Þjóðviljinn - 10.02.1989, Page 12
Frá
Kennaraháskóla
íslands
B.A.-nám í
sérkennslufræðum
Kennaraháskóli íslands býöur upp á eftirfarandi
nám í sérkennslufræðum sem hefst aö hausti
1989:
B.A.-NÁM í SÉRKENNSLUFRÆÐUM,
FYRRI HLUTI.
Þetta er hlutanám með starfi og tekur tvö ár.
B.A.-NÁM í SÉRKENNSLUFRÆÐUM,
SÍÐARI HLUTI.
Þetta er fullt nám og tekur eitt ár.
Umsóknarfrestur er til 1. mars 1989.
Frekari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í
Kennaraháskóla íslands.
REKTOR
Q)
Mh,
KENNARA
HÁSKÓLl
"ÍSLANDS
Hjúkrunarfræðingar
Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga í heilsu-
gæslustöðvum eru lausartil umsóknar nú þegar:
1. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslu-
stöðina á Djúpavogi.
2. Staða hjúkrunarforstjóra og hálf staða hjúkr-
unarfræðings við Heilsugæslustöðina í Ólafs-
vík.
3. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslu-
stöðina í Hólmavík.
4. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslu-
stöðina á Þórshöfn.
5. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslu-
stöðina í Neskaupstað.
6. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslu-
stöðina á Egilsstöðum.
7. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslu-
stöðvarnar á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði.
8. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslu-
stöðina á ísafirði.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri
störf við hjúkrun sendist heilbrigðis- og trygging-
amálaráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykja-
vík.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
6. febrúar 1989
Lögtök
Eftir kröfu gjaldheimtustjórans í Reykjavík og að
undangengnum úrskurði verða lögtök látin fram
fara án frekari fyrirvara á kostnað gjaldenda, en
ábyrgð Gjaldheimtunnar, að átta dögum liðnum
frá birtingu auglýsingar þessarar, fyrir eftirtöldum
gjöldum:
Vanskilafé, álagi og sektum skv. 29. gr. laga nr.
45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr.
14. gr. laga nr. 90/1987 fyrir 1.-12. greiðslutíma-
bil 1988 með eindögum 15. hvers mánaðar frá
febrúar 1988 til janúar 1989.
Reykjavík 7. febrúar 1989
Borgarfógetaembættið t Reykjavík
Nýtt símanúmer
iðnaðarráðuneytisins
verður frá og með mánudeginum 13. febrúar
609420
Iðnaðarráðuneytið
ÍÞRÓTTIR
ÞORFINNUR
ÓMARSSON
Birgir og Hrafn
fylltu hópinn
Birgir Sigurðsson og Hrafn Margeirsson inni en Guðjón
Arnason úti. Verður sigurganga Framara rofin?
r
Islenska handknattleikslands-
liðið ætti nú að vera tilbúið í
hinn mikilvæga slag sem B-
heimsmeistarakeppnin er. Liðið
heldur utan eftir helgina og hefst
keppnin síðan í Frakklandi
næstkomandi fímmtudag. Hins
vegar eru ekki allir sammála því
að allt sé eins og best sé kosið hjá
þessu leikreyndasta landsliði
heims en nú er það hlutverk
„strákanna“ að sýna fram á hið
gagnstæða.
Birgir í hópnum
Endanlegur hópur landsliðsins
lá ekki fyrir fyrr en seint í gær eri
hann kemur eflaust fáum á óvart.
Það setti talsvert strik í reikning-
inn að Páll Ólafsson varð að
hætta við förini vegna meiðsla og
losnaði því um eitt sæti. Það kom
í hlut línumannsins snjalla, Birgis
Sigurðssonar, að fylla þetta skarð
en Birgir hefur verið í allra frem-
stu röð línumanna í nokkur ár.
Landsliðshópurinn er því
þannig skipaður að markverðir
verða Einar Þorvarðarson, Guð-
mundur Hrafnkelsson og Hrafn
Margeirsson, línumenn þeir
Þorgils Óttar Mathiesen, Geir
Sveinsson og Birgir Sigurðsson
og homamenn þeir Guðmundur
Guðmundsson, Jakob Sigurðs-
son, Bjarki Sigurðsson og Vald-
imar Grímsson. Vinstrihandar-
skyttur eru þeir Kristján Arason
og Sigurður Sveinsson en hægri-
handarskyttur þeir Alfreð Gísla-
son, Héðinn Gilsson og Júlíus
Jónasson og síðan er Sigurður
Gunnarsson eini leikstjómand-
inn á miðjunni.
Það kemur alls ekki á óvart að
Bogdan Kowalczyck skuli láta
einn leikstjómanda nægja því
hann hefur verið að reyna aðra
leikmenn í þeirri stöðu að undan-
fömu. Bæði Alfreð Gíslason og
Kristján Arason hafa leikið tal-
svert á miðjunni og hefur það
reynst ágætlega, sérstaklega náði
Kristján sér á strik í þeirri stöðu
en óvenjulegt er að sjá örvhent-
ann leikmann á miðjunni. Guðj-
ón Árnason úr FH verður því að
bíða betri tíma með landsliðinu.
Val á markvörðum er rétt eins
og ég minntist á í síðasta pistli,
þe. að Einar er sjálfkjörinn og
hinir tveir eru þeir leikreyndustu
í undirbúningshópnum.
Enda þótt rétt rúmlega fjórir
mánuðir eru síðan Ólympíuleik-
unum lauk hafa fjórir leikmenn
dottið út úr liðinu. Karl Þráins-
son hefur ekkert verið með liðinu
að undanförnu en Valdimar
Grímsson tekur hans sæti. Hrafn
Margeirsson kemur í stað Brynj-
ars Kvarans, og þeir Júlíus Jónas-
son og Héðinn Gilsson koma í
stað Atla Hilmarssonar og Páls;
Ólafssonar. Þá bætist Birgir einn-
ig í hópinn og verður hann 16
manna en ekki 15.
Verðlaunasæti
raunhæft
Það á að vera alveg ljóst að
íslenska landsliðið hefur alla
burði til að ná langt í B-
keppninni. Sex lið af sextán kom-
ast í A-grúppu sem ætti að vera
algjört lágmarks takmark en
auðvitað eiga menn að stefna enn
ofar, annars gæti sjötta sætið tap-
ast einnig. fslenska landsliðið
stefndi að sjötta sæti á Ólympíu-
leikum og því er verðlaunasæti í
B-keppni ekki óraunhæft.
Annars hafa margir haft það í
flimtingum að það hafi verið
heppni að falla niður í B-grúppu
og aðallega tíndar tvær ástæður
til. í fyrsta lagi er mun auðveld-
ara að vinna sig upp úr B-gúppu
eftir Ólympíuleika því fleiri lið
komast þá upp. Að auki benti
Bogdan á það fyrir skömmu að ef
landsliðið væri ekki í undirbún-
ingi fyrir títtnefnda B-keppni
væri hætta á að liðið tæki sig ekki
nógu alvarlega og niðursveifla
myndaðist í kjölfarið. Ja, fátt er
svo með öllu illt...
Vinnur Fram enn einn titi-
linn?
íslandsmótinu í innanhússk-
nattspyrnu lýkur um helgina með
keppni í 1. deild karla. Leikið
verður í fjórum riðlum en fjögur
lið berjast um tvö efstu sætin í
hverjum riðli. Riðlaskipan er
þannig að KR, Grótta, KA og ÍK
leika í A-riðli, Víkingur, ÍA,
Haukar og Selfoss í B-riðli,
Fram, KS, ÍBK og Grindavík í
C-riðli og Fylkir, Víðir, Þróttur
R. og HSÞ b leika í D-riðli.
Keppni í A- og B-riðli hefst kl.
9 á sunnudagsmorgni og stendur
til kl. 13.30 en þá hefst keppni í
hinum tveimur. Um kl. 18.00 ætti
riðlakeppninna að vera lokið og
hefjast úrslitin 12 mínútum síðar.
Undanúrslitaleikir eru áætlaðir
kl. 19.44 og 20.07 en sjálfur úrsl-
italeikurinn hefst kl. 20.50.
Keppni í innanhússknatts-
pyrnu hefur verið með talsvert
breyttu sniði í vetur þar sem
mörkin hafa verið stækkuð og
markverði bætt í liðskipan lið-
anna. Þá eru svokallaðir „battar“
úr sögunni þannig að innanhúss-
boltinn líkist því útiboltanum
meira en áður.
Erfitt er að geta sér til um
hvaða lið komi til með að leika til
úrslita í mótinu þar sem geta lið-
anna er mjög ólík því sem við
eigum að venjast utanhúss. Valur
er tam. í 2. deild endaþótt liðið sé
í fremstu röð utanhúss og einnig
er atyglisvert að 4. deildarlið
HSÞ b utanhúss leikur í 1. deild
innandyra.
Það verður þó ekki hjá því
komist að spá Frömurum vel-
gengni á mótinu á sunnudag því
þeir virðast jafnvígir utanhúss
sem innan. Þeim hefur einnig
tekist vel að tileinka sér nýja
fyrirkomulagið og unnu þeir
Reykjavíkurmótið fyrr í vetur,
auk þess sem þeir báru sigur úr
býtum í nýafstöðnu innanhús-
smóti íþróttafréttamanna.
Auk Framara munu lið ÍA og
KR eflaust ná langt en annars
virðast flest öll liðanna eiga
möguleika á komast amk. í und-
anúrslit. Altént er von á
sannkallaðri veislu fyrir knatts-
pymuunnendur allan
næstkomandi sunnudag.
12 SÍÐA — NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 10. febrúar 1989