Þjóðviljinn - 25.02.1988, Side 3

Þjóðviljinn - 25.02.1988, Side 3
Kaupleigufrumvarpið Alexander stöðvar umræðu Fyrstu umræðu um kaupleigufrumvarpið var frestað íneðri deild Alþingis ígær að ósk Alexanders Stefánssonar Kaupleigufrumvarpið var fyrsta mál á dagskrá neðri deildar Alþingis í gær en umræðu um það var frestað að ósk Alex- anders Stefánssonar, þar sem stjórnarflokkarnir hafa ekki enn samþykkt frumvarpið. Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra lagði frumvarpið fram á Alþingi á þriðjudag og forseti neðri deildar hafði sett það fyrst á dagskrá fundarins í gær, en frestaði fundi þegar ljóst var að Alexander væri andvígur því að frumvarpið kæmi strax til umræðu. Alexander hefur lýst því yfir að það hafi verið slys hjá Jóhönnu að leggja frumvarpið fram áður en þingflokkar stjórnarinnar höfðu lagt blessun sína yfir það. -Sáf Vaka á Siglufirði Allt situr enn fast Einn samningafundur haldinn. Arndís Kristjánsdóttir: Bið á frekari viðræðum Engin hreyfing er í þreifingum Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði við atvinnurekendur um gerð nýrra kjarasamninga. Að sögn Arndísar Kristjánsdótt- ur, starfsmanns Vöku, hafa samningsaðilar ekkert ræðst við í nokkurn tíma. - Það var haldinn einn fundur fyrir nokkru og síðan ekki söguna meir. Eins og er verður bið á frekari viðræðum, sagði Arndís. Meðal þess sem Vaka hefur gert kröfu um er að í stað eftir- vinnu gildi næturvinnutaxti þegar dagvinnu lýkur. Verkafólk fái aukin réttindi til fjarveru frá vinnu vegna veikinda barna. Áunninn uppsagnarfrestur verði bundinn sömu atvinnugrein en ekki störfum á sama vinnustað og farið er fram á álagsgreiðslu í söltun. FRETTIR Breiðdalsvík 55 manns sagt upp Heimir Hávarðsson: Neyðarúrrœði. Hefðum ekki átt að hefja starfsemi að nýju eftir áramót Með réttu hefðum við þurft að grípa til uppsagnanna fyrr og hefja ekki starfsemi eftir ára- mót og það sama gildir um önnur hús, sagði Heimir Hávarðsson, framkvæmdastjóri Hraðfrysti- húss Breiðdælinga á Breiðdals- vík. Öllum starfsmönnum fyrir- tækisins, sem eru um 55 talsins, hefur verið sagt upp störfum og munar um minna í ekki fjölmenn- ara byggðarlagi. - Það er alltaf neyðarúrræði að segja fólki upp og við getum allt eins átt á hættu að missa vant fólk frá okkur úr byggðarlaginu, þar sem það á ekki í önnur hús að venda hér á staðnum, sagði Heimir, en uppsagnirnar koma til framkvæmda á næstu þremur mánuðum. Afundi stjórnar Byggðastofn- unar í gær var ákveðið að veita frystihúsinu Hjálmi á Flat- eyri 10 miljón kr. lán og Hrað- frystihúsinu á Hofsósi 18 miljón kr. lán en bæði þessi lán eru ætluð til fjárhagslegrar endurskipu- lagningar fyrirtækjanna. Alls voru afgreiddar lán- veitingar uppá 107,6 miljónir á fundinum, þar af tæpar 70 milj- ónir vegna fjárfestingar í fisk- vinnslu. Fjölmargar beiðnir liggja fyrir Byggðastofnun frá Listasafnið Hver skipar hverjum hvað? Pað var ekki byggingarnefnd heldur samstarfsnefnd um opinberar framkvœmdir semfól húsameistara og Innkaupastofnun að kanna Listasafnsdœmið Það er ekki rétt sem haft er eftir Guðmundi G. Þórarinssyni í Þjóðviljanum, að byggingar- nefnd Listasafnsins hafi beðið húsameistara ríkisins og Innkaupastofnun ríkisins um að kanna hversvegna áætlanir um byggingarkostnað Listasafnsins og endanlegur kostnaður stóðst ekki,“ sagði Skúli Guðmundsson, forstöðumaður Innkaupastofn- unar ríkisins, við Þjóðviljann í gær. Hið rétta er, að sögn Skúla, að samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir fól Innkaupastofn- un og embætti húsameistara ríkisins að fara sameiginlega yfir allt fjárhagsdæmi byggingar List- asafnsins og finna á því skýringar hvað valdi því að framkvæmdir fóru fram úr kostnaðaráætlun. Skúli vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið fyrr en niðurstöður þeirrar athugunar lægju fyrir. Garðar Halldórsson, húsa- meistari ríkisins, benti á í Þjóð- viljanum í gær að hann ætti ekki sæti í byggingarnefnd einsog Þjóðviljinn hafði sagt. Mistök Þjóðviljans voru þau að taka trúanlega grein í Morgunblaðinu frá 28. janúar, um ágrip af sögu Listasafnsins, byggða á heimild- um Selmu Jónsdóttur. Þar sagði orðrétt: „Byggingarnefnd var skipuð í árslok 1975, formaður hennar Guðmundur G. Þórarins- son. Auk hans áttu sæti Runólfur Þórarinsson, fulltrúi mennta- málaráðuneytisins, Garðar Hall- dórsson, arkitekt hússins, Karla Kristjánsdóttir, ritari, og þau sem áttu sæti í undirbúnings- nefndinni." Þar sem Garðar Halldórsson hafði ekki séð ástæðu til að birta athugasemd við þessa grein tók Þjóðviljinn hana trúanlega. Garðar segist ekki hafa unnið þær kostnaðaráætlanir sem Guð- mundur G. fór fram á að gerðar yrðu á árunum 1986 og 1987. - Horfurnar eru verri nú en oft áður. Við getum ekki bætt okkur upp þrengingarnar með hærra fiskverði erlendis. Verð á fisk- mörkuðum hefur verið í hámarki og það er frekar útlit fyrir að það fari lækkandi á næstunni, sagði Heimir. Að mati Heimis verður vandi fiskvinnslunnar ekki leystur nema með samhentu átaki allra landsmanna. - Það er ekki nóg að ætla sér að redda málunum á þriggja ára fresti eða þar um bil þegar allt er komið í óefni. Stöð- ugleikann vantar og réttan hugs- unarhátt. Heirnir nefndi að auk gengis- fellingar þyrfti að lækka vexti um helming, skuldbreyta lánum fisk- vinnslunnar, endurgreiða upps- afnaðan söluskatt og hætta við áform um launaskatt á fiskvinns- luna, til þess að von væri til að atvinnugreinin rétti úr kútnum. - Að auki verður að setja þak á útþensluna í þjónustugreinunum og albest væri ef þjóðarsátt næð- ist um kaup og kjör manna, sagði Heimir og nefndi sem hugsan- legan möguleika að verkafólk í fiskvinnslu fengi skattaívilnanir, sem t.d. næmu um 200-400 krón- um á dag, gegn því að kaupið stæði í stað. -rk Skálavík heitir nýr 70 tonna stálbátur sem smíðaður var í Póllandi og er nýkominn til landsins. Báturinn verður gerður út frá Ólafsvík á neta- og togveiðar. Hann reyndist mjög vel á siglingunni heim í hinum verstu veðrum. Það var Guðmundur Þorgrímsson vélavörður sem stillti sér upp fyrir framan nýja bátinn sem m.a. hefur vakið athygli fyrir vandaða smíði. Mynd E.ÓI. Byggðastofnun 70 miljónir í fiskvinnsluna Stjórn Byggðastofnunar hefur áhyggjur af afkomufiskvinnslunnar fiskvinnslufyrirtækjum um að- stoð en stjórn stofnunarinnar tel- ur að skapa þurfi fiskvinnslunni rekstargrundvöll og engin leið sé að leysa vanda einstakra frysti- húsa með lánveitingum einvörð- ungu. -lg. Húsameistari vann hinsvegar aðrar kostnaðaráætlanir sem stóðust heldur engan veginn. Má sem dæmi nefna kostnað- aráætlun sem Helgarpósturinn greindi frá 21. janúar. Þar segir að árið 1983 hafi húsameistari áætlað að það kostaði á núgild- andi verðlagi 860 þúsund krónur að ganga frá lóð, leggja hellur, koma fyrir útilýsingu og öðrum þáttum í frágangi utanhúss. Kostnaður vegna þessa þáttar mun hinsvegar nema 7,5 miljón- um króna á síðasta ári og því sem nú er nýlega hafið, og er þó frá- gangi utanhúss ekki lokið. -Sáf Sprengjufaraldur „Búið í bili“ Yfirvöld í Hafnarfirði segja að sprengjuslysið um helgina hafi sett nœgilegan skrekk ífólk til að faraldrinum linni Eg vona að við sjáum nú fyrir endann á þessum sprengjufar- aldri. Ég býst við að slysið á sunnudaginn var hafi orðið til að gera fólki Ijóst hve hættulegar þessar heimatilbúnu sprengjur eru, sagði Ólafur Guðmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Hafnarfirði í gær, en sprengju- eyðingardcild Landhelgisgæsl- unnar og lögreglan hafa varað al- varlega við þessum sprengjum. Að sögn Árna Guðmundsson- ar, æskulýðsfulltrúa í Hafnar- firði, eru engar sérstakar ráðstaf- anir fyrirhugaðar á næstunni vegna þessa, en líkt og Ólafur taldi hann að slysið hefði valdið mikilli hræðslu meðal fólks, og fyrir vikið mætti eiga von á að ekki yrði meira um uppákomur af þessu tagi í bráð. Ólafur sagði að alltaf hefði mátt búast við slysi, og slysið á sunnudaginn hefði orðið til að undirstrika réttmæti aðgerða lög- reglunnar í Hafnarfirði á þrett- ándanum, en ýmsum bæjarbúum þótti hún ganga of hart fram. Þá um kvöldið var lögreglan fjöl- menn að sögn Ólafs, og handtók þá sem sinntu ekki tilmælum um að tefja ekki í miðbænum. f þess- um aðgerðum lagði lögreglan hald á fjöldann allan af heimatil- búnum sprengjum. HS Fimmtudagur 25. febrúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.