Þjóðviljinn - 06.09.1987, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 06.09.1987, Blaðsíða 11
tjmiU ?j«-Uin*8Íaifl utUismM wr Félagssklrtelnl f Dagsbrún frá upphafi og fram á fjórða áratuginn er meðal þess söguhnossgætis sem leyndist í kassanum góða. Varpa nýju liósi ó söguna Þorleifur sýnir Kristjönu Valgeirs- dótturfél- agatal Dagsbrún- arfrá fyrstu tíð: Hér hefur Jón nokkur Guð- mundsson verið rek- inn úrfé- laginu áríð 1910... (Myndir: E.ÓI) „Þessi skjöl eru mjög merkileg og varpa nýju og skýrara Ijósi á ýmislegt í sögu verkalýðshreyfingarinnar sem áður var á huldu. Fyrir mig persónulega eru þetta slík uppgrip að fögnuður minn ermikill,” sagði Þorleifur Frið- riksson sagnfræðingur, en hann fékk heilan kassa af skjölum í hendurnar sem eru frá upphafsárum verkalýðs- hreyfingarinnar. Þorleifur vinnur um þessar mundir að því að rita sögu Dags- brúnar, en skjöiin eru einmitt úr fórum Péturs G. Guðmunds- sonar, sem kjörinn var formaður félagsins 1913 og var lengst af í fararbroddi verkalýðshreyfingar- innar. Hann var einstaklega hirðusamur um skjöl og heimild- ir, en eftir andlát hans var þeim pakkað niður í kassa. Og þar voru þau um langt skeið. Það var síðan Ásgeir, sonur Péturs, sem fann skjölin og ætlaði upphaflega með þau til Banda- ríkjanna, en hann er búsettur þar. „Það hefði verið hroðalegt að missa skjölin þangað,” segir Þorleifur, „enda alls óvíst að þau hefðu nokkru sinni komið til ís- lands aftur. í Bandaríkjunum eru í gildi mjög strangar reglur um útflutning skjala og heimilda þaðan. Eftir samræður þeirra Guðmundar J. Guðmundssonar féllst Ásgeir á að veita félaginu afnot af þessum heimildum. Þeir eiga því báðir miklar þakkir skildar, en Ásgeir hefur áður látið okkur í té merkar heimildir úr fórum föður síns. Endurritar eigin sögu Sem fyrr segir vinnur Þorleifur nú að því að rita sögu Dagsbrún- ar. Hvaða þýðingu hafa þessi skjöl fyrir hann? „Það er ýmislegt sem ég verð að umskrifa. Ég er enn að flokka og skrá þessa pappíra en það er alveg ljóst að þeir eru afar þýð- ingarmiklir. Sagan er þess eðlis að hún er í sífelldri endursköpun og það er mjög ánægjulegt að fá tækifæri til að betrumbæta sína eigin sögu. Þá hlýtur maður að vera að nálgast sannleikann.” - En hvemig er almennt ástatt um heimildir um sögu verkalýðs- hreyfingarinnar? „Ástandið er f raun mjög alvar- legt að því leyti. Það er afar brýnt verkefni að koma upp rannsóknastofnun og skjalasafni verkalýðshreyfingarinnar. í þess- um málum erum við heilli öld á eftir t.d. bæði Dönum og Svíum. Og þótt þessi skjöl sem við vorum að fá núna séu stórkostleg þá eru þau bara brotabrot af því sem við vitum að ætti að vera til - og er þegar best lætur geymt í kössum á háaloftum og í kjöllurum. Þessir pappírar hefðu líka hæglega get- að glatast ef skilningur Ásgeirs hefði ekki komið til. Saga verka- lýðshreyfingarinnar verður ekki X * t l o * ua fraafwralvkoatnaft í ttil fyrir vartrttattmaf^SlakyXdu { Beykjavík, 5 ittnna £ htjirdli, diö«ð við vorðloe suooriB 191» og sumarlB 191S. BÚtíUrauB Xvflti , Öa#ogrjon ** Msar&ajöl ^áBáónir Kart^flur . Oylrofur Butiinur ^‘öv« akjur Sykur , Ksfft*obront Kaffi’fcwtir Kakaö Scilöriíki íólg Krfa UJÓlk Saltkjöt tt kjöt Hyr fiakur Trouíiakur 1/4 kg. a aann a öag « 456,25 kg* 1/8 - - - - - 228 - - ari • 12 6 — - — - - • 2 - - - - - - 14 - ~ - -■■-• 1 - - - - ~ - 1 - - _ - - • 50 ~ - - - - « 10 ~ - - - - - 11/2 - - - - • 1 1/2 - - ~ - • 57 1/2 - - - - - 2 1/2 ~ I I I I I 1 ------ 25 -............. 4 - - - - - . 1 1. á <i$8 á,h«iiailið 25? kg« á arl a Micailið 75 - - ~ ~ 750 250 60 30 10 70 5 5 250 50 7„_ 7,5 W.5 25 12.5 5 125 20 25 565 1. 5 - 1914 7b,oo 65,3* 16,80 9,50 4,00 22,40 1,3C 1,75 20,00 5,oo 4,95 6,oo 98,56 41.25 12,12 13.25 153,75 18,00 23.75 80,30 18.75 41.25 105,oo 1915 266.13 214,68 59,40 35.70 19.70 70, co 9,90 7,oo 125,oo 15,00 18,75 4X1,00 3&5,&> 100,00 26,35 ö6,oo 67,50 262,80 50,oo 150,oo 270,oo xina utgjtíia. til fttðia a ari fítáinolia Kol Uppkveikáa FatnaÖur a^ofatnaöur ^uaaleigft Xmialegur koetnaöur Fwöiakoöatsður Annar koataaður JOO 1« a ari, 10 akpd. a ari 50^50 150,00 Kr. 895,82 2912,90 54, oc 171,oo 46,00 320,no 10,0« 40,OO l5ö,co 525,oo 6d,<.x> 172,00 144,00 452,00 134.30 kr. 546,oo 1845,30 895,02 2912,90 646 * ot> .-1KS.2Q kr. 4958,20 X»tlun,þeaai rax lögö til grxmdvallar í aaamingua ua kftupgjttldöoorirs verk»- saanna i Eoykiavlk 1919« Hlutföllin voru yfirleitt talic. na?rrl aar? i* En ^yöalan of EiJcil, borlö sanan við t»r tekiur sea verksusetin yfirlftltt höföu arift 1914. Áastlun um framfærslukostnað á ári fyrir verkamannafjölskyldu í Reykjavík, árin 1914 og 1919. Ef myndin prentast vel geta lesendur séð hve allar nauðsynjar hækkuðu á styrjaldarárunum. Lög Verkamannafélags Reykjavíkur sem stofnað var árið 1908 til höfuðs Dagsbrún. Lítið var um þetta félag vitað enda varð því ekki auðið langra lífdaga - einn af forystumönnum Dagsbrúnar lót kjósa sig formann þess gagngert til að drepa það niður! Á myndinni eru einnig aukalög Dagsbrúnar frá árinu 1913, en þar var auglýstur kauptaxti félagsins. Atvinnurekendur sættu sig ekki við hann og fyrsta Dagsbrúnarverkfallið varð að veruleika. Þá sem oft síðar hafði þetta móðurskip íslenskrar verkalýðshreyfingar sigur. Lög fyrlr hlutafélag Alþýðublaðs- ins sem reykvískt verkafólk gaf út á árunum 1906-1907 ásamt fundar- gerðarbók. Ritstjóri Alþýðublaðsins gamla var Pjetur G. Guðmundsson, en skjölin sem fundust eru úr fórum hans. skrifuð án fullnægjandi heimilda og verkalýðshreyfing sem ekki þekkir sögu sína er dæmd til að vera veik.” Merk skjöl frö upphafs- árum verkalýðshreyf- ingarinnar dregin fram í dagsljósið. Þorleifur Friðriksson sagnfrœð- ingur: Nauðsynlegtað stofna rannsóknamið- stöð. Verkalýðshreyfing sem ekki þekkir sögu sína dœmd til að vera veik - Og hvað er verið að gera í þessum málum? „Á síðasta ári var stofnað Fé- lag áhugafólks um verkalýðssögu og nú eru í því hátt í tvöhundruð manns. í þessu félagi er fólk úr öllum áttum og úr öllum stjórnmálaflokkum og það hefur sett á laggirnar nefnd sem á að knýja á um að draumur okkar um rannsóknamiðstöð verði að veru- leika. Skilningur ráðamanna og for- ystumanna verkalýðshreyfingar- innar er sem betur fer að aukast - því vissulega er það dapurlegur vitnisburður um þjóð sem nýtur þess á tyllidögum að kalla sig söguþjóð, ef hún þekkir ekki sína eigin nútímasögu.” -hj Sunnudagur 6. september 1987 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.