Þjóðviljinn - 12.08.1988, Qupperneq 2
Saddir
á slysstað
Hlaðborð fyrir Afríku
„Ágóðinn af hlaðborðinu fer í
lagfæringar á Amurut spítalanum
í Burkina Faso, sem áður hét Efri
Volta,“ sögðu þær Dídí Súsama
og Amala, en þær eru félagar í
Ananda Marga hreyfingunni,
sem mun bjóða upp á ljúffenga
austurlenska jurtarétti til styrktar
hjálparstarfi í Afríku í Risinu,
Hverfisgötu 105, nú á laugardag.
Parna verður boðið upp á mik-
inn fjölda ýmissa framandlegra
smárétta, þar sem sojaprótein og
hveitigluten er notað í stað kjöts
á hinn forvitnilegasta hátt.
Ekki verður bara boðið upp á
mat í Risinu heldur verður þar
einnig fjölbreytt skemmtidagskrá
þar sem fluttir verða þjóðlegir
söngvar og dansar frá Austur-
löndum, m.a. frá Filippseyjum.
Þá verður jóga einnig kynnt, en
Ananda Marga leggur mikla
áherslu á jógaæfingar. Einnig
verður skyggnimyndasýning.
Sælukot
Pær Dídí Súsama og Amala eru
báðar frá Filippseyjum. Dídí hef-
ur dvalið á íslandi í sjö ár en
Amala í eitt ár.
Dídí segist hafa komið hingað
til þess að hjálpa til við dag-
heimilið Sælukot í Skerjafirði. Sl.
vetur var sex ára deild á dag-
heimilinu að ósk foreldranna.
Þetta hefur skapað húsnæðis-
vandræði fyrir heimilið.
Dídí er nunna á vegum An-
anda Marga hreyfingarinnar og
starfar sem jógakennari. Hún
segir að hreyfingin sé alþjóðleg
og starfi nú í um 200 löndum, en
"úpphaíiega kemur hún frá Ind-
landi. Hún segir að hreyfingin
eigi ekkert skylt með trúarbrögð-
um, heldur sé þetta andleg og fé-
lagsleg hreyfing sem tengir sam-
an fræðslu á alhliða jóga og hug-
leiðslu sem leið til þroska.
Hjálparstarf
Hreyfingin leggur mjög mikla
áherslu á hjálparstarf á svæðum
þar sem náttúruhamfarir hafa átt
sér Stað, vegna jarðskjálfta,
flóða, eldsvoða, þurrka og einnig
á stríðssvæðum. Víða er um að
ræða langtíma þróunaraðstoð
einsog í Burkina Faso.
í Burkina Faso fer fram barátta
við Sahara eyðimörkina. Sjálf-
boðaliðar vinna að endurvexti
skóganna og áveitukerfum og er
| heildarkostnaður þess verkefnis
metinn á um 14 miljónir króna.
Áströlsk stjórnvöld hafa stutt
fyrsta hluta verkefnisins en af-
gangurinn er fjármagnaður með
framlögum almennings um allan
heim.
Dídí Súsama og Amala hvetja fólk til þess að fjölmenna í Risið og bragða austurlenska jurtasmárétti til styrktar
hjálparstarfi í Afríku. Mynd Ari.
þjóðfélagsleg yfirsýn liggi til
grundvallar allri starfseminni og
takmarkið sé að skapa réttlát
þjóðfélög sem mæti þörfum
manna á öllum sviðum.
Dídí hefur verið á Grænlandi
og vonast til þess að komast
þangað aftur í vetur, til þess að
vinna að uppbyggingu dagheimil-
is þar, en að sögn hennar eru eng-
in dagheimili starfrækt í Græn-
landi.
Að lokum sögðust þær Dídí og
Amala vonast til þess að fólk fjöl-
mennti í Risið á Hverfisgötu 105
á morgun, laugardaginn 13. ág-
úst. Með því getur fólk sameinað
þrennt, bragðað ljúffenga austur-
lenska jurtasmárétti, sem sjald-
séðir eru á borðum íslendinga,
notið skemmtiatriða og stutt gott
málefni. Hlaðborðið stendur frá
klukkan 18 til 21 og eru aðgöngu-
miðar seldir við innganginn og í
heilsuvöruverslunum. Verð fyrir
fullorðna er 900 krónur en sér-
stakur afsláttur er fyrir börn og
unglinga.
Matjurtagarður í geimnum
Sl. haust skutu Kínverjar
geimflauginni Gangan langa 2 á
braut um jörðu. Um borð í
geimflauginni voru þangjurtir og
mælitæki. Eftir fimm daga hring-
sól um jörðu snéri flaugin aftur til
jarðar.
Tilgangurinn með þessu var sá
að kanna hvort hagkvæmt yrði að
vera með matjurtargarða í
geimnum. Jurtirnar sem urðu
fyrir valinu voru þangjurtir, sem
henta vel til manneldis. Lítill
þangjurtagarður ætti því að geta
leyst hluta af nestispakkanum í
löngum geimferðum, en fæðu-
öflun í geimnum hefur verið eitt
af erfiðustu vandamálunum fyrir
vísindamenn að leysa.
Á árabilinu 2030-2050 er áætl-
að að mannað geimfar fari til
Mars og mun það ferðalag taka
þrjú ár. Ef geimfararnir ættu að
hafa með matarforða fyrir allan
þann tíma þyrftu þeir að hafa
með sér risavörugeymslu.
Þörungagarður Kínverjanna er
því kannski lausn á þessu vanda-
máli og kínverskir matreiðslu-
meistarar fullyrða að velkrydduð
þörungastappa sé hið mesta lost-
ætl' -Sáf/ Illustreret Videnskab
Nýlega fór fram æfingj
nokkurra björgunarsveita á!
flugslysi við Keflavíkurflug-
völl. Gömul rúta af vellinum
var notuð sem flugvélarflak
og voru nokkrir hermenn
fengnir til að leika slasaða og
dauða með björgunarsveitar-
fólki. Þegar hermennirnir
. mættu til leiks höfðu þeir allir
meðferðis litla hvíta tösku.
Lék íslenskum þátttakendum
forvitni á að vita hvað væri í
töskunum. Einn þeirra sló því
fram í gríni að það væru ör-
ugglega hamborgarar í tö-
skunum, því kanar færu ekki
langt án þeirra. Eftir að hafa
rætt þetta í einhvern tíma gat
einn Islendingana ekki setið á
sér lengur og spurði einn Kan-
ann hvað væri í töskunum.
Var spurningunni tekið vel og
opnaði kaninn tösku sfna og
opinberaði innihaldið; góm-
sætan hamborgara.B
Þorsteinn
þurfti frí
Tíðindamaður Helgar-
blaðsins hitti einn úr forstjór-
anefndinni úti á landi um síð-
ustu helgi. Hann varð mjög
undrandi við og spurði for-
stjórann hvort hann væri ekki
upptekinn af fundum á vegum
nefndarinnar. Hinn kvað nei
við og sagði að það væri al-
veg nóg fyrir þá að hittast eftir
helgi. Strax klukkan sjö á
mánudagsmorgun?spurði þá
tíðindamaðurinn. Nei, bless-
aður vertu okkur liggur ekkert
á maður, ætli við hittumst ekki
einhverntímann upp úr há-
degi. Þessi nefnd var bara
sett á laggirnar til þess að
friða Denna svo Steini gæti
skroppið til Ameríku í sumar-
frí. Það gerist ekkert í þessum
málum fyrr en þcrstelnn kem-
ur aftur í lok mánaðarins.B
Lokað
samkvæmt
áætlun
Spurst hefur út að stjórn
Sambandsfrystihúsanna sé
búin að setja niður á dagatal
niðurröðun þeirra fiskvinnslu-
fyrirtækja sem segja eigi næst
upp um öllu sínu starfsfólki á
ettir Meitlinum hf. í Þorláks-
höfn sem fyrst húsa var látið
riða á vaðið með fjöldaupp-
sagnir sinna starfsmanna.
Ætlun Sambandsmanna er
að nota lokunarsvipuna á
samstarfsflokka Framsóknar-;
flokksins í ríkisstjórninni verði
þeir ekki leiðitamir forystu
flokksins við að samþykkja
þær efnahagsráðstafanir sem
Framsóknarforustan og SÍS
vilja að gerðar verði á næstu
dögum og vikum til að rétta
við lélega afkomu Sambands-
ins sem er heldur bágborin
um þessar mundir.B
Réttlátt
þjóðfélag
Þær Dídí og Amala sögðu að
hér á landi væru um 50 Filippey-
ingar, en aðeins hluti þeirra væri í
Ananda Marga hreyfingunni.
Hreyfingin hefur starfað hér í 12
ár og að sögn þeirra er töluverður
hópur íslendinga í henni.
Áuk barnaheimilisins er hreyf-
ingin með verslunina Kornmark-
aðinn í Reykjavík og á vegum
hennar eru haldin námskeið í
andlegri hugrækt og matreiðslu.
Amala sagði að heilræn
2 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN - NÝTT HELGARBLAÐ