Þjóðviljinn - 20.01.1989, Side 11
Steinn Sigurðarson dregur úr réttum lausnum í verðiaunamyndagátunni. Mynd
Þóm.
Mikill fjöldi
réttra lausna
Mikill fjöldi réttra lausna á
verðlaunamyndagátunni
sem birtist í Nýja Helgarblaðinu
30. desember, barst inn á rit-
stjórn. Steinn Sigurðarson, 5 ára
piltur, dró úr réttum lausnum og
það var starfsfólk Dagspítala,
Hátúni 10 b í Reykjavík, sem
hafði sent inn lausnina sem Steinn
dró. Starfsfólkið fær sent bókina
Minningarmörk í Hólavallakir-
kjugarði eftir Björn Th. Björns-
son.
Rétta lausnin var: Forsetakjör
var haft á íslandi síðastliðið
sumar. Valið stóð bara milli
tveggja kvenna og sem slíkt tím-
anna tákn sýnir þá yfirburði sem
konur hafa náð í þjóðfélagi okk-
r
ALLT AÐ
90%
AFSLÁTTUR
í 14 DAGA
FRÁ 2I.JAN-4.FEB
íslenskur
verölaunahafi
Islenskur sjúkraþjálf-
ari við framhaldsnám
í Astralíu hlýtur
viðurkenningu
NATIONAL AWARD FOR
BONDISTUDENT
• Bondi resident Maria Thorsteinsdottir is onc
of only two post-graduate students in NSW to
receite the Commonweahh Advanced Educa-
tion Institution Awards (AED for 1988.
Maria, who is completing a Master of Ap-
plied Science Degree in Physiotherapy at
Cumberiand College of Heaith Sciences, is par-
ticularly thankful for the award since she has
only recently arrived from Iceland and gained
resident status.
Now living in Bondi with her 14-year-o!d
daughter, Maria says she doesn’t mind the long
commute to the Coliege chmpus at Lidoombe,
as she loves living by the sea. And the heat?” I
love it,” she said.
AQörur okkar rak á dögunum
úrklippu úr áströlsku dag-
blaði þar sem skýrt er frá því að
íslensk kona, María Þor-
steinsdóttir að nafni, hafi hreppt
verðlaun úr Námssjóði breska
samveldisins, annar tveggja í
framhaldsnámi er þess heiðurs
verður aðnjótandi.
María leggur stund á fram-
haldsnám í sjúkraþjálfun við
Cumberlandháskóla í Nýju
Suður-Wales og býr í Bondi-
hverfi í Sidneyborg, drjúgan spöl
frá skólanum, ásamt dóttur sinni.
í viðtali við ásralskan blaða-
manninn kveðst hún afar þakklát
sjóðstjórninni og ekkert láta það
á sig fá þótt hún þurfi að eyða
drjúgum tíma í ferðir til og frá
skóla. Það sé yndislegt að búa
nærri ströndinni og hitinn sé alls
ekki þrúgandi, þvert á móti!
Steinn dró einnig verðlauna-
hafa í jólakrossgátu Þjóðviljans
sem birtist í blaðinu 24. desemb-
er. Þar voru veitt þrenn bóka-
verðlaun og þær heppnu voru
Rósa M. Steingrímsdóttir, Sól-
heimum 23, Reykjavík, Kolbrún
Viggósdóttir, Aratúni 26, Garða-
bæ, og Sigríður Halldórsdóttir,
Arkarholti 12, Mosfellsbæ. Þær
fá sent sitt eintakið hvert af bók-
inni Trúin, ástin og efinn, ævi-
sögu séra Rögnvalds Finnboga-
sonar, sem Guðbergur Bergsson
skráði.
Dýr sparnaður
Ófarir yfirvalda í Garðabæ við
byggingu nýja íþróttahússins
hafa ekki riðið við einteyming.
Eins og skýrt hefur verið frá í frétt-
um eru allir tréburðarbitar í húsinu
ónýtir. Það uppgötvaðist fyrr í vet-
ur aö galli væri í límingu í þessum
límtrésbitum sem keyptir voru frá
Þýskalandi. Þrátt fyrir gallana
sem komu í Ijós var haldið áfram
að setja alla aðra bita á sinn stað.
Nú er hins vegar komið í Ijós að
þeir eru allir ónýtir. En þar með er
sagan ekki öll sögð. Margir undr-
ast hvers vegna ekki voru keypt
límtré frá verksmiðjunni á Flúð-
um, heldur frá Þýskalandi. Heim-
ildir herma að ástæðan hafi verið
sú að Þjóðverjar gátu afgreitt sína
bita hálfum mánuði fyrr en þeir á
Flúðum. Þegar bitarnir síðan
komu, lágu þeir óhreyfðir á bygg-
ingarstað í nær þrjá mánuði. Eftir
að þeir voru settir upp kom í Ijós
að þeir voru ónýtir og það mun
tefja verkið trúlega um tvo mán-
uði. Já, það getur stundum verið
varasamt að spara sér tvær vikur
sem síðan kosta tvo mánuði.
Suðurnesjakratar
sér á báti
Fundaferðalag þeirra Ólafs
Ragnars og Jóns Baldvins, á
rauðu Ijósi, hefur gengið vel og
húsfyllir verið á öllum fundarstöð-
um. Umræður um aukna sam-
vinnu A-flokkanna hafa farið fram
víða síðustu vikur, á opnum og
lokuðum fundum og almennt virð-
ast flokksfélagar úr báðum flokk-
um vera opnir fyrir slíkri umræðu.
Þó skera alltaf einhverjir sig og úr
þannig er farið með bæjarfulltrúa
Alþýðuflokksins í Keflavík sem
sendu formanni sínum Jóni Bald-
vin Hannibalssyni skeyti a dögun-
um og þökkuðu kærlega fyrir að
hann skyldi ekki ætla að hafa við-
dvöl á Suðurnesjum á hringferð
sinni með Ólafi Ragnari.
NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 11
GLÆSILEGRI OG GIRNILEGRI BÆKUR
EN NOKKRU SINNI FYRR
Hinn órlegi bókamarkaður okkar hefst ó morgun, laugardag kl. 10:00 í forlagsverslun
okkar að Síðumúla 1 1.
Þar verða ó boðstólnum mörg hundruð bókatitlar með allt að 90% afslætti. Af sumum
titlanna eru aðeins til örfó eintök og því ekki eftir neinu a.ð bíða.
Opið laugardaga frá kl. 10:00—16:00
Opið mánud.—föstud. kl. 9:00 — 18:00
ORN OG
ÖRLYGUR
SfÐUMULA 11 - SÍMI 84866
1
Svo er það sérstakt timabundið af-
mælistilboð sem ekki verður endur-
tekið. Við veitum 25% afslátt á
takmörkuðu upplagi á nokkrum af
okkar helstu verkum.
Um þessar mundir eru liðin 25 ár síðan Ferðahandbókin 1964
kom út. Hún var í raun upphaf að útgáfu fyrirtækisins og mark-
aði á margan hátt stefnu þess og störf.
Við höfum ákveðið að minnast afmælisins með því að gefa fólki
kost á að kaupa nokkur okkar helstu verka með 25% afslætti.
Hér er þó um takarmað upplag að ræða eða 1 50 eintök af
hverju verki.
Landið þitt ísland e. Þorstein Jósepsson og
Steindór Steindórsson sex bindi.
Ensk-ísl. orðabók eftir Sören Sörensen.
íslenskt þjóðlíf í 1000 ár e. Daniel Bruun tvö bindi.
Ferðabók Sveins Pálssonar tvö bindi.
Islenskir sögustaðir e. Kristian Kálund fjögur bindi.
Minningar Huldu Stefánsdóttir fjögur bindi.
íslandsmyndir Mayers e. Auguste Mayer tvö bindi.
Hornstrendingabók eftir Þórleif Bjarnason þrjú bindi.
íslenskar tónmenntir eftir Hallgrím Helgason.
Goð og hetjur eftir Anders Bæksted.
Ensk-íslensk skólaorðabók.
Um viðreisn íslands eftir Pál Vídalín og Jón Eiríksson.
P&Ó/SiA