Þjóðviljinn - 10.02.1989, Side 9
Tveir aðstandenda Umba, Halldór
Þorgeirsson og Guðný Halldórsdóttir.
Kvikmyndir
Krístni-
haldið
tilbúið
Frumsýning25. febrúar.
Kostnaður 40 miljónir
Þann 25. febrúar mun Kvik-
myndafélagið Umbi frumsýna
sína þriðju kvikmynd
Kristnihald undir Jökli, eftir
samnefndri skáldsögu Halldórs
Laxness. Guðný Halidórsdóttir
leikstýrir myndinni. Sigurður
Sigurjónsson fer með hlutverk
Umba, Jón Prímus er í höndum
Baldvins Halldórssonar, Margrét
Helga Jóhannsdóttir leikur Uu,
Kristbjörg Kjeld fer með hlut-
verk Hnallþóru, Gestur Einars-
son túlkar hlutverk Helga Lang-
vetnings, og Jódínus Álfberg
skáld og verkamaður er leikinn af
Þórhalli Sigurðssyni.
Að sögn Guðnýjar hefur
peninga- og tímaáætlun staðist,
og er upptakan sjálf vestur á Snæ-
fellsnesi eftirminnilegust. Karl
Júlíusson gerir leikmynd af mikil-
li hugvitssemi og snilld. Honum
tókst á þrem mánuðum að vinna
hálfs árs verk.
Heildarkostnaður myndarinn-
ar er 40 milljónir króna. Kvik-
myndasjóður veitti þessu verk-
efni ekki styrk við síðustu úthlut-
un sjóðsins.en þar sem Ágúst
Guðmundsson skilaði sínum
styrk, 10 milljónum, fékk Umbi
það fé viku áður en upptökur hóf-
ust. eb
Verkfallsréttur
Ekki
mál
dómstóla
Meirihluti aðspurðra er á móti
þvf að dómstólar séu látnir úr-
skurða í deilum um framkvæmd
verkfalla. Þetta kemur m.a. fram
í könnun sem Gallup á Islandi
gerði fyrir Flugleiðir og Vinnu-
veitendasambandið til að kanna
hug almennings til kæru félag-
anna á hendur formanni Verslun-
armannafélags Suðurnesja vegna
verkfallsvörslu félagsins í Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar sl. vor.
Af þúsund aðspurðum sögðust
um 60% þeirra sem tóku afstöðu
vera á móti því að dómstólar
væru látnir skera úr í slíkum
deilumálum en um 40% voru
fylgjandi. Hins vegar fannst 60%
rétt að Flugleiðir fengju skorið úr
því með dómi hverjir mættu
vinna í verkfalli.
Þá var spurt: „Nokkur verka-
lýðsfélög hafa gefið það í skyn að
þau muni versla við erlend flugfé-
lög ef mál þetta verður ekki dreg-
ið til baka. Telur þú þetta rétt eða
rangt?“ Yfir 60% töldu rangt að
versla við erlend félög.
FÖSTUDAGSFRETTIR
Flugsamgöngur
Herflugvelli hafnað
Varaflugvöll á Egilsstaði fyrir íslensktfé. Engar hernaðarframkvœmdir
íAðaldal, ekkertsótt í mannvirkjasjóð Nató
Varaflugvöllur fyrir millilanda-
flug verður á Egilsstöðum og
verður hann miðaður við allt al-
mennt farþegaflug. Kostnaður
vegna þessa verður um 240-250
mi|jónir króna og verður greidd-
ur af landsmönnum sjálfum.
Mannvirkjasjóður Nató kemur
þar hvergi nærri enda ekki á dag-
skrá að leggja herflugvöll uppá
10-15 mijjarða króna uppúr
Skjálfanda og fram eftir Aðaldal.
Steingrímur J. Sigfússon sam-
gönguráðherra skýrði Þjóðvilj-
anum frá því í gær að hagkvæmast
hefði verið að velja Egilsstaði til
þess arna. Það kæmi vel heim og
saman við framkvæmdir sem þar
væru í gangi nú. Flugbrautin yrði
lengd uppí 2.700 metra árin 1992-
1994 en það væri 300 metrum
lengra en öryggisnefnd íslenskra
atvinnuflugmanna teldi fullnægj-
andi.
Samgönguráðherra gat þess að
fyrir lága fjárhæð væri hægt að
auka þjónustu á Akureyrarflug-
velli, bæta við tækjum og búnaði,
svo hann stæðist einnig kröfur
Slökkviliðiö var oft kallað á
jsíhúsum,
Myndin vartekin í Sörlaskjóli þegar slökkviliðsmenn hjálpuöu húsráð-
endum við að dæla vatni upp úr kjallara. Mynd: Jim.
sem gerðar væru til varaflugvallar
fyrir millilandaflug. Því stefndi
hann að því að flugvellir þessara
tveggja bæja, Akureyrar og Eg-
ilsstaða, gegndu þessu hlutverki.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans hefur samgönguráðherra
ákveðið að í framtíðinni verði
aðal tollhafnir, sem gera flugvelli
hæfa fyrir alþjóðlegt flug, í Kefla-
vík, Reykjavík, á ísafirði,
Sauðárkróki, Akureyri, Húsa-
vík, Egilsstöðum, Hornafirði og í
Vestmannaeyjum.
Hins vegar verða ekki unnin
spjöll á rómaðri náttúrufegurð
Áðaldals. Hann er sem kunnugt
er efstur á óskalista Natósinna
undir herflugvöll, gífurlegt
mannvirki sem Sjálfstæðismenn
vilja að lagður verði á kostnað
mannvirkjasjóðs bandalagsins.
Samgönguráðherra segir útí
hött að bera saman áætlanir sínar
um farþegaflugvelli á Egilsstöð-
um og víðar, sem kosti nokkur
hundruð eða jafnvel bara tugi
miljóna, og herflugvalladrauma
Natósinna uppá 10-15 miljarða.
Þetta sé ekkert sambærilegt og
megi einu gilda þótt Natósinnar
dylji ásetning sinn með því að
nefna herflugvöll varaflugvöll.
Allsnörp orðaskipti urðu um
þennan grundvallarágreining á
alþingi í gær. Einn helsti málsVari
Sjálfstæðisflokksins, Halldór
Blöndal, jós úr skálum reiði sinn-
ar yfir samgönguráðherra fyrir að
hafna Aðaldal og sniðganga Nató
enda þyldi Alþýðubandalagið
ekki „hemaðarbandalag lýð-
frjálsa ríkja“.
Svavar Gestsson sagði ljóst að
Sjálfstæðisflokkurinn hefði ein-
sett sér að troða herflugvelli uppá
þjóðina, hvað sem hver segði,
miljarða framkvæmd sem kostuð
væri af Nató og Bandaríkja-
mönnum. Þetta myndi honum
hinsvegar ekki takast því fslend-
ingar hefðu þá reisn til að bera að
leggja sína eigin flugvelli fyrir
millilandaflug með farþega og
vörur.
ks.
Alþýðusambandið
Vill alvöru-
viðræður
Skipulag samningamála afgreitt áformannafundi
ílok mánaðarins. Ari Skúlason: Tímabœrt að
stjórnvöldfari að rœða alvörumál við okkur
Miðstjórn Alþýðusambands-
ins hefur ákveðið að boða til
formannafundar aðildarfélaga
sambandsins þann 27. febrúar
n.k. þar sem ætlunin er að móta
endanlega stefnuna í komandi
kj arasamningum.
■ Miðstjórnin hefur lýst yfir
þeim vilja sínum að aðildarfélög
og sambönd ASÍ standi saman að
gerð skammtímasamnings vegna
óstöðugleika í efnahagsmálum.
Engin skýr viðbrögð hafa enn
komið frá samböndunum en að
sögn Ara Skúlasonar hagfræð-
ings ASÍ er reiknað með að for-
ystumenn sambandsins verði
búnir að móta ákveðnar tillögur
um fyrirkomulag og áherslur í
komandi samningaviðræðum
sem hægt verði að leggja fyrir for-
mannafundinn.
Á fundi miðstjórnarinnar í vik-
unni lýsti hún yfir furðu sinni á
síendurteknum yfirlýsingum ráð-
herra um nauðsyn varanlegrar
kaupmáttarskerðingar frá því
samningar voru síðast gerðir.
Mótmælti miðstjórnin harðlega
þessum yfirlýsingum. Hún telur
hins vegar að samstarf við ríkis-
stjórnina sé nauðsynlegt en að
það verði að grundvallast á þeim
markmiðum að ná auknum kaup-
mætti og fullri atvinnu.
- Það er ákveðinn vilji hjá okk-
ur að ræða við stjórnvöld en þau
virðast einvörðungu hafa áhuga á
að ræða við okkur um verðgæslu
vegna þess að við framkvæmum
hana fyrir stjórnvöld að miklu
leyti. Áð öðru leyti hefur ekkert
heyrst frá stjómvöldum þrátt
fyrir ákvæði í málefnasamningi
um gott samstarf og viðræður við
verkalýðshreyfinguna. Það er
auðvitað orðið tímabært að ein-
hverjar alvöruviðræður fari í
gang því við höfum ýmislegt
skynsamlegt til málanna að
leggja, segir Ari Skúlason.
Forsœtisráðherra
Opinn fund með Greenpeace
Forsœtisráðherra býður Greenpeace til íslands. Sjávarútvegsráðherra
viðurkennir að skoðanir um hvalveiðistefnuna séu skiptar í ríkis-
stjórninni
Steingrímur Hermannsson lýsti
því yfir á fundi á Hótel Borg í
gær að hann óskaði þess að hér-
lendis yrði efnt til opins fundar
með Greenpeace-samtökunum
um hvalveiðar og hefði hann sent
þeim heimboð. Hann kvaðst hafa
átt fund með fulltrúum samtak-
anna í Hamborg fyrir nokkru og
verið sammála þeim um 95 af
hundraði þess sem þar bar á
góma. Eða þangað til talið barst
að fjölda hvala í norðurhöfum.
Forsætisráðherra staðfesti í
samtali við Þjóðviljann í gær að
hvalveiðistefna væri í deiglunni.
Sjávarútvegsráðherra hefði
kynnt sín sjónarmið á rikis-
stjórnarfundi á þriðjudaginn en
vildi ekki upplýsa hver þau hefðu
verið. Vissulega yrði að hafa
hraðar hendur í þessu máli en
frumkvæðið væri sjávarútvegs-
ráðherra og menn biðu tillagna
hans.
Sjávarútvegsráðherra viður-
kenndi í gær að sitt sýndist hverj-
um um hvalveiðar í vísindaskyni
innan ríkisstjórnar Steingríms
Hermannssonar. Þar hefði málið
ekki komist á dagskrá fyrr en nú
nýverið og væri til umræðu. Og
vegna þess að ríkisstjórnin hefði
ekki um það fjallað hefði hann
fylgt óbreyttri stefnu frá því í tíð
fyrri stjómar. ks.
ABR
Vill ræða
við Alþýðu-
flokkinn
Á fundi stjórnar Alþýðubanda-
lagsfélags Reykjavíkur í gær var
ekki tekin endanleg ákvörðun um
sameiginlegan fund félagsins og
Frjálslyndra jafnaðarmanna.
Þegar þessi sameiginlegi fund-
ur var ræddur í stjóm félagsins
fyrir um mánuði lýsti stjómin því
yfir að hún vildi slíkan fund með
Alþýðuflokksfélagi Reykjavík-
ur.
Stjómin ítrekaði í gær þennan
vilja sinn.
Föstudagur 10. febrúar 1981 NÝTT HELGARBLAÐ - SlÐA 9