Þjóðviljinn - 10.02.1989, Qupperneq 11
FLÖSKUSKEYTI
Öskufjör
í Blá-
fjöllum
Á öskudaginn fór hið árlega
skíðamót grunnskólanna fram í
Bláfjöllum. Svo vel vildi til að
þessu sinni að fært var í Bláfjöllin
þann dag, en skíðamönnum til
mikillar hrellingar hefur verið
lítið hægt að stunda skíði þar að
undanförnu vegna veðurs. Þrátt
fyrir að það gengi á með dimmum
éljum á öskudaginn var ekki ann-
að að sjá en að keppendur og aðr-
ir skíðaáhugamenn nytu útiver-
unnar og fjölmenntu
grunnskólane.mendur, enda gefið
frí í skólum þennan dag.
Á öskudag er upphaf föstu en
fríið í skólum mun tilkomið
vegna þess að í eina tíð keyrðu
ólæti yfirleitt úr hófi í skólum
landsins á öskudaginn. Þeir
krakkar sem mættu í Bláfjöll
voru hinsvegar ekki með læti þótt
fjörug væru. Þorfinnur Ómars-
son, ljósmyndari blaðsins,
skrapp uppeftir og smellti af þess-
um myndum.
-sg
Kolbeinn Pálsson formaður Blá-
fjallanefndar af hendir hér verð-
laun í skíðakeppni grunnskóla-
nema. MyndirÞóm
Krakkarnir voru fegnir fríinu sem veitt var í grunnskólum landsins og fjölmenntu eldhress í Bláfjöll
Kvikmyndaklúbbi hleypt af stokkunum
Kvikmyndaklúbbur íslands
var formlega stofnaður í gær. Það
er Kvikmyndasafn íslands sem
stuðlað hefur að framgangi þessa
máls. Markmið klúbbsins er að
stuðla að auknu framboði úrvals-
mynda sem ella kæmu ekki fyrir
sjónir almennings sökum ein-
hæfni kvikmyndavals hérlendis.
Ný kynslóð er að vaxa úr grasi
sem hefur fullan rétt á því að fá
innsýn í annan veruleika en þann
engilsaxneska.
Undirbúningsnefndina að
stofnun klúbbsins skipa fulltrúar
frá Kvikmyndasafni íslands, Fé-
lagi kvikmyndagerðarmanna,
Kvikmyndasamtökunum Grími,
Félagi kvikmyndaáhugamanna
við Háskóla íslands og Listafélag
MR.
Klúbburinn hefur gefið út
Dagskárbækling þar sem kynntar
eru kvikmyndir fyrsta tímabils-
ins. Allar myndir verða sýndar í
Regnboganum.
Fyrirhugað er að sýningar hefj-
ist 18. febrúar með sýningu „Vett-
vangs glæps“, á frummálinu Le
Lieu du Crime, í leikstjórn And-
ré Techine. Þessi mynd verður
síðan endursýnd 19. febrúar. Sýn-
ingar eru kl.15.00.
23. febrúar kl.21.00 og 23.00
verður síðan sýnd myndin „Bý-
flugnakóngurinn“, O Melissok-
omos í leikstjórn Theo Angelop-
oulos.
Hver mynd verur sýnd tvisvar
til þrisvar sinnum, og ætti þetta
að vera kærkomið tækifæri til
þess að sjá klassískar kvikmyndir
sem gersamlega hafa horfið úr ís-
lenskum kvikmyndahúsum síðan
Fjalakötturinn var og hét. Kvik-
myndasjóður íslands mun
tryggja fjárhag klúbbsins.
Félagsskírteini verða seld til
hálfs árs í senn á kr. 1000.-, en í
byrjun hefur verið ákveðið að
bjóða upp á ákveðna kynningar-
áskrift sem gildir frá 18. febrúar til
3. apríl.
Meðal annarra þekktra mynda
sem sýndar verða er sjálf Rosa
Luxemburg í leikstjórn Margar-
ete von Trotta.
eb
Gulls ígildi
Það er ekki bara þögnin sem er
gullsígildi, málæðiðfærirsumum
gull í mund. Svo er að minnsta
kosti um leikarann góðkunna
Ronald Reagan. Hann mun nú
vera dýrasti fyrirlesari Bandaríkj-
anna, aðeins kollegi hans Bob
Hope tekur jafn mikið fyrir ræðu-
höld. Taxtinn hjá þeim félögum er
um þrjár miljónir króna fyrir fyrir-
lesturinn.
Frjósöm glös
Það er ekki bara á íslandi sem
glasafjórburar fæðast því nýverið
fæddustfjórburarásjúkrahúsi í
Sydney í Ástralíu. Sama dag
fæddust einnig fimmburar á
sama sjúkrahúsinu og í báðum
tilfellunum var um glasabörn að
ræða. Börnin eru öll við hesta-
heilsu en yfirlækni sjúkrahúss-
ins, John Yovich, varð nóg um
þessafrjósemiglasanna, þannig
að hann hyggstdraga úrglasa-
frjóvgun á sjúkrahúsinu.
Skemmtikóngurinn
Bandaríski jasstrompet-
leikarinn Dizzy Gillespie hefur
fengið afrískan höfðingjatitil, auk
þess sem hann var útnefndur
Konungurskemmtikraftanna, af
54 höfðingjum í Nígeríu. Athöfnin
átti sér stað í litlu þorpi og við það
tækifæri sagði Gillespie að þessi
útnefning væri honum þýðing-
armeiri en þótt hann hefði verið
útnefndur konungur af Englandi.
Magaverkur,
hausverkur og
útbrot
af plastmálningu
Það þótti mikil framför þegar
plastmálningin svokallaða kom á
markaðinn, einkum vegna allra
aukaverkana sem málarar urðu
fyrir af lakkinu, en terpentínan
sem blandað er í það er talin geta
skaðað heilastarfsemina. Nú
hefur hinsvegar komið í Ijós að
plastmálningin, sem er þynnt út
með vatni, hefurýmsaróæski-
legar aukaverkanir í för með sér.
Stéttarfélag málara í Árósum í
Danmörku hefurrannsakað
aukaverkanir af plastmálningu
og niðurstaðan ersú að
plastmálningin sé eitruð. Málar-
arnir eiga á hættu magaverki,
höfuðverk, útbrot á húðinni og
skerðingu bragðskyns.
í Ijós kom að fjöldi málara kvart-
aði undan plastmálningunni
vegna þessara aukaverkana.
Eftir því sem gljái málningarinnar
var meiri því meiri hætta var á
aukaverkunum.
lnformation/-Sáf
Sovét í fótspor
Thatcher
Sovétríkin hafa uppgötvað
mátt auglýsinganna og réttrar
markaðsfærslu. Sovéska ríkisút-
varpið, Gostelradio, hefur leitað
til breska markaðsráðgjafarfyrir-
tækisins Saatchi & Saatchi og
beðið það að sjá um markaðs-
ráðgjöf og auglýsingamál Gost-
elradios á heimsmarkaðinum.
Saatchi & Saatchi er eitt þekkt-
asta fyrirtæki veraldarinnar í
þessari grein og sér m.a. um að
markaðsfæra Margaret Thatcher
forsætisráðherra Bretlands og
einnig Poul Schluter, kollega
járnfrúarinnar í Danmörku.
Gostelradio sjónvarpar þegar
nokkrum þáttun*. þar sem vest-
ræn stórfyrirtæki auglýsa, þeirra
á meðal Pepsi, British Airways,
Omega, Sumitomo og Benetton.
Ætlunin er að auka við
auglýsingaefni sjónvarpsins og
er Saatchi & Saatchi ætlað að
útvega auglýsendur.
Föstudagur 10. febrúar 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 11