Þjóðviljinn - 09.12.1988, Side 4
A BEININU
Við verðum
að þola
dagsljósið
Guðrún Helgadóttir: Hneyksli hvernig starfsskilyrði
þingmanna hafa verið. Þinghúsbyggingin
í biðstöðu. Bara stigsmunur á áfengiskaupum
Magnúsar Thoroddsen og Þorvaldar Garðars.
Stjórnin situr út kjörtímabilið ef hún lifir
fram að jólum
^yndji,
Það hefur borið mun meira á
Guðrúnu Helgadóttur, forseta
sameinaðs Alþingis, en bar á
forverum hennar. Hún er fyrsta
konan til þess að gegna þessu
embætti og auk þess hafa komið
upp mál að undanförnu sem hafa
beint kastljósum fjölmíðla að
embœtti hennar. Guðrún er því á
beininu núna
Konur gegna öllum forseta-
störfum á þingi en aðeins ein kona
er ráðherra og formenn flokk-
anna eru allt kariar, ef Kvenna-
listinn er undanskilinn. Er litið á
þessi forsetastörf sem áhrifalaus
virðingarstörf af körlunum, sem
enn virðast hafa töglin og hagld-
irnar í flokkunum?
„Ég heid að það geti varla ver-
ið, vegna þess að ég hef haft ærið
lítinn tíma til þess að kafna úr
virðingu í þessum forsetastól.
Gleymum ekki því að þetta felur
m.a. í sér verkstjórn á stærðar
fyrirtæki þar sem vinna á annað
hundrað manns. Eitt hið fyrsta
sem við gerðum var að leigja tvær
hæðir í húsi hér við Austurvöll og
flytja starfsemi fjárveitingar-
nefndar þangað. Síðan ætlum við
að nota það pláss sem losnar í
Þórshamri, þarsem fjárveitingar-
nefnd bjó við mjög þröngan kost,
til þess að færa saman störfin í
kringum nefndir þingsins. Við
erum búin að ráða starfsmann
nefnda, dr. Þorstein Magnússon,
sem er nú þegar tekinn til starfa.
Hann ásamt Þorvaldi Guð-
mundssyni og Helga Bernóduss-
yni munu mynda deild þar sem
þingmenn geta fengið þjónustu
við tilbúing mála og nefndir jafn-
framt fengið aðstoð við störf sín.
Við höfum auk þess ráðið mann
til að annast húsakost og eignir
þingsins. Gunnar Ingibergsson,
sem áður starfaði hjá húsa-
meistara ríkisins er komínn hing-
að í fullt starf, enda þingið til
húsa í átta húsum. Ég hef því haft
í nógu að snúast síðan að ég tók
við embætti forseta sameinaðs
þings.“
Það hefur verið gagnrýnt að
þingmenn hafi haft mjög tak-
markað starfslið til þess að leita
til. Annarsstaðar hefur hver
þingmaður sinn sérstaka starfs-
mann. Væri kannski ástæða til
þess hér?
„Satt að segja hefur það verið
stór hneyksli að þingmenn hafa
fengið afar takmarkaða aðstoð
við sína vinnu og verið talið eftir
hvað lítið sem úr því hefur verið
bætt. í öðrum þjóðþingum hafa
þingmenn yfirleitt aðgang að rit-
ara en hér hafa menn orðið að
eyða tíma sínum í söfnun gagna
og handavinnu sem aðrir ættu að
geta séð um.“
Forveri þinn, Þorvaldur Garð-
ar Kristjánsson, sýndi nýja al-
þingishúsinu, sem á að rísa hér í
Kvosinni mikinn áhuga. Hvert er
þitt álit á þeirri byggingu?
„Ég held að það mál sé í mikilli
biðstöðu. Þegar farið var að tala
um þinghús hér á reitnum vissu
menn ekki að við hliðina á því
yrði ráðhús Reykjavíkurborgar.
Þessar þröngu götur hér allt um
kring taka auðvitað ekki við
miklu meira en hér er nú þegar.
Ég held því að það sé tómt mál að
tala um áframhald á þinghús-
byggingunni fyrr en séð verður
hvernig svæðið í heild á að líta út.
Auk þess er víst nóg við pening-
ana að gera í augnablikinu.“
Telurðu koma til greina að AI-
þingi verði staðsett annarsstaðar
en hér í Kvosinni?
„Ég get bara svarað fyrir mig
sjálfa. Eg ætti mjög erfitt með að
sætta mig við að fara úr þessu
húsi. Einhvernveginn finnst mér
Alþingi eigi að vera þar sem það
er og starfsemin að miðast við
umhverfið hér í kring. Til þess
hefur þingið smámsaman verið
að kaupa eignir hér á svæðinu."
Starfshættir Alþingis hafa sætt
töluverðri gagnrýni undanfarin
ár. Það er gagnrýnt hversu seint
mál koma fram og að allt er keyrt
í gegn síðustu dagana fyrir þing-
hlé og þinglok. Muntu beita þér
fyrir breytingum á því?
„Ég hef allavega gert heiðar-
lega tilraun með því að leggja
fram starfsáætlun þingsins fyrir
veturinn. Þar geta menn séð hve-
nær meginmál verða á dagskrá. A
undanförnum árum hefur þetta
verið þannig, ekki síst eftir að
mikill fjöldi varaþingmanna kom
inn á þing, einsog gerðist á síð-
asta þingi, að stóru málin einsog
utanríkismál og allskonar áætlan-
ir, samgönguáætlun t.d., urðu
hálfvegis útundan, fyrir mála-
flóði frá fólki sem kom inn í hálf-
an mánuð og fór svo út aftur.
Þessvegna er ég með þessa til-
raun núna. Hitt er svo annað mál
hvort okkur tekst að halda þessa
áætlun."
Það hefur borið mun meira á
þér í þessu starfi en bar á forvera
þínum. Er það vegna þess að þú
ert kona?
„Það hef ég satt að segja ekki
hugmynd um. Ég hef löngum haft
þá kenningu að þegar stjórn-
málamenn eru að kvarta yfir því
að það sé aldrei minnst á þá í
fréttum, sé það einfaldlega vegna
þess að allt sem þeir eru að gera
sé fullkomlega óáhugavert. Ég
ætla að vona að þessi áhugi fjöl-
miðla sé vegna þess að þeir hafi
orðið varir við að ég er að gera
eitthvað."
Það hefur komið fram
gagnrýni, m.a. frá Þorvaldi
Garðari, á að upplýsingar um
áfengiskaupin og Jóhann Ein-
varðsson hafi lekið út. Telur þú
að almenningur eigi rétt á að vita
um þessa hluti eða ber mönnum í
áhrifastöðum að þegja þessa hluti
í hel?
„Þessar upplýsingar fóru ekki
út héðan af skrifstofunni. Það er
alveg ljóst. Gleymum því ekki að
fjölmiðlamenn eru hluti af starfs-
liði þingsins, ef svo má segja. Þeir
eru hér heilu dagana. f tilviki Jó-
hanns Einvarðssonar vissu frétta-
menn að það var von á þessum
ákærum. Þeir hafa tök á að fylgj-
ast með því hverjir eru á ferli hér
á þinginu. Þegar okkur barst
þetta erindi um Jóhann sátum við
á fundi hér á laugardegi og héld-
um að enginn vissi af fundinum.
Þegar við komum af fundinum
stóð fréttamaður fyrir utan. Ég
held að hann hafi hreinlega lagt
saman tvo og tvo vitandi að þess-
ar ákærur voru á næsta leiti. Það
er því afskaplega erfitt að hindra
að fréttir komist út.“
En telurðu að slíkar fréttir eigi
að komast út til almennings?
„Auðvitað. Við höfum valist til
mikilla ábyrgðarstarfa og við
verðum að þoladagsljósið. Skatt-
borgarana varðar um það hvernig
farið er með almannafé. Það er
oft rætt um skort á upplýsinga-
skyldu stjórnvalda og menn hafa
beðið um lög um það efni. Ég er
sammála því að fólk á rétt á að
vita hvernig fjármunum er for-
valtað."
Þorvaldur Garðar ásakaði þig
um að hafa hallað réttu máli til
þess að reyna að ófrægja hann.
Hverju svararðu þeirri ásökun?
„Ég held að hann hafi sagt
eitthvað annað en hann raun-
verulega meinti. Mig langar ekk-
ert til þess að ófrægja hann. Við
höfum alla tíð átt hið besta sam-
starf en okkur greinir augljóslega
á um gildandi reglur um þessi á-
fengiskaup. Ég held að það fari
ekkert á milli mála að forseti
sameinaðs þings hefur ekki þessi
réttindi, eða enginn einn hand-
hafi forsetavalds. Þessi réttindi
forseta sameinaðs þings og ráð-
herra voru afnumin 1971 og fyrir
því liggur ríkisstjórnarbókun.
Handhafar forsetavalds eru ein-
ungis allir þrír saman, forseti
hæstaréttar, forseti sameinaðs
þings og forsætisráðherra. T.d.
getum við ekki undirritað lög
nema öll þrjú. Þessvegna held ég
að það sé líka óhugsandi að við
komum fram fyrir hönd forseta
lýðveldisins nema við séum öll
þrjú. Fari svo ólíklega að það
þurfi að veita áfengi tel ég per-
sónulega eðlilegast að sú athöfn
fari fram á Bessastöðum og að
kostnaður við þá athöfn komi
fram í reikningum búsins á Bessa-
stöðum.“
Er eitthvað annað en stigsmun-
ur á áfengiskaupum Magnúsar
Thoroddsen annarsvegar og Þórs
Vilhjálmssonar og Þorvaldar
Garðars hinsvegar?
„Nei.“
Er Þorvaldur Garðar þá hæfur
til þess að sitja á Alþingi fyrst
Magnús er ekki talinn hæfur til
þess að gegna stöðu hæstaréttar-
dómara?“
„Ég er ekki dómari í því máli.
Það verða dómstólar að ákveða."
Ef Magnús er ekki talinn hæfur
til þess að gegna starfi hæstarétt-
ardómara en Þorvaldur Garðar
álitinn hæfur til þess að gegna
störfum sem þingmaður, þarf þá
rniklu hæfari menn í hæstarétt en
á Alþingi?
„Víðast hvar eru gerðar óvenju
miklar kröfur til hæstaréttardóm-
ara einsog við þekkjum frá mörg-
um hæstaréttum, t.d. í Banda-
ríkjunum. En ég vil ekkert um
þetta dæma. Dómstólar hljóta að
skera úr um það.“
Að lokum, Guðrún. Hefurðu
trú á þessu stjórnarsamstarfi?
„Já, já. Ég hef það. Ég held að
þessi ríkisstjórn geti vel átt langa
lífdaga ef viljinn til samstarfs er í
lagi. Sannleikurinn er nú sá að
ríkisstjórnir með nauman meiri-
hluta eru oft mjög lífseigar.
Menn eru einfaldlega tilneyddir
til þess að taka tillit hver til ann-
ars. Ef ríkisstjórnin situr til jóla
þá situr hún held ég út kjörtíma-
bilið.“
-Sáf
4 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 9. desember 1988