Þjóðviljinn - 12.08.1988, Blaðsíða 26
LENA
BERGMANN
7— X— 3 T íT 2— z— T 2? 5" 9 V 10 u
)Z y 3 T T~ c? íT n RP )S z )<o 3 9 V £T
it 4— T~ /4 <í> )Z 2o 2( 22 V H 23 2 4
)k> V I6> W~ ZT~ T~ H T~ <P sr T~ TT Z/
% 25" 2S- 3 )é> V ÖT~ )Z JT~ $2 * T~ 14
9 S' V 8 )Z 17 H 23 zf IT ¥ 4 5r
S? n )1 1? Z 2 0? 28 23 /6 8 2 )é> %
TT~ Zl )S 4 e 24 23 T~ V 23 )2 V 30
XL 2 f /z 31 3 4 V 4 43 1? 23 4
10 Ý 3 T T~ l(r £ /*/ 2 Zl T~
12 v °) 34 V /b 8 T~ 22 H
s? )f 2 fT /i H Hp 21 )( 3 4 2 )l
TTT 0 %> l'i Z8 5 V rf~ ÍT V 2 T~ IJT 3
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞ/EÖ
Jóhannes Jósepsson, Rauðamýri 4, Akureyri, fékk verðlaun fyrir
krossgátu nr. 627. Hann fær senda bókina Töluð orð eftir Andrés
Björnsson, fyrrverandi útvarpsstjóra.
Verðlaunakrossgóta
CO
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá karl-
mannsnafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til
Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 3“.
Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinnings-
hafa.
4 30 1£ 20 9 )(o
Verðlaun fyrir krossgátu nr. 3 er
bókin Hvíta rósin eftir Inge Scho-
oll, en í henni segir hún frá and-
spyrnuhóp í Þýskalandi nasism-
ans og lífssögu systkina sinna.
Menningarsjóður gaf út.
MATUR^f
Eplaréttur
í eftirmat
Svona fikrar maður sig áfram
eftir máltíðinni: fyrst kom súpa,
þá aðalréttur og nú er komið að
eftirrétti.
Mér hefur alltaf fundist að
eftirréttir væru talsvert vanda-
mál. Þeir geta verið skratti tíma-
frekir - ef maður þá leggur út í að
búa eitthvað til sem er ögn frum-
legra en ís. Svo er annað: þessi
skelfilega tilhugsun um allar hita-
einingarnar, sem allir eftirréttir
eru fullir af svo út úr flóir. Herra
minn sæll og trúr!
En samt leyfi ég mér að mæla
með þessum hér eftirlætis eftir-
rétti mínum. Hann hefur ýmsa
kosti. Það er fljótlegt að búa
hann til. Hann er ódýr og meira
að segja hollur. Eða að minnsta
kosti ekki neitt skaðlegur að
heitið getur.
Hann verður til á þessa leið:
Maður tekur um það bil kíló af
matareplum. Það er vitanlega
ekkert á móti því að nota fyrsta
flokks epli, en við skulum bara
láta okkur hafa það að muna að
það er ekki of mikið í pyngjunni.
Þessi epli skrælir maður og tekur úr
þeim kjamana og sker hvert epli í
svosem átta parta.
Eplin eru sett í pott, yfir þau
hellt dálitlu af vatni og svo eru
þau soðin undir loki yfir hægum
eldi þangað til þau eru orðin að
mauki.
Ekki sakar að bæta á þau
hnefafylli af rúsínum.
Venjulega er ekki nauðsynlegt
að setja sykur út á (nema menn
séu þeim mun gefnari fyrir sæt-
indi), en það er mjög við hæfi að
bæta eplaréttinn með sítrónusafa
(eftir smekk) þegar hann hefur
náð að kólna.
Þetta er svo borðað með
þeyttum rjóma og ekki sakar það
að stráð sé yfir eplamaukið rist-
uðum möndluflögum og súkku-
laðispónum.
Verði ykkur að góðu.
5S
KRISTJÁN
fRÍMANN
éji-------
Hafi lesendur áhuga á að fá drauma sína ráðna eru þeir
hvattir til að senda þá til blaðsins og merkja umslagið:
Draumstafir, Nýtthelgarblað, Þjóðviljinn, Síðu-
múlaó, 108Reykjavík.
Það brenna
eldar
Draumeldar geta verið já-
kvæðir kraftar okkur til aðstoðar
gegnum erfiðleika.
Að kveikja eld í draumi er
bending um að nú sé tími á nýtt
verkefni, hvernig til tekst fer eftir
bruna eldsins.
Eldur getur verið tákn um af-
stöðu okkar til lífsins, erum við
hrædd við eldinn eða ekki?
Ráðum við við eldinn eða ekki?
Leikur með eld, t.d. eldspýtur,
getur vísað til samsvarandi í
vöku, erum við að tefla í tvísýnu?
Draumur þar sem við sleppum
úr eldsvoða er táknrænn, hann
getur annarsvegar verið merki
um að aðsteðjandi erfiðleikar
muni yfirstígast eða að sálin sé í
einskonar endurhreinsun.
Orku- og áhugasvið okkar,
jafnvel heildarsýn okkar á lífið
getur verið endurskoðun ef
draumarnir snúast um elda.
Heitt í bak
Eldur
Frá því við skildum hvernig við
gætum beislað eldinn hefur hann
verið einn af okkar bestu vinum /
óvinum, veitt okkur yl, eldað
matinn okkar, lýst okkur í myrkr-
inu og brennt okkur í spað. Ef við
gætum á sama hátt nýtt drauma-
eldana væru víst mörg okkar
stödd í eldhafi stormandi lukku
og önnur á eldhjóli inn í framtíð-
ina, þvíeldurer jákvætt orkutákn
hlaðið kjarnorku sólar sem bygg-
ir og bætir. En hætta er alltaf á
næsta leiti eins og hjá íkarusi
forðum, of náin mök við eldinn
og...
„Ur öskunni
í eldinn“
Eldhaf í draumi gæti verið
mikilvægt tákn, einskonar
hreinsunareldur, merki til við-
komandi að betri maðurinn knýi
á, að heillavænlegt væri að tjá sig
á jákvæðari hátt, m.a. gegnum
uppbyggjandi störf, temja sér
jákvæðari afstöðu sem leiðir af
sér aukinn kraft og öryggi.
Brennið þið,
vitar
Draumeldar geta verið dreym-
endum leiðarljós á vandrötuðum
vegum lífsins.
Húsbruni getur verið tíma-
mótamerki.
Brenna getur verið tákn nýs
tíma, nýrra leiða.
Varðeldur merki um umskipti.
Eldgos, undanfari umbrota.
„Eldur í ösk-
unni leynist“
Hvernig umgöngumst við eld-
inn úr draumi í vöku? Meðvitað
eins og sá sem lætur ei eld á arni
deyja eða ómeðvitað og eldurinn
Leiðarljós
kulnar því eigi var kynt. Mörgum
þykir betra að stíga í eldinn en að
standa í honum, aðrir skara eld
að sinni köku en hinir sem eld
vilja hafa leita í öskunni.
26 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN - NÝTT HELGARBLAÐ