Þjóðviljinn - 13.10.1989, Blaðsíða 23

Þjóðviljinn - 13.10.1989, Blaðsíða 23
Pað sannast kannski ekki eins vel á nokkurri hljómsveit og The Rolling Stones að rokkið er kom- ið til að vera með vesturlandabú- um menningarfyrirbæri svo lengi sem menning lifir í einhverri mynd á Vesturlöndum. Þessir fimm fræknu rokkarar, sem mynda The Rolling Stones, eru allir um og yfir hálfrar aldar gamlir en fremja rokk með slík- um ferskleika að margar korn- ungar hljómsveitir hljóma eins og útdauðar furðuskepnur í saman- burði. Ég hef ekki tölu yfir allar þær plötur sem Steinarnir hafa gefið út á sínum nær þrjátíu ára tón- listarferli. En árið 1986 leit út fyrir að hljómsveitin hefði logn- ast út af fyrir fullt og allt. Formleg yfirlýsing kom um það í fréttum Ríkisútvarpsins að Steinarnir heyrðu sögunni til. Síðustu plötur hljómsveitarinnar allt að „Dirty Work“ 1986, voru engan veginn í flokki með því besta sem óláta- belgirnir höfðu gert. í mínum huga var „Some girls“, sem kom út 1978, síðasta góða Stones- platan. Sú plata markaði viss endalok á mjög forvitnilegu tíma- bili á sérstæðum ferli hljóm- sveitarinnar, tímabili sem hófst í kring um útgáfu „Sticky Fingers" 1971. Á meðan Steinarnir tóku sér frí gekk á ýmsu. Þeir höfuðpaurar Richards og Jagger voru alveg búnir að fá nóg hvor af öðrum og nenntu ekki að tala saman í tvö ár samfleytt. Þeir gáfu báðir út sólóplötur, Jagger tvær en Ric- hards eina á síðasta ári, en þessar plötur áttu að mestu skildar þær dræmu undirtektir sem þær fengu. Platan hans Richards, „Talk Is Cheap“, hafði að vísu Þeirsegjast ekki kunnaannaðen aðvera Rolling Stones, frá vinstri:Charlie Watts, Bill Wym- an, MickJagger, Keith Richards og Ron Wood. Sofnað í miðju skrefi margt að geyma þegar vel var hlustað en var engu að síður mörgum kaliberum fyrir neðan mestu gæðaverk Rolling Stones. Stálhjólið Nýjasta steinabarnið, „Steel Wheels“, kom ekki bara gömlum Stones-hundum að óvörum, hún kom þægilega á óvart í rokk- heiminum yfirleitt. Áður en hald- ið er út í einhverja greiningu á plötunni, er best að taka það fram að þessi plata er ruddagóð rokkplata. Önnur ummæli skulu skoðast sem vandræðalegir varí- antar á þessari yfirlýsingu. Það er ekkert gamaldags við „Stálhjól- in“. Auðvitað fer ekki í eina sek- úndu á milli mála að hér eru Roll- ing Stones á ferð, en þeir eru jafnferskir og stjörnurnar í trján- um. Eftir að hafa sest niður yfir nokkrum tilbrigðum með eld- heitum aðdáanda og sannfærðum reglubróður, og farið í gegnum mína fyrstu hlustun, var ég sam- mála honum um að seinni hluti plötunnar væri betri en sá fyrri. í einlægri rokkvímunni vorum við þeirrar skoðunar að besta lag plötunnar væri „Can‘t Be Seen“, sem gamla sukktröllið Richards samdi og ætlaði á sólóplötu sína. Richards syngur þetta lag sannfærandi rokkararöddu, hrjúfur sem sandpappír og hás eins og menn verða eftir langvar- andi útilegur. Lagið er tvímæla- laust dæmi um hvernig góður rokkari á að hljóma. Kröftugur en ekki truflandi taktur, sem kemur blóðinu á hreyfingu. Síð- ustu fjögur lögin sem koma þar á eftir, eru síðan hvert með sínum hætti gæðalög. „Almost Hear You Sigh“ er í ljúfa stílnum og hentar vel sem fagnaðarerindi handa nýjum degi að loknu vel- heppnuðu skralli, þegar gengið er sem leið liggur á móti rísandi sól. „Steel Wheels" hefur margt fram yfir jafnvel bestu plötur Rolling Stones. Hlj'óðblöndunin á henni er til að mynda með því allra besta sem ég hef heyrt á plötum þeirra. Þá eru öll lög plötunnar í góðu jafnvægi við sjálf sig, en mér fannst oft og tíð- um ríkja óreiða í lögum Stones og fékk á tilfinninguna að þeir hefðu ekki nennt að vinna efnið. Þrig- gja ára hlé hefur greinilega gert þeim gott, þannig að þeir koma meira en endurnærðir til baka. Hippastfllinn fer þeim meira að segja betur úr hendi en á hippatímanum sjálfum. „Contin- ental Drift“ er austurlenskt aftur- hvarf til sjöunda áratugarins. Nútímanum hefur verið stráð eins og nýju kryddi yfir gamla uppskrift og útkoman er skot- held. Ég sagði hér að ofan, að seinni partur plötunnar hefði virkað betur við fyrstu hlustun en hinn seinni. Með tímanum vinnur fyrri hlutinn engu að síður á. Fyrstu tvö lög plötunnar, „Sad, Sad, Sad“ og „Mixed Emotions", eru til dæmis fyrirmyndar tónsmíðar. „Steel Wheels" er í sem fæstum orðum eins og eðalvín sem var þess virði að bíða eftir. Stónsar- arnir rokka og blúsa eins og þeir, og þar af leiðandi allir að margra mati, geta gert. Úr helgum steini á Barbados En hvað voru þessir gömlu hrekkjalómar að gera með það að taka upp plötu og halda í heimstúr, þegar heimurinn var nokk búinn að sætta sig við að þeir væru hættir. Bill Wyman, sem er þeirra elstur, er 53 ára gamall og hinir eru allir komnir vel yfir fertugt. Var ekki kominn tími til að setjast í helgan stein og hætta að rúlla honum og njóta ávaxtanna af ágætu lífsstarfi? Nei, aldeilis ekki. Þegar Richards og Jagger voru búnir að fá leið á því að vera leiðir hvor á öðrum, hittust þeir síðasta sumar og áður en þeir vissu af voru þeir farnir að skipuleggja nýja plötu. Richards segist hafa stungið upp á þvf að þeir færu til Barbados í tvær vikur og athuguðu hvort eitthvað myndi ekki gerast. Þeir lokuðu sig síðan af í Montserrat snemma á þessu ári og kölluðu Wyman, Watts og Wood ekki til leiks fyrr en þeir voru búnir að semja öll lögin sem þeir ætluðu á plötuna. Richards er vel sáttur við „Ste- el Wheels" og mjög ánægður með að hljómsveitin skuli vera farin að spila saman aftur. Þeir hefðu loksins komist að því að þeir gætu aldrei orðið annað en Rolling Stones. Enda eins gott þar eð hann og Jagger gætu hvort eð er aldrei skilið endanlega, þeir myndu alltaf þurfa að hittast til að útkljá sameiginleg mál. Eftir nær 30 ára samvinnu er líf þessara manna orðið svo samofið að þeir eru tengdir sterkari böndum en fjölskylduböndum. Gítarleikar- inn sukkaði setur nýju plötuna í flokk með „Some Girls“ og „Ex- ile On Main Street" (1972). Hann segir aldurinn hafa þroskað þá alla sem tónlistarmenn og Stones séu í toppformi þessa dagana og sjaldan betri. Richards er Steina þekktastur fyrir svall og sukk. Hann var langt leiddur af heróínneyslu og á tímabili var ansi tæpt um gæjann. Hann er spurður um það í viðtali HEIMIR MÁR PÉTURSSON D/ÆGURMÁ hvort hann ætli að sukka á yfir- standandi tónleikaferðalagi eins og á þeim fyrri? „Hvaðan ertu eiginlega, auðvitað, það til- heyrir, er einn mikilvægasti hluti hvers tónleikaferðalags,“ svarar Richards. Hann segist þó ekki nota neitt af þeim efnum sem hann sullaði í sig á árum áður, nema alkóhól, og svo vaki hann mun minna en áður. Á tónleika- ferðalögum vakti brýnið gjarnan í 9 sólarhringa en segist nú láta nægja að vaka í þrjá eða fjóra og lýsir því síðan hvernig hann sofn- aði í miðju skrefi einu sinni og datt á hljómplötuskáp og fékk ævarandi ör á andlitið. Ron Wood var sá Steinanna sem var í hvað verstri fjárhags- legri stöðu á meðan starfsemi hljómsveitarinnar lá niðri. Hann kom inn í bandið sem aukahjól undir vagn úr hljómsveitinni Small Faces og var nánast á tíma- kaupi hjá Rolling Stones. í hléinu lifði hann á því að mála frægt fólk og selja myndirnar. Wood lýsir því hvernig hann fór í Stones. Jagger hringdi í hann og bauð honum plássið en Wood vildi ekki yfirgefa Small Faces og sagði honum að hafa samband við sig ef þeir væru í algerri neyð. Nokkr- um dögum síðar hringdi Jagger aftur og sagði „við erum í algerri neyð“ og þar með var það frá- gengið. Frá og með „Steel Whe- els“ er Wood hins vegar kominn á betri býti hjá hljómsveitinni. Gróðanum af tónleikaferða- laginu er til að mynda skipt jafnt og hann er svimandi há upphæð. Sá hreinasti í grúppunni er án efa Wyman. Hann segir að hann og Watts hafi aldrei bragðað eitruð lyf. Wyman hefur líka frá upphafi skráð hjá sér það helsta sem dreif á daga hljómsveitarinn- ar og er ómissandi að sögn Jagg- ers þegar þarf að ræða eitthvað úr fortíðinni. Hann hefur nýlokið við bók um hljómsveitina sem er væntanlega komin út. Á „Steel Wheels" leikur Wym- an ekki á bassann í þremur lögum. Skýringin á því er sú að hann stóð í skilnaðarveseni með- an á upptökum stóð og félagarnir skipuðu honum að yfirgefa upp- tökustað, svo gula pressan þyrpt- ist ekki á staðinn rétt á meðan atið var sem mest í skilnaðinum. Bassistinn rólegi fór því til London og hélt sig þar og sneri aftur þegar gulir pressukjaftamir vom mettir. Að lokum skulum við aðeins sjá hvað Jagger hefur að segja um endurkomuna og þá áheyrendur sem koma og hlusta á Stones. Hann segir skemmtilegra að spila fyrir yngra fólkið, það komi með opnari huga. Hvers vegna unga fólkið mæti segist hann ekki vita en það sé ekki eins grænt og það eldra. Það hafi séð þetta allt sam- an á myndböndum og í bíó áður. Skrýtnustu áheyrendurnir em blaðamenn rétt undir fertugu, segir Jagger. Þeir sjái allt í ein- hverju skringilegu sjöundaára- tugarljósi sem hafi enga skír- skotun til hans sjálfs. Rolling Stones eru að miklu leyti Jagger og Richards. Það voru erfiðleikar á milli þeirra sem ollu slitum. En er það rétt að Jagger hafi talað látlaust allan tímann á meðan Richards reyndi að kynna fyrir honum sólóplötu- na sína? „Ha ég?“ svarar Jagger og þykist ekki kannast við neitt. Kemur síðan með nokkrar rétti- legar athugasemdir um plötuna og bætir því við, að það hafi alltaf verið hans hlutverk í samstarfi með Richards að stílfæra lögin hans og bæta melódíuna. Popp- lag þurfi nauðsynlega á melódíu að halda en geti ekki flætt út í allar áttir eins og óskipulagt sax- afónsóló. En það er kannski einmitt það sem Rolling Stones hafa alltaf gert, flætt út eins og óskipulagt saxafónsóló? Fyrir okkur hin er það spurningin um að flæða með, að óskipuleggja sig aðeins. -hmp Föstudagur 13. október 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 23

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.