Þjóðviljinn - 13.10.1989, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 13.10.1989, Blaðsíða 3
Samkvæmisklæðnaður eftir Margréti Þorvarðardóttur. Ullarpeysa eftir Veru Ósk Stein- sen. Barnafatnaður eftir Ástu Björns- dóttur og Birnu Pálsdóttur. íslenskir fatahönnuðir efndu til sýningar á framleiðslu sinni að Hótel Borg síðastliðinn laugar- dag. Þar gat að líta hina fjöl- breytilegustu framleiðslu fatnað- ar á unga jafnt sem aldna og grannajafnt sem holdmikla. Þátt- takendur í sýningunni voru átta félagar í FAT, félagi fata- og tex- tílhönnuða. Félagið var stofnað fyrir þrem árum og í því eru nú um 30 félagar. María Manda fatahönnuður sagði í samtali við Þjóðviljann, að fatahönnun væri tveggja til þriggja ára nám, og að flestir ís- lenskir fatahönnuðir hefðu lært í Danmörku eða Frakklandi. Sjálf lærði hún í Los Angeles í Banda- ríkjunum. María sagði að atvinnutækifær- um íslenskra fatahönnuða hefði fækkað með versnandi stöðu ullariðnaðarins, en fjöldafram- leiðsla á íslenskri fatahönnun hefði fyrst og fremst verið í ullar- fatnaði. Nú munu einungis 2-3 fatahönnuðir starfa að hönnun á fjöldaframleiddum fatnaði. Aðr- ir starfa sjálfstætt við sérsaumun á módelflíkum, búningahönnun o.fl. Sjálf sagðist María Manda vera sérhæfð í að hanna fatnað í yfir- stærðum. - Það hefur komið í ljós að fólk sem er stórvaxið á þverveginn eða langveginn fær oft ekki föt við sitt hæfi. Vegna vaxandi eftirspurnar hef ég sér- hæft mig í að hanna og sérsauma slík föt. María sagði að íslensk fata- framleiðsla stæðist illa erlenda samkeppni þar sem hún væri ein- faldlega dýrari vegna smæðar markaðsins. - Þess vegna þurf- um við að reyna að skapa okkur sérstöðu, eins og margar okkar hafa gert. Þannig gera sumar Samkvæmiskjóll eftir Maríu Lovísu Ragnars- dóttur. Gallabuxur, jakki og peysa í yfir- stærð eftir Maríu Möndu. okkar til dæmis föt úr handmál- uðu silki eða bómull. Það er gam- all draumur okkar í félaginu, sagði María, að koma hér á fót hönnunarmiðstöð þar sem við getum haft íslenska fatahönnun til sýnis. Þær sem tóku þátt í sýningunni FAT 89 voru Alda Sigurðardótt- ir, Ásta Björnsdóttir, Birna Páls- dóttir, Gréta Sörensen, Margrét Þorvarðardóttir, María Manda ívarsdóttir, María Lovísa Ragn- arsdóttir og Vera Ósk Steinsen. Sýnendur voru úr samtökunum Módel 79. íslensk fatahönn Hótel NYTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 3 Föstudagur 13. október 1989

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.