Þjóðviljinn - 06.01.1989, Blaðsíða 8
„Morð með köldu blóði“
Sovétmenn hafa gagnrýnt
Bandaríkjamenn harðlega vegna
atburðar þess á miðviku-
dagsmorgun, er bandarískar her-
þotur skutu niður tvær líbískar.
Útvarpsfyrirlesari Moskvuút-
varpsins kallaði þessa aðgerð
„morð með köldu blóði“ og eru
það óvenju hörð orð í sam-
skiptum risaveldanna, miðað við
það sem gerst hefur undanfarið.
Gennadíj Gerasímov, talsmaður
sovéska utanríkisráðuneytisins,
sakaði Bandaríkin af þessu tilefni
um „pólitíska ævintýramennsku
og opinbera hryðjuverkastarf-
semi.“
Reuter/-dþ.
Arabaríki styðja Líbíu
Langflest Arabariki, einnig
sum þau sem annars eru hlynnt
Bandaríkjunum, hafa tekið af-
stöðu með Líbíu í illdeilunni út af
líbísku þotunum tveimur af gerð-
inni MiG-23, sem Bandaríkja-
menn skutu niður á miðvikudag-
inn. Sum Arabaríkjanna hafa
fordæmt Bandaríkin fyrir þetta
með hörðum orðum og Saudi-
Arabía lýsir yfir „sárum áhyggj-
um“ vegna atburðarins og sam-
stöðu með Líbíu. Egyptaland,
sem hlynntast er Bandaríkjunum
Arabaríkja og fær frá þeim mikla
efnahagsaðstoð, fer vægast í sak-
irnar og hvetur alla málsaðila til
að sýna stillingu. ísrael er eina
ríkið í Austurlöndum nær, sem er
Bandaríkja megin í máli þessu.
Shimon Peres, fjármálaráðherra
ísraels, óskaði bandaríska sjó-
hernum með hamingju af þessu
tilefni og eitt þarlent blað kvað
Líbíu vera eitt þeirra ríkja, sem
hefði gott af slíkum lexíum annað
veifið.
Reuter/-dþ.
„Marx-lenínisma eða dauðann“
Fidel Castro, forseti Kúbu,
hefur lagt áherslu á það í ræðum
undanfarna daga að kúbanska
byltingin muni standa yfir í að
minnsta kosti 100 ár í viðbót.
„Marx-lenínisma eða dauðann,"
hrópaði hann í ræðu á sunnudag-
inn í Santiago, helstu borginni á
austurhluta eyjarinnar. Erlendur
stjórnarerindreki sagði að tónn-
inn í þeirri ræðu hefði verið
„næstum maóískur“ og að ljóst
væri að Castro væri lítt hrifinn af
mörgu því, sem undanfarið hefur
gerst í Sovétríkjunum. Hátíða-
höld hafa staðið yfir á Kúbu
undanfama daga af tilefni þess,
að nú eru þrjátíu ár síðan Castro
og skæruliðar hans komust þar til
valda. Reuter/-dþ.
Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem slær í brýnu með Kínverjum og Afríkumönnum
við nám hjá þeim. Myndin var tekin fyrir nokkrum árum í Peking, er afrískir
námsmenn kvörtuðu yfir því með mótmælafundi, að vinátta landsmanna í
þeirra garð væri fremur í orði en á borði. Einnig þá kom til sviptinga við lögreglu.
Símahappdrætti 1988
Eftirtalin símanúmer hlutu vinning:
1. vinningur Nissan Pathfinder
nr. 91-53520.
2.-4. vinningur Nissan Sunny Coupé
nr. 91 -621445 - 91 -12338 - 94-80108.
5.-9. vinningur Nissan Sunny Sedan
nr. 91-38200 - 91-687409 -91-651153
-92-15857-98-21244.
10.-29. vinningur vöruúttektir
91-22367 - 91-19725 - 91-38382 -
91-72017 - 91-673373 - 91-671848 -
91-74509 - 91-674100 - 91-26676 -
91-51045 - 91-52273 - 91-52837 -
93-13099 - 93-41226 - 96-71700 -
96-22320 - 96-22079 - 97-11094 -
98-22560 - 98-11533.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra.
FOSTUDAGSFRETTIR
Skæruliðar Rauðra kmera - hyggst Sihanouk treysta á vígsgengi þeirra?
Kampútsea
Sihanouk herskar
Stjórn Huns Sen sögð eflast
Norodom Sihanouk fursti,
fyrrum ríkisleiðtogi Kampútseu,
sagði að viðræður þær, sem fram
hafa farið undanfarið í París um
framtíð landsins, hefðu ekki bor-
ið árangur og væri nú ekki annar
kostur fyrir hendi en að láta
vopnin skera úr. í viðræðunum
taka þátt fulltrúar stjórnarinnar í
Phnompenh, sem nýtur stuðnings
Sovétríkjanna og Víetnams, og
kampútseanskra samtaka sem
gegn þeirri stjórn berjast.
Af þeim samtökum, sem njóta
stuðnings Vesturlanda og Kína,
eru öflugust Rauðu kmeramir
illræmdu. Sihanouk kennir Hun
Sen, forsætisráðherra Phnom-
penhstjórnarinnar, um árangurs-
leysi viðræðnanna. Vestrænir
stjórnarerindrekar halda því
fram, að stjórn Huns Sen, sem nú
hefur verið áratug við völd, sé að
eflast og að Sihanouk óttist því að
hún dragi með vilja viðræðurnar
á langinn, í þeirri von að hún
þurfi ef til vill ekki á samkomu-
lagi við andstöðusamtökin að
halda.
Reuter/dþ.
Sameinuðu þjóðirnar
Heimsefnahagur batnaði
Sum þróunarlönd drógust aftur úr
Hagvöxturinn í heiminum s.l.
ár varð meiri en nokkru sinni síð-
an 1984, samkvæmt skýrslu á
vegum Sameinuðu þjóðanna sem
birt var í gær. Gengur þetta þvert
á spár í byrjun ársins, en þær
voru flestar á þá leið að um sam-
Bandamenn Bandaríkjanna í
Atlantshafsbandalaginu hafa
áhyggjur nokkrar út af atburði
þeim undan Líbíuströnd á mið-
vikudagsmorgun, er bandarískar
orrustuflugvélar skutu niður
tvær líbískar herþotur. Eru það
einkum ítalir og Spánverjar, sem
óttast að þetta kunni að hafa í för
með sér aukna spennu í sam-
skiptum rikja við Miðjarðarhaf.
drátt yrði að ræða í efnahagslífi
heimsins yflr árið.
Þrír af hverjum fjórum jarðar-
búum búa í löndum, þar sem
rauntekjur á mann að meðaltali
hækkuðu á árinu, en hinsvegar
yrðingar Bandarfkjamanna um
þetta góðar og gildar.
Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem
illindi Bandaríkjanna og Líbíu
vekja ugg innan Atlantshafs-
bandalagsins. Flestum Vestur-
Evrópuríkjanna í bandalaginu
leist ekki á blikuna er Banda-
ríkjamenn gerðu loftárás á Tríp-
ólis, höfuðborg Líbíu, í apríl
1986. Reuter/-dþ.
lækkuðu rauntekjur á mann í
löndum, þar sem fjórðungur
jarðarbúa býr. Því fer sem sagt
fjarri að hagvöxturinn hafi verið
jafn yfir heiminn allan. í mörgum
þróunarlöndum hafði hagvöxtur-
inn aðeins við fólksfjölgun eða
ekki það. Alþjóðleg verslun jókst
tvöfalt á við það sem verið hefur
að meðaltali á þessum áratug.
Samkvæmt skýrslunni stafar
efnahag heimsins sem heildar nú
mest hætta af miklum fjárlaga-
halla Bandaríkjanna og þó eink-
um af miklum viðskiptaójöfnuði
á milli ýmissa þróaðra ríkja og
markaðsbandalaga. Mun þar
einkum átt við stórlega hagstæð-
an viðskiptajöfnuð Japans og
fleiri Austur-Ásíuríkja. Háar er-
lendar skuldir margra ríkja, eink-
um í Rómönsku Ameríku og Afr-
íku, urðu og vaxandi áhyggjuefni
á árínu.
Heildarframleiðslan í heimin-
um jókst um 4% á árinu, en 3.4%
árið 1987. Gert er ráð fyrir að
heldur dragi úr hagvextinum á
þessu ári.
Reuter/-dþ.
Nató og Líbíuflugvélar
ítalir og Spánvetjar
áhyggjufullir
Sovétríkin
Fleiri Gyðingar flytja
Flestir fara til Bandaríkjanna - aðeins fáir til ísraels
Þá er ekki grunlaust um, að
Gaddafi Líbíuleiðtogi muni láta
hefndir fyrir koma, og þá ekki
endilega á Bandaríkjamönnum
sjálfum, heldur t.d. þeim banda-
manna þeirra, sem hann á
auðveldast með að að ná til. Tals-
menn Bandaríkjahers fullyrða
fyrir sitt leyti, að flugmenn
bandarísku vélanna, sem skutu
þær líbísku niður, hafi ekki átt
annars kost, þar eð líbísku flug-
mennimir hafi stefnt vélum sín-
um beint á þá. Hafi bandarísku
flugvélamar, sem em af gerðinni
F-14, verið búnar að víkja sér
undan fimm sinnum til að forðast
árekstur við þær líbísku, en síðan
hafi flugmennimir séð fram á að
þeir væm nauðbeygðir að grípa
til vopna. Svo er að heyra að
önnur Nató-ríki hafi tekið full-
Fleiri Gyðingar fluttu frá Sov-
étríkjunum i des. s.l. en í nokkr-
um öðrum mánuði fyrr á þessum
áratug, að sögn Alþjóðlegu fólks-
flutningastofnunarinnar, sem
sinnir málefnum flóttamanna.
Þann mánuð fluttu frá Sovétríkj-
unum 3510 Gyðingar.
Bandarískur stjómarerindreki
lét svo um mælt af þessu tilefni,
að Ijóst væri að stómm auðveld-
ara væri nú orðið en áður var fyrir
sovéska Gyðinga að fá leyfi þar-
lendra yfirvalda til að fara úr
landi. í nóv. s.l. fluttust 2284
þeirra frá föðurlandi sínu. Á öllu
s.l. ári fluttust 20.082 Gyðingar
frá Sovétríkjunum. Þrátt fyrir
miklar tilraunir ísraela til að ná
sem flestu af þessu fólki til sín, til
að vega upp á móti vaxandi fjölda
araba bæði í ísrael sjálfu og á
svæðum hersetnum af því, flut-
tust þangað aðeins rúmlega 1400
þessara sovésku útflytjenda.
Flestir hinna fluttust til Banda-
ríkjanna.
Reuter/-dþ.
8 SÍÐA - NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 6. janúar 1989