Þjóðviljinn - 06.01.1989, Page 10
LEIÐARI
FYRR
Ertu sáttur
við ástandið?
Þessa daga eru menn að leggja út af fróðlegri könnun á
tekjumun í landinu sem birtist í BHMR-tíðindum. En þar mátti
lesa tölur sem sýna vaxandi launamun í landinu - og við
vitum einnig að með þeim tölum er ekki öll sagan sögð af
þeirri einföldu ástæðu að þeir sem mest bera úr býtum hafa
og að jafnaði meiri möguleika á að fela tekjur fyrir hnýsni
skattayfirvalda og almenningsálits. Og það hefur einnig
komið fram í þjóðmálakönnunum, sem gerð var grein fyrir í
BHMR-tíðindum, að þessi þróun, sem er hliðstæð þeirri sem
orðið hefur í öðrum löndum sem hægribylgja hefur gengið
yfir, gengur þvert á pólitískan vilja og siðferðishugmyndir
íslensks almennings. Nær níu af hverjum tíu telja launamun
of mikinn í þjóðfélaginu. Þeir sem telja launamun of lítinn í
landinu eru svo fáir að þeir komast vart á blað. Þeim hefur á
liðnum árum fjölgað aðeins sem telja launamun “hæfilegan"
- og það er þá athyglisvert að sú þróun á sér einkum stað hjá
yngstu kynslóðinni, þeim sem eru á aldrinum 18-29 ára. í
þeim hópi segja ekki nema 56% þeirra sem spurðir eru að
launamunur í samfélaginu sé „alltof mikill“. Aftur á móti eru
þeir sem orðnir eru sextugir og þaðan af eldra fólk ekki í
neinum vafa um það, að launamunur sé „alltof mikill“ (81 %)
eða „heldur of mikill" (13%).
Munurinn á afstöðu manna til tekjuskiptingar í þjóðfé-
laginu fer ekki í þeim mæli sem búast mátti við eftir því, hvað
menn sjálfir hafa í laun. En sem fyrr segir: dómar manna,
sem ná út fyrir eigin kjör, eru áberandi ólíkir eftir kynslóðum.
Jafnréttiskrafan verður sterkari eftir því sem ofar er komið í
aldursflokkum. En hún er líka misjafnlega sterk eftir fylgi við
pólitíska flokka.
í umræddum könnunum kemur fram mjög greinilegur
munur á viðhorfum hjá stuðningsmönnum þeirra tveggja
flokka sem öðrum fremur eru kenndir við verklýðshreyfingu,
jafnaðarstefnu, sósíalisma. Stuðningsmenn Alþýðuflokks-
ins eru miklu sáttari við ríkjandi ástand en stuðningsmenn
Alþýðubandalagsins. Það má í þessu máli greina sterka
samsvörun milli stuðningsmanna Alþýðuflokks og Sjálf-
stæðisflokks: Þrjú prósent af fylgi Alþýðuflokksins og tvö
prósent af fylgi Sjálfstæðisflokksins telja að launamunur sé
blátt áfram of lítill. 15 % krata og 20 % Sjálfstæðismanna
telja að hann sé hæfilegur. Þessir flokkar tveir eiga líka
lægst hlutfall stuðningsmanna sem lýsa því yfir að launa-
munur sé „alltof mikill" - eða 58% og 50%.
Aftur á móti er um verulega samsvörun að ræða í afstöðu
fylgismanna Alþýðubandalags og Kvennalista til þessarar
jafnaðarspurningar. Aðeins 6% fylgismanna Alþýðubanda-
lags og 4% af fylgi Kvennalistans telja að launamunur sé
hæfilegur. En 81 % af stuðningsmönnum Alþýðubandalags
og 76 % af fylgi Kvennalistans segja að þessi munur sé
alltof mikill.
Þessar upplýsingar er fróðlegt að skoða nú um þær
mundir þegar formenn Alþýðubandalags og Alþýðuflokks
ætla að halda fundi saman og svara spurningum - meðal
annars um það, hvers vegna þeir eru ekki í fyrirsvari fyrir
einn flokk. Það er algengast þegar innt er eftir því, að menn
vísi á fortíðina, ekki síst mismunandi afstöðu til byltingar í
Rússlandi, umbóta og gjörbreytinga. Þeir hlutir allir skiptu
vitanlega miklu máli í sögu vinstrihreyfingar á íslandi. En
bæði í sögulegri fortíð og í pólitískri nútíð eru að verki önnur
ágreiningsefni, sem lúta að grundvallarafstöðu til félags-
legra vandamála eins og ofangreind dæmi sanna. Og ef
menn ætla að byggja upp vinstrisamstarf með forsjá þá er
víst eins gott að menn forðist einfaldanir, geri sér grein fyrir
því að sú “pólitíska menning" sem hefur skipað mönnum í
flokka á sér fleiri rætur en svo, að upp geti slitnað eins og
hendi sé veifað.
ÁB.
Myndir þessar tvær sem saman er stillt í dag eru að því leytinu frábrugðnar
fyrri pörum að það er varla nokkrum manni ætlandi að átta sig á að um sama
staðinn sé að ræða, nema þá helst að forhertustu Vesturbæingar séu undan-
skildir. Og strangt til tekið má um það deila hvort um nákvæmlega sama
götuhornið sé að ræða, þar sem vinkilbeygjan gamla á þessari mynd er komin í
mjúkan sveig á þeirri neðri og blikkbeljuauðn í stað mannabústaða. Gatan er
sumsé Vesturgatan þar sem hún endar niður við sjó, og Selbrekkuhúsin. Góð og
gegn hús á sinni tíð, en orðin að slömmi um það er lauk. Um slammbyggju þessa
verður þó að segjast að miklu er hún meira fyrir augað en það sem við tók.
... QG NÚ
\
Ár og dagar síðan Selbrekkurnar hurfu þegar þessi mynd var tekin í dumbung-
num núna í vikunni. Nokkurn veginn þar sem húsin voru blasir nú við sá sem
hefur tekið völdin, eins og segir í frægu kvæði Þórarins Eldjárns um bíl Thom -
sens konsúls. Eins og þar kemur fram gerði farartækið enga lukku og var sent úr
landi fyrir bragðið. Ekki þó án þess að æpa, með fulltingi skáldsins, „ég mun ríkja
um síðir“, og fleira í þeim dúr sem mjög hefur þótt ganga eftir. En betri tíð er í
vændum fyrir götuhornið atarna, ef manni leyfist þá lengur að kalla þessa
sveigju horn; uppbygging á nýjan leik er á næstu grösum, og þegar hún nær alla
leið verður þokkalegra um að litast en nú er á þessari Ijótu blikkbeljuauðn.
Viljið þið ekki, lesendur góðir, vera nú svo vœnir að senda blaðinu gamlar myndir, sem þið kunnið að eiga í fórum
ykkar? Allar 40-50 ára gamlar myndir og ekki síður þaðan af eldri, eru vel þegnar. Myndunum þurfa að fylgja
nauðsynlegar upplýsingar svo sem um aldur ef hann er kunnur o.s.frv. - Myndina skal senda til umsjónarmanns Nýs
Helgarblaðs, Þjóðviljanum, Síðumúla 6, 108 Reykjavík. - Við munum að sjálfsögðu senda myndirnar til baka, ásamt
ókeypis eftirtöku. Leitið þið nú í pokahorninu.
Síðumúla 6-108 Reykjavík
Sími 681333
Kvöldsími 681348
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Rltstjórar: Árni Bergmann, MörðurÁrnason, Silja Aðalsteinsdóttir.
Umsjónarmaður Nýs Helgarblaðs: SigurðurÁ. Friðþjófsson.
Fróttastjóri: Lúðvík Geirsson.
Blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson,
Heimir Már Pótursson, Hjörleifur Sveinbjörnsson, Kristófer
Svavarsson, Magnús H. Gíslason, ólafurGíslason, PállHannesson,
Sævar Guðbjörnsson, ÞorfinnurÓmarsson (íþr.).
Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir.
Ljósmyndarar: Jim Smart, Þorfinnur Ómarsson.
Útlitsteiknarar: Kristján Kristjánsson, Kristbergur Ó. Pótursson
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson.
Skrifstofustjóri: Jóhanna Leópoldsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Olga Clausen.
Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Unnur
Ágústsdóttir, Sigurrós Kristinsdóttir.
Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, ÞorgerðurSigurðardóttir.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Húsmóðir: Anna Benediktsdóttir
Útbreiðslu-og afgreiðslustjóri:BjörnlngiRafnsson.
Afgreiðsla: Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir.
Innheimtumaður: Katrín Bárðardóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, símar: 681333 & 681663.
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrotog setning: Prentsmiðja Þjóðviljanshf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 70 kr.
Nýtt helgarblað: 100 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 800 kr.
10 SÍÐA - NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 6. janúar 1989