Þjóðviljinn - 25.02.1988, Page 19
ÖRFRÉTTIR
ERLENDAR FRÉTTIR
Suður-Afríka
„Nú stefnir í styrjöld“
Leiðtogar blökkumanna íSuður-Afríku á einu máli um að bann
stjórnvalda við starfi andófsflokka muni auka átöksvartra og hvítra
Stál I stál. Ráðamenn I Pretóríu leggja bann við friðsamlegu andófi blakkra og draga stálglófana á hendur sér.
Skákmótið
í spænsku borginni Linares kem-
ur oss mörlöndum að því leyti við
að þar er hið nýja óskabarn þjóð-
arinnar meðal þátttakenda, sjálf-
ur Jóhann Hjartarson. f gær-
kveldi var tefld önnur umferðin á
móti þessu og urðu úrslit sem hér
segir: Chandler vann Nicolic og
Georgiev vann Tsjíburdanidze.
Jafntefli gerðu Timman og Port-
isch, Jusupov og Beljavskij, Lju-
bojevic og Nunn. Skák Jóhanns
og Spánverjans llescas fór í bið
eftir 40 leiki. f fyrstu umferð laut
okkar maður ( lægra haldi fyrir
Nunn sem er efstur ásamt Jusup-
ov, Beljavskij og Timman með
1,5 vinning. Jóhann er vinnings-
laus.
Æfir af reiði
hengdu nokkrir Palestínumenn
einn landa sinna á vesturbakka
Jóradanár í gær. Hópur manna
hafði safnast saman fyrir utan
heimili hans í þorpinu Khabatijeh
og haft hátt um meintar njósnir
hans fyrir ísraelska herinn. Fólkið
lagði eld að hýbýlunum og hóf
hann þá skothríð úr israelskri vél-
byssu sinni. Fjögurra ára gamall
drengur lét lifið og 13 menn
særðust. Þegar púðurreykurinn
þynntist varð skotmaðurinn góm-
aður og hengdur formálalaust í
næsta raflínustaur. í stað heng-
ingarólar var notast við þjóðfána
Palestínumanna.
Sovétmenn
munu í dag hefja brottflutning
kjarnflauga frá tveim herstöðvum
i Austur-Þýskalandi. Að sögn
embættismanns utanríkisráðu-
neytisins í Austur-Berlín er ætlast
til þess að bandarískir öldunga-
deildarþingmenn höggvi eftir
þessu og hespi af staðfestingu á
samningi Reagans og Gorbat-
sjovs um eyðileggingu meðal-
drægra kjarnflauga sinna.
60 konum og börnum
var í gær bjargað úr höndum
þrælasala í Bangladesh,
steinsnar frá landamærunum að
Indlandi. Ætlan glæpamannanna
var að smygla þeim yfir til nág-
rannarikisins og selja þau síðan.
Fyrir konurnar voru indversk og
pakistönsk hóruhús talin ákjós-
anlegur markaður en börnin átti
að selja til slátrunar fyrir 60 dali
stykkið. Eftir aflffun átti að hirða
nýru þeirra og græða þau í ein-
hvern fjársterkan þurfaling.
Leiðtogi repúblikana í öldunga-
deild Bandarfkjaþings, Róbert
Dole, vann í gær sigur í tvennum
forkosningum flokks síns fyrir
forsetakjör. Þær fóru fram f
fylkjunum Suður-Dakótu og
Minnesótu. Demókratarnir Duk-
akis og Gephardt unnu sitt kjör-
dæmið hvor í prófkjöri flokks
sfns.
Velgengni Doles í fylkjunum
tveim hefur fremur auglýsinga-
gildi en stórpólitíska þýðingu því
um sárafáa kjörfundarfulltrúa
var teflt. George Bush varafor-
seta hlýtur þó að hafa brugðið
þegar talningarmenn beggja
prófkjöra tjáðu honum að Pat
Ríkisstjórn skinnbleika minni-
hlutans f Suður-Afríku lagði í
gær blátt bann við starfí 17
stjórnmálasamtaka þeldökkra og
lagði mikiar hömlur á starf
verkalýðssambands svartra, Cos-
atu. Þessar gerræðislegu ákvarð-
anir eiga rót að rekja til „neyðar-
ástandsins“ sem Pretóríustjórnin
skóp einhliða fyrir tæpum tveim
árum með reglugerð. Leiðtogar
blökkumanna mótmæltu hástöf-
um f gær og sagði biskupinn og
nóbelsverðlaunahafinn Desmond
Tutu: „Nú stefnir í styrjöld.“
Af þeim sautján stjórnmála-
samtökum og flokkum sem bann-
að var að starfa í gær munar mest
um Lýðræðislegu einingar-
fylkinguna (UDF) með þrjár
miljónir félaga. Af öðrum
stjórnmálahópum má geta Al-
þýðusamtaka Azaníu, en félagar
þeirra leggja rækt við „afríska vit-
und“ og menningu; Samtök for-
eldra fanga, sem berjast gegn
geðþóttahandtökum lögreglu og
fyrir rétti fólks sem situr á bak við
lás og slá án dómsúrskurðar, og
Baráttuhóp um frelsi Nelsons
Mandelas. Alþýðusambandi
blakkra, Cosatu, er ennfremur
fyrirmunað að hafa afskipti af
nokkru því er ráðamenn skil-
greina hverju sinni sem
„stjórnmál."
Það féll „laga og reglumála-
ráðherra" hvítu minnihlutast-
jórnarinnar í skaut að láta boð
þetta út ganga í gær. Hann er Búi
einsog margir kollega hans, það
er af hollensku bergi brotinn, og
heitir Vlok. Vlok sagði einræðist-
ilskipanir stjórnar sinnar eiga að
binda enda á „byltingarandrúm-
sloftið" í landinu. Þeir sem gerst
þekkja til í Pretóríu segja fulljóst
að ríkisstjórn Þjóðarflokksins
óttist aukið fylgi og vaxandi áhrif
fasistahópa hægra megin við
flokk sinn og vilji því koma til
móts við kröfur þeirra um algert
afnám mannréttinda þeldökkra.
Leiðtogar blökkumanna og
mannréttindafrömuðir for-
dæmdu fyrirmæli Pretóríustjórn-
Robertson, sjónvarpsklerkurinn
fyrrverandi, hefði skotið honum
ref fyrir rass og hafnað í öðru sæti
í báðum fylkjum. Bush leggur nú
höfuðáherslu á „stóra þriðjudag-
inn“, kvennadaginn 8. mars, en
þá verða forkosningar í 20 fylkj-
um suðursins heita. Þar er Ro-
bertson á heimavelli og víst er að
„hulduher“ endurskírenda hans
vinnur ötullega að velgengni hins
heilaga manns.
Mikhael Dukakis, fylkisstjóri í
Massachusetts, vann í Minnesótu
og hreppti annað sætið í Suður-
Dakótu. Hann hefur því, að mati
fréttaritara Reuters, sýnt og
sannað að hann getur staðið sig
vel utan Nýja Englands.
arinnar harðlega í gær.
„Stjórnvöld hafa í hyggju að
brjóta alla stjórnmálaandstöðu
svertingja á bak aftur og má einu
gilda þótt hópar og samtök hafi
ætíð beitt sér fyrir friðsamlegu
andófi, allt á að berja niður með
stálglófanum...nú stefnir í styrj-
öld.“
Frú Winnie Mandela, eigin-
kona Nelsons, tók í sama streng
þegar henni bárust spurnir af
ákvörðun ráðamanna. Nú hefðu
þeir skvett olíu á eldinn og stór-
aukið líkur á að til alvarlegra
átaka dragi með hvítum og
dökkum. Mótmæli bárust enn-
fremur erlendis frá. Sir Geoffrey
Howe, utanríkisráðherra Bret-
lands, kvaðst vera bæði sár og
gramur en hvatti stjórnarand-
Richard Gephardt, fulltrúa-
deildarþingmaðurinn sem fór að
berjast gegn kerfinu þegar Gary
Hart féll frá sökum kvennafars,
sigraði í Suður-Dakótu einsog í
Iowu fyrir skemmstu.
Hið eina sem vakti undrun
manna í þessum forkosningum
var prýðileg útkoma
blökkumannaleiðtogans Jesse
Jacksons í Minnesótu en þar
stæðinga eindregið til þess að
halda í vonina um friðsamlegar
breytingar og afnám aðskilnaðar-
stefnunnar.
Fréttin barst skjótt manna á
meðal í Soweto, stærstu blökku-
mannabyggð Suður-Afríku, og
var um fátt annað rætt en þessar
nýju kúgunaraðgerðir hvíta
minnihlutans. Ekki kom til upp-
þota í gær þótt mönnum væri
mjög heitt í hamsi. Foringjar
þeldökkra og annarra kúgaðra
kynþátta sögðu þó fullvíst að
banninu yrði ekki tekið með
þegjandi þögninni. Einn af stofn-
endum UDF, séra Allan Bösek,
sagði að þar eð allt friðsamlegt
andóf gegn aðskilnaðarstefnunni
væri nú ólöglegt myndi fólk
álykta á þá leið að valdbeiting
hreppti hann annað sæti. Niður-
staðan er sérstaklega athygli-
sverð fyrir það að sárafáir svert-
ingjar eru búsettir þar í fylki.
Þetta bendir með öðrum orðum
til þess að hann eigi vaxandi fylgi
að fagna meðal hvítra manna.
Jackson er spáð velgengni á
kvennadaginn því hann á ætt og
óðul í myrkviðum suðursins.
Reuter/-ks.
væri eina færa leiðin í baráttunni
fyrir frelsi.
Reuter/-ks.
Pakistan/Afghanistan
Kanar sak-
aðir
um svik
Skœruliðar afghanskra
múslima telja
Bandaríkjastjórn sitja á
svikráðum viðsig
Einn af helstu leiðtogum afg-
hanskra múslima og andstæðinga
Kabúlstjórnarinnar bar í gær
Bandaríkjamönnum á brýn að
þeir brugguðu launráð með Sov-
étstjórninni, sér og Pakistan-
stjórn til meinsemdar.
Gulbuddin Hekmatjar gaf
þetta í skyn í boði í íslamabad.
Ásakanir sínar ber hann fram á
sama tíma og ljóst má vera að
vaxandi ágreinings gætir milli
ráðamanna í Pakistan og Was-
hington um mikilvægi þess hvort
samið verði í Genf um myndun
bráðabirgðastjórnar í Kabúl áður
en brottflutningur sovéska hers-
ins hefst úr Afghanistan eða
hvort slíkt verði látið liggja milli
hluta uns dátarnir eru komnir
heim. Kremlverjar ogvinirþeirra
í Kabúl hafa lagt á það höfuð-
áherslu að það sé Afghana sjálfra
að mynda stjórn en skæruliðar
múslima vilja að samningar um
bráðabirgðastjórn og „herinn
burt“ haldist í hendur.
„Mér virðist stórveldin hafa
samið um brottför Sovétmanna
án þess að Mujahideen stjórn
verði mynduð áður,“ sagði Hek-
matjar. Hann sakaði stórveldin
ennfremur um að vilja hefja
fyrrum kóng, Zahir Shah, til
valda á ný. Hann klykkti út með
því að hóta báli og brandi uns
síðasti „kommúnistinn“ hefði
snýtt rauðu, hann ætti enn vini í
íran ef svo færi að Bandaríkja-
stjórn kúgaði Pakistani til hlýðni.
Reuter/-ks.
Flmmtudagui 25. febrúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 19
Bandaríkin
Dole aftur
árol
Leiðtogi Repúblikanaflokksins í
öldungadeildinni hristi afsérslenið og vann
tvo auglýsingasigra. Jakcson nýtur vaxandi
fylgis hvítra
• ^
Jesse Jackson hafnaöi í öðru sæti í Minnesótu en þar búa fremur fáir blökku-
menn.