Þjóðviljinn - 21.10.1988, Síða 17
ísold
fæddist
dóttir
Kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar I
skugga hrafnsins frumsýnd nk. sunnu-
dag í Laugarásbíói. Mynd um ást, af-
brýði, hatur, hefnd og fyrirgefningu.
Heildarkostnaður 100 miljónir króna.
Tinna Gunnlaugsdóttir og Helgi Skúla-
son tilnefnd til Evrópu-verðlauna í
kvikmyndaleik fyrir leik sinn í mynd-
inni
„Auðvitað er frumsýningar-
skrekkur í manni sem á eftir
að aukast eftir því sem nær
dregur frumsýningu og verður
í hámarki rétt áður en myndin
byrjar,“ sagði Tinna Gunn-
laugsdóttir leikari sem leikur
ísold í kvikmyndinni I skugga
hrafnsins sem Hrafn Gunn-
laugsson leikstýrir eftir eigin
handriti. Myndin verður frum-
sýnd nk. sunnudag í Laugar-
ásbíói.
Svo skemmtilega vildi til að sl.
þriðjudag 18. október fæddist
þeim Tinnu og manni hennar
Agli Ólafssyni 12 marka og 50 cm
dóttir á Fæðingardeild Lands-
spítalans og sagði Tinna að næsta
verkefni sitt yrði uppeldi dóttur-
innar, aðspurð um hvað hún tæki
sér fyrir hendur á næstunni á
leiksviði eða í kvikmyndaleik.
Engu að síður verður Tinna við-
stödd frumsýningu myndarinnar í
Laugarásbíói nk. sunnudag.
Útnefnd
til verðlauna
Kvikmyndin í skugga hrafnsins
hefur fengið tvær útnefningar til
kvikmyndaverðlauna Evrópu
sem tilkynnt verða í næsta mán-
uði, Tinna fyrir leik sinn í aðal-
hlutverki sem ísold og Helgi
Skúlason fyrir aukahlutverk.
Tinna sagði það vera mikinn
heiður fyrir kvikmyndina að
hljóta þessar útnefningar og hún
sagðist vera staðráðin í að fara út
til Berlínar þegar úrslitin yrðu til-
kynnt, en hvort hún myndi bera
sigur úr býtum yrði bara að koma
í ljós á sínum tíma.
Tinna sagði að það væri mikill
munur á að leika annarsvegar í
kvikmynd og hinsvegar í leikhúsi.
Þegar kvikmynd væri tekin væri
ferðast fram og aftur í tíma og
erfitt að hafa heildarsýn yfir efn-
ið. Aftur á móti væri hægt að
leika sig upp í leikverki og yfir-
sýnin þar væri miklu meiri eins og
gefur að skilja.
Pegar myndin var tekin sl.
sumar voru útisenur teknar svo til
eingöngu úti á landi sem Tinna
sagði að hefði verið langt úthald í
misjöfnum veðrum. Þegar þeim
tökum lauk var síðan haldið í
kvikmyndaver í Stokkhólmi um
haustið.
Saga íslenska
kvenskörungsins
í skugga hrafnsins er saga um
ást, afbrýði, hatur, hefnd og
fyrirgefningu. Hún er saga manns
sem fórnar öllu til að eignast allt.
Hún er saga íslenska kvenskör-
ungsins, konunnar sem lætur
ekki bugast og stendur andspænis
reiddum sverðum með styrk ást-
arinnar að vopni. Kvikmyndin er
saga elskendanna Trausta og ís-
oldar og eru nöfn þeirra sótt í
söguna um Tristram og ísold.
Elskendurna sem var ekki
skapað nema að skilja. Kvenper-
sónur myndarinnar eru kven-
skörungar íslendingasagnanna
og ennfremur er víða leitað fanga
um efni hennar í Sturlungu.
Myndin er ekki framhald af kvik-
myndinni Hrafninn flýgur, en
fyrir þann sem vill er hægt að sjá
tengsl á milli myndanna.
Aðalpersóna myndarinnar er
Trausti sem er á leið heim til ís-
lands frá Noregi, þar sem hann
hefur verið við nám í guðfræði. I
för með honum er ítalskur málari
sem ætlar að mála altaristöflu í
kirkjuna að Krossi, bænum þar
sem fjölskylda Trausta býr. Þar
stjórnar búi Edda móðir Tausta
en faðir hans sem var heiðinn var
veginn þegar Trausti var barn að
aldri.
Skammt frá þeim stað þar sem
Trausti og menn hans taka land,
ríða þeir fram á hafrekinn hval og
eru tveir flokkar að berjast um
eignarrétt yfir honum. Annars-
vegar heimafólkið á Krossi og
hinsvegar Eiríkur, voldugur
höfðingi og menn hans. í átökun-
um særist móðir Trausta og til að
leita hefnda halda Grímur og
menn hans að bæ Eiríks, fella
hann og leggja eld í hús. Trausti
bjargar dóttur Eiríks, ísold og
barni hennar Sól úr eldinum og
tekur þær heim með sér að
Krossi.
Edda móðir Trausta sem liggur
helsærð eftir bardagann, segir er
hún fréttir að Eiríkur er fallinn og
ísold sé í för með Trausta, að
ísold sé norn. Þegar Trausti spyr
frekar um ísold segir Edda að
Eiríkur hafi lofað að gifta ísold
Hjörleifi syni Harðar biskups; þá
muni sameinast mikil auðævi og
ísold verða voldugasta kona ís-
lands. Edda segir að Trausti verði
að semja um bætur fyrir Eirík við
Hörð biskup, en hvetur hann til
að láta ísold afskipta. En þá er
það ísold sem tekur völdin í sínar
hendur.
í kirkjunni á Krossi reynir
ísold að vega Trausta og hefna
föður síns. í átökunum á milli
þeirra vaknar tilfinning í brjóst-
um beggja. Trausta finnst hann
hafa þekkt ísold í þúsund ár. Þeg-
ar Hörður biskup kemur ásamt
Sigríði konu sinni og syni þeirra
Hjörleifi, mætast stálin stinn og
sjón er sögu ríkari.
Tveggja tíma
mynd
Um aðra helgi 28. október
verður kvikmyndin frumsýnd í
þrem kvikmyndahúsum í Stokk-
hólmi og ífleiri borgum í Svíþjóð.
Daginn eftir þann 29. í Osló og
fleiri borgum íNoregi. Til stóð að
frumsýna myndina á öllum
Norðurlöndunum samtímis en
frumsýningunni í Danmörku og
Finnlandi hefur verið frestað
fram yfir 26. nóvember þegar úr-
slit liggja fyrir um hvaða myndir
hljóta kvikmyndaverðlaun Evr-
ópu.
Kvikmyndin er um tveir
klukkutímar að lengd og er tekin
í cinemascope og með digital
hljóði í dolby-steríó. Heildar-
kostnaður við myndina nemur
um 100 miljónum króna og þar af
lagði Kvikmyndasjóður til 15
miljónir. Cinema Art og Sænska
kvikmyndastofnunin sjá um
dreifingu myndarinnar og hefur
verið samið um sýningu á henni í
kvikmyndahúsum víðar í Evrópu
í vetur, en auk þeirra er myndin
framleidd af F.I.L.M.
Með aðalhlutverk fara auk
Tinnu og Helga, Reine Brynj-
ólfsson, Sune Mangs, Egill Ólafs-
son, Sigurður Sigurjónsson,
Kristbjörg Kjeld, Helga Back-
man og Sveinn M. Eiðsson.
Framleiðandi er Christer Abra-
hamsen, aðstoðarleikstjóri Dani-
el Bergman, framkvæmdastjóri
Kristján Þórður Hrafnsson, kvik-
myndataka Esa Vuorinen, kvik-
myndatónlist Hans-Eirik Philip,
leikmynd, útlit og búningar Karl
Júlíusson, innanhúshús í mynd-
veri Bo Lindgren, hljóð Gunnar
Smári Helgason og um klippingu
sá Edda Kristjánsdóttir. —grh
Tinna Gunnlaugsdóttir með nýfædda dóttur sína
og Egils Ólafssonar sem fæddist sl. þriðjudag, en
fyrir eiga þau tvo drengi. Mynd; Jim Smart.
Reine Brynjólfsson og Tinna Gunnlaugsdóttir j
hlutverkumTraustaog Ísoldaríkvikmyndinni (
skuggahrafnsins.
* *
16 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 21. október 1988
Föstudagur 21.®któber 1988 nÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 17
Halldór
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm i
hljóp burt
Víkurskip
farin að ramba
Utanríkisráðuneytið hefur
sent erindi til hafnarstjórnar-
innar í Neskaupstað þar sem
óskað er eftir heimild fyrir því
að NATO-skipið Alliance frá
Fyrir rúmu ári féll Stefán Ben-
ediktsson, núverandi þjóð- I
garðsvörður í Skaftafelli, út af
þingi og var hann þá ráðinn
sem arkitekt til menntamála- I
Mönnum hefur orðið tíðrætt
um viðtal sem Árni Snævarr,
fréttamaður Sjónvarps, átti
við Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra fyrr í
vikunni um hvalamálið. Árni
tók viðtalið í París, þar sem
Halldór var staddur á
matvælasýningu. Halldóri
mun hafa verið mjög brugðið
þegar Árni bar undir hann um-
mæli Steingríms Her-
mannssonar, um að full
ástæða væri til þess að endu-
rskoða stefnu íslendinga í
hvalveiðimálum, því Halldór
mun hafa heyrt þessi ummæli
fyrst í sjónvarpsviðtalinu. Þá
brást Halldór hinn versti við
þegar Árni spurði hvort hann
myndi segja af sér ef svo færi
að hann biði lægri hlut innan
ríkisstjórnarinnar. Halldór
rauk á fætur og strunsaði burt
og urðu frönsku sjónvarps-
tökumennirnir klumsa yfir
hátterni ráðherrans. Árna
tókst þó með lempni að sefa
reiði ráðherrans og fá hann til
þess að Ijúka viðtalinu, en
einsog sjá mátti í sjónvarpinu
runnu svitaperlur niður kinnar
og nef ráðherrans. Því miður
var brotthlaupið klippt út úr
fréttinni áður en hún var sýnd.
V-Þýskalandi fái að leggjast
þar að bryggju þann 9. og 10.
nóvember n.k. Erindið hefur
ekki verið afgreitt í hafnar-
stjórninni, en hún hefuróskað
eftir frekari upplýsingum frá
ráðuneytinu um þetta NATO-
skip. Eystra eru menn ekki
par hrifnir af þessari herskipa-
heimsókn og margt bendir til
þess að hafnarstjórnin hafni
beiðni ráðuneytisins. Bera
heimamenn því við að ekkert
viðlegupláss sé fyrir svo stórt
skip í miðri síldar- og loðnu-
vertíð. Einnig vilji menn ekkert
hafa með herskip gera í þess-
um friðarbæ, hvað þá aðeins
tveimur dögum eftir bylting-
arafmæli í Rússíá.
ráðuneytisins. Þar sem ráðu-
neytið áformaði ekki að láta
byggja yfir sig, óttuðust menn
að starf arkitektsins yrði ein-
göngu að skipuleggja breyt-
ingar á skrifstofum ráðuneyt-
isins og leggja á ráðin um
kaup á nýjum húsgögnum. En
ráðning hans var rökstudd
með því að mörgu þyrfti að
sinna á þessu sviði í
skólabyggingum og öðrum
byggingum sem undir ráðu-
neytið heyrðu. Þegar Stefán
fór að Skaftafelli var starfið
laust. Skömmu áðuren Birgir
ísleifur Gunnarsson lét af
ráðherradómi skipaði hann
Stefán Snæbjörnsson í
starfið og tók hann þegar til
við að skoða Þjóðleikhús-
bygginguna. Menn velta því
fyrir sér hvert sé eiginlega
starfssvið Garðars Halldórs-
sonar húsameistara ríkisins.
LAÐA
FRAM ÞAÐ BESTA
í ÚTLITI ÞÍNU
COLOURS litgreining byggist á nákvœmri
athugun á litarafti þínu og ráðgjöf um litaval
samkvœmt því. í notalegu umhverfi finnum við
þá liti sem best laða fram og undirstrika þína
eigin eðlilegu liti ogpersónuleika. Leiðbeint er
um litaval á kUeðnaði og fylgihlutum og veitt
aðstoð við snyrtingu
með Colours snyrtivör-
um. Að lokinni
litgreiningu feerð þú
vandað leðurveski með
prufum af þeim litum sem þér hœfa best. Við
Colours-litgreiningu er rík áhersla lögð á
persónulega þjónustu. Því er ráðgjöfin veitt i
einkatímum og er að sjálfsögðu jafnt fyrir
konur sem karla.
VETRAR
DEKKIN
Nú er veturinn framundan og tímabært að
búa bílinn til vetraraksturs.
Athugaðu vel kosti þess að aka á
ónegldum vetrarhjólbörðum.
Þeim fækkar stöðugt sem aka á negldum.
Farðu varlega!
Gatnamðlastjórinn
Engin NATO-skip
í Norðfjörð
Hringdu í sima 680790 eða skrifaðu og við sendum
þér íslenskan kynningarbækllng um hæl.
Tímapantanir og allar upplýsingar í síma 680790.
Fjárhagsstaða skipafélagsins
Víkur sem Finnbogi Kjeld
rekur, er ekki með besta móti
þessa dagana, eins og al-
menningur hefur orðið vitni
að, eftir að skipverjar á einu
skipi félagsins, Hvalvíkinni,
neituðu að losa skipið fyrr en
gengið hefði verið frá uppgjöri
á vangoldnum launum. Úr
viðskiptaheiminum heyrist að
óvíst sé hvort skipakónginum
takist að rétta skútuna við, því
vandinn sé mikill víðar en í út-
gerðinni. Þannig standi dótt-
urfyrirtækið, Saltsalan hf.,
mjög illa og stórar skuldir hafi
hlaðist upp í viðskiptahöfnum
um allt land.
Garðabær hf.
í utandagskrárumræðum á
Alþingi um synjun ríkisstjórn-
arinnar á niðurgreiðslum á
skipasmíðum Stálvíkur fyrir
Marokkómenn, hrasaði Júlí-
us Sólnes skemmtilega á
tungunni. Þingmaðurinn hafði
flutt all ýtarlega tölu um ágæti
samningsins við hina erlendu
aðila og vék talinu að Garða-
bæ. Þá vildi ekki betur til en
svo að hann sagði Garðabær
hf. Þingmenn Reykjaness
rumskuðu af blundi en Júlíus
var fljótur að átta sig og bætti
því við að hann vissi að
auðvitað væri ekki enn búið
að breyta Garðabæ í hlutafé-
lag.
Hirðarkitektar