Þjóðviljinn - 12.08.1988, Page 22
Leiklist
Elsk-
huginn
Alþýðuleikhúsið
frumsýnir
sálfræðiþriller eftir
Harold Pinter
f næstu viku þjófstartar Alþýð-
uleikhúsið leikárinu með frum-
sýningu á Elskhuganum, eftir
Harold Pinter. Leikritið er skrif-
að árið 1962 og var frumsýnt ári
síðar, en leikarar og leikstjóri eru
sammála um að leikritið sé í dag
jafn „nýtt“ og það var fyrir 26
árum, enda hafi manneskjan, eða
mannlegt eðli tæplega breyst
mikið á þessum árum.
Elskhuginn segir frá hjónunum
Richard og Söru, sem í upphafi
leiksins virðast lifa hefðbundnu
og rólegu lífi, hún heiðvirð
heimafrú með elskhuga, hann
virðulegur skrifstofumaður. Allt
virðist fara fram í sátt og sam-
lyndi, Richard er umburðar-
lyndur eiginmaður með fullan
skilning á tómstundagamni konu
sinnar, eða... er málunum í raun
og veru þannig háttað?
Eins og við er að búast í verki
eftir Pinter kemur fljótlega í ljós
að ekkert er eins og það lítur út
fyrir að vera í hjónabandsleik
þeirra Söru og Richards. Nema
því sé öfugt farið, og hlutirnir séu
nákvæmlega það sem þeir Iíta út
fyrir að vera, það þurfi bara að
sýna manni það.
Þau Viðar Eggertsson og Erla
B. Skúladóttir leika hjónin Ric-
hard og Söru, Ingunn Ásdísar-
dóttir leikstýrir og Gerla sér um
leikmynd og búninga. Þau eru
helst á því að Elskhuginn sé sál-
fræðiþriller.
- Pinter heldur áhorfendum í
stöðugri spennu um hvað gerist
næst. Það iiggur alltaf í loftinu að
eitthvað óvænt eða hræðilegt ger-
ist, og það gerist líka, jafnvel þó
að persónan geri ekki annað en
að fá sér ólívu.
- Þessar persónur eru ekki svo
frábrugðnar því fólki sem maður
hittir á götu, og það er kannski
einmitt það sem er svo skelfilegt
við þær, Hvað þær eru í rauninni
venjulegar.
Sýningar á Elskhuganum
verða í Ásmundarsal við Freyju-
götu, og frumsýning verður á
fimmtudaginn í næstu viku.
LG
Viðar og Erla í hlutverkum Richards og Söru.
Mynd - Eiríkur Guðjónsson.
Græsku-
laust
gaman
Silja Aðalsteinsdóttir skrifar um bókina
Meira til söngs eftir Jónas Árnason
Fyrr í sumar kom út bókin
Meira til söngs (útg. Imbusteinn)
með vísum og kvæðum Jónasar
Árnasonar og nótur við þau sem
sönghæf eru. Þetta er bók barma-
full af kímni og léttu háði og
fyrsta grínið raunar fólgið í titlin-
um. Ætla mætti að bókin héti
Meira til söngs vegna þess að hún
er eins konar viðbót við bókina
Til söngs sem kom út „fyrir ekki
ýkjalöngu" eins og segir í
inngangsorðum. En þegar nánar'
er að gætt heitir hún Meira til
söngs - það er að segja að meiri-
hluta kvæðanna í henni má
syngja.
Bókin er í stóru broti og skipt-
ist í sex kafla sem hver er mynd-
skreyttur af sínum listamanni.
Framan við hvern kafla eru at-
hugasemdir útgefanda og skýr-
ingar. Aftan við meginmál eru
nótumar sem Karl Sighvatsson
útsetti og tölvufærði. Allra aftast
er svo stakt kvæðið um Ragnar
pokamann.
í tveim fyrstu hlutum bókar-
innar eru kvæði úr leikritum og
söngleikjum eftir Jónas og Jón
Múla Árnasyni sem mörg hafa
verið vinsæl áratugum saman.
Bókin hefst á kvæðinu góða sem
kannski flestir kunna úr þessu
safni, Einu sinni á ágústkvöldi,
með jafnindælli mynd eftir Ragn-
heiði Jónsdóttur af elskendum
sem vaxa út úr landinu á kjar-
valskan hátt og fuglar gera sér
hreiður í hári þeirra. Á eftir því
fara í fyrsta hluta ástarsöngvar,
jarðneskir, heitir en þó léttir — að
maður ekki segi léttúðugir - og
margir firna vel ortir. Þetta era
Silja Aðalsteinsdóttir
kvæði sem eiga allaf við og þarfn-
ast engra skýringa, kvæði sem
gott er að fá á bók til að rifja upp,
eins og Ljúflingshóll, Án þín/
Með þér og Stúlkan mín er mæt-
ust:
Dável samansett hún er.
Silkimjúk og nett hún er.
Lipur, grönn og létt hún er.
Laus við svik og prett hún er.
í þessum kafla var Rósa eina
kvæðið sem ég þekkti ekki. Það
er kannski ekki rismikið en
snjallt að nota vísu Vatnsenda-
Rósu sem viðlag og víkka mynd-
ina af Rósunni sem bíður heima
eftir farmanninum. Ragnheiður
sameinar á fallegri mynd þessar
Rósur og engil með húfu og
rauðan skúf í peysu. Annars
finnst mér myndir hennar stund-
um of þungar og grófar til að vera
við þennan undurlétta kveðskap.
Alls konar bellibrögð taka við
af ljúfum ástum í öðrum hluta
sem Katrín Briem myndskreytir.
Þessi kvæði hafa meiri þörf fyrir
skýringar, sum standa varla utan
tilefnisins í leikjunum sem þau
eru úr, en í þeim bestu sést vel
hvað tvíræðnin getur verið gott
vopn í höndum Jónasar. Hér
segir af ófyrirleitnum bissniss-
mönnum, sjálfumglöðum lög-
regluþjónum, skurðóðum lækn-
um með meiru, en hvergi er höf-
undur meinlegur svo úr liófi
HAGKAUP Á SELTJARNARNESI
Höfum opnað
MATVÖRUMARKAÐ
við Eiðistorg á Seltjarnarnesi.
HAGKAUP
Seltj arnarnesi