Þjóðviljinn - 23.11.1986, Qupperneq 19
Forsetakosningarnar 1988 þegar farnar að setja svip sinn á
bandaríska þjóðmálaumrœðu og margir þykjast kallaðir til
embœttisins
Þó forsetakosningar veröi
ekki í Bandaríkjunum fyrr en
1988 er útnefningaslagurinn
þegar hafinn og í fyrsta skipti
síðan 1968 veröur ekki sitj-
andi forseti í framboði. Strax
og úrslit þingkosninganna
urðu Ijós fóru pólitískir spá-
menn að skoða spilin.
Pað hefur hingað til gefist illa
að draga ályktanir af úrslitum
þingkosninga fyrir forsetakosn-
ingarnar, hinsvegar þykja úrslitin
það afdráttarlaus núna að þó
hljóti að gefa einhverja vísbend-
ingu um dvínandi fylgi repúblik-
ana. Þá hafa vopnasölumál Reag-
ans til íran enn frekar dregið úr
trausti Bandaríkjamanna á
stefnu hans.
Hér á eftir verður greint frá
nokkrum þeirra sem líklegir
þykja til þátttöku í útnefninga-
slagnum.
George Bush
Varaforsetinn þykir lang lík-
legasta framboðsefni repúblik-
ana. Hingað til hefur hann verið
þægur meðreiðarsveinn forsetans
og talið það nokkuð vænlega leið
í framboð, þrátt fyrir að helstu
ráðgjafar hans hafi ítrekað sagt
honum að hann verði að markera
sjálfan sig og skoðanir sínar bet-
ur. Niðurstaða þingkosninganna
sýndi líka svart á hvítu að vin-
sældir Reagans smita ekki út frá
sér, hvorki á nánustu samstarfs-
menn hans né flokksbræður og
systur.
Bush gerir sér nú grein fyrir
þessu en eftir er að sjá hvernig
hann ætlar að losna undan hlut-
verki meðreiðarsveinsins.
Bush er sterkur í Texas,
heimafylki sínu, en þar studdi
hann William Clements í ríkis-
stjórastólinn. Þá á hann mikið
fylgi í Flórída og í Iowa. Hinsveg-
ar er stuðningur við hann í land-
búnaðarhéruðunum mjög lítill.
Ástæðan fyrir því er landbúnað-
arpólitík Reaganstjórnarinnar,
sem hefur komið mjög harkalega
niður á bændum.
Bob Dole
Helsti keppinautur Bush um
útnefningu repúblikana er Ro-
bert Dole. Hann var varaforseta-
efni repúblikana 1976. Hann var
mikið í sviðsljósinu sem leiðtogi
meirihlutans í öldungadeildinni
en nú þegar repúblikanar hafa
misst meirihluta mun ekki bera
jafn mikið á honum. Hinsvegar
er bent á að sú staða sem komin
er upp gefi honum frjálsari hend-
ur til að berjast fyrir útnefning-
unni.
Jack Kemp
Þriðji repúblikaninn sem
nefndur er til fyrrverandi fótbolt-
ahetjan Jack Kemp. Hann hefur
verið mjög dyggur stuðnings-
maður Reagan-stjórnarinnar og
talinn manna líklegastur til að
geta hleypt nýju blóði í Reagan-
byltinguna svokölluðu.
Gary Hart
Hjá demókrötum er talið að nú
sé röðin loksins komin að Gary
Hart. Hann varð að láta í minni
pokann fyrir Mondale í slagnum
um útnefningu 1984. Hann ákvað
að gefa ekki kost á sér í þingkosn-
ingunum til að geta einbeitt sér
betur að útnefningarslagnum. Er
talið að hann hafi leikið af sér
með því, þar sem hann getur ekki
baðað sig í sigurljómanum einsog
þingmenn demókrata gera nú.
Þrátt fyrir það hefur hann mjög
vel smurða kosningavél frá fyrri
tilraun sinni.
Sá er þó ljóður á að sá kosning-
aslagur kostaði hann stórar fjár-
hæðir og skuldar hann enn tvær
og hálfa milljón dollara frá þeirri
herferð. Pá er bent á að þegar
Hart kom fram á sjónarsviðið var
hann fulltrúi nýrra hugmynda og
það var einkum þessi nýi tónn
hans sem dró athyglina að hon-
um, sá tónn er ekki nýr lengur. Er
allt eins búist við að demókratar
séu á höttunum eftir einhverjum
öðrum, einhverjum sem er öðru
vísi.
Mario Cuomo
Einhverjum einsog Mario Cu-
omo, fylkisstjóra New York.
Yfirburðasigur hans í fylkisstjór-
akosningunum hafa aukið líkurn-
ar á því að hann muni blanda sér í
slaginn um útnefningu demó-
krata. Cuomo hefur það þrennt
til að bera, sem þarf til að eygja
von í slagnum, hann er lands-
þekktur, hefur áunnið sér virð-
ingu á heimavelli og er sannfær-
andi stjórnmálamaður. í fjórða
lagi er hann vel staddur fjárhags-
lega því kosningasjóður hans er
jákvæður um tvær milljónir doll-
ara.
Honum er einkum legið á hálsi
að vera of framagjarn og styðja
ekki meðframbjóðendur sína
sem skyldi. í kosningunum sem
eru nýafstaðnar studdi hann ekki
demókratann Mark Green í New
York og hafa flokksbræður hans
haldið því fram að hann hafi gert
friðarsáttmála við Alfonse D‘A-
mato. Hafa flokksbræður hans
jafnvel líkt honum við frjáls-
lyndan Nixon.
Pá er bent á að Cuomo hafi
enga reynslu af utanríkismálum
en hann lætur sér slíka gagnrýni í
léttu rúmi liggja, enda ekkert gef-
ið uppi um það hvort hann ætli
sér í slaginn. Efast reyndar ýmsir
um það.
Jesse Jackson
Þriðji demókratinn sem talið
er að geti blandað sér í slaginn er
Jesse Jackson. Fylgi Jacksons er
einkum meðal blökkumanna, en
það fylgi er mjög öruggt. Kosn-
ingavél hans er smurð í 40 fylkj-
um Bandaríkjanna og hersveit
sjálfboðaliða í startholunum um
leið og hann gefur kost á sér. Þó
er ekki búist við að hann taki af
skarið fyrr en í upphafi kosninga-
ársins. Jesse Jacksons á mikið
fylgi en hvort það nægir til að
gera hann að frambjóðanda dem-
ókrata efast flestir um, þó er of
snemmt að útiloka það ef stefnir í
harðan slag milli Hart og Cuomo.
Margir eru kallaðir
En fleiri eru kallaðir þó aðeins
verði tveir útvaldir. Hjá repú-
blikunum heyrast nöfn þeirra
Jack Kemp og Paul Laxalt, þó
hvorugur sé talinn til stórræða.
Demókratar eiga einnig sæg af
mönnum sem áhuga hafa á Hvíta
húsinu. Einn þeirra er Joseph Bi-
den, sem hefur á sínum snærum
ráðgjafa Mondale, fyrrverandi
frambjóðanda demókrata. Þá
hefur nafn Bill Bradley, fyrrver-
andi hornaboltastjörnu heyrst
nefnt.
Framundan eru ár harðrar
kosningabaráttu hjá báðum
flokkum og verður vafalaust
spennandi að fylgjast með henni,
enda skipta forsetakosningar í
Bandaríkjunum mjög miklu máli
fyrir framþróun heimsmálanna.
-Sáf/Newsweek
VIÐFLYTJUM...
SKRIFSTOFU OKKAR AÐ
UNDARGÖTU 9 A
Mánudaginn 24. nóvember opnum viö sölu-
deild, farmskrárdeild og afgreiðslu í auknu
og endurbættu húsnæöi aö Lindargötu 9A.
Önnur skrifstofustarfsemi flytur í næsta
mánuði.
Viö viljum biöja viöskiptavini okkar velvirð-
ingar á hugsanlegri röskun, á meðan flutn-
jngunum stendur.
í hinu nýja húsnæöi ætlum við enn aö bæta
þjónustuna.
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
LINDARGÖTU 9A • SÍMI 28200
Sunnudagur 23. nóvember T986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19
J