Þjóðviljinn - 10.02.1989, Page 2
Ibert
skaut
föstu
skoti
SKAÐI SKRIFAR
í RÓSA-
GARÐINUM
HIÐ ÓBÆRILEGA
BÖL FÁTÆKT-
ARINNAR
Sparnaöur og aðhaldssemi er
dyggð sem ríkið hefur engin efni
á að standa undir.
Tíminn
Æ ÞESSIR
UMFERÐAR-
HNÚTAR!
Það fóru tveir miljarðar af sölu-
skatti í súginn á síðasta ári vegna
þess að sumir náðu ekki í bank-
ann fyrir lokun.
DV
Ó HVAR ER
KARLMANNS-
LUNDIN?
Ég hefi alltaf vitað að frændur eru frændum verstir og þannig
hefur það oftar en ekki verið með okkur Boga. Við erum
bræðrasynir við Bogi og báðir aldir upp af ábyrgu fólki og báðir
höfum við þessvegna verið Sjálfstæðismenn að megininntaki
sálarinnar. En Bogi hefur aldrei getað gert neitt alminnilega og
þá ekki heldur í pólitíkinni. Þegar ég studdi Ólaf Thors eða Geir,
þá studdi hann Gunnar Thoroddsen í allskonar upphlaupum og
svo Albert. Og svo hann Albert.
Það er nú meiri maðurinn.
Af hverju Albert? spurði ég Boga einu sinni.
Það er góður drengur Albert, sagði Bogi. Lftillátur Ijúfur og
kátur. Ég man varla eftir þeim góðviðrisdegi þegar ég var á
labbi si sona í miðbænum að ég sjái ekki Albert sem brosir til
mín og segir: Sæll Bogi minn. Þetta segir hann við mig sem er
ekki annað en grassins rót í þessum góða bæ. Svona menn
kunna að hafa samband við sitt fólk.
Lítið dregur vesælan, segi ég.
Jæja góði, sagði Bogi. Aldrei fékkst þú að taka í höndina á
Geir og ég er viss um að Þorsteinn Pálsson veit ekki einu sinni
hvað þú heitir.
Hinir síðustu munu verða fyrstir, sagði ég.
Hinir síðustu verða síðastir, sagði Bogi. Nema þú eigir Albert
að sem hringir í réttan mann þegar háska ber að höndum
Og Hafskipið sökkur í kaf, sagði ég af minni illkvittni.
Hafskip segirðu? Nei það mál var sko ekki Albert mínum að
kenna heldur samsæri Kana og Rússa. Kanar ætluðu að sigla
sjálfir með sitt dót hingað og Rússar undirbuðu alla Atlants-
hafsflutninga. Ég hefi mikla trú á Albert, en hann ræður ekki við
þessi tröll bæði í einu, maður verður að vera sanngjarn.
Já en maðkarnir í mysunni, sagði ég.
Það eru öngvir maðkar í Alberts mysu, sagði Bogi, heldur í
mesta lagi sauðmeinlaus hringormur sem engin ástæða er til
að móðursýkjast út af. Eða heldur þú að kratar og kommar og
Steingrímur hefðu núna fyrir skemmstu sameinast um að sjá
réttilega fram á mannkosti Alberts í sjálfu Frakklandi ef á þeim
gjörfulega sendiherra okkar skriðu vafasamir maðkar? Láttu
þér ekki detta annað eins í hug.
Bogi minn, þeir vinstrifólar í ríkisstjórn, sem aldrei skyldu
verið hafa, ætluðu barasta að kaupa hann Albert þinn burt og
kippa svo Júlla Sólnes og hans kumpánum inn í stjórn og leyfa
þeim að sitja yfir einhverjum ómerkilegum ráðnuneytum með-
an sætt er eða þangað til þetta Borgaralið ykkar kemur heim
aftur til Okkar Flokks Þetta er svo augljóst mál, að ég Skaði,
skammast mín niður í rass fyrir að minnast á það.
Því lýgur þú enn og aftur Skaði, sagði Bogi og fnæsti nokkuð
svo. Það getur vel verið að Steingrímur og þeir kónar hafi ætlað
að kaupa Júlla og Óla og það fólk. Það getur verið að sumir og
ýmsir menn í mínum flokki séu svo veikir í hnjáliðunum að þeir
barasta hnígi svona niður í ráðherrastól ef þeir sjá einn slíkan á
flækingi. Það ersvosem ekki lengi verið að gifta hana Möngu ef
hún er á annað borð orðin eitthvað laus í buxunum. En þá ber
Albert í borðið. Þá byrstir hann sig. Þá spyr hann með þeirri
siðrænu reisn sem gnæfir upp af hans sálarstyrk: Ætla menn
að fórna málefnum fyrir ráðherrastóla? Ætla menn að láta
draga sig á asnaeyrunum, steypa yfir sig fíflsmussunni, láta
spúa yfir sig spéi og ég veit ekki hvað?
Ég heyrði það allt Bogi, ég heyrði það. Og þá hrökkva þessir
aumingjar, flokksbræður þinir, í kút, stinga höfði milli fóta og
hlaupa í felur. Er það þetta sem þú kallar grasrót og lýðræði og
að vera góður við litla manninn? Hvernig getur besti vinur litla
mannsins verið svona vondur við hann Júlla Sólnes til dæmis?
Segðu mér það.
Auðvitað á að vera gott samband við grasrótina og almenna
flokksmenn og almenna þingmenn og allt það. En þeir menn
skilja ekkert í lífinu sem ekki vita að grasrót er grasrót og á að
vera grasrót og leiðtogi er leiðtogi og að það hefur alltaf fylgt
fornu og frumhelgu mynstri. Hvað stendur ekki í Biblíunni? Þar
segir: Heiðra skaltu föður þinn og móður. Og það gera menn
ekki sem ætla að gana í ríkisstjórn án þess að Albert vilji. Það er
eins augljóst og nokkur hlutur getur verið og meira en það. Og
því segir Albert við flökkinn eins og kósakkaforinginn frægi
sagði við svikarann son sinn: Þig hefi ég af mér getið, og þér
mun ég kála!
2 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 10. febrúar 1989
Hér eftir þori ég ekki fyrir mitt
litla líf að gægjast inn um bílrúður
í annarra manna bílum.
Ellert Schram í DV
HVERT ER
ÞÁ ORÐIÐ
OKKAR STARF?
Heilbrigði eða óheilbrigði,
streita eða ekki streita, hollusta
eða óhollusta, allt hefur þetta
fylgt manningum frá örófi alda.
DV
KOMIÐ TIL
STEINGRÍMS
ÞÉR SEM
BYRÐAR BERIÐ
Það má ef til vill segja að Borg-
araflokkurinn sé í hlutverki holds-
veika mannsins í pólitíkinni.
Júlíus Sólnes
í viðtali við Tímann
EKKERT MÁ
MAÐUR
Á einu og sama árinu hefur Jón
(Baldvin) skilið við íhaldið, van-
gað Framsókn og gefið alla-
böllum undir fótinn.
Alþýðublaðið
BÖRÐUM EINN
VIÐ ÁTTA
Ráðstafanir ríkisstjórnarinnar í
efnahagsmálum hafa ekki vakið
hrifningu meðal launþegasam-
taka, vinnuveitenda, forsvars-
manna sjávarútvegs eða iðnað-
ar, bankamanna né almennra
hagfræðinga.
DV
ALDREI HIRTI ÉG
UM SLÍKAR
MUBLUR
Þetta eru engin vinnubrögð.
Borgaraflokkurinn sem fór af
stað með góðan ásetning er
kominn í að gera engar kröfur
aðrar en að fá ráðherrastóla.
Þetta er hlægilegt.
Albert Guð-
mundsson í DV