Þjóðviljinn - 23.11.1986, Side 20
r
Fleira er nýjung en geimskip...
Andrej T reúmov er skólapiltur f rá
Gorki og hann var 16 ára þegar
hann geröi sína fyrstu uppfinn-
ingu. Búnaður, sem hann fann
uppvarinnleiddurfyrirári ísjón-
varpsframleiðslu og gerði kleift
að minnka eyðslu Ijósmálma og
raforku verulega. Þessi nýjung
sparar yfir 10.000 rúblur á ári.
Andrej hefur um fimm ára
skeið gengið í skóla í frítíma sín-
um og er skólinn rekinn á vegum
Félags uppfinningamanna og
hagræðingarsérfræðinga í So-
vétríkjunum, en íþvífélagi eru yfir
13 milljónir félaga á ýmsum aldri
og í ýmsum starfsgreinum.
Fyrir tíu árum var þetta félag
aðeins fyrir „fullorðna“. Skóla-
börn, sem unnu að tæknilegum
uppfinningum í klúbbum í skól-
anum eða öðrum klúbbum, fengu
ekki inngöngu í FUH. En þegar
þörf varð á að herða á vísinda- og
tækniframförum, jókst jafnframt
þörfin á að fjölga þeim sem voru
að vinna að uppfinningum og til-
raunum.
Þess vegna var byrjað í upphafi
þessa áratugs að skipuleggja
starfsemi í skólum, þar sem eldri-
bekkingar hljóta starfsmenntun.
Komið var á klúbbum á tækni-
legu sviði, þar sem krakkamir
hlutu ekki aðeins tilsögn, en gátu
gert tilraunir með þekkingu sína
og kunnáttu.
Georgi Stoljar, leiðbeinandi í
Tutajevsk telur að það sé mjög
hollt fyrir byrjendur að skoða
uppfinningar. Margir unglingar
haldi að uppfinningar séu nýtt
geimskip eða ný tegund af bif-
reið. Uppfinning geti verið miklu
minni og einfaldari en þetta, en
verið ákaflega mikilvæg engu að
síður.
Hann sagði okkur frá því að
krakkar sem væru að byrja á
þessu sviði, hefðu mestan áhuga
á einhverju sem eldri félagar
þeirra hefðu fundið upp: t.d.
sjálfvirkum búnaði til að slökkva
Rússnesk
ameríkan-
sering
Ameríkanseríngin er lævís og
lipur og smeygir sér inn um
minnstu smugur. Fyrir um ára-
tug lak pepsí austur fyrir járn-
tjald og svalaði þyrstum Rússum.
Nú loksins virðist útlit fyrir að
þeir fái rétt viðbit með drykkn-
um, því McDonald stendur í
samningsviðræðum við Sovétrik-
in um að fá að setja upp hamborg-
arakeðju í landinu. Þá stendur
önnur skyndibitakeðja í svipuð-
um samningsviðræðum, nefnist
hún Pizza Hut.
Pizza Hut vonast til að geta
opnað um eitt hundrað pitzukofa.
í Sovétríkjunum á næsta ári. Yfir-
völd í Sovétríkjunum virðast
ánægð með þessa þróun, því ný-
lega birtist sjónvarpsþáttur
eystra, þar sem veitingastaðir
McDonald á fimmta stræti í New
York voru heimsóttir. í þættinum
var farið mjög fögrum orðum um
staðina, talað um þrifnað og sagt
að hamborgararnir væru heitir og
bragðgóðir auk þess sem frönsku
kartöflurnar væru lostæti.
En Rússar hafa ekki bara
áhuga á að kýla vömbina á amer-
íska vísu heldur sýna þeir því
einnig áhuga að menningin taki
mið af því sem hæst ber í Nýja
heiminum. Nú hyggjast þeir fara
að veita sín eigin Óskarsverðlaun
fyrir kvikmyndir. Félag kvik-
myndagerðarmanna hefur
ákveðið að veita árlega kvik-
myndaverðlaun fyrir hin ýmsu
afrek innan kvikmyndagerðar í
Sovétríkjunum. Verðlaunaaf-
hendingunni á svo að sjónvarpa
beint einsog Óskarsverðlaunaaf-
hendingunni.
og kveikja ljós eða tæki til að
fylgjast með því hvort slökkvarar
hitnuðu um of. Þessar uppfinn-
ingar eru nú notaðar í olíu-
vinnslustöðunni á staðnum.
Það fyrirtæki sér um reksturinn
á uppfinningadeildinni í skólan-
um. Það hefur gert samning við
FUH um að fyrirtækið fjármagni
útgjöld og sjái unglingunum fyrir
tækjum og efni. Starfsmenn olíu-
vinnslustöðvarinnar sjá um
fræðilega tilsögn í deildinni. Með
aðstoð þeirra læra krakkarnir að
skipuleggja uppfinningastarfið
og hagræðingu, að gera tilraunir
og leita að villum og margt fleira.
í verklegum tímum fá þau
Félag uppfinningamanna sækir nú inn í sovéska skóla.
fyrstu viðfangsefnin, sem eru
ekki mjög flókin. Smátt og smátt
eru verkefnin gerð þyngri og
þyngri. Það eru aðeins hæfustu
krakkarnir sem ná góðum ár-
angri. Það er ekki hverjum gefið
að sjá eitthvað nýtt. En hvað með
þau sem eru ekki gædd slíkum
gáfum? Þau geta líka skapað. Það
er leitast við að þroska hjá þeim
öllum hæfileika til að vinna í hóp
og fylgst er vel með tilhneiging-
um og áhugasviði hvers og eins.
Tölfræðin sannar að litlir hópar
geta verið afar sterkir og unnið
stór afrek: Af 28 uppfinningum
eru 20 sem koma frá hópum.
-APN