Þjóðviljinn - 06.01.1989, Side 13
ÍÞRÓTTIR
ÞORFINNUR
ÓMARSSON
Valdimar Grímsson er einn hinna sex leikmanna landsliðsins sem ekki lók í
Seoul. Valdimar hefur leikið vel í vetur og sést hér skora gegn Gróttu. Mynd:
ÞÓm.
Mikið mæðir á
landsliðsmönnum
íslenska handboltalandsliðið keppir í
Eyrarsundsmótinu eftir helgina. Guðni
Bergsson á skjánum á laugardag
r
Islenska handboltalandsliðið
fær ekki mikinn frið þessa dag-
ana en eftir helgina heldur liðið
utan og tekur þátt í æfíngarmóti
við Eyrarsund. Mótið hefst á
þriðjudag, aðeins degi eftir síð-
asta leik 11. umferðar 1. deildar.
Landsliðið leikur síðan þrjá leiki
á jafn mörgum dögum í Dan-
mörku og Svíþjóð þannig að ljóst
er að úrslitin í mótinu verða varla
tekin mjög alvarlega.
Eyrarsundsmótiö
Auk íslands taka gestgjafamir
Danir og Svíar þátt í mótinu en
fjórða þjóðin verður lið Búlgara
sem leikur einmitt í sama riðli og
ísland í væntanlegri B-keppni. ís-
land leikur fyrst gegn Svíþjóð í
Gautaborg, síðan gegn Dönum í
Slagelse og loks gegn Búlgaríu í
Helsingjaeyri við Eyrarsund, en
mótið er einmitt kennt við sund-
ið.
Úrslitin í mótinu skipta í sjálfu
sér ekki máli en allir leikirnir ættu
að geta orðið jafnir og spenn-
andi. Raunar er engin ástæða til
að leika á fullum krafti í mótinu
þar sem tveir andstæðinganna
taka þátt í B-keppninni í febrúar.
Það hlýtur að teljast eðlilegra að
nota æfingarmót sem slík, þ.e.
reyna ýmsa möguleika sem ekki
leyfast í stórmótum áhættunnar
vegna, án þess þó að leggja öll
spilin á borðið gegn verðandi
andstæðingum.
Sex nýir menn
Fimmtán leikmenn hafa verið
valdir í þessa stuttu ferð en sex
þeirra léku ekki á Ólympíuleik-
unum í Seoul. Tveir okkar efni-
legustu markvarða, þeir Hrafn
Margeirsson og Leifur Dagfinns-
son, hafa komið í stað Brynjars
Kvarans og Guðmundar
Hrafnkelssonar og leika í mark-
inu ásamt Einari Þorvarðarsyni.
Geir Sveinsson, Jakob Sigurðs-
son og Karl Þráinsson gefa ekki
kost á sér vegna náms og sem
kunnugt er leikur Atli Hilmars-
son ekkert með landsliðnu í vetur
vegna meiðsla. Þeirra í stað leika
nú þeir Birgir Sigurðsson, Vald-
imar Grímsson, Júlíus Jónasson
og Héðinn Gilsson, og getur
frammistaða þeirra í mótinu
ráðið miklu um hverjir þeirra
komast með til Frakklands.
Guöni í beinni
útsendingu
Guðna Bergssyni gengur bara
vel í sínum fyrstu leikjum með
Tottenham. Er það mjög óvenju-
legt hve fljótur Guðni er að að-
laga sig enskri knattspymu og
lofar þessi góða byrjun hans svo
sannarlega góðu. Það er í raun
mesta furða að Guðni skuli ekki
hafa farið fyrr út í atvinnu-
mennsku því hann er án efa einn
okkar snjallasti knattspyrnumað-
ur í dag.
Guðni hlýtur að sjóast vel á
skömmum tíma með Tottenham.
Þetta fornfræga lið hefur nú á að
skipa einu dýrasta knattspyrnu-
liði Bretlandseyja og skartar ein-
um umtalaðasta framkvæmda-
stjóra Evrópu, Terry Venables.
Hvernig sem litið er á málið virð-
ist því sem Guðni hafi gert mjög
góðan samning þegar hann ákvað
að fara til Tottenham og það vit-
um við að Tottenham verður ekki
svikið af Guðna.
Á laugardag verður leikur
Tottenham og Bradford í ensku
bikarkeppninni sýndur í beinni
útsendingu í Sjónvarpinu og
fáum við þá væntanlega að berja
Guðna augum í hvítu peysunni.
Enda þótt hann leiki ekki sinni
uppáhaldsstöðu (sweeper-libero)
skal hann fá að standa sig því ís-
lenskir knattspymuáhugamenn
munu vafalaust sitja sem fastast
við skjáinn.
-þóm
ÞAD ER ALVEG UÓST HVERT
KJÖRBÓKARÞREPIN LEIÐA
SPARIFJÁREIGENDUR:
í UPPHÆÐIR.
UM ÁRAMÓTIN HÖFDU ÞREPIN
SKILAD KJÖRBÓKAREIGENDUM
TÆPLEGA 200 MILUÓNUM
í AFTURVIRKUM VÖXTUM,
- UMFRAM 8,57%
RAUNÁVÖXTUN.
Já, þeir vita hvað þeir eru að gera sem eiga peningana
sína inni á Kjörbók. Þegar innstæða hefur legið óhreyfð
í 16 mánuði bætast 1,4% vextir við fyrri ávöxtun
og þeir eru greiddir 16 mánuði aftur í tímann.
Sagan endurtekur sig svo við 24 mánaða markið en þá
reiknast 0,6% vextir til viðbótar 2 ár aftur í tímann.
Samt sem áður er innstæðan ávallt óbundin
og úttekt hefur engin áhrif á ávöxtun þeirrar innstæðu
sem eftir stendur. Raunávöxtun Kjörbókar
var 8,57% á liðnu ári, 9,92% á 16 mánaða þrepinu
og 10,49% á 24 mánaða þrepinu.
Leggðu strax grunninn að gæfuríku ári
og fáðu þér Kjörbók.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Föstudagur 6. janúar 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 13