Þjóðviljinn - 20.01.1989, Side 6
Fjármálaráðuneytið telur að það megi spara um tvo miljarða í bankakerfinu og þannig lækka vaxtabyrðina í landinu.
lægri tala en Seðlabankinn hefur
reiknað út með því að finna hlut-
fallslegan vaxtamun. ísland er
síðan borið saman við önnur lönd
en tölur fyrir þau lönd ná yfir árin
1978-82. Þar sést að vaxtamunur
viðskiptabanka í Bandaríkjunum
er 3,52% í Noregi 3,24%, í Sví-
þjóð 2,17%, í Danmörku 4,97%,
í Finnlandi 2,31%, í Sviss 1,02%
og Ítalíu 2,30%. ísland er vissu-
lega í hærri kanntinum í þessum
hópi en ekki er að sjá að hægt sé
að staðhæfa að það skeri sig eitt
úr með háan vaxtamun. Á hinn
bóginn má setja spurnigarmerki
við samanburð af þessu tagi, þó
ekki væri út af öðru en að hér er
um meðaltöl nokkurra ára að
ræða og ekki sömu tímabil. En
fleiri spurningarmerki má setja
við vaxtasamanburð af þessu
tagi.
Samanburöur
erfiöur
Ragnar Hafliðason, viðskipta-
fræðingur hjá Bankaeftirliti Seðl-
abanka hefur mikla reynslu í út-
reikningum af þessu tagi. Hann
segir að ekki sé hægt að segja að
af þessum tveimur aðferðum við
útreikning á vaxtamun sé ein
hinni fremri. Aðalatriðið sé að
notasambærilegartölur. „En það
er alltaf erfitt með samanburð á
milli landa og jafnvel stofnana
innanlands," segir Ragnar. „Það
er spurning hvar hægt er að fínna
nákvæmlega sambærilegar stofn-
anir og eins geta verið reiknaðir
ákveðnir liðir inn í vexti erlendis
sem ekki eru teknir með í
reikninginn hér og öfugt. Er-
lendis er t.d. lántökugjöldum
iðulega bætt við útlánsvexti en
hér er sá þáttur ekki með við út-
reikning á vaxtamun. Eins og gef-
ur að skilja er vaxtamunur
Landsbankans lægri af heildar-
eignum en hjá minni bönkum,
því Landsbankinn meðhöndlar
svo mikið af heildsölufé eins og
afurðalán, sem lítill vaxtamunur
er á. En Jón Sigurðsson, viðskipt-
aráðherra hefur einmitt skipað
nefnd undir formennsku Birgis
Árnasonar til að komast í botns í
þessum málum,“ sagði Ragnar.
Eölismunur
á bönkum
Yngvi Öm Kristinsson, for-
stöðumaður peningadeildar
Seðlabanka slær einnig varnagla
við samanburði á vaxtamun hér
og erlendis. „Ég tel afar ólíklegt
að það sé hægt að fínna sambæri-
legar tölur sem stafar út af sér-
stöðu íslenska kerfísins. Það
liggur fyrst og fremst í því að
bankar á íslandi stunda mjög lítið
stofnlánafyrirgreiðslur. íslenskir
bankar hafa lengi aðallega lagt
stund á rekstrarlánafyrirgreiðslur
til fyrirtækja og eitthvað til heim-
ila. Rfkið byggði upp við hlið
bankana stofnalánakerfi eða
fjárfestingalánasjóðakerfið sem
hefur í höfuðatriðum verið geng-
istryggt ogverðtryggt. Kostnaður
við rekstur slíks kerfís er auðvit-
að mun ódýrari en banka og væru
þessir þættir inni í íslenska bank-
akerfínu eins og er víðast erlendis
þá væri vaxtamunur hér mun
minni. Það er verulega ódýrara
að reka lánastofnun sem tekur
inn stór lán sem skipta kannski
hundruðum miljóna og lánar síð-
an út í fáum stórum skömmtum,
heldur en að reka útibúakerfi um
allt land og vera eltast við fáeinar
krónur hjá hundrað þúsund
manns. Húsnæðisstofnun þarf
eitthvað nálægt 40 starfsmenn til
að afgreiða ámóta upphæðir og
Landsbankinn þarf 1200 starfs-
menn til að anna. Stórir bankar
t.d. í Svíþjóð og Danmörku
blanda þessu tvennu saman og
það þýðir að heildarvaxtamunur-
inn er miklu lægri,“ sagði Yngvi
Örn.
Rekstrar-
kostnaöur
Seinna dæmið sem að Ólafur
Ragnar og Már Guðmundsson
hafa bent á sem dæmi um óráðsíu
í íslenskri bankastarfsemi snýr að
rekstrarkostnaði. Þeir benda á að
rekstrarkostnaður íslenska bank-
akerfisins sé um 4,7% af niður-
stöðutölu efnahagsreiknings, en í
nágrannalöndunum sé rekstrar-
kostnaður um 3% af sambæri-
legri tölu. Hér sé því um 1,7%
mun að ræða og þar sem niður-
stöðutala efnahagsreiknings inn-
lánsstofnana hafi í lok októbers á
síðasta ári numið tæpum 130 milj-
örðum sé þessi munur í krónum
talið um 2,2 miljarðar. Með öðr-
um orðum, væri rekstrarkostnað-
ur íslenskra innlánsstofnana
sambærilegur við erlendar mætti
spara hér 2,2 miljarða króna.
Má spara um 45%?
Rekstrarkostnaður viðskipta-
banka og sparisjóða, sem saman
eru um 98% innlánakerfisins var
á árinu 1987 tæpir 4,9 miljarðar.
Væri hægt að spara 2,2 miljarða í
rekstri þessara stofnana þýðir
það eðlilega að hægt ætti að vera
að reka innlánsstofnanir fyrir 2,6
miljarða. Árið 1987 var rekstrar-
kostnaður Búnaðarbanka og
Landsbanka samtals um 2,7 milj-
arðar en þessar innlánsstofnanir
eru saman um 65% innlánakerf-
isins. Með öðrum orðum að
þýddi 2,2 miljarða sparnaður, ef
hann er raunhæfur að hægt væri
að reka alla 7 viðskiptabankana
og 38 sparisjóðina fyrir minna fé
en kostar í dag að reka Lands-
banka og Búnaðarbanka. Stefán
Pálsson telur slíkar stórbrotnar
hugmyndir um sparnað ór-
aunhæfar.
Fækkum útibúum
og fólki
Stefán telur hins vegar að vel
megi spara í bankakerfinu. „Það
getur verið að bankarnir geti
haldið uppi sömu þjónustu með
minni tilkostnaði. Margir bankar
hafa verið og eru að hagræða.
Þegar leitað er leiða til að auka
hagkvæmnina þarf að gera það á
öllum sviðum, sameina banka,
fækka útibúum og afgreiðslu-
stöðum, fækka starfsfólki og
minnka þjónustu. Við erum þeg-
ar farnir að draga úr þjónustu eða
veita hana með öðrum hætti.
Búnáðarbanki og Iðnaðarbanki
hafa t.d. hætt með síðdegisaf-
greiðslu á fimmtudögum en á
móti koma hraðbankar sem eru
opnir allan sólarhringinn. Með
meiri tæknivæðingu og hugsan-
legri fækkun afgreiðslustaða
hlýtur fólki að fækka í bönkum.
Með aukinni tækni og breyttu
vinnufyrirkomulagi má ná á-
rangri, t.d. hefur starfsfólki í
Búnaðarbanka ekki fjölgað frá
1986. Það má vera að sameining
banka verði ofan á, en það má
miklu hagræða í bönkum og það
er verið að gera það,“ sagði Stef-
án.
f þessu sambandi má minnast
þess að starfsmönnum viðskipta-
bankana hefur fjölgað að meðal-
tali um 137% frá 1972 til 1987 og
starfsfólki sparisjóða hefur fjölg-
að um 223% á sama tíma. Þó að
launareikningar bankanna hafi
þannig aukist verulega á síðustu
árum kemur á móti að raunlaun
íslenskra bankamanna hafa lækk-
að um 16% á árunum 1982-88 á
meðan raunlaun kollega þeirra á
Norðurlöndum hafa alls staðar
hækkað.
Þórður Ólafsson, forstöðu-
maður Bankaeftirlits Seðlabank-
ans tekur undir að vissúlega megi
spara í bankakerfinu. „Það þarf
engar vísindalegar/ kúnstir til að
sjá að bankakerfið er of dýrt, þó
við höfum einnig gert ákveðna
útreikninga ,á því. Bankaútibú
eru of mörg og oft hlið við hlið og
bankar erti of smáir, en með nú-
tímatækni má fækka bönkum án
þess að það gangi út yfir þjónust-
umÞ Margir sparisjóða eru hins
vegar svo smáir að sú þjónusta
Sem þeir geta veitt er mjög tak-
mörkuð. Með tilliti til öryggis-
sjónarmiða að þá er nauðsyn á að
leggja þá smæstu niður, ef þeir
sameinst ekki öðrum áður,“
sagði Þórður.
Dýrar
bankavenjur
Þegar rekstrarkostnaður ís-
lenskra banka er skoðaður má
minna á þá staðreynd að flestir
þjónustuþættir eru dýrari á ís-
landi en erlendis, strjálbýlis og
mannfæðar vegna. Auk þess
urðu ófáir viðmælendur blaðsins
til að benda á bankasiði íslend-
inga. Hér er nánst hver einasti
fulltíða maður með einn eða fleiri
bankareikning, tékkaviðskipti
eru margfalt umfangsmeiri á
hvern einstakling en þekkist ann-
arsstaðar og sama gildir um
greiðslukortaviðskipti. Hér
skipta menn ávísun fyrir pulsu og
kók og þykir eðlilegt og íslend-
ingar eru mun tíðari gestir í
bönkum og leysa þar af hendi
margvíslegri viðskipti en víðast
hvar erlendis. Þessir siðir eru dýr-
ir og hingað til hafa bankar ekki
tekið þjónustugjöld fyrir margs-
konar þjónustu til að hafa upp í
kostnað og mætti kannski segja
að þeir beri þar af leiðandi
nokkra ábyrgð á því ástandi sem
ríkir. Þeir vilja hins vegar meina
að þar hafí þeir mætt andstöðu
stjórnvalda. phh
50 mil
Bandaríski herinn og NA TO leggja einn
miljarð dollara eða um 50 miljarða
íslenskra króna í hernaðaruppbyggingu
á Islandi
„Við erum ákaflega stoltir af
því að eiga einhvern besta
flugvélakost í heimi og ein-
hverja vöskustu sveit flug-
manna sem völ er á. Það sem
á vantar er hins vegar að-
staða og tæknileg þjónusta á
landi og bættur aðbúnaður
fyrir hermennina. Þess vegna
ákváðu Nato og bandarísk
stjórnvöld að leggja út í fjár-
festingu hér á landi upp á einn
miljarð bandaríkjadala."
Þetta sagði Eric McWadon
flotaforingi á Keflavíkurflugvelli
á fundi með íslenskum frétta-
mönnum nú í vikunni. Fjárfest-
ingin sem hann átti við eru þær
miklu framkvæmdir sem nú
standa yfir við byggingu ratsjár-
stöðva, stjórnstöðvar, flugskýla,
olíuhafnar og olíubirgðastöðvar
og íbúða fyrir hermenn. Ef allar
framkvæmdir eru meðtaldar, þá
er þessi upphæð frekar vanmetin
en hitt, því auk þeirra fram-
kvæmda sem þegar hafa verið
ákveðnar, eru aðrar í bígerð eða
á teikniborðinu. Þeirra á meðal
er ný hliðarbraut við norður-
suður brautina á Kefla-
víkurflugvelli, sem á að geta
gegnt hlutverki sem varaflug-
braut og svo draumur Nato um
nýjan varaflugvöll í Aðaldal í N-
Þingeyjarsýslu.
Tugir miljarða
í flugvélum
Þessar framkvæmdir eru þó
ekki nema hluti þess vígbúnaðar
sem hér er að finna. Nýlega hefur
þotusveitin á Vellinum verið
endurnýjuð með 18 F-15 herþot-
um, sem eru að sögn einhverjar
þær fullkomnustu sem um getur.
Þær kosta um 25 miljónir dollara
stykkið að sögn Friðþórs Eydal
upplýsingafulltrúa hersins, en
Orion P-3C flugvélarnar eru sérhæfðar í að leita uppi kafbéta og granda þeim.
Þær miða út kafbáta með segulmælingum og með því að varpa niður
hlustunarduflum. Á myndinni sést undir vænginn þar sem eru festingar fyrir
stýriflaugar til að granda kafbátum. Ljósm. ólg.
6 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 20. janúar 1989
99
Inf-samningurinn hefur
ekki áhrif í Norðurhöfum“
Samkomulag um eyðingu skammdrægra vopna og
takmörkun vígbúnaðar hefur ekki haft merkjanleg
áhrifá vígbúnað íN-Atlantshafi, segirEric
McVadon, flotaforingi á Keflavíkurflugvelli
Samningurinn um eyðingu
skammdrægu vopnanna í Mið-
Evrópu og bættar horfur um sam-
skipti stórveldanna hafa ekki haft
áhrif á viðbúnað okkar hér í N-
Atlantshafi, sagði Eric McVa-
don, flotaforingi á Keflavíkur-
flugvelli á fundi með íslenskum
fréttamönnum síðastliðinn
þriðjudag.
McVadon sagði að frá því að
INF-samningurinn var undirrit-
aður hafí eftirlitssveitir flotans í
Keflavík orðið varar við nokkra
aukningu á ferðum sovéskra
Backfire-sprengjuþota, en
ástæðan fyrir því væri trúlega sú
að Sovétmenn væru að æfa notk-
un nýrra langdrægra eldflauga,
sem ætlaðar væru til árása á
Bandaríkin, ísland eða Evrópu.
Taldi flotaforinginn að þessar
æfíngar væru innan eðlilegra
marka. Þá sagði hann að einnig
hefði orðið vart við lítilsháttar
aukningu á ferðum svokallaðra
„Yankee“-kafbáta sem ætlaðir
væru til eldflaugaárása á Banda-
Eric McWadon flotaforingi á Keflavík-
urflugvelli: „Óbreytt ástand í norður-
höfum. “ Ljósm. ólg
ríkin, en sú aukning væri þó ekki
til þess að gera veður út af.
Hvað NATO varðaði, sagði
McVadon að INF-samningurinn
hefði ekki haft í för með sér neina
breytingu á viðbúnaði hersins hér
á landi.
-ólg