Þjóðviljinn - 20.01.1989, Side 12

Þjóðviljinn - 20.01.1989, Side 12
Félagsmálastyrkir Evrópuráðs Evrópuráöið veitir starfsmönnum stofnana og samtaka sem veita félagslega þjönustu styrki til kynnisdvalar í aðildarríkjum ráðsins á árinu 1990. Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í félags- málaráðuneytinu, Hafnarhúsinu við Tryggva- götu. Umsóknarfrestur er til 16. febrúar nk. Félagsmálaráðuneytið, 16. janúar 1989 Frá Heimspekiskólanum Samræðu- og rökleikninámskeið fyrir 10-15 ára krakka hefjast 30. janúar. Innritun í síma 688083 frá kl. 16-22. Lyfsöluleyfi er forseti íslands veitir Lyfsöluleyfi Sauðárkróksumdæmis (Sauðár- króks Apótek) er auglýst laust til umsóknar. Fráfarandi lyfsala er heimilað að neyta ákvæða 11. gr. laga um lyfjadreifingu nr. 76/1982, varð- andi birgðir, áhöld og innréttingar. Verðandi lyfsali skal hefja rekstur lyfjabúðarinnar 1. júlí 1989. Umsóknir um ofangreint lyfsöluleyfi skulu hafa borist ráðuneytinu fyrir 19. febrúar n.k. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 18. janúar 1989 c LANDSVIRKJUN Samkeppni um gerð útilistaverks við stjórn- stöð Landsvirkjunar Landsvirkjun býðurtil samkeppni um gerð útilist- averks við stjórnstöð Landsvirkjunar, Bústaða- vegi 7, Reykjavík. Allir íslenskir listamenn hafa heimild til þátttöku. Heildarverðlaunaupphæð er allt að kr. 500.000.- Þar af verða 1. verðlaun ekki lægri en kr. 300.000,- í dómnefnd eru: Dr. Jóhannes Nordal, stjórnarformaður Lands- virkjunar Guðmundur Kr. Kristinsson arkitekt Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar Halldór B. Runólfsson listfræðingur og Þór Vigfússon myndhöggvari. Keppnisgögn verða afhent af trúnaðarmönnum dómnefndar, Jóhönnu S. Einarsdóttur, fram- kvæmdastjóra Sambands íslenskra myndlistar- manna, Ásmundarsal, Freyjugötu 41, Reykjavík, alla virka daga kl. 12:00-15:00 og Ólafi Jenssyni, framkvæmdastjóra Byggingaþjónustunnar, Hallveigarstíg 1, Reykjavík, frá og með mánu- deginum 23. janúar 1989. Skilatrygging er kr. 1.000.- Skila skal tillögum til annars hvors trúnaðar- mannanna fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn 21. mars 1989. Reykjavík, 20. janúar 1989 LANDSVIRKJUN ÍÞRÓTTIR ÞORFINNUR ÓMARSSON Bima í Höllinni Sovéski björninn er að þessu sinni kvenkyns og leikurgegn Fram um helgina. Hver verður eftirmaður Bogdans? íþróttaviðburður heigarinnar er án efa leikir Fram og sovésku meistaranna í kvennahandbolta, Spartak Kiev. Leikirnir eru í 16- liða úrsiitum Evrópukeppni meistaraliða og fáum við íslend- ingar nú að sjá handbolta eins og hann gerist bestur hjá konum í heiminum. Báðir ieikirnir verða háðir í Höllinni, sá fyrri á föstu- dag kl. 20 og sá síðari á sama tíma á sunnudag. Ofjarlar Framstúlkna Enda þótt Fram hafi verið yfir- burðalið í kvennahandbolta hér á landi um langt skeið munu þær eiga erfitt uppdráttar gegn þessu sigursæla liði. Sovésku birnurnar hafa nefnilega unnið til allra þeirra verðláuna sem mögulegt er, s.s. 20 meistaratitla og 11 Evr- ópumeistaratitla. Spartak Kiev er nánast sovéska landsliðið en í liðinu eru 10 landsliðskonur og voru 9 þeirra á síðustu Ólympíu- leikum. Par hafnaði lið þeirra öllum á óvart „aðeins“ í þriðja sæti. Þessir 20 meistaratitlar sem Spartak hefur unnið hafa allir unnist á síðustu 30 árum, undir stjórn sama þjálfarans! Hann heitir ígor Túrtsjin og er enn þjálfari liðsins. Hann var aðeins 24 ára þegar hann byrjaði með liðið en eiginkona hans, Sínaída, er aðstoðarþjálfari og dóttir þeirra, Natassja, þykir nú efni- legasta handknattleikskona sem komið hefur fram í Sovétríkjun- um. ígor Túrtsjin þykir með af- brigðum skapbráður maður en hann er einnig þjálfari landsliðs Sovétríkjanna. Besti leikmaður liðsins, Tamfla Olegsjúk, lenti td. í útistöðum við hann fyrir nokkr^ um árum og lék þá ekkert með liðinu í um tvö ár. Hennar ferill er ævintýri líkastur, því hún varð so- véskur meistari aðeins 14 ára gömul og hefur leikið á tvennum Ólympíuleikum. Hún er nú að- eins 22 ára og á því mikið eftir á sínum íþróttaferli. Þessi upptalning á afrekum Spartak Kiev ætti að nægja til að sjá hversu gott liðið í raun er. Lang besta félagslið heims hlýtur að vera ofjarlar Framliðsins því þótt liðin eigi um margt svipaða sögu innan eigins lands verður að hafa í huga að sovéskur hand- knattleikur kvenna stendur ís- lenskum mun framar. En koma þessa stórkostlega liðs hlýtur að vekja áhuga almennings því ann- að eins lið hefur aldrei rekið hing- að. Hver verður eftir- maður Bogdans? Þjálfaramál karlalandsliðsins hafa verið í brennidepli þessa vik- una því HSÍ hefur opinberað til- raunir sínar til að ráða arftaka Bogdans Kowalczyck. Efstur á óskalistanum er A-Þjóðverjinn Paul Tiedemann en hann hefur náð frábærum árangri með lands- lið þeirra undanfarin ár. Til vara hefur HSÍ talað við Roger Carl- son, fyrrum þjálfara Svía, og er nokku víst að annar hvor þeirra verði ráðinn. Tiedemann hefur þegar verið boðinn samningur til fjögurra ára með mögulega framlengingu um tvö ár í huga, en þá verður ein- mitt heimsmeistarakeppnin hald- in hér á landi. Stefnt er að því að ráða þjálfara áður en landsliðið heldur á B-keppnina í Frakklandi Dagar Bodgand Kowalczyck sem þjálfara landsliðsins eru senn taldir en óvíst er hver eftirmaður hans verður. í næsta mánuði en auk þess á að ráða íslenskan aðstoðarþjálfara. Rætt var við sex þjálfara í því sambandi sem eru Arni Indriða- son, Gunnar Einarsson, Jóhann Ingi Gunnarsson, Viggó Sigurðs- son, Þorbjörn Jensson og Þor- bergur Aðalsteinsson, sem á að vísu ekki heimangengt og dettur því út úr myndinni. Þessi þjálfari á aðallega að sjá um þrekþjálfan- ir og annað slíkt á meðan hins útlenda nýtur ekki við. Sannar- lega þarft framtak, og nú er bara að veðja á réttan hest. Mjög skiptar skoðanir eru um hver eftirmaður Bogdans á að vera. Margir eru þeirrar skoðun- ar að best væri að kúvenda og ráða Roger Carlson en aðferðir hans eru mjög ólíkar því sem menn eiga að venjast frá hendi Bogdans. Á hinn bóginn gæti Ti- edemann einfaldlega reynst kerf- isbundnum handknattleik íslend- inga betur, en eitt hefur Carlson örugglega fram yfir Tiedemann: Hann veit örugglega hvernig við getum unnið sigur á Svíum! Stjórnarráð Islands Nýtt símanúmer Frá mánudeginum 23. janúar 1989 hefur Stjórn- arráð íslands símanúmerið 60 90 oo 12 SfÐA - NÝTT HELGARBLAÐ

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.