Þjóðviljinn - 20.09.1987, Síða 19
...Af plasti
Rick Ocasek og félagar keyra betur en nokkru sinni.
í
upp-
hafi
Bara að hann rigni. Eða blási.
Eða snjói. Eða frysti. Úti var logn
og blíða. Hugsanir um illviðri
komandi vetrar eyðilögðu alger-
lega áhrif sólar og syngjandi
fugla á grein, hyldýpis svartnætti
íslenskrar janúarveðráttu heltók
hvert minnsta skúmaskot hug-
ans. Ófærð. Slydda. Snjór. Rign-
ing. Rok. Brotnir fætur á hálli
gangstétt. Saltétnir sílsalistar og
bretti. Skyggni ekkert. Sænskar
bíómyndir í sjónvarpinu til að ýta
manni enn lengra niður í myrkur
örvæntingarinnar. Veturinn er að
koma. Og ekkert á mínu valdi,
sem fær hindrað það. Snjóbolti í
hnakkann. Ég ætla að vera inni í
allan vetur. Af hverju er ég ekki
skógarbjörn? Þá mætti ég sofa
veturlangt. Eða fugl á Hawaii? Þá
væri ég laus við veturinn yfirleitt.
Keðjur undir bílinn. Einhvern tíma
kom fram sú hugmynd að ýta Is-
landi örlítið suður á bóginn. Og
hvað gerir Alþingi í því? Ekkert.
Enn hefur enginn pólitíkus haft
kjark og þor til að leggja fram til-
lögu um þetta. Auðvitað væri það
dýrt. Og einhverjir mótmæla
sjálfsagt. En hvað um það? Bíll-
inn fer ekki í gang á morgnana.
Kannski maður flytji bara til
Kúbu. Eða Kanarí. Þar er meira
að segja bjór líka. Sólskin og bjór.
Hvað þarf maður meira. Bíllinn
fer ekki í gang í hádeginu, Ekki
veit ég hver stóð fyrir því að hafa
svona leiðinlega vetur á íslandi.
Og þaðan af síður veit ég hvers
vegna. Sumarið er svo ágætt.
Það rignir stundum svolítið, en
það er bara betra - fyrir blómin
meina ég. Af hverju höfum við
bara ekki alltaf sumar? Er ekki
hægt að skylda veðurstofuna til
að sjá um það? Bíllinn fer ekki í
gang á kvöldin. En jólin verða nú
kannski hvít. Og þegar maður er
átta ára er alveg robboslega
gaman að gera snjókarl. Og snjó-
hús. Og fara í snjókast. Og renna
sér á sleða. Líka þegar maður er
fimm ára. Og 12 ára. Fullorðið
fólk fer jafnvel á skíði. Ég hef
j reyndar aldrei skilið af hverju fólk
er að rembast við að komast
lengst upp í fjall, bíða jafnvel
klúkkustundum saman við lyft-
urnar, til þess eins að renna sér
niður aftur og helst beinbrjóta sig
eða aðraíleiðinni. En það er nátt-
úrlega ákveðinn sjarmi yfir gifs-
inu. Veturinn er að koma.
Kannski ég fái mér bara annan
bíl. Og þó ...
TheCars: Doorto
Door.
Mennirnir breytast og músíkin
með. Á þessari nýju plötu öku-
þóranna í The Cars eru ellefu lög
Og ekkert þeirra eins ... sem er
ekki jafn sjálfsagður hlutur og
mönnum kann að virðast, á
dögum færibandafroðupopps-
framleiðslunnar. Þessi ellefu lög
eru yfirleitt býsna góð til síns
brúks. Sem er skemmtun. Þau
eru varla brúkleg til annars, enda
ekki til annars stofnað á þessum
bæ í þetta sinn. Og hvflík
skemmtun! Þéttur gítarinn rífur í
hlustirnar í lögum eins og Leave
or stay, Double Trouble, Strap
me in og, síðast en ekki síst, í
titiliaginu Door to Door. Annars
staðar kitlar hann mann góðlát-
lega, s.s. í laginu Everything you
say. Þá er áslátturinn ekki síðri og
í fullkomnu samræmi við það sem
gerist á strengjaslóðum gítar-
manna. Tónlistin hefur breyst
nokkuð frá síðustu plötu, svona
eins og ekki of mikið og ekki of
lítið, eða þar um bil. Takturinn
hefur þyngst örlítið í kraftmeiri
lögunum, gítarinn farinn að spila
enn stærra hlutverk en áður var
og áhrif annarra hljóðfæra
minnkað að sama skapi. Úr því
verður alveg einstaklega gott og
orkuríkt rokk, ákaflega vel til
þess fallið að vekja menn á sjö-
unda tímanum (eða sjöunda glas-
inu). Ef satt skal segja finnst mér
lögin Leave or Stay og Door to
Door bestu rokkararnir sem
komið hafa Rics Ocaseks til
þessa. Ballöðurnar hafa hins veg-
ar oft verið betri. Hljómborðin
ráða ferðinni í flestum lögum í
hægari kantinum á þessari plötu.
Ekki veit ég af hverju það stafar,
hvort Ocasek hafi fundist það
eiga best við (sem er líklegasta
skýringin - og þá byggð á mis-
skilningi að mati þess alvitra
poppspekings sem hér heldur um
ritvél) eða hvort hann hafi hrein-
lega ekki lagt í að hafa gítarinn í
jafn stóru hlutverki í þessum
lögum þar sem það krefst
óneitanlega mikillar lipurðar og
næmni þess er á heldur. Það þykir
mér þó ótrúlegt þegar tekið er
mið af fyrri verkum Ocaseks. En
þó engin þeirra nái að skáka Dri-
ve hvað tilfinningu og hunangsfe-
gurð varðar, er ekki þar með sagt
að þær séu lélegar, ballöðurnar á
Door to Door.
Eins og áður segir er þessi plata
fyrst og fremst ætluð sem
skemmtiskífa - eða það sýnist
mér sem sagt (og þá hlýtur það
auðvitað að vera rétt ...?) en þó
er að finna á henni texta, sem
snúast um annað og meira en
stelpur og strönd, ást og eftirsjá.
Double Trouble fjallar þannig
um eiturlyfjavandamálið og
Door to Door er ein allsherjar
ádeilda á ameríska drauminn
sýnist mér.
Þetta er í heildina hinn mesti
stólpagripur, hvort sem menn
ætla að nota fyrirbærið til aðstoð-
ar við fótamennt sína eða bara
sitja í rólegheitunum og hlusta.
Ég mæli með bíltúr ...
í dag verður ekkert fjallað
um Pet Shop Boys.
REYKJHIÍKURBORG |||
jIoumvi Stíkúvi
Dagvist barna auglýsir stöðu forstöðu-
manns í ieiksk. Árborg við Hlaðbæ
Fóstrur óskast til starfa á dagh. Efrihlíð við Stiga-
hlíð.
Upplýsingar gefa umsjónarfóstrur á skrifst. Dag-
vista barna í síma 27277.
REYKJKtfÍKURBORG |f|
Jlauá€Vi Stödíci
Staða bókavarðar við Borgarbókasafn Reykja-
víkur er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 25. september.
Upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Borgarbóka-
safns í síma 27155.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á
eyðublöðum sem þar fást.
REYKJMIÍKURBORG
Aau&cvi Stadu/i
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
óskar að ráða:
1. Ritara við Fjölskyldudeild, Vonarstræti 4.
Bæði heilsdagsstarf og tvö hálfsdags koma til
greina.
2. Hálfsdagsstarf ritara og hálfsdagsstarf gjald-
kera við hverfaskrifstofu Fjölskyldudeildar í
Mjóddinni. Eitt heilsdagsstarf kemurtil greina.
3. Sendil við aðalskrifstofu, Vonarstræti 4. Þetta
er heilsdagsstarf og auk sendilstarfa fylgja
þessari stöðu ýmis almenn skrifstofustörf.
Upplýsingar eru gefnar í síma 25500.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á
eyðublöðum sem þar fást.
III REYKJKJÍKURBORG IRl
MT JÍauda* Stikáa
Droplaugarstaðir, heimili aldraðra,
Snorrabraut 58
Starfsfólk óskast í eftirtalin störf: Starfsstúlkur í
eldhús 100% störf.
Á hjúkrunardeild við aðhlynningu í 100% störf og
hlutastörf.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 25811
milli kl. 9-12 f.h. virka daga.
REYKJMIÍKURBORG
Aau&an Stikáci
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
auglýsir:
Lausar stöður félagsráðgjafa á hverfaskrifstofum
fjölskyldudeildar í Vonarstræti 4 og Síðumúla 34.
Upplýsingar gefur yfirmaður fjölskyldudeildar í
síma 25500.
Umsóknarfrestur er til 2. október.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á
eyðubiöðum sem þar fást.