Þjóðviljinn - 20.09.1987, Blaðsíða 5
Þýski herinn sallar niöur Rússa sér til skemmtunar í mynd Elems Klimofs,
Komið og sjáið.
ungur maður lætur múra sig þar
inni lifandi. Leikstjórinn Paradjati-
of sem hefur mátt sæta ýmsum kár-
ínum í heimalandi sínu er sagður
eitt óvenjulegasta kvikmyndaskáld
samtímans og einna helst líkt við
nýlátinn landa sinn Tarkofskí.
Hin sovéska myndin er eftir hinn
frremsta meðal sovéskra jafningja,
Elem Klimof, sem eftir valdatöku
Gorbatsjofs varð formaður félags
kvikmyndara í Sovét og hefur snú-
ið öllu við í kvikmyndamálum
eystra. Myndin heitir Komið og
. sjáið, lokið í hittifyrra, og í henni er
horft á heimsstyrjöldina síðari
. gegnum augu drengs í hemumdu
Iþorpi, - lýsingar þeirra sem séð
hafa eru þannig að æðislegustu
stríðsmyndir amríkana með allar
sínar brellur blikna í samanburði
og gamli frasinn lúni þarsem tauga-
veikum og hjartþjáðum er ráðið frá
bíóferð mun hér endurreistur. Ein
af þeim myndum sem væntanlega á
eftir að vekja hvað mesta athygli á
j hátíðinni.
Verður að fáða
Frá hinu risaveldinu koma þrjár
myndir, og við fyrstu sýn er athygl-
isverðust þeirra Brotnir með lögum
/Down by Law, 1986, - vegna
leikstjórans Jims Jarmusch, sem
kom hér ánægjulega á óvart með
Strangers in Paradise í fyrravetur.
Þrír menn hittast í fangelsi...
„Land hinna frjálsu og heimili
hugrakkra" segir um Bandaríkin í
þarlendum ættjarðarsöng, og
Heimili hinna hugrökku / Home of
the Brave heitir mynd frá í fyrra
eftir tónlistargjörningakonuna
Laurie Anderson, myndum hljóm-
leika og sögð mögnuð. Þriðja am-
eríska myndin er Hún verður að
fáða / She‘s Gotta Have It, 1986,
eftir Spike Lee, svartan ungan leik-
stjóra, um þrjá karla og eina konu í
svertingjahverfi í Brooklyn, - vakti
mikla athygli á Cannes í fyrra.
Eureka heitir mynd Nicolas Roeg
hins enska um ráðvilltan
milljónung, leikarar meðal annars
Gene Hackman og Rutger Hauer.
Roeg var fyrst tökumaður en vakti
síðan verðskuldaða athygli fyrir
sérstæðan stíl, til dæmis í Don't
look now, The Man who Fell to
Earth, Castaway. Eureka er frá ‘83
en Roeg á líka á hátíðinni myndina
Markleysu / Insignificance frá ‘85,
byggða á leikriti Terry Johnsons
þarsem þau hittast Marilyn Mon-
roe, Albert Einstein og McCarthy.
írland, Austurríki
írskar myndir eru sjaldsénar,
hér verður ein, Gríptu gæsina / Eat
the Peach, þarsem írskir unglingar
reyna að koma fútti í fábrotna til-
veru með ævintýralegum en soldið
seinheppnum hætti. Frá í fyrra,
leikstjóri Peter Ormrod.
Rudolf Thome telst til jafningja
Fassbinders, Herzogs og svo fram-
vegis í Vestur-Þýskalandi, og á hér
myndina Tarot (1986) og er úr-
vinnsla úr þekktum efnivið sögð
bæði frumleg og óvenjuleg.
Ungur Austurríkismaður, Wol-
fram Paulus, er kynntur með fyrstu
mynd sinni, Heiðaheilar / Heiden-
löcher, og er efniviðurinn seinna
stríðið einsog svo oft: liðhlaupi í
þröngum fjalladal þarsem ungir
menn hafa látið senda sig í stríðið.
Nautabaninn / Matador (1985)
kemur frá Spáni ekki alveg óvænt.
I mynd Pedro Almodovar tengist
dauðaleikurinn í hringnum samleik
karls og konu, dauðastundin sam-
líkist fullnægingunni, eða er kann-
ski alveg eins?
Finnskir brœður
Aki og Mika Kaurismaki heita
finnskir kvikmyndabræður og eru
einir af gestum hátíðarinnar, annar
búið til fimm myndir, hinn þrjár,
og hafa vakið arthygli heima og
heiman. Rosso heitir mynd Mika,
Stríðsmenn kljást í Kurosawa-
myndinni Ran.
gerð ‘85, um mafíósa sendan til
Finnlands að drepa ástkonu sína,
verður samferða bróður konunnar
með tilheyrandi átökum. Mynd
Aki heitir Skuggar í Paradís, kosin
besta mynd í Finnlandi í fyrra, um
utangarðsfólk sem fellir hugi sam-
an, „tilraun til að búa til ástarsögu
með boðskap“ segir höfundurinn.
Þriðja finnska myndin er Snæ-
drottningin eftir Pavi Hartzell eftir
ævintýri H. C. Andersens, þykir
einkar vel tekin og nútímaleg.
Fjarlœgar þjóðir
og heimamenn
Glaðbeittur Grúsíumaður úr dulúðugri mynd
Sovétmannsins Paradjanofs, Vlrkln i Súr-
Áttunda
kvikmynda-
hótíðinríðurí
hlað með31
spóluí
farteskinu.
Nýlegar myndir
eftir Kurosawa,
Fellini og Scola,
-áherslad
áðurlíttnumin
lönd
Á hátíðina nú hafa einsog stund-
um áður verið fengin sýnishorn af
bestu kvikmyndalist fjarlægra
þjóða í kvikmyndaskilningi, - og
eru Finnar raunar þar á meðal, því
miður. Lengra er þó seilst: Frá Eg-
yptó kemur Hinn sjötti dagur eftir
Youssef Chahine frá í fyrra. Dali-
da, fræg söngkona í Frans og
heimalandi sínu, leikur aðalhlut-
verk í myndinni sem dregur nafn af
úrslitadegi kólerusýki, um alþýðu-
fólk og drauma þess. Frá einu
mesta kvikmyndaframleiðslulandi
heims, Indlandi, kemur Genesis
eftir Mrinal Sen sem áður hefur
komið við sögu Reykjavíkurhá-
tíða. Hér er sagan um Adam og
Evu, Kain og Abel sögð uppá nýtt í
indversku umhverfi, og þykir
myndin einkar fögur.
Kínverjar eru að rakna úr rotinu
eftir skeið rauðu sápuóperunnar í
kvikmyndalist ríkisins í miðið.
Þaðan kemur nú myndin Stúlka af
góðu fólki eftir Huang Jianzhong af
yngstu kynslóð þaðra. Lítið fjalla-
þorp á jólum í borgarastyrjöldinni,
átján ára stúlka er neydd til að gift-
ast sex ára dreng, sögð hæg mynd
og falleg.
Hinir Kínverjarnir, þeir á Taiw-
an, eru líka í uppsveiflu. Þaðan
koma tvær myndir, Bernskuminn-
ingar (‘85) eftir Hou Hsiao-hsien,
einn fremsta nýbylgjumann þar-
lendan og fjallar um fjölskyldu sem
sennilega er dæmigerð fyrir þetta
undarlega land flóttamanna sem
aldrei komast heim. Hin heitir
Hryðjuverkamenn, eftir Edward
Yang frá í fyrra; auðnulaus stúlka
gerir sér það til dundurs að ljúga
barni uppá virtan efnafræðing með
hörmulegum afleiðingum.
Og botn í þessa hátíðarlýsingu
sláum við með okkar eigin Lárusi
Ými Óskarssyni og Svíþjóðarmynd
hans um hlébarðann í klakanum,
Den frusna leoparden, sem hér er
sýnd fyrsta sinni. Kiljan nokkur
ferðast inní afríkönsku nóttina á
slóðir hlébarðans innifrosna úr
sögu Hemingways...
-m
FJÖLBRAUTRSKÓUNN
BREIÐHOUI
Austurbergiö 109Reykjavík ísland sími756 00
Frá Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti
MODEL
Model vantar að myndlistarbraut Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti.
Dag- og kvöldtímar.
Möguleiki á ráðningu er fyrir hendi.
Upplýsingar á skrifstofu skólans í síma 75600.
Fóstrur
Mig bráðvantar fóstrur eða fólk sem hefur reynslu
af uppeldisstarfi á dagvistarheimilum á leik-
skólann Seljaborg. Upplýsingar gefur Álfhildur
Erlendsdóttir í síma 76680.
Völvuborg -
Völvufelli 7
Völvuborg er lítið, notalegt dagheimili, mannað
góðu fólki. Okkur vantar fóstru og aðstoðarmann
á deild yngstu barnanna.
Upplýsingar hjá forstöðumanni í síma 73040.
j
Sunnudagur 20. september 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5