Þjóðviljinn - 10.02.1989, Side 22
-c
d
+ 0» -í f-ff? j on»3
: : t L '1 . uototA
'JWíp iiiSh - - jf ounjdos
LSto Otli^I
uowwph '41.
oisrao i
ci v;
H
VIHDVIMOHDÁSd
Fyrsta síðan í nótnaútgáfunni af Psychomachiu, sem gefin var út í
Stokkhólmi á síðasta ári.
Tóraverkið
Framhald af 21
af sama tilefni héðan frá fslandi,
og verður hitt verkið, Ljóð námu
land eftir KaróJínu Eiríksdóttur,
flutt á sömu tónleikum í Lista-
safni Sigurjóns Ólafssonar nú á
laugardag kl. 17.
Textinn, sem verk mitt er sam-
ið við, hafði vakið áhuga minn
fyrir löngu, þótt tækifæri hefði
ekki unnist til að semja við hann
tónlist. En þegar þessi pöntun
barst fyrir dramatískan sópran og
selló, þá fannst mér það passa
fullkomlega við þessa samsetn-
ingu. Psychomachia merkir
eiginlega „baráttan um manns-
sálina“, og er ljóðið fullt af dram-
atískum tilþrifum, þar sem bar-
áttan stendur á milli góðra og illra
afla, sem eru persónugerð í líki
gyðja og ára. Inn á milli drama-
tískra bardagaatriða koma síðan í
textanum yfirvegaðar hugleið-
ingar skáldsins, sem gefa tilefni
til kaflaskila í tónlistinni. Þegar
ég fór að vinna frekar að verkinu
sá ég að í raun voru tveir flytjend-
ur allt of iítið til þess að koma efni
þessa stórbrotna texta til skila.
Aðeins lítill hluti ljóðsins er not-
aður, og eftir að ég hafði lokið við
verkið fann ég skýrt að ég þyrfti
að vinna áfram með þennan texta
og semja við hann viðameira
verk. Leitaði tónlistarformið óp-
era meir og meir á hugann þegar
ég fór að velta þessu fyrir mér. Er
ekki ósennilegt að stærri útgáfa
Psychomachiu í því formi eigi
eftir að sjá dagsins ljós síðar meir
þegar tími vinnst til eða ef ég
skyldi verða svo lánsamur að fá
óperupöntun.
Er tónlistin sem þú semur lýs-
andi eða óhlutlœg? Ertu að lýsa
ákveðnum atburðum eða fyrir-
bœrum eða er um hreina abstrakt-
sjón að ræða?
Hún getur verið hvorttveggja í
senn, í einu og sama verkinu má
bæði finna hreina fræðilega og
abstrakt hluti og hluti sem
sprottnir eru af innsæi. Psychom-
achia er þó dæmi um tónverk sem
byggist mest á innsæi. Reyndar
má segja að það eigi líka við um
raftónverkið Chantouria, það er
fyrst og fremst innsæistónlist. En
ef litið er yfir verkalista minn f
heild má sjá dæmi um hvort
tveggja. Pað fer ekkert eftir
tækninni, því hefðbundin hljóð-
færatónlist getur verið strang-
fræðileg og raftónlistin getur ver-
ið full af innsæi.
Hvernig eru möguleikar á að
koma nútímatónlist á framfœri
hér á landi?
Ég held að íslendingar séu
nokkuð opnir fyrir nýrri tónlist
miðað við margar aðrar þjóðir,
þótt ég verði jafnframt að taka
undir þau orð Hjálmars Ragnars-
sonar, að almennt megi segja að
við séum ótrúlega hrædd við að
tileinka okkur nýjungar í listum,
ekki síst tónlist. En sá fjöldi sem
sótt hefur tónleika með nútíma-
tónlist hér á landi er í rauninni
ótrúlega mikill, og má af því ráða
að skilningur þjóðarinnar sé á
hærra plani en skilningur yfir-
valda hvað þessa nýju list varðar
ef tekið er mið af aðbúnaði ís-
lenskra tónlistarmanna. Ýmis
teikn eru þó á lofti um úrbætur í
þeim efnum, og vona ég að úr
rætist.
Hér á landi er nú aðeins eitt
tónskáld sem hefur farið út á þá
hálu en virðingarverðu braut að
stunda tómsmíðar eingöngu, en
það er Áskell Másson. Aðrir hafa
þetta í hjáverkum með kennslu
og öðrum störfum. Starfslaun til
tónskálda eins og tíðkast meðal
flestra þjóða eru hér afar fátíð, og
sama má segja um launaðar pant-
anir á verkum, sem oft eru eitt
helsta lifibrauð tónskálda.
Mér finnst oft að það megi líkja
þessu við hverja aðra fjárfest-
ingu: Vill þjóðin eiga möguleika
á því eins og aðrar þjóðir að
eignast sinn Grieg eða Mozart
eða Beethoven? Ef hún vill, þá
getur hún það, því þetta er fyrst
og fremst spurning um fjárfest-
ingu. Pað þarf ekki að hugsa
mjög langt til þess að skilja að slík
fjárfesting getur verið skyn-
samleg. Við þurfum ekki annað
en að sjá þann beina hagnað sem
þjóðir eins og Finnar, Norðmenn
og Hollendingar hafa haft af því
að eiga menn á borð við Sibelius,
Grieg og Rembrandt.
Fyrstu tónleikarnir á Myrkum
músíkdögum verða í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar á laugardag
kl. 17. Par munu þær Signý Sæ-
mundsdóttir og Inga Rós Ingólfs-
dóttir flytja Psychomachia eftir
Þorstein Hauksson. Einnig verða
flutt söngverk eftir Karólínu
Eiríksdóttur, Vladimir Agopov
og Önnu Jastrzebska. Chantour-
ia og fleiri raftónverk verða síðan
fluttíNorrænahúsinu 15. febrúar
kl. 20.30.
-ólg
Á vit
goðsög-
unnar
Halldór Ásgeirsson
Kjarvalsstaðir 28. jan.-12. febrúar.
Táknmyndir Halldórs Ásgeirs-
sonar, sem nú eru til sýnis á Kjar-
valsstöðum, færa okkur á vit
goðsögunnar. Goðsagan felur í
sér viðleitni mannsins til þess að
upphefja ýmsar þverstæður
mannlegrar tilveru, skapa heila
heimsmynd úr brotakenndri
reynslu hversdagsins. Goðsagan
upphefur andstæður efnis og
anda, fortíðar og framtíðar, lífs
og dauða og opnar okkur nýjan
veruleika handan hins sýnilega,
þar sem maðurinn hefur fundið
sína glötuðu Paradís og yfirunnið
útskúfunina sem birtist í þver-
stæðum mannlegrar tilveru. Slíka
viðleitni til þess að endurheimta
glataða Paradís sé ég í myndum
Halldórs, þar sem hann dregur
ýmsar táknmyndir úr undirvitund
sinni og raðar þeim upp í form-
rænu samhengi. Aðferð hans
minnir dálítið á spánska málar-
ann Juan Miró, þótt yfirbragð
myndanna sé allt annað. Mynd-
málið hefur fengið djúpa per-
sónulega merkingu fyrir lista-
manninum, og það verður hon-
ÓLAFUR GfSLASON
um ástríða að færa hana yfir á
umhverfi sitt. Táknmyndirnar
birtast okkur því ekki bara á
hefðbundnu lérefti málverksins,
heldur færir hann þær yfir á trjá-
búta, glerbrot og skúlptúra þann-
ig að þær verða að lokum eins og
stimpill: ég var hér, þetta er hluti
af minni goðsögulegu heims-
mynd. Hlutdeild okkar í þessari
heimsmynd, þessari persónulegu
goðsögn, er fyrst og fremst fag-
urfræðileg. Við getum skynjað
formlegt samræmi og fegurð í
þessum myndum, við getum
jafnvel fundið í þeim frásögn, en
dýpri merking táknanna er okkur
hulin. Pað eru því formrænir
eiginleikar málverkanna, sem
fyrst og fremst höfða til okkar.
Par hefur vinna verið lögð í að
Dægurmúsík
og menning
Meginstefna nútímans er að fá
sem mest á sem skemmstum tíma
með sem minnstri fyrirhöfn; þeg-
ar allir vilja allt og halda, að þeir
geti fengið það, já, og hefðu
meira að segja rétt til þess: hjóna-
band og frelsi, kynmök án
krakka, bylting án fátæktar, vel-
gengni án eigingirni, list án á-
reynslu, þekking án minnislær-
dóms; nefnilega máltíð án þess að
vaska upp.
Menning hefir löngum verið
óþekkt hugtak í íslenzku, saman-
ber frásögn Steins Steinarrs:
menning sem rímorð við þrenn-
ing. Sigurður Nordal gat ekki
samið nema eitt bindi um ís-
lenzka menningu. Með bók-
menntalýsingu sinni þar var ís-
lenzk menning þurrausin. Meira
var ekki til, engin önnur grein
menningar svo sem myndlist,
músík eða arkítektúr.
Nú eru listir sem óforgengi-
legar greinar menningar staðfest-
ar með eða í varanlegu efni. Bók-
menntir eru skráðar, skúlptúr
högginn í stein, músík nóturituð,
myndlist dregin á líndúk eða
pappír, arkítektúr formaður í
blífanlegu harðefni. Dægur-
músík sem götuvísur og dans-
músík hefir ætíð verið til. Því að-
eins þekkum við hana nú eftir
margar aldir, að hún hefir verið
skráð sem nótnaritun.
Dægur-músík nútímans er yfir-
leitt aðeins til í upptökum á
plötum eða böndum. Sú tíð er
liðin, að maður geti keypt prent-
að vinsælt dægurlag og spilað það
heima hjá sér, svo sem gert var,
er ég spiíaði með félögum mínum
dans-músík í Iðnó og Bárunni.
Mörg þeirra laga voru við-
kunnanleg músík; en hver þekkir
í dag Fifty thousand Frenchmen
can’t be wrong, We have no ban-
anas to-day eða Bimbambullah,
enda þótt þau hafi þá verið fáan-
leg bæði nótuprentuð og á
plötum? Þessi nothæfu lög voru
hvorki talin til listar né menning-
ar. Þau voru bara vinsæl dans-
músík og gerðu sitt gagn.
Nú á dögum verður massa-
kúltúr eða kúltúr-iðnaður æ út-
breiddari. Nú að að þvinga fram
sameiningu æðri og lægri Iífstján-
inga, báðum til vanza, en þær
hafa öldum saman verið aðskilin
svið. Menningin mótmælti jafnan
of harðýðgislegum kjörum og var
þannig heiðurstákn mannsins.
En ef menningin samsamar sjálfa
sig forherðingarinnar lífi, gerir
hún manninn ómyndugan.
Skilyrðislaus krafa eða kateg-
órískur imperatív í siðfræði Kants
á ekkert framar skylt við frelsi.
Hún verður að: Þú átt að láta þér
vel líka, án þess að hvaðl sé upp-
gefið. Þannig er endanlegt tak-
mark kúltúr-iðnaðar and-
upplýsing, sem við sívaxandi
náttúruyfírráð verður að fjölda-
svikum, massa-blekkingu, að
meðali til þess að fjötra vitund-
ina. Hann kemur í veg fyrir, að
upp vaxi einstaklingar, óháðir,
sjálfstæðir, sem dæma og
ákvarða upp á eigin ábyrgð. En
þetta eru skilyrði fyrir lýðræðis-
legu samfélagi, sem því aðeins
fær staðizt og þroskazt, að þegn-
arnir séu myndugir.
Mannlegur kúltúr verður til
fyrir göfgun dýrslegra hvata, fyrir
blygðunartilfinningu, fyrir
ímyndunarafl, fyrir skilning.
Hinzta innihald og huggun sér-
hverrar listar er, að hún geri lífíð
þess virði, að því sé lifað. Til er
engin göfug músík, sem ekki get-
ur annarsvegar verkað á okkur
22 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 10. febrúar 1989