Þjóðviljinn - 13.10.1989, Blaðsíða 22

Þjóðviljinn - 13.10.1989, Blaðsíða 22
T T T 5" Z ? F 3 <7 10 Z ii IZ /3 6' <?> II W 3 IS' S? )(o II 12 13' 11 R? 5.V 5' 18 jsr V m (p 20 3 T 21 22 r-f- )5 3 <5? T 22 /S S? JS' Z3 )sr iT b 9 II V 25 T 2 e? Vo 17- <Y) iz 3 )3 & Z V JiT 22 27- 3 2(o V 2Z (í> )Sr T 2U 1S~ 3 18 S2 4 n II IZ V II 2 12 2(o 9 T W 3 7U $2 %> ÍT' 15 20 23 ZO 2 20 30 15 3 8 15 T 21 2(* T 2S 21 3 23 % 3 S? 22 U 3 V 5" S? 20 11 II T 3 li? b s zk 24 Tf 3 )S~ IZ IZ j<sr 3 «5 T ze 17- TT S2 T 3 20 T ló 22 isr II 11 !s> Z Tl 21 ISr iT T 23 & r T r II W~ AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ Krossgáta nr. 65 Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá kvenmanns- nafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt „Krossgáta nr. 65". Skilafrestur er þrjár vikur og verða verðlaunin send til vinningshafa. ? T /? )D 9 )/ )Z ZD 3 Lausnarorðið úr krossgátu nr. 62 var „Grjótháls". Dregið var úr réttum lausnum og upp kom nafn Ástu Lilju Kristjánsdóttur, Njálsgötu 39b, verðiaun fyrir krossgátu nr. 65 er Reykjavik. Hún fuer senda bókina “Grískar þjóðsögur og sevintýri" bókin „Ræður og riss , ritgerða- í þýðingu Fríðriks Þörðarsonar og útgáfu Máls og menninqar saín eftir Sverri Kristjánsson sagnfræðing, sem Mál og menn- ing gaf út 1962. FJÖLSKYLDAN SIGTRYGGUR JÓNSSON MATUR I' ^ ^1*****’" ÓLAFUR GÍSLASON .... *^>4 Fagur fiskur í sjó Ég hef löngum verið þeirrar skoðunar, að matargerðarlist sé angi af fagurfræði. Ef kokkurinn hefur ekki tilfinningu fyrir hrá- efninu sem hann meðhöndlar, þá verður útkoman slæm. Tilfinning góðs matreiðslumanns stendur ekki bara til bragðeiginleika mat- arins, heldur líka til útlits: ljótur matur er yfirleitt vondur. Fegurð í matargerðarlist er ekki fólgin í því að gera majónesrósir með sætum rauðum kirsuberjum og svörtum kavíarkornum á allan mat. Fegurðarskyn matreiðslu- mannsins ræðst af tilfinningu hans fyrir hráefninu og fegurðar- eiginleikum þess. Tökum til dæmis fiskinn: það er mín kenning að sá matreiðslu- maður sem ekki ber skynbragð á fegurðina í vaxtarlagi þess fiskjar sem hann er að matreiða muni aldrei ná að laða fram bragð- eiginleika þess sama hráefnis í matreiðslunni. Vaxtarlag hverrar fisktegundar er einstakt sköpun- arverk í sjálfu sér og óaðskiljan- iegt frá bragðeiginleikunum. Það er oft sárgrætilegt að sjá hvernig við fslendingar misþyrmum sköpunarverkinu í meðhöndlun okkar á sjávarfangi: aldrei sjáum við heilan íslenskan humar í fisk- búðinni, sem ekki er búið að mis- þyrma. Eða hörpufisk í skel sinni. Aldrei fáum við að sjá skötuselinn með sinn stórfeng- lega haus og kjafti, eða sfldina ferska upp úr sjó. Og karfinn. þessi fallegi roðagullni fiskur er nær undantekningarlaust búinn að lenda í misþyrmingu flökunar- vélarinnar áður en hann nær til neytandans. I vikunni rakst ég þó á gullfal- legan glænýjan karfa, sem ekki var einu sinni búið að slægja, í fiskbúð Hafliða við Laugaveg- inn. Það var unun að matreiða og borða svona fagran fisk: Hann var skorinn á kviðinn og slóg- dreginn og þveginn. í kviðinn lagði ég eitt eða tvö hvítlauksrif og smávegis af þurrkuðum kryddjurtum og olíu. Síðan stráði ég ríflega af grófu salti í stóran emaléraðan pott, lagði karfan heilan ofan í pottinn, vökvaði ör- lítið með olíu og kryddjurtum og stráði svo lagi af grófu salti yfir allt saman. Síðan var þetta bakað í hálftíma í lokuðum pottinum, og rétturinn var ekki bara fal- legur, heldur líka unun fyrir bragðlaukana. Hvernig væri að biðja um heilan nýjan karfa næst þegar þið farið út í fiskbúð? Félagsmótun á unglingsárum í nokkrum þáttum að undan- förnu hef ég rætt um unglingsárin og félagsmótun. í því sambandi hef ég rætt um hvernig lokastig sjálfsmyndar á sér stað á ung- lingsárum, hvernig unglingar þurfa ð losa sig við foreldravaldið og staðfesta sjálfa sig sem sjálfs- tæða einstaklinga og hvernig ung- lingahópurinn hefur meir og meir farið að hafa áhrif á félagsmótun unglinga í seinni tíð. Félags- mótunin á unglingsárunum er sá þáttur, sem mest hefur breyst, þótt hann hafi einnig áhrif á hvernig unglingurinn leysir úr hinum þáttunum. Hópmyndun unglinga og tilurð sérmenningar þeirra hefur einnig gert það að verkum að fullorðnir hafa ýtt undir og styrkt hópmyndunina til þess að gera unglinga að sérstök- um neytendahópi. Að hluta til hafa unglingar eigin fjárráð, en einnig eru þeir afar sterkur þrýst- ihópur, vegna sameiginlegra þarfa sinna við að losa sig undan foreldravaldinu. Þrýstihópur á peningaveski foreldranna. Þann- ig hefur komist í tísku undanfarin ár að kalla alla skapaða hluti unglinga-eitthvað. Ung- linga-fatatíska, unglinga-skríf- borð, unglinga-húsgögn ými- skonar, unglinga-bókmenntir, unglinga-skemmtanir og að auki hitt og þetta fyrir unga fólkið. Við höfum þannig ýtt undir hóp- myndunina og þá upplifun ung- linga að þeir séu sérstakur hópur. Það er því ekki ýkja einkenni- legt að unglingar notfæri sér það og leiti frekar inn í kunningja- hópinn eftir fyrirmyndum, eða í þau goð, sem sölumenn unglinga- menningarinnar segja þeim að sé þeirra fyrirmynd. Þannig verður leitin að sjálfsmyndinni meir og meir hópleit og fleiri og fleiri ung- lingar fá sams konar félagsmótun þar sem persónueinkenni falla meir og meir í skuggann. Styrkur einstaklinganna felst í hópstyrk og þekkingin á eigin styrk verður minni. Það verður alltof algeng hugsun, að falla inn í hópinn og skera sig ekki úr. Það er jú einnig affarasælast fyrir flesta, ef þeir ætla að fá að vera með. Þetta get- ur svo einnig haft áhrif á það að sjálfsmyndin verður hópsjálfs- mynd og einstaklingurinn getur hætt að líta á sig sem sjálfstæða persónu og fer þess í stað að líta á sig sem hluta af heild. Slíkt eru ef til vill ekki svo góð býti. Hann lærir þá ekki að verða sjálfstæður og getur auðveldlega fallið í þá gryfju að verða háður maka sín- um, þegar þar að kemur. Annað sem ýtir undir það að unglingurinn sækir oft mikið inn í unglingamenninguna og of lítið til foreldranna og sjálfs sín, er sú sektarkennd, sem margir foreldr- ar þjást af, gagnvart unglingum sínum. Sektarkenndin gerir oft það að verkum, að foreldar gefa annað hvort of lítið eftir við sjálf- stæðisbaráttu unglingsins og þrengja þannig að honum að hann leitar frá þeim og út í kunn- ingjahópinn, eða þeir gefa of mikið eftir, þannig að unglingur- inn missir traust á þeim og finnur veikleika þeirra og leitar þess vegna burt frá þeim. Þeir hætta að gera kröfur til hans um að hann axli ábyrgð á sjálfum sér. Hann þarf því ekki að spyrja spurningarinnar: Hver er ég? og fer þess í stað að spyrja spurning- arinnar: Hverjir erum við? Þ.e. unglingarnir. Við það vaknar oft fyrsta hugmyndin um það að langanir, tilfinningar og viðhorf séu ekki persónulegir þættir, heldur hópbundnir. Þannig fara þessir einstaklingar oft að spyrj- anhvað á að gera, í stað langar mig að gera og náttúrlega finnst mér þetta eða hitt, eins og tilfinn- ingar séu náttúrulögmál. Þannig er líka stutt í að hætta að tala um sjálfan sig í fyrstu persónu og fara að tala um sjálfan sig í þriðju per- sónu: Manni finnst, mann langar, maður ætti alltaf o.s.frv. Við of- notkun á slíku þriðjupersónufor- nafni fer einstaklingurinn að glata sjálfstæði sínu og ver sig gegn kröfum um að standa við löngun sína, skoðun eða tilfinn- ingu, með því að draga náttúru- lögmál og alheimstilfinningar inn, sér til halds og trausts. Ef allir hafa sömu skoðun hlýtur að vera í lagi að ég hafi hana og þá fer enginn að brigsla mér um að ég sé öðru vísi en aðrir, hafi unda- rlega skoðun eða sé sérvitringur. Rannsóknir sýna að hópþrýst- ingur er mjög sterkt afl. Tilraunir hafa verið gerðar, þar sem sýnt er fram á að einstaklingar eru til- búnir að segja að tvö strik, sem augljóslega eru mislöng, séu jafn- löng. Hópur fólks hefur verið undirbúinn fyrirfram til þess að halda þessu fram, á meðan einn í hópnum veit ekkert um þann undirbúning. Ef hann horfir á alla hina ljúga til um striklengd- ina, gerir hann það líka. Bara til að vera ekki öðruvísi en þeir. Sýnt hefur verið fram á að 35% einstaklinga gera slíkt hið sama. Ef 35% einstaklinga eru tilbúnir að tala þvert gegn betri vitund til að falla inn í hópinn, hvað getur þá óljós eða algerlega dulinn áróður eða félagsmótun haft víð- tæk áhrif? Það er því mjög mikilvægt að við ölum börn okkar og unglinga upp í sjálfstæðri, gagnrýnni og skapandi hugsun. Þeir sem hafa áhuga á að fræ&ast um eitthvert ákveðiö efni var&andi fjölskylduna geta skrifaft. Merkið umslagið: Fjölskyldan; Nýtt Helgarblað, Þjó&viljanum, Sí&umúla 6, Reykjavík. 22 SÍÐA — NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 13. október 1989

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.