Þjóðviljinn - 20.01.1989, Side 16
Eitt meö öllu
(nema maka)
Það er að mörgu að hyggja þeg-
ar á að pússa saman pilt og
stúlku. Það þarf að sjá um að
bjóða gestum, panta veislusal og
veislumat, útvega brúðarkjól,
hárgreiðslu, blómaskreytingu,
myndatöku, prest, hljóðfæraleik,
kirkju, innpakkaðan bíl o.s.frv.
o.s.frv.
Þar sem flestir eru önnum
kafnir í daglegu amstri býður eitt
fyrirtæki í Reykjavík upp á þá
þjónustu að sjá um skipulagningu
á brúðkaupinu. Þetta er fyrirtæk-
ið Ár hf. sem Ármann Reynisson
rekur. Hann var áður einn af
tveimur eigendum Ávöxtunar sf
sem fór á hausinn en nýja fyrir-
tækið sér um að skipuleggja
hverslags veislur og uppákomur.
„Allt nema jarðarfarir."
Ármann vildi ekkert ræða við
blaðamann þegar haft var sam-
band við hann. Sagðist vera kom-
inn í fjölmiðlabindindi og að
hann ætlaði sér að halda það.
Samkvæmt upplýsingum Nýja
Helgarblaðsins er fyrirtækið með
ýmsar verslanir og þjónustuaðila
á lista hjá sér og borga fyrirtækin
ákveðna upphæð fyrir að fá að
vera á listanum. Ekki tókst að fá
upplýsingar um hvað fyrirtækið
tekur fyrir sinn snúð en reikna má
með að veisla sem Ármann
skipuleggur fyrir hundrað manns
kosti að minnsta kosti 150 þúsund
krónur „og þarf þá að halda mjög
vel á spöðunum,“ einsog heimild-
armaður okkar sagði. í þeirri
veislu er boðið upp á freyðivín,
pinnamat og kransaköku, „eru
ekki allir á „diet“ núna?“
Það er bara að vona að þau
hjónabönd sem Ármann sér um
að skipuleggja endi ekki jafn
hrapallega og ávöxtunarævintýr-
ið.
Gjafirnar
Nú erum við farin að fara ansi
hratt yfir sögu því áður en að
veislunni kemur er í mörg horn
að líta. Giftingin þarf að spyrjast
til væntanlegra veislugesta í tíma,
svo þeim gefist tækifæri til þess að
kaupa gjafirnar. Flottast þykir að
senda boðskort með minnst hálfs
mánaðar fyrirvara.
Til að auðvelda væntanlegum
veislugestum að velja gjafir
handa brúðhjónunum bjóða
nokkrar verslanir upp á þá þjón-
ustu að vera með lista frammi þar
sem brúðhjónin hafa valið hvaða
gjafir þau vilja fá.
Brúðhjónin heimsækja versl-
unina, ganga um og velja sér gjaf-
ir og afgreiðslumaðurinn skráir
allt niður. Síðan koma gestirnir
væntanlegu og fá listann hjá af-
greiðslumanninum og kaupa gjöf
eftir honum og merkt er við jafn-
óðum hvað hefur verið keypt
þannig að ekki sé hætta á að
brúðhjónin fái t.d. eins vasa.
„Með þess móti geta brúðhjón-
in verið örugg um að fá það sem
þau vilja og þurfa því ekki að vera
að skipta gjöfunum,“ sagði af-
greiðslustúlka í versluninni
Heimsljós í Kringlunni.
Hún sagði að margar verslanir
væru komnar með þessa þjónustu
og að þetta væri töluvert mikið
notað, að minnsta kosti hefði það
verið sl. sumar, en eitthvað hefði
dregið úr því í vetur, enda giftir
fólk sig fyrst og fremst á vorin og
haustin og í kringum stórhátíðir.
Að sögn þessarar afgreiðslu-
stúlku gefa flestir gjafir sem kosta
á bilinu þrjú til sex þúsund krón-
ur. Þá er mjög algengt að hópur
taki sig saman til þess að kaupa
dýrari gjafir einsog t.d. borðsett
sem kosta tugi þúsunda.
„Það leynir sér ekki að það
borgar sig að giftast í dag. Fólk er
agndofa yfir hvað það fær mikið í
brúðargjafir, enda var aðal ver-
tíðin hjá okkur í brúðargjöfum sl.
sumar,“ sagði afgreiðslustúlkan.
Brúðarkjólar
og kjólföt
Næst skulum við huga að
klæðnaði brúðhjónanna. Við
höfðum samband við Katrínu
Óskarsdóttur hjá Brúðarkjóla-
leigunni.
Katrín sagði að mikill meiri-
hluti fólks leigði brúðarkjóla, en
leigan á þeim kostar frá 3.200
krónum upp í 4.200 krónur.
Katrín sagði að klassískir brúð-
arkjólar gengju alltaf en þó væri
alltaf eitthvað um nýjungar í
þessu einsog öðru. Nú væru t.d.
síðir hvítir íburðarmiklir kjólar
með miklum ermum og víðum
pilsum í tísku. Hún sagði að áður
fyrr hefði töluvert verið um það
að brúðir klæðist lituðum kjólum
en slíkt væri á miklu undanhaldi
og að nú vildu allar gifta sig í
hvítu, jafnvel þótt brúðirnar
væru búnar að eignast börn.
Flestir gifta sig um helgar og
fær þá brúðurin kjóiinn á hádegi
á föstudegi og þarf ekki að skila
honum aftur fyrr en seinnipart
sunnudags eða á mánu-
dagsmorgni. Katrín sagði að yfir-
leitt þyrfti að breyta kjólunum og
lagfæra þá töluvert í hvert skipti
og þessvegna gengju þeir fljótt úr
sér. Nú sagðist hún vera með um
10-15 kjóla sem hægt væri að
velja um.
En Brúðarkjólaleigan leigir
einnig út fatnað á brúðgumann.
Brúðguminn getur valið um
smóking, sem kostar 2.500 krón-
ur, eða kjólföt, en leigan á þeim
kostar 3.500 krónur.
Katrín sagði að það kæmi í
bylgjum hvort herrarnir veldu
smóking eða kjólföt. „Stundum
velja allir smóking og stundum
velja allir kjólföt."
En það þarf ekki bara að
„dressa“ upp brúðhjónin því það
þykir hæfa að svaramenn og
brúðarmeyjar séu í stfl. Katrín
sagðist leigja út kjóla á ungar
stúlkur fyrir þetta tækifæri en hún
hefði hinsvegar ekki enn farið út í
að leigja linda á unga drengi.
Það er ekki bara ytra borðið
sem skiptir máli því það sem
undir býr er ekki síður mikilvægt.
Silkinærföt eru mjög í tísku um
þessar mundir og eigi að vera
klassi á þessu þarf að minnsta
kosti að klæða brúðina í slík
plögg. Þau kosta frá 5000 kr. og
uppúr.
Hárgreiðsla, förðun
og handsnyrting
Brúðurin þarf vitaskuld hár-
greiðslu fyrir athöfnina og við
leituðum til Ólafar Ingólfsdóttur
hjá Hári og snyrtingu til þess að
fá upplýsingar um þann þátt í
þessum tímamótum í lífi unga
fólksins.
Ólöf sagði að fyrirtækið byði
brúðinni uppá greiðslu sem kost-
aði frá 3.300 krónum. Greiðslan
gæti þó orðið dýrari, en það færi
eftir því hvort þau væru beðin um
hárskraut eða brúðarslör. Hún
sagði að mun meira væri borið í
slíka greiðslu en venjulega hár-
greiðslu. Ofan á þetta getur svo
permanent og litun bæst.
Þá er boðið upp á förðun sem
brúðirnar þiggja yfirleitt og kost-
ar hún 1.590 krónur. Einnig er
vinsælt að fá sér handsnyrtingu
en hún kostar 1.500 krónur.
Greiðslan fer fram morguninn
sem athöfnin á sér stað og koma
brúðirnar oft með brúðarkjólana
með sér og klæðast þeim á stof-
unni. Stundum mætir brúðgum-
inn og þau fara saman í mynda-
töku áður en athöfnin á sér stað.
Flestir fara þó í myndatöku
eftir athöfnina og kostar hún frá
5.000 krónum upp í 12.000 eftir
þvi hvar myndatakan fer fram.
Samkvæmt upplýsingum hjá
Skyggnu í Kringlunni fengum við
þær upplýsingar að brúðkaups-
myndir væru á kynningarverði
hjá þeim núna og kostaði mynda-
takan 4.900 krónur. Fyrir það
verð fá brúðhjónin 10 litmyndir
og tvær stækkanir.
Puntaöur bíll
Þa<? nægir ekki að brúðhjónin
séu fínt puntuð heldur þarf að
skrýða bflinn silkiborðum og rós-
um.
Baldur Sigurðsson, bflstjóri á
Hreyfli, ekur um á stórum amer-
ískum bfl sem mjög vinsælt er að
nota við brúðkaup. Það þykir líka
fínt að aka til og frá kirkju á
gömlu lfmósínunni hans Bjarna
Ben., en sumir láta þó nægja að
skreyta eigin bfl.
Baldur sagði að þessi siður væri
ekki nýr hér á landi. Hann hefði
ekið skreyttum bíl í fyrsta skipti
árið 1973, en það var við brúð-
kaup bróður hans. Það var hins-
vegar ekki fyrr en 1981 að hann
gerði þetta í fyrsta skipti fyrir
borgun. Síðan hefur verið tölu-
vert um þetta en á síðustu árum
þykir þetta ómissandi þáttur við
veglegt brúðkaup.
Baldur sagðist yfirleitt aka-til
kirkju með brúði eða brúðguma.
Síðan biði hann við kirkjuna á
meðan athöfnin færi fram. Frá
kirkjunni ekur hann brúðhjónun-
um í myndatöku og bíður þar
meðan á myndatöku stendur.
Þaðan er svo haldið í veisluna.
Það kemur líka stundum fyrir að
hann er beðinn að koma aftur
seinna um kvöldið og ná í brúð-
hjónin í veisluna og aka þeim
heim eða í brúðarsvítuna.
Að sögn Baldurs tekur hann
venjulegan leigubflataxta fyrir
þetta en brúðhjónin sjá um að
borga skreytinguna, sem yfirleitt
er gerð af blómaverslun, en
stundum hjálpar hann brúðhjón-
unum við að hnýta slaufurnar ef
þau vilja sjálf sjá um að skreyta
bflinn.
„Ég er orðinn mjög vanur
þessu og kann því á þetta.“
Blóm
Samkvæmt upplýsingum í
blómabúðum er tiltölulega stutt
síðan byrjað var að skreyta bfla
fyrir brúðkaup hér, eða um þrjú
til fjögur ár, og augljóst að fyrir-
myndin kemur erlendis frá.
Einföld skreyting á bfl kostar
2000 krónur hjá Blómum og á-
vöxtum, en flestar blómaverslan-
ir bjóða upp á þessa þjónustu.
En það þarf að skreyta fleira en
bílinn við athöfnina. Brúðurin
verður að hafa brúðarvönd og
blómaskreytingar þurfa að vera í
kirkju og í veislunni. Vilji þeir
sem að brúðkaupinu standa
kaupa þetta allt á einu bretti kost-
ar það um 18 þúsund krónur og
þá er ekki miðað við mikinn
íburð.
Innifalið í þessum 18 þúsund
krónum er bflskreyting, brúðar-
vöndur, 4 blómavasar í kirkju og
tvær blómaskreytingar í veisl-
unni, önnur á háborði og hin á
kökuborðinu.
Kirkjan
Viðeyjarkirkja er í tísku um
í svítunni á Hótel Óðinsvéum bíður
kampavín brúðhjónanna.
þessar mundir en fleiri kirkjur
koma einnig vel til greina ef
menn mikla fýrir sér bátsferðina.
Dómkirkjan hefur alltaf vissan
klassa, einkum eftir að hún var
gerð upp að innan, og Bessastað-
akirkja þykir virðuleg. Þá var
áður í tísku að láta gefa sig saman
í gömlu kirkjunni í Árbæ. Það
þykir líka spennandi að velja tor-
fkirkjur úti á landi, en það er
einkum ævintýrafólk sem ekki
ætlar sér að hafa mikla veislu sem
velur þann kostinn, nema það búi
í nágrenni kirkjunnar.
Við skulum halda okkur við
kirkjuna í Viðey. Séra Þórir Step-
hensen, staðarhaldari í Viðey,
sagði að það hefði verið í tísku í
sumar að láta gifta sig í Við-
eyjarkirkju. Það hefði hinsvegar
verið minna um það í vetur en þó
hefði hann gift ein hjón í kirkj-
unni í desember. Þá hefur kirkjan
verið pöntuð í febrúar fyrir gift-
ingu. Viðeyjarkirkja er næst elsta
kirkja landsins en með elstu
innréttinguna.
Kirkjan í Viðey er lítil og tekur
tæplega 70 manns í sæti. Þeir sem
ekki komast fyrir í kirkjunni geta
hinsvegar fylgst með athöfninni á
loftinu í Viðeyjastofu því hægt er
að „vídeóvarpa" athöfninni
þangað.
Að sögn Þóris sitja karlar yfir-
leitt hægra megin í kirkjunni með
brúðguma en konur vinstra
megin. Faðir brúðarinnar bíður
með dóttur sinni í Viðeyjarstofu
þar til organistinn hefur hafið leik
brúðarmarsins. Þá ganga þau frá
stofu til kirkju. Sjálf athöfnin fer
svo fram með hefðbundnum
hætti.
Kirkjan kostar ekkert en prest-
urinn tekur 2.500 krónur fyrir at-
höfnina, organistinn 3.000 krón-
ur og kirkjuvörðurinn 1.250. Þá
er algengt að fólk fái einsöngvara
eða lítinn kór til þess að syngja
við athöfnina og jafnvel auka
hljóðfæraleik.
Séra Bragi Friðriksson, prestur
í Garðasókn, kannaðist ekki við
að Bessastaðakirkja væri í tísku
við brúðkaup. Á síðasta ári hefðu
farið fram á annan tug giftinga í
kirkjunni en mikill meirihluti
þeirra hefði verið sóknarfólk í
Bessastaðasókn. Það sem af er
þessu ári hafa þrjú pör látið gifta
sig í Bessastaðakirkju. Hann bar
þó ekki á móti því að það þætti
virðulegt að láta gifta sig á þess-
um sögufræga stað.
Að sögn séra Braga skiptir al-
gjörlega í tvö horn með það hvort
fólk vill mikla viðhöfn í kringum
þetta. Um helmingur allra brúð-
inn
Yfir þröskuldinn og
Hótel Óðinsvéum.
svítuna á|
16 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 20. janúar 1989