Þjóðviljinn - 06.09.1987, Side 22
KROSSGATA
Nr. 583
BRIDGi
7 T~~ 3 ¥ s1 lc> y ? 8 f 8 T JO 71
)Z JS )¥ 99 JíT )<* * 17- 92 14 w~ Zi) 2) 22
n 1? 10 V ZZ )D T 23 )0- 11 92 22 20
18 99 Jb 17 Tr 25 )# ib 99 25 /0 2V )¥- 19 9?
92 W~ n S V )b 10 )? 9? 23 2ö )¥ &
7- 1t> )¥■ 92 V 7~ 19 20 )? y ? % v 2?
II Zl /$ ÍD 22 j2 92 ZO 18 )t> 2é T 1) 7- 18
n H y 2^ ZV 1$ )? 9? /3 )? 12 8 )8 )b M
u, 9? Ið T Z~ T Ig sJ 1? w V )2 )t> )?
92 ¥ 2 0 b )é sr 23 & 92 )? 20 10 )2 d 19
3o 10 /2 92 * T 20 )ð 92 22 )2 V 31 7J~
lö 10 )# n J+ 13 V 9? 18 ib 19 M
T 92 ?A/ "s 13 9? 22 zo 8 92 7- I? it
5 30 )b 19 (d )? 9 20
Setjið stafina í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá ættar- nafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðvilj- ans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: Krossgáta númer 583. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinnings- hafa. Stafirnir mynda islenskt orö eöa mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er lárétt eða lóðrétt. Hver stafur hefur sitt númer og qaldurinn við lausn gátunnar er sá að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp þvi með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
fram að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á gða öfugt.
Hugrún R. Hólmgeirsdóttir, Hraunbæ 104,
Reykjavík hlaut verðlaun fyrir krossgátu númer 581.
Lykilorðið var Helsingfors. Hún fær senda bókina
Eins og hafið eftir Fríðu Á. Sigurðardóttur.
Verðlauninfyrir
krossgátuna að þessu
sinni eru Þyrnar Þor-
steins Erlingssonar, eitt
besta skáld okkar fyrr og
síðar. Vaka-Helgafell gaf
bókina út.
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Bikarsbgur
framundan
Þá er ljóst hvaða fjórar sveitir
keppa í undanrásum Bikar-
keppni Bridgesambands íslands.
Sveit Ásgríms Sigurbjömssonar
frá Siglufirði (með honum eru
bræður hans Jón, Anton og Bogi
auk þeirra Sævins Bjarnasonar
og Ragnars Björnssonar) mæta
Sigurði B. Þorsteinssyni Reykja-
vík (með honum em Haukur
Ingason, Guðni Þorsteinsson,
Runólfur Pálsson, Björgin Þor-
steinsson og Jón Steinar Gunn-
laugsson) og hins vegar mætast
sveitir Amar Arnþórssonar
Reykjavík (með honum eru Guð-
laugur R. Jóhannsson, Hjalti
Elíasson, Ásmundur Pálsson og
Jón Ásbjömsson) og Flugleiða (í
þeirri sveit em: Jón Baldursson,
Sigurður Sverrisson, Aðalsteinn
Jörgensen, Ásgeir P. Ásbjörns-
son, Ragnar Magnússon og Valur
Sigurðsson).
Undanrásir verða spilaðar í
Sigtúni 9 á laugardeginum 12.
september og úrslitin daginn
eftir, sunnudeginum, á sama
stað.
★ ★ ★
Ársþing Bridgesambands ís-
lands verður haldið laugardaginn
31. október að Sigtúni 9, (húsi
BSÍl.
★ ★ ★
Aðalfundur Bridgefélags
kvenna verður n.k. mánudag, 7.
september, að Sigtúni 9. Félagar
eru hvattir til að mæta. Eftir fund
verður létt spilamennska.
★ ★ ★
Skráning í Opna Hótel Arkar
stórmótið, sem haldið verður þar
helgina 3.-4. október n.k., hefur
farið vel af stað. Skráð er hjá BSÍ
(Ólafi) en keppendum er bent á
að hafa samband við Hótel Örk
v/gistingar.
★ ★ ★
Sumarbridge 1987 hefur
gengið mjög vel. Ákveðið hefur
verið að framhalda þessum fé-
lagsskap á þriðjudögum yfir
vetrarmánuðina og nefnist sú
spilamennska Haustbridge til að
byrja með. Fyrirkomulag verður
með sama sniði og í Sumar-
bridge, eins kvölds tvímennings-
keppnir. Umsjónarmaður verður
Ólafur Lárusson.
★ ★ ★
Bridgefélag Kópavogs hefur
hauststarfsemi sína fimmtudag-
inn 10. september, með eins
kvölds tvímenningskeppni. Sama
er á dagskrá fimmtudaginn 17.
september, en þann 24. septemb-
er hefst svo þriggja kvölda haust-
tvímenningskeppni. Keppnis-
stjóri verður sem fyrr Hermann
Lárusson. Formaður félagsins er
Trausti Einarsson. _ ^
ÓLAFUR
LÁRUSSON
★ ★ ★
Og lokaáminning til Vestfirð-
inga. Vestfjarðamótið í tvímenn-
ing verður haldið á Patreksfirði
um næstu helgi. Lokafrestur til
að tilkynna þátttöku rennur út á
miðvikudaginn. Skráð er hjá Sig-
urði Skagfjörð á Patreksfirði.
★ ★ ★
Um þessar mundir á bridge-
þáttur Þjóðviljans 10 ára afmæli,
í því formi sem hann er. Upphaf-
lega voru umsjónarmenn tveir,
undirritaður og séra Baldur
Kristjánsson (að vísu var Baldur
ekki séra á þeim tíma ...).
Undirritaður verður að játa að
hann hefur ekki náð í prestinn á
Höfn til að ræða tilhögun þessa
afmælis, en eins og allir vita eru
hvers kyns afmæli ekki haldin á
minna en 5 ára fresti, og sumir
eru svo djarfir að halda upp á
afmæli á hverju ári ...
★ ★ ★
Og skráning á íslandsmót
kvenna og yngri spilara í tví-
menning, sem haldið verður
helgina 10.-11. október í Sigtúni
9, er hafin hjá skrifstofu Bridge-
sambandsins.
Yngri spilararnir verða að vera
fæddir 1963 og síðar, til að teljast
gjaldgengir. Fyrirkomulag verð-
ur með svipuðu sniði og undan-
farin ár. Nánar síðar.
SKYRT OG SKORINORT
Heimurinn er dásamlegur staður.
Það hefur undirritaður Snati
margoft bent á. Mannlífið er fag-
urt, atvinnuvegirnir blómstra og
hagvöxturinn dafnar. Dauðinn
verður sífellt hvimleiðari og á-
stæðulausari: hann erekki
lengur lausn frá vondum heimi
yfir í góðan helduröfugt.
Draumar mannkynsins hafa
ræst. Velsæld ríkir á öllum sveita-
býlum veraldarinnar og feit börn
vaxaúrgrasi, hamingjusamari
með hverjum deginum. Og það
sem kannski veitist manninum
hvað helst tilefni í tilvistarkreppu
er það hvernig hann á að moða
úr allri þessari hamingju - hvern-
ig hann getur ráðstafað
draumum sínum best og síðast
en ekki síst áttað sig á hverjir
bjóða pattaralegustu vextina.
Draumaíbúð
mannkynsins
Þess vegna hljóta frelsarar vorra
tima að vera þeir, sem leiðbeint
geta villuráfandi lukkunnar
sauðum: bent þeim á breiðasta
veginn sem liggur í gegnum til-
veruna. Slíkt fólk tekur af
mönnum það ómak að hugsa
uppsínareigin hamingjuleiðir
sem byggjast vitaskuld oftast á
þeim breyskleika sem lengi vel
stóð í vegi fyrir framförum inní
gleðinnariönd.
Hólmfríður Karlsdóttir er þess
vegna ekki bara fegurðardís og
augnagleypir. Hún erfrelsari á
borð við frambærilegustu messí-
asamannkynssögunnar. Hún
lóðsarfólk í gegnum lífið: Hún
velur fyrir það gluggatjöld og
klósettrúllur, útidyramotturog
sófasett. Draumaíbúð Hófíarer
vegleg varða á leið mannsins til
kátínu landsins þarsem allireru
glaðir. Og þar sem allir eiga nóg
afpeningum.
II.
Hófí brosir til allra. Húnferekkií
manngreinaringarálit:allirfáfag-
legar hamingjuupplýsingar, allir
geta búið eins og Hófí, og að búa
eins og Hófí er eins og að mið-
aldamenn hefðu getað innréttað
himnaríki í betri stofunni hjá sér.
Það er óneitanlega kostur að
frelsarar nútímans eru hættir
með hið smásmugulega nöldur
um meinlæti sem er einkenni á
liðnum kollegum þeirra.
Það er lítið eftirsóknarvert að
vera blankur í okkar heimi. Því
sannlega segi ég yður: Að erfið-
ara er láglaunaþegum að komast
f draumaíbúð Hófíar en úlfalda að
troða sé í gegnum nálarauga.
III.
Þaðerveislaíþjóðfélaginu. Það
las Snati í Þjóðviljanum fyrir viku.
Og það hlýtur að vera satt. Fólk á
svo mikið af peningum aö það
veit hreint ekki hvernig það á að
koma þeim í lóg. Sólarlandaferð-
ir, einbýlishús og áttagatakaggar
eru orðin eins og gömul og slitin
leikföng.
Hvað á fólkið að gera við alla
peningana? Þjóðin treystir á
handleiðslu Hófíar í þeim efnum:
að hún segi frá hinum áhugamál-
unum líka svo fólk viti hvað það á
aðgera. Draumaíbúðinervissu-
lega merkur áfangi í trúarbragð-
asögunni en hraði aldarinnar
krefst þess að fólk fái ekki bara
brauð og leiki og draumaíbúðir
heldur líka fleira, miklu fleira og
meiraídagenígær.
En mannkynið þarf ekki að óttast.
Hófí mun leiðbeina því í gegnum
lífið - gera það ennþá skemmti-
legra en nokkru sinni fyrr. Og
börnin munu sífelltfitna, blómin
hlæjaog skríkja, hagvöxturinn
hækka og gleðin aukast.
Og þangaðtil geturþjóðin gengið
fyrir guð sinn í musterinu sem
tekur því gamla í Jerúsalem langt
fram. Og þjóðin krýpurfyrir Hófí.
Og Hófí brosir og sýnir nýjustu
vatnslböndunartækin á mark-
aðnum.
Og Hófí brosirog sýnir nýjustu
vatnsblöndunartækin á mark-
aðnum.
22 SÍÐA - ÞJÓOVILJINN Sunnudagur 6. september 1987