Þjóðviljinn - 09.12.1988, Side 9

Þjóðviljinn - 09.12.1988, Side 9
BSRB Launin ekki of há heldurof lág ÖgmundurJónasson:Halldór og Þórarinn geta kannski klipið afsínum launum. Fólk sem hefur undir 60.000 getur það ekki Það er ábyrgðarlaust tal að nú þurfi að lækka launin til að leysa cfnahagsvandann. Sá efna- hagsvandi sem er alvarlegastur hér á landi er efnahagur heimila þeirra tugþúsunda launamanna sem búa við lægstu launin, sagði Ogmundur Jónasson formaður BSRB á blaðamanna fundi sem haldinn var í gær vegna þeirra ummæla Halldórs Ásgrímssonar sjávarútvegsráðherra og Þórar-. inn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóra Vinnuveitenda- sambands, að nú verði að láta launafólk borga kreppureikning- inn með launalækkunum. - Það lýsir ótrúlegri skammsýni þessara manna að þeir láta sér til hugar koma að hægt sé að lækka laun fólks í landinu. Ég þekki ekki launakjör Halldórs eða Þórarins, en hitt þekki ég, að rúmlega 80% af starfsmönnum ríkisins hafa innan við 66.000 krónur á mánuði fyrir dagvinnu. Það sjá það allir sem vilja, að þau laun er ekki hægt að lækka, sagði Ögmundur. Það kom fram á fundinum að meðal- Samtök launafólks Barattufundur á laugardag Heildarsamtök launa- fólks með sameiginlegan fund í Háskólabíói: Verj- um heimilin, með samn- ingsrétti, gegn atvinnu- leysi Öll stærstu heildarsamtök launafólks standa fyrir sameigin- legum baráttufundi í Háskólabíói kl. 15 á iaugardag. Yfirskrift fundarins er: Verjum heimilin - Með samningsrétti - Gegn atvjnnuleysi. Á fundinum flytja þeir Ás- mundur Stefánsson forseti ASÍ og Ögmundur Jónasson formað- ur BSRB ávörp. Á dagskrá fund- arins eru einnig kórsöngur og upplestur en fundarstjóri verður Svanhildur Kaaber formaður Kennarasambands fslands. Þau samtök sem standa að fundinum eru; Alþýðusamband- ið, Bandalag háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Félag bókagerðarmanna, Kennara- samband fsland og Samband ís- lenskra bankamanna. Lúðrasveit verkalýðsins leikur í anddyri Háskólabíós fyrir fund- inn og barnagæsla verður á staðn- um. Launafólk er hvatt til að mæta á fundinn til að sýna í verki þann hug sem býr að baki kröf- unni um endurheimt samnings- réttarins. -«g- laun ríkisstarfsmanna í BSRB eru 55 þúsund krónur á mánuði. Flestir hafa laun á bilinu 44-55 þúsund eða 35% félagsmanna, tæplega 18% hafa minna en 44.000 á mánuði fyrir fullt starf. 28% hefur á bilinu 55-66 þúsund á mánuði og innan við 20% fé- lagsmanna í BSRB sem starfa hjá ríkinu hafa 66 þúsund eða meira í laun á mánuði fyrir fullt starf. Þessar tölur eru fengnar frá launadeild fjármálaráðuneytisins og eru ailar miðaðar við starfs- menn í fullu starfi hjá ríkinu. Miðað er við laun sem greidd voru í mars til maí 1988 og þær tölur síðan hækkaðar um 10%, sem er meðaltal þeirra launa- hækkana sem orðið hafa frá því í maí. - Það er úti hött að ætla að það fólk sem lifir á þessum launum beri einhverja ábyrgð á þeim kreppureikningi sem nú liggur fyrir. Á sama tíma og hugmyndir eru uppi um að lækka laun þessa fólks og tekinn er af því samn- ingsréttur með lagaboði, er að sjá að óráðsían og vaxtaokrið fái að þrífast átölulaust í þjóðfélaginu, sagði Ögmundur - Stærsti efnahagsvandi þessar- ar þjóðar er bágur hagur heimila meginþorna launafólks. Það er ekki bara hægt að hækka laun þessa fólks heldur ber brýna nauðsyn til þess að það verði gert. -sg Reykjavík Lögreglan á brauðfótum Jón Pétursson: Skorið niður á röngum stöðum Bifreiðaflotinn í lamasessi, fjarskiptakerfið rjúkandi rúst, umferðardeildin að hverfa, lög- reglunmenn vinnandi í sjálfboða- vinnu. Þessi orð notaði Jón Pét- ursson formaður Lögreglufélags Reykjavíkur þegar hann var að kynna skýrslu sem félagsmenn hafa samið um ástand löggæslu- mála í Reykjavík. - Ég persónulega get sam- þykkt niðurskurð á löggæslunni og best væri að við þyrftum ekk- ert á lögreglu að halda. En því miður byrja hinir háu herrar í ráðneytinu að skera niður á röng- um stað. Þeir áttu auðvitað að skera niður slysin, ölvun við akst- ur, hnífstungur, árásir og fíkni- efnaneyslu, þá gætum við sam- Ástand löggæslumála í Reykjavík hefur framkallað mikla reiði hjá lög- regluþjónum. Mynd Jim Smart glaðst að lifa í þjóðfélagi sem ekki þarf á lögreglu að halda, sagði Jón. Það kemur fram í skýrslunni að starfandi lögreglumenn í al- mennri deild eru álíka margir nú og þeir voru 1944. Þar af eru um 30% þeirra reynslulítilir eða reynslulausir. - Ég fullyrði að þegar lögregl- an í Reykjavík tekur við þeim löggæsluþætti sem bifreiðaeftirlit ríkisins hefur haft með höndum, þegar það verður lagt niður um áramót, skapast algjör glundroði í umhirðu og skoðun bifreiða. Það er deginum ljósara að miðað við þær aðstæður sem urnferð- ardeild lögreglunnar býr við nú, að útilokað er að bæta þessum þætti löggæslunar á hennar herð- ar, sagði Jón og bætti við að hann varaði einnig sérstaklega við og lýsti ábyrgð á hendur þeim sem stuðla að samdrætti í störfum fíkniefnalögreglunnar. -sg ASÍ Vmnuveitendur úti að aka Hagfrœðingur ASÍ: Kaupmáttur hefur rýrnað um 10-16% á milli ára og út hött að tala um að launa kostnaður útflutningsatvinnuveganna sé ofhár. Vandinn liggur í fjármagnskostnaði fyrirtœkjanna Okkur finnst þessi greining á vandamálunum úti í hött hjá Vinnuveitendasambandinu sem og hjá ríkisstjórninni að iaunin séu of há hjá útflutningatvinnu- vegunum og þurfi að lækka eða að stórfellt atvinnuleysi blasi við ella. Kaupmáttur hefur rýrnað um 10 - 16% frá síðasta ári, þó mismunandi mikið eftir stéttum. Aðalvandi útflutningsatvinnu- vcganna liggur að okkar mati í of miklum ijármagnskostnaði en ekki of háum launum," sagði Ari Skúlason hagfræðingur Alþýðu- sambands íslands. Spá hagdeildar VSÍ um horf- urnar í efnahagslífinu á næsta ári er vægast sagt afar dökk, og í henni segir að nú standi þjóðin frammi fyrir tveimur valkostum. Annars vegar verulegri kjara- skerðingu eða eða 5% atvinnu- leysi. Það þýðir að um 6 þúsund manns yrðu án atvinnu á næsta ári. Þá hafa tveir ráðherrar Fram- sóknarflokksins þeir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og Halldór Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra sagt að launin séu of há og nauðsynlegt að lækka þann kostnað hjá útflutningsa- tvinnuvegunum. Að sögn Ara Skúlasonar eru margir á þeirri skoðun að með þessu svartagallsrausi atvinnu- rekenda og einstakra ráðherra sé verið að undirbúa jarðveginn þegar launþegahreyfingin endur- heimtir samningsréttinn eftir 15. febrúar nk. Það sé og hafi verið ársviss viðburður þegar samning- ar séu í nánd að bæði atvinnurek- endur og ríkisvald hafi reynt að telja fólki trú um að ekkert svig- rúm sé til kauphækkana vegna slæmrar stöðu atvinnuveganna. Þessa dagana er verið að vinna við að athuga efnahagsstöðuna frá sjónarhóli Alþýðusambands- ins og sagði Ari að þess yrði ekki langt að bíða að niðurstöður þeirrar úttektar yrðu birtar. -grh -Tvö tímabil. m Ármúla 3-108 Reykjavík - Sími91-680988

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.