Þjóðviljinn - 20.01.1989, Síða 17
kaupa fer fram í mjög miklu lát-
leysi.
Veislan
Nú er komið að dýrasta liðnum
við brúðkaupið, sjálfri veislunni.
Veislurnar eru þó mjög misdýrar
og mismikið í þær borið. Þær geta
verið einföld kökuboð með kam-
pavíni á undan, pinnamatur með
freyðivíni, kalt borð, heitur
matur, þrí- og upp í sexréttaður,
með freyðivíni eða öðrum vín-
föngum eða þá hlaðborð með
heitum og köldum mat.
Veislugestir við vegleg brúð-
kaup nú til dags eru á bilinu 50 til
150 manns að sögn þeirra sem við
ræddum við.
Við skulum halda okkur við
Viðey, en þeir sem gifta sig þar
halda nær undantekningarlaust
veisluna í Viðeyjarstofu. Það er
Hótel Óðinsvé sem sér um
veisluföng í Viðeyjarstofu.
Gísli Thoroddsen, yfirkokkur
á Hótel Óðinsvéum varð fyrir
svörum. Hann sagði að veiting-
arnar færu eftir því hvenær dags
athöfnin ætti sér stað. Fari at-
höfnin fram snemma dags er yfir-
leitt látið nægja að vera með
freyðivín, kaffi og kökur en gifti
fólk sig um fimmleytið kostar það
yfirleitt matarveislur.
Matarveislurnar eru margs-
konar. Gísli sagði að það væri
vinsælt núna að bjóða upp á
kampavín eða freyðivín og pinna-
mat. Það kostaði mest um þús-
und krónur á mann. Sagði hann
að yfir slíkum veislum væri mun
léttara heldur en matarveislum,
því fólk stæði yfirleitt þegar boð-
ið væri upp á pinnamat en sæti
ekki við borð. „Miklar matar-
veislur eiga það oft til að verða
hálf leiðinlegar vegna þess að til
brúðkaups kemur fólk sitt úr
hverri áttinni sem þekkist ekki
innbyrðis. Fjölskylda brúðgu-
mans og fjölskylda brúðarinnar
hefur kannski aldrei hist áður.“
Matarboðin kosta frá 2.000 í
2.500 krónur á mann fyrir utan
vín. Það má reikna með um 800
krónum á mann í vínföngum, en
þá er gert ráð fyrir freyðivíni á
undan og rauðvíni með matnum.
Meðalverðið verður því um 3.000
krónur á mann og séu um 100
gestir í veislunni kostar hún 300
þúsund krónur.
Við höfðum einnig samband
við Glæsibæ og Þórskaffi og feng-
um upp kostnað hjá þeim og
kostnaður virtist svipaður á
öllum stöðunum, pinnamatur frá
730 krónum á mann og matur allt
upp í 3.000 krónur.
Gísli hefur verið kokkur í ein
20 ár. Hann var ekki þeirrar
skoðunar að íburður í brúð-
kaupsveislum hefði aukist. Þá
sagði hann að það færi ekki eftir
efnahag fjölskyldunnar hversu
mikill íburðurinn væri, oft væru
stærstu veislurnar hjá fólki sem
hefði ekki efni á þeim.
Ekki leita þó allir til veitinga-
staða heldur hjálpast fjölskylda
brúðarinnar oft að við að útbúa
veisluföngin og verður kostnaður
þá mun minni en ella.
Brúðarsvítan
Frá veislunni halda brúðhjónin
heim til sín eða á hótel og eyða þá
nóttinni í brúðarsvítum þeirra.
Nokkur hótel í Reykjavík bjóða
upp á brúðarsvítur, t.d. Hótel
Oðinsvé og Hótel Saga.
Brúðarsvítan á Hótel Óðinsvé-
um kostar 6.200 krónur yfir nótt-
ina og er þá innifalið kampavín
og morgunverður. Að sögn hót-
elhaldara er svítan töluvert notuð
af brúðhjónum, bæði utan af
landi og einnig fólki af höfuð-
borgarsvæðinu. Að meðaltali
eyða tvenn brúðhjón brúð-
kaupsnóttinni í svítunni á mán-
uði.
Á Hótel Sögu eru tvær brúðar-
svítur og kostar nóttin þar 9.072
krónur. Innifalið í því verði er
kampavín, blóm, ávextir og
morgunverður. Að sögn hótel-
haldara þar er ásókn brúðhjóna í
svíturnar mjög misjöfn eftir ár-
stímum, mest á vorin og seinni
hluta sumars. Eftir jól eru svít-
urnar hinsvegar lítið notaðar af
brúðhjónum. Á næstu mánuðum
hafa þó fern brúðhjón pantað
svítu á Sögu.
Kostnaðurinn
Inní þetta brúðkaupsdæmi hér
hefur ekki verið tekin brúð-
kaupsferð, en eitthvað er um að
nýgift fólk skelli sér til útlanda
eftir að prestur er búinn að pússa
þau saman. Þetta mun þó ekki
mjög algengt heldur blasir grár
hversdagurinn við flestum í upp-
hafi næstu viku.
En skoðum dæmið nánar og
sleppum úr því brúð-
kaupsreisunni, enda kostnaður
við slík ferðalög misjafn eftir því
hvert farið er og hversu lengi er
dvalist á erlendri grund.
Siðurinn er sá að foreldrar
brúðarinnar beri kostnað af
veislunni en þó hefur það færst í
vöxt að foreldrar brúðgumans
taka þátt í honum. Oft er það
samt svo að foreldrar brúðarinn-
ar vilja bera kostnaðinn einir þó
svo að foreldrar brúðgumans
bjóði aðstoð. Hafi fólk hinsveuaj
verið lengi í sambúð áður en.j m
lætur prest blessa hana stendtrti
það yfirleitt sjálft undir kostriáijjv
inum. %■***'
Meðalverð á brúðkaupsveislu
er um 300 þúsund krónur og ofan
á það bætist ýmis kostnaður eins-
og fram hefur komið. Veislan
getur þó verið mun ódýrari og
einnig mun dýrari. Allur pakkinn
gæti kostað á bilinu 200-400 þús-
und krónur og þá er reiknað með
um 100 manns í veislunni.
Á móti koma svo gjafirnar en
fram hefur komið að það tíðkast
að gefa gjafir sem kosta frá
3.000-6.000 krónur. Ekki er rétt
að reikna með að brúðhjónin fái
100 gjafir þótt gestir séu 100 tals-
ins því hjón eða pör gefa bara
eina gjöf. Við skulum þó reikna
með að hluti veislugesta séu ein-
hleypir þannig að 60 aðilar gefi
gjafir og að meðalverð hverrar
gjafar sé um 4.000 krónur. Brúð-
hjónin fá þá gjafir fyrir um
240.000 krónur.
Samkvæmt þessu var halli á
ævintýrinu.
Erlendir siðir
Að lokum skulum við hverfa
aftur til upphafs þessarar umfjöll-
unar um nútímabrúðkaupið og
beina augum örlítið að þeim er-
lendu siðum sem hafa verið að
ryðja sér til rúms á undanförnum
árum.
Það að draga baug á fingur
undir giftingarathöfninni er inn-
fluttur siður að sögn séra Braga
Friðrikssonar. Hann sagði að það
hefði aukist mikið á undanföm-
um árum að fólk léti helga hring-
ana og taldi hann það áhrif frá
bandarískum bíómyndum og
sjónvarpsþáttum. Sömu sögu
væri að segja um skreytingu á bíl-
um, en það væri greinilega inn-
fluttur siður og áhrifin komin frá
Bandaríkjunum.
Þá hefur það færst í vöxt að
kirkjugestir hendi hrísgrjónum
eða öðrum kornmat yfir brúð-
hjónin þegar þau ganga frá
kirkju.
„Mér leiðast þessir erlendu
frjósemissiðir, að henda hrís-
grjónum yfir brúðhjón, þótt ég
láti þá afskiptalausa,“ sagði séra
Þórir Stephensen. Af þessu hlýst
mikill sóðaskapur og jafnvel
hætta í bleytu og ég veit að kir-
kjuvörðum er illa við þetta, enda
lendir það á þeim að þrífa stéttina
eftir að gestir eru horfnir á braut.
Ég hitti mann um daginn sem
sagðist hafa tekið þátt í því að
henda Cheerios-hringjum yfir
brúðhjón."
-En er það ekki gott fyrir smá-
fuglana?
„Ég held að það sé ekki holl
fæða fyrir þá. Ég man ekki betur
en að Sólskríkjusjóðurinn hafi
verið að vara fólk við að gefa
smáfuglunum haframjöl nýlega.
Smáfuglarnir geta orðið mjög
veikir af þessu og jafnvel dáið.“
-Sáf
Brúðhjónin Bjarni Már
Bjarnason og Margrét
Einarsdóttir. Bjarni
Már keypti sér smók-
ingfyrirgiftingunaen
Margrét leigði sér
brúðarkjól. Þegardótt-
ir þeirra sem er á öðru
árihittimóðursínaí
kirkjunni þekkti hún
hana ekki. Myndin var
tekináljósmynda-
stofu eftirgiftinguna.
ROMANTÍSK OG
SKEMMTILEG
■ Bjarni Már Bjarnason og
I ■■ MargrétEinarsdóttirgiftu
sig í Strandarkirkju 3. desember sl. Áður höfðu þau
verið í óvígðri sambúð í fjögur og hálft ár og eiga
dóttur á öðru ári
„Þetta var mjög rómantískt og
skemmtilegt,“ sögðu þau Mar-
grét Einarsdóttir næturvörður
og Bjarni Már Bjarnason sjúkra-
liði, um giftingu sína en þau létu
vígja sig í heilagt hjónaband í
Strandarkirkju 3. desember sl.
Þau Margrét og Bjarni höfðu
búið saman í fjögur og hálft ár
áður en þau tóku þá ákvörðun að
láta prest vígja sambúðina. Þau
eiga eina dóttur saman sem er á
öðru ári og hjá þeim býr einnig
fjórtán ára sonur Bjarna Más.
„Það hafði aldrei hvarflað að
okkur að giftast, það var ekkert
inni í dæminu hjá okkur,“ sagði
Margrét þegar hún var spurð
hversvegna þau hefðu beðið
svona lengi með giftinguna. „Við
höfðum búið saman í rúm fjögur
ár og stundum flögraði sú hugsun
að manni að einhverntímann
kæmi kannski að því að maður
myndi giftast. Það einkennilega
við þetta var að við fengum eigin-
lega bæði þessa tilfinningu sam-
tímis, að rétt væri að við gift-
umst.“
„Þetta var í nóvember," sagði
Bjarni Már. „Við vorum voða
rómantísk og vildum gera þetta
virkilega skemmtilegt. Áður
hafði mér aldrei dottið í hug að ég
ætti eftir að gifta mig í kirkju. Svo
var þetta mjög gaman.“
„Kannski vegna þess að þetta
varð svo óvænt,“ sagði Margrét.
Að sögn þeirra Margrétar og
Bjarna Más hefur afstaða samfé-
lagsins til hjónabanda breyst
mjög mikið á undanförnum
árum. Hvorki samfélag né fjöl-
skylda krefst þess að fólk sem
býr saman láti gifta sig og í mörg-
um tilfellum borgar það sig ekki
fjárhagslega fyrir fólk að láta
vígja sambúðina.
„Við höfðum gengið í gegnum
öll þau vandamál sem fólk gengur
í gegnum þegar það fer að búa
saman og allt í einu komumst við
að því að við vildum virkilega
gefa allt til þess að þroska þetta
samband og þá ákváðum við að
gifta okkur,“ sagði Margrét.
Bjarni Már flutti heim til móð-
ur sinnar fjórum dögum fyrir
brúðkaupið og hitti Margréti
ekki aftur fyrr en við giftinguna.
Giftingin fór fram í Strandar-
kirkju og prestur var séra Tómas
Guðmundsson í Hveragerði. Um
70 manns voru við athöfnina „þó
það væri eiginlega ófært úr bæn-
um og athöfnin frestaðist því um
hálftíma því allir komu of seint til
kirkju.“
Við athöfnina var organisti,
Föstudagur 20. janúar 1989
kór og flautuleikari, en séra
Tómas sá um að útvega hljóð-
færaleikara og söngvara.
„Þetta var mjög hefðbundin at-
höfn. Brúðguminn stóð á meðan
gestir tíndust til kirkju. Þegar
prestur gekk til kirkju settust
gestir og organistinn hóf að leika
brúðarmarsinn og Margrét og
faðir hennar gengu inn kirkju-
gólfið," sagði Bjarni Már.
Eftir athöfnina var svo haldið
aftur til Reykjavíkur og brúð-
hjónin sátu í gamalli drossíu, sem
hafði verið í eigu Bjarna Bene-
diktssonar og verið sérstaklega
skreytt fyrir athöfnina. Undir
stýri sat kunningi þeirra sem var
svaramaður við giftinguna. Fyrst
var haldið í myndatöku sem kost-
aði um 10 þúsund krónur og það-
an í Skipholt 70 þar sem veislan
var haldin í leigðum sal.
Það voru foreldrar Margrétar
sem sáu um veisluna. Um 80
manns ma'.ttu og á boðstólum
voru snittur, brauðtertur, flat-
brauð og kökur, sem fjölskylda
Margrétar nafði útbúið. Á undan
var drukkið kampavín en á eftir
var boðið upp á bollu og kaffi.
Salurinn kostaði um 12 þúsund
krónur með borðbúnaði og öðru,
þannig að dæmið varð ekki mjög
dýrt. I veislunni spilaði vinnufé-
lagi Bjarna á píanó.
Eftir veisluna hélt nánasti
kunningjahópur nýgiftu hjón-
anna með þeim heim og þar
skemmti fólk sér fram á miðnætti
en þá fóru þau Bjarni Már og
Margrét í svítuna á Hótel Sögu.
„Þar var tekið mjög vel á móti
okkur með blómum, kampavíni
og ávaxtaskál. Þegar tappinn
rauk úr kampavínsflöskunni tók
ég eftir því að það voru um tut-
tugu för eftir kampavínstappa í
klæðningunni í loftinu," sagði
Bjarni Már.
Að lokum voru þau hjón spurð
hvort samband þeirra hefði
eitthvað breyst við það að þau
létu gifta sig.
„Að vissu leyti hefur það
breyst,“ sagði Margrét. „Nú er ég
miklu ákveðnari í því að þetta er
það sem ég vil. Þó ég hafi alltaf
viljað búa með Bjarna þá erum
við núna búin að taka þessa
ákvörðun.“
„Maður giftir sig ekki bara út af
skemmtuninni," sagði Bjarni
Már, „heldur vegna þess að við
ætlum að búa saman og dýpka
þetta samband okkar.“
„Þetta verður súpersamband,“
sagði Margrét að lokum.
-Sáf
NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 17