Þjóðviljinn - 13.10.1989, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 13.10.1989, Blaðsíða 9
Kínverskur píanósnillingur í heimsókn Æfði með leynd í „menningarbyltingunni“ Kínverski píanóleikarinn Xiao- Meu Zhu heldur tónleika í Hafn- arborg í Hafnarfirði á sunnudag kl. 20.30. Þettaeru aðrirtónleikar hennar hér á landi, en s.l. mánu- dagskvöld lék hún Goldbergtil- brigði Bachs á Kjarvalsstöðum við geysilega hrifningu áheyr- enda. Xiao-Meu Zhu er ættuð frá Shanghai og kom fyrst fram sem píanóleikari þegar hún var sex ára. Þegar menningarbyltingin svokallaða gekk yfir Kína var hún send frá Shanghai í vinnubúðir við landamæri Mongólíu til end- urhæfingar. Þar varð hún að stunda píanóleik á laun. Eftir menningarbyltinguna fór hún í Ríkistónlistarskólann í Peking, þar sem hún stundaði nám til 1979 að henni áskotnaðist styrkur til náms í Boston í Bandaríkjun- um fyrir tilstuðlan Isaacs Stern. Síðan stundaði hún einnig nám í Frakklandi, en á síðari árum hef- ur hún leikið á hljómleikum víða um lönd og hlotið frábærar við- tökur meðal gagnrýnenda. Næstkomandi sunnudag mun Xiao leika Níu tilbrigði og sónötu í D-dúr eftir Mozart og 12 són- ötur eftir Scarlatti. Tónleikarnir eru haldnir á vegum íslands- deildar Evrópusambands píanó- kennara. Xiao-Meu Zhu píanósnillingur frá Shanghai Torfi Jónsson við eina mynda sinna. Mynd: Kristinn. Vestfirskar stemmningar Torfi Jónsson sýnir vatnslitamyndir í Gallerí Borg Þetta eru stemmningar sem ég upplifði og málaði á Vestfjörðum í sumar, sagði Torfi Jónsson listmálari, þegar hann sýndi okk- ur vatnslitamyndirnar sem hann sýnir nú í Gallerí Borg. Torfi hefur langa reynslu af vatnslitnum og notar hann með hefðbundnum hætti til þess að fanga augna- blikshughrif úti í náttúrunni í vatnstærum og fljótandi litnum, rétt eins og impressíónistarnir gerðu undir aldamótin síðustu. Aðspurður segist hann hafa lært af því að skoða vatnslitamyndir eftir meistara eins oq Turner oq Nolde. „Þegar ég mála á þykkan papp- ír eins og þennan vinn ég beint úti í náttúrunni ef þannig viðrar, en þegar rignir vinn ég inni eftir skyssum," segir Torfi. Og hann talar af tilfinningu um veðrið og birtuskilyrðin á Ingjaldssandi daginn sem hann fangaði birtuna í kringum fjárhúsin í vatnslit. Þannig eru þessar myndir eins og safn hinna hverfulu augnablika í síbreytilegum heimi og um leið vanmáttug tilraun til þess að stöðva rás tímans hér og nú: sjáið fölbleika sólarglætuna sem sleikir fjallshlíðina í fjarska á meðan skuggaleikur fjallsins umlykur fjárhúsin sem húka undir fjalls- rótinni og gefur þeirn dulmagnað yfirbragð. Sýningin er opin til 24. októ- ber. -ólg Föstudagur 13. október 1989|NYTT HELGARBLAÐ SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.