Þjóðviljinn - 10.02.1989, Qupperneq 27
KYNLÍF
JÓNA INGIBJÖRG JÓNSDÓniR
Ást og adrenalín
Blanda sem segir sex!
ímyndaðu þér að hjartað þitt
slái ört og að þú sért sveittur á
lófunum. Hvaða tilfínningar ertu
að upplifa) Ást? Reiði?
Hræðslu? Álag? Feimni? Kyn-
ferðislega örvun? Pað gæti verið
hvaða tilfinning sem er því allar
geta valdið svipuðu líkamlegu
ástandi. Samkvæmt sálfræðingn-
um Stanley Schacter (1964) er til-
finning ástand líkamlegrar örv-
unar plús það að stimpla huglægt
líkamlegu upplifunina sem á -
kveðna tilfinningu. Ellen Bersc-
heid og Elaine Walster (1974) út-
færðu kenningu Schacters til að
útskýra hvað gerist þegar ástin
hrífur mann. Að vera ástfanginn
gerist þegar tvær ákveðnar for-
sendur eru til staðar: í fyrsta lagi
hefur líkami þinn örvast með ein-
hverjum hætti og í öðru lagi eru
umhverfis aðstæðurnar þannig að
þú setur merkimiðann „ást“ á
það sem þú ert að upplifa líkam-
lega.
En ef maður er orðinn líkam-
lega örvaður til dæmis með
skokki, er hætta á að mistúlka þá
örvun sem ást eða kynferðislega
aðlöðun ef aðstæður leyfa. Segj-
um sem svo að þú farir út að
skokka einn morguninn og rekist
á einstakling af hinu kyninu. Þú
hugsar sem svo (rennsveittur og
hjartslátturinn á fullu): „Pessi er
bara nokkuð myndarleg". Næsta
dag ferðu ekki að skokka en labb-
ar í rólegheitum sömu leið og
rekst þá aftur á sömu konuna en
tekur þá varla eftir henni. Þarna
mistúlkaðir þú örvunina - við
fyrstu aðstæður varstu hrifin
vegna þess að þú varst að skokka
en ekki vegna þess að hún var
svona sæt.
Rannsóknir hafa ekki bara
sýnt að íþróttir geti „aukið“ kyn-
ferðislegan áhuga eða ást vegna
mistúlkunaráhrifanna heldur líka
aðstæður sem gera mann hrædd-
an. Þarna kemur þá kannski ein
skýringin á því hvers vegna sumar
konur segjast elska enn mennina
sína þó þeir berji þær einsog
harðfisk. Önnur útgáfa af slíkum
heimaíþróttum er velþekkt fyrir-
bæri í heimi kynlífsráðgjafa og
meðferðaraðila kynlífsvanda-
mála. Á útlensku nefnist fyrir-
bærið „Fight and Fuck“ synd-
rómið. Þá þarf parið alltaf að ríf-
ast, helst ærlega, áður en þau
hafa samfarir vegna þess að
þannig ná þau að örva sig líkam-
lega.
Markaöstorg
ástarinnar
Ef við göngum útfrá því að
líkamlega örvun þurfi til áður en
við köllum upplifun okkar „ást“
þá er skiljanlegt hvers vegna
markaðstorg ástarinnar eða
dansstaðir öðru nafni eru svona
mikilvægir. Líkamleg örvun ger-
ist ekki bara ef maður fer út að
skokka eða er með hjartað í bux-
unum af hræðslu. Ef þú drífur þig
út á dansgóifið og hoppar þar
smástund fer hjartað að slá örar
Ef þú drífur þig út á dansgólfið og hoppar þar smástund fer hjartað að
slá örar og adrenalínið að aukast.
og adrenalínið að aukast. Við
þessar dansaðstæður eru mýmörg
tækifæri að fara að túlka raun-
verulega eða mistúlka (tala nú
ekki um ef áfengi gusast um æð-
arnar) líkamlegu tilfinninguna
sem ást eða losta.
Hafi lesendur áhuga á að fá
svör við ýmsum spurningum
um kynlíf geta þeir sent inn
bréf undir dulnefni. Bréfið skal
merkt: Kynlíf, Nýtt Helgarblað,
Þjóðviljinn, Síðumúla 6, 108
Reykjavík.
Sigur Karpovs í 2. skák kom
Ungverjanum á bragðið
Portisch með vinningsforskot eftirþrjár skákir íeinvíginu við Timman
Á undanförnum árum hefur
framþróun skáklistarinnar tekið
nýja stefnu. Á þessum vettvangi
sem öðrum er hægt að tala um
upplýsingabyltingu. Hér áður
fyrr komu skákmeistarar hlaðnir
bókum til keppni. Nú má sjá
þessa sömu menn læðast um með
ferðatölvu og í einvígi Jóhanns
Hjartarsonar og Karpovs fékk
Jóhann afnot af afar kraftmikilli
tölvu sem gæti vel hentað hverju
meðalstóru fyrirtæki. Nýjar hug-
myndir í þekktum byrjanakerf-
um geta haft úrslitaþýðingu. Er
einvígi Jóhanns og Karpovs lauk í
Seattle hafði Karpov orð á því að
Portisch hafi nýtt hugmynd sína
úr 2. einvígisskák með glæstum
árangri í einvígi sínu við Timman.
Portisch hafði greinilega haft
spumir af þessari skák en Tim-
man ekki og það gerði gæfumun-
inn. Ungverjinn fékk yfirburð-
astöðu og knúði fram sigur í að-
eins 35 leikjum. í áskorenda-
einvígi Nigels Shorts og Jonat-
hans Speelmans gerðist svipaður
atburður. Aðstoðarmaður Speel-
mans, Jonathan Tisdall, hafði
komist á snoðir um nýstárlegan
leik frá sovéska meistaramótinu
sem fram fór á sama tíma, og
þessi leikur dugði vel gegn Short,
Speelman náði forystunni í ein-
víginu og komst síðar áfram.
Portisch (t.h.) leiðir með einn vinning
Þegar þetta er ritað hafa verið
tefldar þrjár skákir í einvígi La-
josar Portisch og Jans Timmans í
Rotterdam í Hollandi. í fyrstu
skákinni var Timman nálægt sigri
en Portisch varðist af hörku og
jafntefli varð niðurstaðan eftir
maraþonskák, 105 leiki. í 2. skák
náði Timman aftur vænlegri
í einvíginu við Timman.
stöðu en Portisch hékk á jöfnu.
Þriðja skákin fylgir svo hér en
fjórða skák einvígisins fór í bið
eftir 60 leiki og Timman hefur
betra tafl en langlíklegasta niður-
staðan er jafntefli.
Þessir tveir hafa átt misjöfnu
gengi að fagna uppá síðkastið.
Timman lækkaði um ca. 50 Elo-
stig og Portisch eitthvað álíka. En
á Olympíumótinu í Saloniki stóð
Portisch sig frábærlega, hlaut IVi
vinning af 10 á 1. borði og sú
frammistaða þótti benda til þess
að hann yrði Timman ekki
auðveld bráð. Þeir hafa einu sinni
áður teflt einvígi sem lauk með
naumum sigri Timmans:
3. einvígisskák:
Liyos Portisch - Jan Timman
Enskur leikur
1. c4-e5
2. Rc3-Rf6
3. g3-d5
4. cxd5-Rxd5
5. Bg2-Rb6
6. Rf3-Rc6
7. 0-0-Be7
8. a3-0-0
9. b4-Be6
10. Hbl-f6
(Með örlítið breyttri leikjaröð
er komin upp sama staða og í 2.
einvígisskák Karpovs og Jó-
hanns. Karpov lék hér 11. d3 sem
Jóhann svaraði með 11. ... Dd7
en eftir hið sterka svar Karpovs,
12. Re4! var svarta staðan þegar
orðin erfið. Portisch er greinilega
á þeirri skoðun að það sé engin
ástæða til að bíða með riddára-
leikinn).
11. Re4-Ba2
12. Hb2-Bd5
13. Rc5!
(Rétt eins og í einvígi Karpovs
og Jóhanns reynist þessi mögu-
leiki erfiður viðfangs. Timman
má við það una að láta riddarann
óáreittan á c5 vegna valdleysis
b7-peðsins.)
13. ... Hb8
14. e4-BÍ7
15. d3-Rd7
16. Rb3-a5
17. b5-Ra7
18. a4-Ba3
19. Hbl-Bxcl
20. Hxcl-c6
21. bxc6-bxc6
22. Rfd2-Hb4
23. Bh3-Rb6
24. Rc5-De7
24. Dc2
abcdefgh
(Þó (’ortisch hafi náð að byggja
upp vænlega stöðu og eigi góða
vinningsmöguleika m.a. vegna
hjákátlegrar stöðu svörtu riddar-
anna ætti hann möguleika á að
'bjarga taflinu ef ekki kæmi til
næsti leikur sem er hreint út í
höít).
25. ,..-Rc4?
Rdb3!
(Kannski hefur Timman að-
eins búist við 26. Rxcl Dxc5 með
þokkalegum færum.)
26. ...-Ra3
27. Dc3-Hfb8
28. Rd2!
(Besti leikur Portisch í skák-
inni. Eftir28. Rxa5 Rbl! 29. Del
Hb2 nær svartur gagnfærum.)
28. ... H62
(Eða 28. ... Rc4 29. Ra6 Rxd2
30. Dxd2 Hb2 31. Dxa5 með yfir-
burðastöðu).
29. Dxa3-Hxd2
30. Hbl!-Dd6
31. Dc3-Ha2
32. Dxa5-Rb5
33. Db4-Hc2
34. Ra6-c5
35. Da5
- Svartur kemst ekki hjá stór-
felldu liðstapi og gafst því upp.
SKÁK
HELGI
ÓLAFSSON
Föstudagur 10. febrúar 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 27