Þjóðviljinn - 06.09.1987, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 06.09.1987, Blaðsíða 2
FLOSI \iku skammtur af Þingvallaraunum Mér er sagt að íslendingar séu búnir að þreyja þorrann og góuna í þessu landi í ellefu aldir, frjálsir eða ófrjálsir eftir því hvernig kaupin hafa gerst á eyrinni. Ég er ekki klár á því hvenær ófrelsið var mest né í hvaða efnum, maður er nú einusinni ekki sagnfræðingur. Þó leyfi ég mér að ganga út frá því sem vísu, að þjóðin hafi þurft að sæta boð- um og bönnum í þessi ellefuhundruð ár og að talsvert hafi stundum skort á að menn gætu um frjálst höfuð strokið, einsog það er kallað á fínu máli. Eitt var íslendingum þó löngum frjálst, en það var að hleypa heimdraganum og fara á Þingvöll. Ég er ekkert að segja að sauðsvartasti al- múginn hafi alltaf komist á staðinn, nema þá til að láta drekkja sér eða höggva af sér höfuðið, hvaðþá að múgamenn fengju að reisa þar búðir í dentíð eða sumarbústaði á síðari árum. Nei, nei, slíkt var aldrei ætlað öðrum en góðu fólki. En hvað um það, öll þessi ár hefur það verið umtalsverður unaðsauki ákaflega mörgum ís- lendingi að skunda á Þingvöll og treysta sín heit, eða einfaldlega að njóta þar veðurblíðunnar og náttúrufegurðarinnar í faðmi fjallanna og fjöl- skvldunnar, eða einfaldlega í góðra vina hópi. I ellefuhundruð ár hafa menn tekið hesta sína og riðið á Þingvöll, stungið klárunum næturlangt í Hestagjá, sem augljóslega var til þess brúks sérhönnuð af blessuðum skapara himins og jarðar. í ellefuhundruð ár tjölduðu menn á þessum dýrlega stað í fallegu lautardragi sem þeim fór svo að þykja vænt um af því þar áttu draumar það til að rætast. Stundum lögðust menn undir feld í tjaldi sínu til að ráða framúr vanda þjóðar- innar. Fróðir menn telja að í ellefuhundruð ár hafi jafnvel á Þingvöllum gerst í duiitlu dragi dulítið sem enginn vissi, nema tjaldbúar, nokkrir þrest- ir og kjarrið græna inn við Bolabás, já og Ár- mannsfellið fagurblátt og fannir Skjaldbreiðar og hraunið fyrir sunnan Eyktarás. í ellefuhundruð ár var fólkið í landinu frjálst að því að koma á Þingvöll og njóta staðarins sem væri hann almenningseign. Geta þar um frjáls höfuð strokið. Já, góðir hálsar. Svona var þetta nú í ellefu- hundruð ár. Ekki veit ég hvenær Þingvallanefnd tók til starfa, en hitt þykist ég vita með fullri vissu að frá upphafi voru miklar vonir bundnar við störf hennar, vegna þess að löngum völdust í hana svo afskaplega skynsamir og góðir menn. Og Iandsmenn fór að dreyma um allt það sem gera má á Þingvöllum til að laða þangað fólk. Merkja göngu- og reiðleiðir um Þingvalla- skógana, gera braut umhverfis vatnið, eins og gert er umhverfis heiðavötn meðal siðmennt- aðra þjóða. Já semsagt bæta þar alla aðstöðu til útivistar í lengri eða skemmri tíma. Já allir urðu svo undur vonglaðir og kátir. Nú yrði gaman að koma á Þingvöll. En að því kom að draumró manna var harka- lega raskað. Það hefur nefnilega verið að renna upp fyrir fólkinu í landinu á undanförnum árum að Þingvallanefnd virðist þeirrar skoðunar að það sé vanhelgun á staðnum að koma þar, tjalda eða tylla niður hjólhýsi til fleiri en einnar nætur. Að ekki sé nú talað um að stinga klárun- um sínum í Hestagjá yfir blánóttina, einsog raunar hefur verið gert í ellefuhundruð ár. Allt virðist þetta, að dómi Þingvallanefndar, vera hin grófustu helgispjöll. Bannað er að tjalda, nema við jaðrana á hraðbrautinni, sem liggur gegnum garðinn, semsagt í rykinu, skítnum og skarkalanum, hjól- hýsi eru bönnuð. Allt virðist miða að því að gera fólki það Ijóst að landsins börn eru óvelkomin á Þingvöll, nema auðvitað þeir sem eiga þar sumarbústað, en það er nú önnur saga. Og árangurinn lætur ekki á sér standa. Fólk er hætt að koma til Þingvalla. Það var svo á miðvikudaginn var að tillögur Þingvallanefndar um framtíðarskipulag þjóð- garðsins á Þingvöllum birtist í Mogganum. Megininntak tillagnanna er að fjarlægja öll hús austan Almannagjár, nema náttúrlega að- setur klerksins, sem er í leiðinni þjóðgarðsvörð- urog talsmaður nefndarinnar. Og að sjálfsögðu verður ekki hróflað við sumarbústöðum. Eftir stendur, að í raun og veru á ekki að fjarlægja neitt nema Valhöll. I staðinn á svo að byggja menningarhöll einhversstaðar í Kára- staðalandi, menningarhöll þar sem beitt verði allri þeirri kynningar- og fræðslutækni sem völ er á til að fræða menn um þjóðgarðinn, halda ráðstefnur og þing, taka á móti þjóðhöfðingjum og ganga örna sinna við toppskilyrði. Vonandi fá arkítektarnir í Þingvallanefnd að teikna menningarhöllina og sjá um byggingu hennar fyrir sanngjarna umbun, og umfram allt að gera hana þannig úr garði að engan langi, eftir að hafa í hana komið, að leggja ieið sína niður á sjálft Þingvallasvæðið og vanhelga það með nærveru sinni. Það að höfundar skýrslunnar hafa svo brenn- andi áhuga fyrir svæðinu vestan Almannagjár fyrir almenning á sér gild rök, sem birtust í Morg- unblaðinu á miðvikudaginn var og hljóða svo orðrétt: ...svæðið vestan Almannagjár hefur ekki aðdráttarafl í augum aimennings einsog á stendur, þó það hafi, í raun og veru uppá ýmislegt að bjóða. Til dæmis er þar að finna kalt vatn á 50 metra dýpi (Tilv. lýkur) Það er ekki ónýtt ef Þingvallanefnd tekst bæði að bægja fólki frá Þingvöllum og finna í leiðinni staði í nágrenninu sem ekki hafa aðdráttarafl í augum almennings, þó þar sé kalt vatn á 50 metra dýpi. Nú ríður bara á að gera þeim fáu sem enn álpast til Þingvalla, þó óvelkomnir séu, lífið svo leitt að þeir hætti að koma þar og vanhelga staðinn með dvöl sinni. Og þá verða Þingvellir bara fyrir þjóðgarðs- vörðinn einan, en hann verður þeirrar hamingju aðnjótandi að messa um ókomin ár í tómri Þing- vallakirkjunni. í viðskiptum sínum við eigendur Valhallar getur hann svo lagt útaf orðum Lúkasar: - Og hann gekk inní helgidóminn og tók að reka út þá sem voru að selja og sagði við þá: — Þér hafið gert helgidóminn að ræn- ingjabæli. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 6. september 1987 „Látt’ekki svona Salóme! Hvar er ævintýralöng- unin núna?"

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.