upp
sýningarleik með Belladonna, þar
sem þátttakendur hafa verið orðaðir
m.a. Davíð Oddsson, Matthías
Mathiesen, Halldór Ásgrímsson og
Jón Steinar Gunnlaugsson auk ann-
arra. Sá leikur myndi verða spilaður
að Höfða. (Sjá augl.).
Ekki þarf frekar að tfunda um það,
að koma Belladonna til íslands sýnir,
að við erum á góðri leið með að gera
landið okkar að viðurkenndum aðila,
í öllum samskiptum, hvort sem um er
að ræða stjórnmál eða íþróttir, listir
eða önnur félagsleg samskipti.
Eftir fjórar umferðir í Akur-
eyrarmótinu í sveitakeppni, er sveit
Grettis Frimannssonar með 98 stig af
100 mögulegum. (Með Gretti eru
engir smákallar, þeir Frímann bróðir
hans, Pétur Guðjóns og Sefán Ragn-
arsson).
Og hjá kvenfélaginu er ekkert lát á
þeim Gunnþórunni Erlingsdóttur og
Ingu Bernburg. Þær eru með 422 stig
eftir 5 kvöld í aðaltvímenningskeppn-
inni, meðan þær Alda Hansen og
Nanna Ágústsdóttir, sem eru 12. sæti,
hafa 235 stig. Á spilakvöldum þar
hefur félagið boðið upp á leiðsögn
(fyrir utan aðalkeppnina) þar sem
leiðbeinendur hafa verið þeir ísak
Örn Sigurðsson og Júlíus Sigurjóns-
son. Mættu fleiri félög taka slíka
framkvæmd til fyrirmyndar.
Og á Tálknafírði stendur yfir ein-
menningskeppni. Eftir fyrsta kvöldið
eru í efstu sætum þar: Ólafur
Magnússon, Brynjar Olgeirsson og
Ævar Jónasson.
Sigurður Þorvaldsson varð ein-
menningsmeistari félagsins á
Hvammstanga, eftir mikla keppni við
Jóhannes Guðmannsson. Sú keppni
var jafnframt firmakeppni og sigur-
vegari þar varð Drífa h.f. (spilari Sig-
urður Þorvaldsson).
Guðmundur Pálsson og Pálmi
Kristmannsson urðu aðaltvímenn-
ingsmeistarar félagsins á Fljótsdals-
héraði. í 2. sæti komu svo Björn Ág-
ústsson og Ottó Jónsson.
Sveit Sigfúsar Þórðarsonar á Sel-
fossi, varð Suðurlandsmeistari í
keppni, sem spiluð var í
Vestmannaeyjum sl. helgi. Með hon-
um voru þeir Gunnar Þórðarson,
Kristján Már Gunnarsson og Guðjón
Sigurðsson. f 2. sæti varð svo sveit
Ólafs Týs Guðjónssonar og í 3. sæti
sveit Brynjólfs Gestssonar (með hon-
um voru m.a. Aðalsteinn Jörgensen
og Valgarð Blöndal, videókappar frá
Selfossi).
Þriðja ferðaskrifstofan hefur nú
bæst við í hóp úrvalssveitanna okkar.
Eru það Atlantik-menn sem hafa yfir-
tekið sveit Stefáns Pálssonar, en með
Stefáni eru Rúnar Magn., Ragnar
Magn., Valgarð og Kristján Blöndal
og Jónas P. Erlingson. Eru fleiri á
leiðinni?
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 23. nóvember 1986