Þjóðviljinn - 06.01.1989, Blaðsíða 3
Gemingahátíðahöldin í nýlistasafninu um helgina: Lesmálsrusl. Mynd Jim Smart.
Rykdjöflar
á öllum hæðum
Ryk, rusl, ritrusl og aðrir forgengilegir dómar á gerningahátíð
INFERNO 5 í Nýlistasafninu um helgina
Rykdjöflar er annað nafn á
rykþyrli, og í þessum gemingi
komum við mikið inn á ryk og
msl og fleira forgengjlegt, sagði
Ómar Stefánsson, einn meðlima
INFERNO 5, í spjalli við blaðið í
vikunni, en gemingaþjónusta
hópsins stendur fyrir sinni um-
fangsmestu sýningu til þessa
núna um helgina í Nýlistasafninu
og nefnist hún „Rykdjöflar.“
Nánar til tekið er meginefni
sýningarinnar bókmenntir og
orðahappdrætti auk ritmslsins.
Að sögn Ómars fær upplýsinga-
flæðið einnig sinn verðuga skerf á
gemingahátíðinni, og hvemig
hægt er að upplifa það á ljóðræn-
an hátt.
Ómar sagði að hið talaða orð
kæmi til með að njóta sín betur á
sýningu þeirra félaga en raunin
hefði verið við svipuð tækifæri
áður, en að hópnum standa
myndlistarmenn og rithöfundar
úr ýmsum áttum. Sem stendur
em meðlimir INFERNO 5 þess-
ir, og er titlatogið samkvæmt
fréttatilkynningu: Þorri Jóhanns-
son skáld o.fl., Ómar Stefánsson
myndlistarmaður o.fl., Ejnar
Melax tónlistarmaður o.fl., Ósk-
ar Thorarenseri tónskáld o.fl.,
Eggert Ketilsson dansari og Helgi
Skj. Friðjónsson myndlistarmað-
ur og auglýsingateiknari.
Hópurinn hefur staðið fyrir
ýmiss konar uppákomum og al-
hliða listsköpun undanfarin ár.
Fyrst einbeittu menn sér að tón-
listarsköpun en sneru sér fljót-
lega að fleiri listgreinum, t.d.
gemingum sem fela í sér flest
listform. Sýning INFERNO 5 nú
um helgina verður í Nýlistasafn-
inu eins og áður segir, og má
segja að hópurinn sé heimavanur
þar, en að auki hefur hann sett
upp sýningar og haldið hljóm-
leika á Amarstapa á Snæfellsnesi
og á Draghálsi svo einhverjir
staðir utan Reykjavíkur séu
nefndir til þessarar sögu. Þá hef-
ur INFERNO 5 einnig gefið út
sex kassettur með tónlist sinni og
staðið á bakvið útgáfu Band-
ormsins, alíslensks myndasögu-
rits.
Rykdjöflagerningurinn er til-
einkaður þýska listamanninum
Kurt Schwitters og vísindastörf-
um hans. í byrjun sýninga kemur
fram gestur hópsins með eigin
gerninga: Árni Ingólfsson. Sýn-
ingar hafa verið ákveðnar
laugardags- og sunnudagskvöld
og hefjast klukkan níu bæði
kvöldin.
HS
Áttu að reykja,
Þorvaldur?
Handhafabrennivíns-
kaupamálinu er síður en svo
lokið, lögfræðingar eru að
undirbúa málssókn gegn
Magnúsi Thoroddsen og á
þingi er búið að svara einni
fyrirspurn, önnur er eftir, og
enn alveg óljóst hvemig þeir
Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son, Þór Vilhjálmsson, Logi
Einarsson og Magnús
Torfason fara útúr málinu, en
þeir hafa ekki þurft að skila
nokkrum hlut ennþá og sitja
allir enn í hægum sessi, öfugt
við aumingja Magnús Thor-
oddsen, sem gerði þó það eitt
umfram hina fjóra að vera
stórtækari og vera fljótfær og
hortugur í fjölmiðlum.
Samkvæmt traustum heim-
ildum liggur meira í kjöllurum
handhafanna fyrrverandi en
brennivínsflöskur. Þeir not-
færðu sór utanferðir forsetans
einnig til að birgja sig upp af
tóbaki á spottprís. Enn mun
óljóst hvað handhafabirgðiraf
tóbaki nema mörgum tonn-
um, en það er víst alveg óhætt
- ef maður hefur kosningarétt
á Vestfjörðum -að biðja Þor-
vald Garðar að lauma til sín
einum Havanavindli. Eða í
nefið?B
Almanökunum rignir yfir frá
fyrirtækjum og stofnunum
þessa fyrstu daga ársins og
eru af öllu tæi. Frumlegasta
almanakið ennþá er frá
Prentmyndaþjónustunni,
með mynd af Jóhannesi Páli
páfa með væna könnu öls, og
áletruninni: 1989 - tveir góð-
Jr sem koma.B
A, Þ og Z í
menntamálunum
Svavar Gestsson mennta- |
málaráðherra heimsótti Áma-
safn um daginn og fór vel á
með honum og fræði-
mönnum, sem auðvitað vona
að slíkar heimsóknir bæði efli
skilning og losi bönd á fjár-
veitingapyngju.
Þessi heimsókn vakti upp
gamla sögu í þessum samfó-
lagsgeira. Einsog kunnugt er
hafa menntamálaráðherrar
verið afar margvíslegir, sumir
litið á ráðuneytið sem hvíldar-
hæli, aðrir fengið þar útrás
fyrir sérvisku og ýmsar kenjar,
enn aðrir orðið eftirá hálfgerð-
ir dýrlingar meðal listamanna
og skólafólks. En flestir hafa
þeir fyllst miklum fítonskrafti
fyrstu vikumar f embætti, og
ófáir ætlað sér að fara með
fríðu föruneyti um land sitt vítt
og fagurt. Þeir á Þjóöminja-
safni, Þjóðleikhúsi og Þjóö-
skjalasafni telja þó að ráð-
herrunum hafi fæstum ekki
enst nenna eða starfsaldur til
heimsóknanna, en hafi hins-
vegar yfirleitt byrjað á stafróf-
inu, - þessvegna séu Þjóð-
stofnanimar svona aftarlega
á merinni, að ekki sé minnst á
Æskulýðsmálineba aumingja
ömefnastofnunina. Ráð-
herrarnir hafi tekið A og Á
með glans en týnst einhvers-
staðar í Bamaskólunum eða
Byggöasöfnunum, og þeir fáu
sem sluppu óskaddaðir þar f
gegn hafi gefist upp í Fjöl-
Ja.hver
þrefaldur!
Þrefaldur fyrsti
vinningur á laugardag!
Láttu ekki
þrefalt happ úr hendi
sleppa!
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111
brautunum og Félagsheimil-
unum. Þetta er athyglisverð
kenning, - en þarna er sú
undantekning að Sverrir Her-
mannsson hagaði sér tiltölu-
lega vel við Þjóðskjalasafnið,
Þjóðarbókhlöðuna og Þjóðm-
injasafnið? Jú, segja þeir
stafrófskenningarmenn, -
Sverrir byrjaði auðvitað á
Zetu.l
Föstudagur 6. janúar 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 3
Kynningarþjónustan/SÍA