Þjóðviljinn - 06.09.1987, Síða 8

Þjóðviljinn - 06.09.1987, Síða 8
Á maður nokkuð að vera að veita þeim skálki Magnúsi Hanssyni greiðslutrest? Ég held ekki. Ég verð að segja þér eitt, Magnús - sá orðrómur gengur að þú sért í einhverj- umerfiðleikum. Það er virðulegur banka- maður úr Reykjavík með pípu- hatt sér við hlið sem segir þetta við Magnús Hansson. Magnús Hansson hellir í glas gestsins og eyðirtali hansog félaga hans, það er allt í lagi með hansfjármál, maður verður, segir hann með flátt- skap að spekúlera svolítið til að safna auði. Og svo;stormar inn Sigríður, móðir Nonna og Manna, og truflar þessi fjárm- ál og þau hverfa af skrifstof- unni til að ræða það sem ekki megaaðrirheyra. Lítið verið var móðir er Magnús kapítalisti í sínum sem við er Wilson merki- legt við það, ef þessi sótraftur hér væri ekki á sjó dreginn til að segja setninguna sem fyrst var til vitn- að. Við Arnmundur Backmann, sem er einn af ágætum sumar- bændum í Flatey, vorum klæddir upp og settir í hlutverk virðulegs bankavalds sem komnir eru til Akureyrar fyrir meira en öld til að skoða reikningana hjá ein- hverjum forvera Haf- skipsmálsins. Eg sagði við Ágúst Guðmunds- son, sem stjórnar þessari þýsk- bresk-norsku sjónvarpsmynd sem byggir á Nonnabókunum eins og kunnugt er, að mér þætti stórmerkilegt að vera kominn til Flateyjar til að segja eina setn- ingu. Hann hló við og sagði: Þér á eftir að finnast það enn skrýtnara að það tekur kannski þrjá eða fjóra tíma að segja hana. Allt það umstang Ekki fór samt svo illa. Senurn- ar tvær þar sem bankamennnirnir virðulegu segja nokkur orð eða sjást baksviðs tóku ekki nema tvo tíma í upptöku. En sama er mér. Það er reyndar merkileg reynsla að.prófa það dagstund á eigin skinni hvflík þolinmæðisraun það er að búa til kvikmynd, hvurslags umstang og vesin og bið og skipu- lagsflækjur eru á bak við kannski þrjátíu- fjörtíu sekúndur á skermi. Manni verður einna efst í huga að undrast það að það skuli yfirleitt hægt að leika vel í kvik- mynd. Þetta uppgjör við Magnús Hansson, sem Arnmundur sagði glottandi að væri náttúrlega vendipúnkturinn í sögunni, fór fram á mánudagsmorgni. Daginn áður voru leikarar og einir fjörtíu statistar önnum kafnir við að mynda skipakomu. Sekkir og tunnur frá lýsisbræðslu M. Hans- sonar á bryggjunni, fín hjón á leið til Kaupmannahafnar, lítill strák- ur á handahlaupum, einfættur maður undir vegg tollskýlisins, skúta úti á legunni og bát er róið að bryggju. Þar er kjominn Har- aldur útilegumaður, sem kemur við sögu í „Á Skipalóni“, en er hér stækkaður mjög og verður að einskonar bindiefni í þeirri sögu sem spunnin er með hliðsjón af íslandsþáttum Nonna. Og Nonni og Manni taka á móti honum og spyr j a hvaðan hann sé að koma... Það var komið mikið lið úr Stykkishólmi og allt kykvendi í Flatey kom á fiimu, líka kett- lingur lítill, sem drengur lék sér að undir tunnu. Og náttúrlega heilmikið um fyrirhöfn og kostn- að sem lítið verður úr: smíðuð hafði verið sérstök bryggja og gripaflutningabátur dreginn út í Flatey frá Bjarnarhöfn, því ætl- unin var að skreyta filmuna með atriði þar sem hestum er skipað út. Af því var ekki: það tók svo langan tíma að taka á móti Har- aldi útilegumanni, að á meðan fjaraði undan bryggjunni og bátnum, aðeins einn tökudagur eftir í Flatey, og þar fór það. Góð skemmtun En flestir virtust hafa góða skemmtun af því að vera með. Hólmarar voru komnir í búninga fyrir klukkan átta á sunnu- dagsmorgni, þeir höfðu lagt af stað með Baldri klukkan fimm um morguninn og sumir höfðu ekkert farið að sofa því það var ball á staðmim. Hress ung kona kvaðst hafa verið færð úr danska búningnum og lækkuð í tign, nú var hún orðin saltfiskkerling hjá M. Hanssyni og hafði góð orð um að gera allt vitlaust á eyrinni, fara í kvennabaráttu, gera stræk. Þegar fólkið var komið í bún- inga sem áttu að sýna allt litróf samfélagsins á Akureyri fyrir röskum hundrað árum sló niður þessum þanka hér: Það er ekki nema von að kvikmyndamenn séu haldnir söknuði eftir þeim tímum þegar það sást strax á hverri klæðispjötlu sem menn báru, á hverri hreyfingu má ég segja, hverjir þeir voru í samfé- laginu. Og eldgos líka í hléi sem á verður spyr ég Ágúst Guðmundsson að því, hvers konar meðhöndlun þær sakleysislegu Nonnabækur fái áður en þær verða framhaldssaga í sjónvarpi á okkar dögum. Og svörin voru eitthvað á þessa leið: Vissulega er farið frjálslega með. Til dæmis er Haraldur sem þeir Nonni og Manni rekast á, gerður að heilmikilli persónu. Hann hefur orðið manni að bana, en við sýknum hann af því og komum - með aðstoð Nonna sem er viss um sakleysi hans - ábyrgð- inni yfir á Magnús Hansson. Það má segja já að við skerum morðið sundur og skeytum það saman. Frumkvæðið að gerð þessarar myndar kemur frá Þjóðverjum. Joachim Hammann gerði hand- ritið og svo fór Bretinn Richard Cooper yfir það og kom að ýms- um breytingum og ég hefi síðan reynt að taka burt úr því ýmislegt sem mér fannst óíslenskt. Þessir menn höfðu hvorugir komið til íslands, en það gerir ekkert til. Heyrt og séðvið upptökur ó Nonnakvikmyndinni í Flatey 8 SÍÐA — | Sunnudagur 6. september 1987

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.