Þjóðviljinn - 06.01.1989, Blaðsíða 8
„Morð með köldu blóði"
Sovétmenn hafa gagnrýnt
Bandaríkjamenn harðlega vegna
atburðar þess á miðviku-
dagsmorgun, er bandarískar her-
þotur skutu niður tvær líbískar.
Útvarpsfyrirlesari Moskvuút-
varpsins kallaði þessa aðgerð
„morð með köldu blóði" og eru
það óvenju hörð orð í sam-
skiptum risaveldanna, miðað við
það sem gerst hefur undanfarið.
Gennadíj Gerasímov, talsmaður
sovéska utanríkisráðuneytisins,
sakaði Bandaríkin af þessu tilefni
um „pólitíska ævintýramennsku
og opinbera hryðjuverkastarf-
semi."
Reuter/-dþ.
Arabaríki styðja Líbíu
Langflest Arabaríki, einnig
sum þau sem annars eru hlynnt
Bandaríkjunum, hafa tekið af-
stöðu með Líbíu í illdeilunni út af
líbísku þotunum tveimur af gerð-
inni MiG-23, sem Bandaríkja-
menn skutu niður á miðvikudag-
inn. Sum Arabaríkjanna hafa
fordæmt Bandaríkin fyrir þetta
með hörðum orðum og Saudi-
Arabía lýsir yfir „sárum áhyggj-
um" vegna atburðarins og sam-
stöðu með Líbíu. Egyptaland,
sem hlynntast er Bandaríkjunum
Arabaríkja og fær frá þeim mikla
efnahagsaðstoð, fer vægast í sak-
irnar og hvetur alla málsaðila til
að sýna stillingu. ísrael er eina
ríkið í Austurlöndum nær, sem er
Bandaríkja megin í máli þessu.
Shimon Peres, fjármálaráðherra
ísraels, óskaði bandaríska sjó-
hernum með hamingju af þessu
tilefni og eitt þarlent blað kvað
Lfbíu vera eitt þeirra ríkja, sem
hefði gott af slíkum lexíum annað
veifið.
ReuterAdþ.
FOSTUDAGSFRETTIR
„Marx-lenínisma eða dauðann"
Fidel Castro, forseti Kúbu,
hefur lagt áherslu á það í ræðum
undanfarna daga að kúbanska
byltingin muni standa yfir í að
minnsta kosti 100 ár í viðbót.
„Marx-lenínisma eða dauðann,"
hrópaði hann í ræðu á sunnudag-
inn í Santiago, helstu borginni á
austurhluta eyjarinnar. Erlendur
stjórnarerindreki sagði að tónn-
inn í þeirri ræðu hefði verið
„næstum maóískur" og að Ijóst
væri að Castro væri lítt hrifinn af
mörgu því, sem undanfarið hefur
gerst í Sovétríkjunum. Hátíða-
höld hafa staðið yfir á Kúbu
undanfarna daga af tilefni þess,
að nú eru þrjátíu ár síðan Castro
og skæruliðar hans komust þar til
valda. Reuter/-dþ.
íf ?i\>.^ mmmmiM m .í,rn .'.'¦¦ I
i
^WM WM*3^''m' "™"^B ^F"" ¦ ¦ Ji hhíh
Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem slær í brýnu með Kínverjurn og Afríkumönnum
við nám hjá þeim. Myndin var tekin fyrir nokkrum árum í Peking, er afrískir
námsmenn kvörtuðu yfir því með mótmælafundi, að vinátta landsmanna í
þeirra garð væri fremur í orði en á borði. Einnig þá kom til sviptinga við lögreglu.
Símahappdrætti 1988
Eftirtalin símanúmer hlutu vinning:
1. vinningur Nissan Pathfinder
nr. 91-53520.
2.-4. vinningur Nissan Sunny Coupé
nr. 91 -621445 - 91 -12338 - 94-80108.
5.-9. vinningur Nissan Sunny Sedan
nr. 91-38200-91-687409-91-651153
-92-15857-98-21244.
10.-29. vinningur vöruúttektir
91-22367
91-72017
91-74509
91-51045
93-13099
96-22320
98-22560
91-19725
91-673373
91-674100
91-52273
93-41226
96-22079
98-11533.
91-38382 -
91-671848 -
91-26676 -
91-52837 -
96-71700-
97-11094-
Styrktarf élag lamaðra og fatlaðra.
Skæruliðar Rauöra kmera - hyggst Sihanouk treysta á vígsgengi þeirra?
Kampútsea
Sihanouk herskár
Stjórn Huns Sen sögð eflast
Norodom Sihanouk fursti,
fyrrum ríkisleiðtogi Kampútseu,
sagði að viðræður þær, sem fram
hafa farið undanfarið í París um
framtíð landsins, hefðu ekki bor-
ið árangur og værí nú ekki annar
kostur fyrir hendi en að láta
vopnin skera úr. I viðræðunum
taka þátt fulltrúar stjórnarínnar í
Phnompenh, sem nýtur stuðnings
Sovétríkjanna og Víetnams, og
kampútseanskra samtaka sem
gegn þeirri stjórn berjast.
Af þeim samtökum, sem njóta
stuðnings Vesturlanda og Kína,
eru öflugust Rauðu kmerarnir
illræmdu. Sihanouk kennir Hun
Sen, forsætisráðherra Phnom-
penhstjóraarinnar, um árangurs-
leysi viðræðnanna. Vestrænir
stjórnarerindrekar halda því
fram, að stjórn Huns Sen, sem nú
hefur verið áratug við völd, sé að
eflast og að Sihanouk óttist því að
hún dragi með vilja viðræðurnar
á langinn, í þeirri von að hún
þurfi ef til vill ekki á samkomu-
lagi við andstöðusamtökin að
halda.
Reuter/dþ.
Sameinuðu þjóðirnar
Heimsefnahagur batnaði
Sum þróunarlönd drógust aftur úr
Hagvöxturinn í heiminum s.l.
ár varð meiri en nokkru sinni sfð-
an 1984, samkvæmt skýrslu á
vegum Sameinuðu þjóðanna sem
birt var í gær. Gengur þetta þvert
á spár í byrjun ársins, en þær
voru flestar á þá leið að um sam-
drátt yrði að ræða í efnahagslífi
heimsins yfir áríð.
Þrír af hverjum fjórum jarðar-
búum búa í löndum, þar sem
rauntekjur á mann að meðaltali
hækkuðu á árinu, en hinsvegar
Nató og Líbíuflugvélar
Italir og Spánverjar
áhyggjufuilir
Bandamenn Bandaríkjanna í
Atiantshafsbandalaginu hafa
áhyggjur nokkrar út af atburði
þeim undan Lfbíuströnd á mið-
vikudagsmorgun, er bandarískar
orrustuflugvélar skutu niður
tvær líbískar herþotur. Eru það
einkum ítalir og Spánverjar, sem
óttast að þetta kunni ao hafa í för
með sér aukna spennu í sam-
skiptum rfkja við Miðjarðarhaf.
Þá er ekki grunlaust um, að
Gaddafi Líbíuleiötogi muni láta
hefhdir fyrir koma, og þá ekki
endilega á Bandarikjamönnum
sjálfum, heldur t.d. þeim banda-
manna þeirra, sem hann á
auðveldast með að að ná til. Tals-
menn Bandaríkjahers fullyrða
fyrir sitt leyti, að flugmenn
bandarisku vélanna, sem skutu
þær líbísku niður, hafi ekki átt
annars kost, þar eð líbísku flug-
mennirnir hafi stefnt vélum sín-
um beint á þá. Hafi bandarisku
flugvélarnar, sem eru af gerðinni
F-14, verið búnar að vfkja sér
undan fimm sinnum til að forðast
árekstur við þær líbísku, en síðan
hafi flugmennirnir séð fram á að
þeir væru nauðbeygðir að gripa
til vopna. Svo er að heyra að
önnur Nató-rfki hafi tekið full-
yrðingar Bandarikjamanna um
þetta góðar og gildai.
Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem
iliindi Bandaríkjanna og Lfbíu
vekja ugg innan Atlantshafs-
bandalagsins. Flestum Vestur-
Evrópurikjanna í bandalaginu
leist ekki á blikuna er Banda-
rfkjamenn gerðu loftárás á Tríp-
ólis, höfuðborg Líbíu, í apríl
1986. Reuter/-dþ.
lækkuðu rauntekjur á mann í
löndum, þar sem fjórðungur
jarðarbúa býr. Því fer sem sagt
fjarri að hagvöxturinn hafi verið
jafn yfir heiminn allan. í mörgum
þróunarlöndum hafði hagvöxtur-
inn aðeins við fólksfjölgun eða
ekki það. Alþjóðleg verslun jókst
tvöfalt á við það sem verið hefur
að meðaltali á þessum áratug.
Samkvæmt skýrslunni stafar
efnahag heimsins sem heildar nú
mest hætta af miklum fjárlaga-
halla Bandaríkjanna og þó eink-
um af miklum viðskiptaójöfnuði
á milli ýmissa þróaðra ríkja og
markaðsbandalaga. Mun þar
einkum átt við stórlega hagstæð-
an viðskiptajöfnuð Japans og
fleiri Austur-Ásíuríkja. Háar er-
lendar skuldir margra ríkja, eink-
um í Rómönsku Ameríku og Afr-
íku, urðu og vaxandi áhyggjuefni
á árinu.
Heildarframleiðslan í heimin-
um jókst um 4% á árinu, en 3.4%
árið 1987. Gert er ráð fyrir að
heldur dragi úr hagvextinum á
þessu ári.
ReuterAdþ.
Sovétríkin
Fleiri Gyðingar flytja
Flestirfara til Bandaríkjanna - aðeins fáir til ísraels
landi. í nóv. s.l. fluttust 2284
þeirra frá föðurlandi sínu. Á öllu
s.l. ári fluttust 20.082 Gyðingar
frá Sovétríkjunum. Þrátt fyrir
miklar tílraunir ísraela tíl að ná
sem flestu af þessu fólki til sín, til
að vega upp á móti vaxandi fjölda
araba bæði í ísrael sjálfu og á
svæðum hersetnum af því, flut-
tust þangað aðeins rúmlega 1400
þessara sovésku útflytjenda.
Flestir hinna fluttust til Banda-
ríkjanna.
Reuter/-dþ.
Fleirí Gyðingar fluttu frá Sov
étrfkjunum í des. s.l. en f nokkr-
um öðrum mánuði fyrr á þessum
áratug, að sögn Alþjóðlegu fólks-
flutningastofnunarínnar, sem
sinnir málefnum flóttamanna.
Þann mánuð fluttu frá Sovétrfkj-
unum 3510 Gyðingar.
Bandariskur stjórnarerindreki
lét svo um mælt af þessu tilefni,
að Ijóst væri að stórum auðveld-
ara væri nú orðið en áður var fyrir
sovéska Gyðinga að fá leyfi þar-
lendra yfirvalda til að fara úr
8 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 6. janúar 1989