Þjóðviljinn - 10.02.1989, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 10.02.1989, Blaðsíða 16
► arkitektoniskur horror en nokk- urn tíma hefur áður þekkzt á fs- landi, og erum við þó ýmsu van- ir.“ Guðjón Samúelsson húsa- meistari ríkisins teiknaði húsið. Hann kynnti sér gerð leik- húsanna á Norðurlöndum og var teikning hússins unnin með stuðningi af þeim fyrirmyndum og eins hugmyndum hans sjálfs um að leikhúsið ætti að vera ts- lensk álfaborg. í upphafi var ekki gert ráð fyrir því að nein smíðastarfsemi ætti sér stað í húsinu, enda voru allar leikmyndir málaðar í þá daga, þ.e. máluð leiktjöld sem hægt var að hífa upp og niður í heilu lagi um rauf í gólfi málarasaiar Formlist Leikmynd, búningar og leik- munir eru þeir þættir leiksýning- arinnar sem hér á landi fá minnstu umfjöllun. Hinn al- menni leikhúsgestur sér aðeins myndina sem fyrir augu ber, en íhugar sjaldnast þá gífurlegu vinnu og útsjónarsemi sem að baki hennar liggur. Hugvitsmenn og smíðameist- arar starfa í stórum smíðasal og eru þar jafnt smíðaðar hallar- tröppur sem bárujárnskofar. Þar sem lyfta hússins er svo lítil verð- ur að útbúa leikmyndina þannig að hægt sé að setja hana saman þegar upp er komið. Leikmyndin er því flutt í bútum til samsetning- ar á sviðinu. Á smíðaverkstæðinu starfa tveir menn sem fylgt hafa starf- seminni frá upphafi, það eru þeir Kristinn Daníelsson og Bjarni Stefánsson. Kristinn vann í fyrstu við byggingu hússins og hefur í- lenst þar. Tildrög þess að Bjarni kom til starfa í Þjóðleikhúsinu sem form- listamaður voru þau að hann vann við skreytingar og uppsetn- ingar á þeim á Snorrahátíðinni 1947 í Reykholti. Guðlaugur Rósinkranz verðandi Þjóð- leikhússtjóri var framkvæmda- stjóri hátíðarinnar og sá í Bjarna listamann sem brýnt var fyrir leikhúsið að fá til starfa. Bjarni er formlistamaður, myndlistarmenntaður hjá Jó- hanni Briem og Finni Jónssyni málara. í höndum hans verður frauðplast að þungum marmara- styttum og madonnulíkneskjum. Bjarni fæst einnig við gnmugerð og annan útskurð. Að mati Bjarna er leiðinlegra að gera tjöldin núna en hér áður fyrr. „Það er alltof mikið smíðað, það reynir svo lítið á málaralist- ina. Smáatriði eru smíðuð, svo sem listar og misfellingar, en er- lendis eru málaðir skuggar. Mér finnst að leikmyndahönnuðir gætu séð til þess að meira væri málað,“ segir Bjarni, og bætir við hlæjandi, „en ég á náttúrlega ekkert að vera að segja þetta, ég er að hætta hérna“. Bjarni hefur einnig áhyggjur af flutningi smíðaverkstæðisins, þar sem hann telur að það verði endalausar keyrslur milli skemm- unnar í Sundahöfn og Þjóðleik- hússins. Við flutninginn er hætta á því að bein tengsl milli aðstand- enda sýningar og smíðaverkstæð- is rofni. Bætt aðstaða í umfjöllun um Þjóðleikhúsið Góðir félagar. Bjarni formlistamaður hallar sér upp að rómverskum sonum sínum, sem eru snilldarlega skornir út í frauðplast. gleymist oft að þar er einnig rek- inn ballettskóli. Hann er ásamt bókasafni, skrifstofum og litla sviðinu til húsa í íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar, en þó fara enn fram æfingar í ballettsal í leikhús- inu sjálfu. Æfingasalurinn var upphaflega ætlaður undir leikstarfsemi en sú varð ekki raunin þar sem lofthæð er ekki nægjanleg, reyndar er sal- urinn ekki ákjósanlegur fyrir ballettæfingar heldur, þar sem ómögulegt er að stökkva þar. Aðstaða fyrir förðun er góð. Eftir að hafa kúldrast í litlu bún- ingsherbergi hefur „sminkið" nú fengið viðunandi rými, þ.e. í suð- vesturhlið þar sem áður voru skrifstofur, bókasafn og búnings- herbergi starfsfólks. Með kórnum frá upphafi Svava Þorbjarnardóttir sem starfar á skrifstofu Þjóðleikhúss- ins, hefur verið söngkona með kórnum frá upphafi. Ævintýri Hoffmanns er fyrsta óperan sem hún tekur ekki þátt í. Svava segist sakna þess að léttir söngleikir og óperettur séu ekki lengur á fjöl- unum. „Það sem breyst hefur mest, er að músíkinni er ekki gert eins hátt undir höfði og hér áður fyrr, lyftistöng leikhússins voru söngleikirnir, ennú eru þeir horfnir, það er skammarlegt,“ Minni sjarmi yf ir leikhúslífinu Halldór Ormsson hefur starfað í Þjóðleikhúsinu frá því 1960, fyrst við bakdyravörslu, en frá 1967 hefur hann stjórnað miða- sölu. Að sögn Halldórs er ekki eins mikill sjarmi yfir leikhúslíf- inu og hér áður fyrr. „Kannski gerir öll atvinnu- mennskan að það er ekki sama einlægnin. Fiðlarinn á þakinu er eftirminnilegasta verkið, enda 92 sýningar. Við gerum alltof lítið af því að ala upp leikhúsfólk. Regl- ubundnum skólasýningum hefur fækkað, og ef krökkum er ekki haldið við efnið þá slitnar leikhúshefðin," sagði Halldór. Með tilkomu nýja sviðsins í smíðaverkstæðinu er vonandi að Þjóðleikhúsið endurveki skóla- sýningar og sinni þar með upp- eldisskyldu sinni gagnvart áhorf- endum framtíðarinnar. _ eb Ul U U~U U ±öi iii Þverskurðarmynd Gylfa Gísla- sonar séð frá Lindargötu. Málar- asalur efst til vinstri. Væntanlegt leiksvið undir bílastæði. 16 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 10. febrúar 1989 Föstudagur tO. febrúar 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 17 Ekki bara akstur SagaHreyfils s.f. í 45 ár Eins og áður er sagt hafði ég oft gott út úr því að keyra fólk sem aðrir vildu ekki flytja, vegna þess að það var undir áhrifum víns, kannski helst til mikið, eða þekkt að því að borga ekki eða vera þraut- leiðinlegt, nema það hefði allt þetta til að bera og jafnvel fleira. Eitt sinn er ég var á Hreyfli kom lítil kona undir áhrifum víns í dyrnar og kallaði yfir hópinn hvort einhver vildi keyra sig vest- ur í sólarlagið? Þetta var að nóttu til, ekkert að gera og margir biðu eftir túr. Enginn svaraði kon- unni. Þá sagði ég: „Veldu bara úr hópnum.“ Ég þurfti ekki vekja meiri athygli á mér til þess að hún rétti mér beinabera krækluna og leiddi mig út. Þegar við höfðum sest út í bíl spurði ég hvert ætti að fara. „Vestur í sólarlagið," var svarið. Ég hafði verið beðinn að keyra þangað áður, þóttist vita að það væri vestur í Ánanaust. Þeg- ar þangað kom blasti sólin við sem glóandi eldhnöttur, sígandi á ósýnilegum hraða niður í hafið, sem svaf spegilslétt í næturhúm- inu. Konan skrúfaði niður hurð- arrúðuna og horfði dreymandi augnaráði á eldhnöttinn, fór svo að tauta eitthvað. Ég slökkti á vél bílsins til að spara bensínið, lét fara vel um mig og bjó mig undir að fá mér blund. Þá fór ég að heyra orðaskil. Konan tók kók- flösku upp úr ráptuðru sinni, vafalaust með vínblöndu í, og rak tunguna í innihaldið annað slagið. Þá tók hún sígarettur, Lucky Strike, upp úr tuðrunni, kveikti í og spúði reyknum út um gluggann, fór svo að tauta. Þá heyrði ég ættjarðarljóð, gömul og ný, dægurljóð og sálma, ásamt lausavísum og mörgu fleiru. Ég hætti við að sofna og fylgdist með þeim fossi, sem steyptist úr þess- um litla munni frá hafsjó minn- inganna, bæði í bundnu og óbundnu máli. Annað slagið komu ævisögubrot, sennilega hennar sjálfrar, þar sem maður- inn hennar sálaði var nefndur skýrt og tekið fram, að þá hefði þessi spegilslétti hafflötur litið öðru vísi út, en hann fórst í ein- hverju mannskaðaveðri. Blessuð sé minning hans, hugsaði ég. Þá hrukku nokkur tár niður hrukk- óttar kinnar, sem voru strokin af með gömlum kræklóttum fingr- um, síðustu dreggjarnar tottaðar úr flöskunni og henni þeytt út um gluggann. Þessi litli líkami féll máttlaus að sætisbakinu og þung mæðustuna leið frá brjóstinu. Þá voru nær tveir klt. liðnir og sólin að síga hægum skrefum niðrí hafflötinn. Eftir nokkrar sekúndur reis konan upp, brá hönd fýrir augu og virti fyrir sér haf og hauður og sagði: ísland farsælda frón og hagsœlda, hrímhvíta móðir. Hvar er þín fornaldar frœgð frelsið og manndáðin best? Smáþögn og svo: Pá komu feðurnir frœgu og frjálsrœðishetjurnar góðu austan um hyldýpis haf hingað í sœlunnar reit. „Sér er nú hver sælan,“ bætti hún við, kreisti tóman sígarettu- pakkann saman og þeytti honum út um gluggann, síðan var hurðin opnuð og grönnum fótum rennt út á fósturjörðina. Konan gekk nokkur skref fram á fjörukamb- inn, stóð þar og horfði á síðustu geisla vorsólarinnar, sem slógu dimmrauðu bliki á Esjuna. Þá flutti hún hátt og snjallt þessa vísu: Ingólfur Jónsson frá Prestbakka Alein stend ég út við höf ystu við lendinguna. Þér ég sendi í sumargjöf sólskinshendinguna. Þegar hún sneri sér við spegl- uðust sólargeislar í augum henn- ar og tveir litlir sólblettir nálguð- ust bílinn. Svo settist hún inn og bað mig að keyra sig heim. Þegar þangað kom leit hún á gjaldmæl- inn og raðaði þeim peningum, sem mér bar að fá, í sætið, opnaði hurðina, steig út og rétti mér grönnu höndina sína. Ég kvaddi hana með hlýju handtaki. Þá kyssti hún hönd mína og bað guð að fylgja mér. „Sömuleiðis," sagði ég, það var það eina, sem ég þurfti að segja í allri þessari ferð, og hurðin féll að stöfum. Grannur líkami í brúnni kápu, á völtum, berum fótum í brúnum háhæluðum skóm hvarf fyrir hús- hornið. - Svona farþegar, sem enginn vildi keyra, höfðu djúp áhrif á mig, og líða mér aldrei úr minni. -Ég hélt að nýju út í hring- iðu lífsins. Sá, sem þessa sögu segir, er Andrés Valberg, fyrrum bílstjóri á Hreyfli. Og hún birtist í bókinni Heyfilsmenn, sögu Samvinnufé- lagsins Hreyfils frá stofnun þess 1943 til 1988, og er sýnishorn af þeim margvíslegu manngerðum, sem leigubílstjórar kynnast í starfi sínu. Höfundur bókarinnar er Ingólfur Jónsson frá Prests- bakka og gerir hann það ekki endasleppt við bílstjórana því áður hefur hann skráð sögu Vörubílstjórafélagsins Þróttar. Þetta er tveggja binda rit, hartnær 600 bls. með hundruðum mynda. Ingólfur hóf að vinna verkið í ágúst 1987. Með honum störfuðu í ritnefnd Ólafur Magnússon, form. Hreyfils, Birgir Sigurðsson, varaformaður og formaður ritnefndar, Óskar Sigvaldason, sem sá um mynd- efni, og Þorgrímur Kristinsson. Auk þess lögðu drjúgt af mörk- um þeir Einar Magnússon, Ing- var Sigurðsson, Þórður Elíasson, Torfi Jónsson og svo fram- kvæmdastjóri og skrifstofustjóri Hreyfils, þau Einar Geir Þor- steinsson og Stefanía Guðmunds- dóttir. Og miðað við þann stutta tíma, sem söguritunin hefur tekið, er Ijóst, að ekki hefur verið slegið slöku við. Upphaf bílaaldar Full 84 ár eru nú liðin síðan fyrsti bíllinn kom til landsins en það var þann 20. júní 1904. Það var bíll Titlevs Thomsens kaup- manns og styrkti Alþingi kaupin. En Thomsensbíllinn þótti nokk- uð vanburða til átaka við mis- hæðir þessa óslétta lands. Komst hann t.d. ekki hjálparlaust upp Bakarabrekkuna (Bankastræti). Hann var því aðeins notaður hér tvö sumur. Magnús Sigurðsson, bóndi og kaupmaður á Grund í Eyjafirði, flutti inn næsta bílinn. Hann reyndist einnig illa. En þótt svona tækist til í byrjun varð þróunin ekki stöðvuð þótt nokkur bið yrði á komu næstu bílanna. En árið 1913 fluttu Brookers-bræður í Hafnarfirði inn Austin-bíl og árið eftir tvo aðra, sem gárungarnir nefndu Tudda og Belju. Næst komu við sögu Vestur- íslendingarnir Sveinn Oddsson og Jón Sigmundsson, sem kynnst höfðu bílum vestra og höfðu nú heim með sér fyrstu Ford- bifreiðina. Þar með var ísinn brotinn. Og nú er svo komið að talið er að íslendingar eigi hlut- fallslega fleiri bíla en nokkur þjóð önnur. Fjölþætt starfsemi Stofnfundur Hreyfils var hald- inn í Baðstofu iðnaðarmanna 11. nóv. 1943. Rituðu sig þá þegar 50 menn á stofnskrá. Formaður fé- lagsins var kjörinn Bergsteinn Guðjónsson. Ég hefi orðið þess var, að ýmsir halda að leigubílstjórar geri lítið annað en aka bílum sínum. Það er mikill misskilningur. Auðvitað sinna þeir sinni atvinnu af ár- vekni og dugnaði, en lífið er ekki bara saltfiskur fyrir þeim frekar en öðrum. Hreyfilsmenn stofn- uðu t.d. innlánsdeild 1951 og starfar hún enn. Bensínstöð hafa þeir rekið síðan 1944. Þeir hafa komið upp myndarlegu húsi yfir starfsemi sína og eiga þar m.a. sitt félagsheimili. Þeir ráku pöntunarfélag um skeið. Þeir stofnuðu byggingarsamvinnufé- lag, lána- og lífeyrissjóð og þann- ig mætti lengi telja. En Hreyfilsmenn hafa engan veginn takmarkað starfsemi sína við þau mál, sem snerta efna- hagsafkomu félagsmanna. Marg- ir þeirra hafa reynst liðtækir hestamenn. Þeir hafa lagt skóg- ræktarmálum lið, gefið út blað, efnt til fræðslu- og málfunda, skemmtifunda, stofnað söngfé- lög og meira að segja kvenfélag. Á vegum þeirra starfa íþróttafé- lag, briddsfélag og taflfélag, sem tekið hefur þátt í skákmótum bæði hér heima og erlendis. í hópi Hreyfilsmanna hefur jafnan mátt finna skáld og hagyrðinga, leikara, myndlistarmenn, tón- smiði, fræðimenn og ljósmynd- ara, sem kom sér vel við saman- tekt þessara bókar. Frá öllu þessu er skilmerkilega greint í bókinni. Þá er getið þeirra bílstjóra, sem starfað hafa á Hreyfli, birtar myndir af þeim og stutt æviágrip, eftir því sem til hefur náðst. Sömu skil eru starfsmönnum fé- lagsins gerð. Hreyfill hefur frá upphafi verið rekinn sem samvinnufélag. Og þó að nokkrar horfur séu nú áað samvinnuhreyfingin ætli að molna upp í allskonar hlutafélög, þá hafa engar fregnir borist af því að Hreyfill hyggist feta þá slóð. Samvinnuformið hefur gefist fé- laginu vel í 45 ár og naumast ástæða til að ætla að annað reyndist betra. Magnús H. Gíslason „Húmar að kvöldi" á stöðum reykvískra leigubílstjóra.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.