Þjóðviljinn - 13.10.1989, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 13.10.1989, Blaðsíða 18
SKÁK SSsm. Einvígi Karpovs og Jusupovs frestað í tvígang Af hrakförum Bents Larsens í Holstebro Allt er með kyrrum kjörum í London þar sem einvígi Anatolys Karpovs og Arturs Juspovs og Jans Timmans og Jonathans Speelmans fara fram. Karpov leiðir,2'/2:l‘/2 og Timman er yfir 3V4:2'/2. Fyrrnefnda einvíginu hefur verið frestað í tví- gang, fyrst að ósk Jusupovs og þegar átti að tefla á þriðjudaginn bað Karp- ov um frest. Það kann að vera að hann vilji þjarma að Jusupov í ein- rúmi, þeir eru nú tveim skákum á eftir hinum en einvígin fara fram samtím- is. í>eir Karpov og Timman koma hugsanlega til með að tefla um réttinn til að skora á Garrí Kasparov. l’egar hefur verið ákveðið að næsta heims- meistaraeinvígi fari fram í Lyon í Fra- kklandi og hafa Frakkar boðið geipi- legt verðlaunafé og bikar alsettan gimsteinum sem metinn mun vera á 6 miljónir íslenskar. Oneitanlega hefur verið hart barist í einvígi Speelmans og Timmans og Englendingurinn er greinilega að koma til en hann tefldi linkulega í fyrstu. Hann hefur þó ekki komið lagi á andstæðing sinn sem hefur tímann með sér. Þeir tefldu sjöundu skákina í gær og þá fór einnig fram fimmta skák Karpovs og Jusupovs. Sjötta skák þeirra var tefld sl. mánudag. Eins og í fjórðu skákinni var teflt opna afbrigð- ið í spænskum leik en í 14. leik brá Speelman út af, 14. Rxd4 í stað 14. cxd4. Ekki fórst honum þó með- höndlun byrjunarinnar sérlega vel. f 17. leik fórnaði Timman manni og það kom á daginn að besta leið Speel- mans var að gefa manninn til baka. Timman átti peði meira í hróksenda- tafli en það dugði þó ekki til sigurs: London, 6. einvígisskák: Jonathan Speclman - Jan Timman Spænskur leikur 1. e4-e5 10. Rbd2-0-0 2. Rf3-Rc6 11. Bc2-Bf5 3. Bb5-a6 12. Rb3-Bg6 4. Ba4-Rf6 13. Rfd4-Bxd4 5. 0-0-Rxe4 14. Rxd4-Dd7 6. d4-b5 15. Rxc6-Dxc6 7. Bb3-d5 16. Be3-Hfe8 8. dxe5-Be6 17. f3-Rxc3 9. c3-Bc5 a b c d e f g h 18. Dd2-Bxc2 19. Dxc2-Hxe5 20. Hael-Re2+! 21. Hxe2-Dxc2 22. Hxc2-Hxe3 23. Hxc7-g6 24. Kf2-Hde8 25. Kg3-d4 26. Hdl-He2 27. Hxd4-H8e5 28. h4-Hxb2 29. Hf4-Hf5 30. Hxf5-gxf5 31. a3-f4+ 32. Kxf4-Hxg2 33. h5-He2 34. Ha7-He6 35. Kf5-Kg7 36. f4-Hf6+ 37. Kg5-Hc6 38. Kf5-Hc5+ 39. Kg4-Hc6 40. Kf5-h6 41. Ke5-Hc5+ 42. Ke4-Hxh5 43. Hxa6-Hh3 44. Kf5-Hg3 45. Ha5-Hb3 46. a4-bxa4 47. Hxa4-Hg3 48. Hal-Hg2 49. Hbl-Hg6 50. Hhl-Hf6+ 51. Ke5-Ha6 52. Hgl+-Kf8 53. Kf5 - Jafntefli. Staðan: Timman iVi: Spe- eiman Vh Margeir vann Bent Larsen í tvígang Eins og fram hefur komið vann Margeir Pétursson næsta öruggan sigur í aukakeppni um sæti á milli- svæðamóti. Margeir, Bent Larsen og Finninn Yrjola urðu í 2.-4. sæti á svæðamóti Norðurlanda sem haldið var í Esbo í Finnlandi sl. sumar og var afráðið að halda aukakeppnina í fæð- ingarbæ Bents Larsens, Holstebro. Keppnin vakti mikla athygli er hún hófst en áhuginn dvínaði þegar allt tók að ganga á afturfótunum hjá Larsen. Hann tefldi óneitanlega flausturslega og gerði sig sekan um fjölmargar yfirsjónir. Þegar aðeins var eftir skák hans og Yrjola sat hann á botninum með engan vinning. Mar- geir var þá með þrjá vinninga, Yrjola með tvo og gat náð Margeiri með sigri. En þá loksins hrökk Daninn baráttuglaði í gang. Hann fékk að vísu lakari stöðu út úr byrjuninni en með gáfulegum uppskiptum náði hann frumkvæðinu og vann af öryggi. Uppskar þó ekki annað en eitthvað á þá lund sem Svend Novrup skrifaði í Politiken: „Bent spillede skidt“. Novrup tókst í löngu máli að komast alveg hjá því að nefna við hverja Larsen var að kljást. Nafn Margeirs var hvergi nefnt og er greinilegt að velgengni fslendinga á skáksviðinu hefur farið fyrir brjóstið á frændum vorum. Ég varð hinsvegar afar hissa þegar ég sá nýlegt viðtal við Bent Larsen, sem ávallt hefur verið vel- kominn gestur hér, þar sem hann fór niðrandi orðum um Jóhann Hjartar- son og mun það ekki vera í fyrsta sinn sem Larsen sendir íslendingum tón- inn, þótt vissulega megi finna dæmi um hið gagnstæða. Larsen missteig sig herfilega í fyrri skák sinni við Margeir og ætlaði greinilega að bæta það upp þegar þeir mættust í annað sinn. Bent hefur löngum verið frægur fyrir að leika jaðarpeðunum en það var einmitt einn slíkur leikur sem gerði aðstöðu hans vonlausa: Holstebro Margeir Pétursson - Bcnt Larsen Benony - byrjun 1. d4-Rf6 2. c4-c5 3. d5-d6 4. Rc3-g6 5. e4-Bg7 6. Be2-0-0 7. Bg5-e6 8. Dd2-exd5 9. exd5-Db6 10. Rf3-Bg4 11. 0-0-Rbd7 12. Hacl-Hae8 13. h3-Bf5 14. Hfel-Re4 15. Rxe4-Bxe4 16. b3-a5? TOP tTM'illi a b c d e f g h (Kantpeðin hafa alltaf heillað Lars- en. Eftir hefðbundna byrjun sem Larsen teflir mikið sést honum yfir hversu tæpt biskupinn á e4 stendur. Hann hefur sennilega örlítið lakara tafl en eftir hinn öfluga svarleik Margeirs er staða hans næstum von- laus.) 17. Rh2!-Db4 (Það gildir einu hvort svartur reynir að rýma fyrir biskupnum t.d. með 17. ... Rb8. Eftir 18. g4 verður biskupinn fangaður á miðborðinu.) 18. I3-Bd4+ 19. Khl-Bf5 20. g4-f6 21. Bh6-Hf7 22. Bfl! (gerir út um allar vonir svarts. Ekki 22. gxf5-Hfe7 og pressan eftir e- línunni skapar viss vandkvæði.) 22. ,,-Hxel 23. Dxel-Bb2 24. Bd2-Da3 25. gxf5-Bxcl 26. Bxcl-Dxa2 27. Rg4-Re5 (Larsen var í miklu tímahraki þegar hér var komið sögu.) 28. Rh6+-Kg7 29. Rxf7-Rxf7 30. fxg6-hxg6 31. De3-Dc2 32. Bd2-b6 33. Bc3-Re5 34. f4-RD 35. Bg2-g5 36. fxg5 — og Larsen gafst loks upp. Átta landa keppnin haldin í síðasta sinn íslendingar taka þátt í átta landa keppninni sem hefst í Álaborg í Dan- mörku um þessa helgi. Þetta verður í síðasta sinn sem íslendingar taka þátt í þessari keppni því afráðið hefur ver- ið að leggja hana niður. Fjölmörg önnur skáktækifæri valda þar mest um. Norðurlöndin og Færeyingar taka þátt og einnig V-Þjóðverjar og Pólverjar. Þessi keppni fer fram með dálítið óvenjulegu sniði því teflt er á 6 borðum, fjögur fyrstu borðin eru venjuleg landsliðssæti ensíðan er teflt á kvennaborði og unglingaborði, 20 ára og yngri. íslenska sveitin sem tekur þátt í keppninni verður þannig skipuð: Jóhann Hjartarson, Margeir Pétursson, Helgi Ólafsson, Jón L. Árnason, Hannes Hlífar Stefánsson á unglingaborði og Guðfríðir Lilja Grétarsdóttir á kvennaborði. Þá er Bridgesambandið loks komið í samkeppni við félögin á Reykjavíkursvæðinu. í Mbl. sl. þriðjudag mátti lesa tilkynningu frá skrifstofu sambandsins varð- andi Stofnanakeppni BSÍ. Þar kom m.a. fram að stefnt yrði að því að spila dagana 7. nóvember (þriðjudagur), 42- nóvember (sunnudagur) og 14. nóvember (þriðjudagur). Kaldhæðnin er sú, að að á þriðjudögum er mest spilavirkni á höfuðborgarsvæðinu. Á þeim degi spila þrjú aðildarfélög innan vébanda sambandsins: Breið- holtsféiagið, Skagfirðingar og Hjónaklúbburinn. Samtals með- yfir 90 para þátttöku, að jafnaði. Hvað er að gerast? Eru þeir óvit- ar sem sitja í mótanefnd? Hafa þeir ekki kynnt sér fyrri fram- kvæmd á þessari keppni? Til þessa hefur það verið haft að leiðarljósi, í starfsemi BSÍ, að öllum sé gert kieift að taka þátt í spilamennsku á vegum þess. Til að svo megi verða, eru valdir spil- adagar sem raska sem minnstu. Bridgesambandið má aldrei fara yfir á spiladaga félaganna, nema í algerri neyð og þá með samþykki þeirra. Að taka tvo þriðjudaga í röð, er ekkert-nema hroki af ver- stu gerð, nema um sé að ræða svo vítavert þekkingarieysi, að jaðri við spítalavist. Áðurnefnd þrjú félög innan BSÍ munu ekki sætta sig við þessa „léttu” afgreiðslu mála. Bridge- BRIDGE Af samkeppni samband íslands er tilkomið vegna þeirra félaga sem það mynda, og það vili svo til að starf- semi þessa landssambands er í Reykjavík. Og þar eru óvart nokkur félög að starfi. Að því skal hugað. Bræðurnir Ásgrímur og Jón Sigurbjörnssynir sigruðu Opna stórmótið á Ákureyri um síðustu helgi. Aðeins 26 pör tóku þátt í mótinu, þaraf upp undir helming- ur utanbæjarpör. Fullbókað er í Minningarmótið um Einar Þorfinnsson, sem Bri- dgefélag Selfoss gengst fyrir á morgun. 36 pör mæta til leiks. Spilamennska hefst kl. 9 í fyrra- málið. Spilað er á Hótel Selfossi. Keppnisstjóri verður Ólafur Lár- usson. Aðalfundur Breiðfirðinga verður þriðjudaginn 17. október nk., í Sigtúni 9 og hefst kl. 20. Eftir 10 umferðir í haustbaro- meter Skagfirðinga í Reykjavík er staða efstu para þessi: Hannes R. Jónsson - Sveinn Sigurgeirsson 116 Ari Konráðsson - Ólafur Lárusson Kjartan Ingvarsson 103 Eyjólfur Magnússon - Hóimsteinn Arason 67 Lárus Hermannsson - Óskar Karlsson 67 Mikill áhugi er fyrir því víða um landið, að Bridgeskólinn, sem bridgesprautan Guðmundur Páll Arnarson rekur, efni til ferðalaga og sinni helgarkennslu. Útbúinn yrði eins konar „pakki“ frá skólanum, sem dygði til frum- kennslu og hæfir menn (maður) fylgdi með. Sameina mætti nokk- ur félög í þessum tilgangi, sem aftur á móti gæti skilað sér í auknum áhuga innan svæðis og þar með eflingu á bridgestarfinu innanlands. Skilningur yfirvalda á þýðingu bridgeíþróttarinnar er sífellt að aukast. Stuðningur Reykjavíkur- borgar við íþróttina er löngu kunnur og vaxandi er hlutur hins opinbera. Með hverju árinu eykst sá tími sem fólk hefur til afþreyingar. Meðalaldur hækkar og vinnuálag minnkar (vonandi). Til að mæta þessu og styðja við bakið á efnilegri íþróttagrein, er stuðningur nauðsynlegur. En innra starf hreyfingarinnar, kennsla og leiðbeiningar og al- menn útbreiðsla, þarf að koma frá bridgemönnum sjálfum. í þeim efnum er enginn Stóri bróðir. Þar er það fjölskyldan (bridgefólkið) sem telur. Ég vona að skráning í Opna stórmótið (sveitakeppni) á Húsa- vík sé hafin. Björgvin Leifsson á Húsavík mun veita allar nánari upplýsingar. Útlit er fyrir góða þátttöku í mótinu ef marka má viðbrögð spilara. Nánar síðar. Varðandi ársþing Bridgesam- bandsins, sem haldið verður laugardaginn 28. október, í Sig- túni 9, er vert að minna formenn félaganna á að jafna reikninga við sambandið. Árgjöld verða að hafa verið greidd, í síðasta lagi á Ársþingi, ef menn eiga að hafa kjörgengi. Einnig er vert að minna á að Bridgesambandið greiðir ferðakostnað fyrir einn fulltrúa frá hverju félagi, á Árs- þing. Nánari upplýsingar veitir skrifstofa BSÍ Nefnt hefur verið, að Jose Damiani, forseti alþjóðasam- bandsins komi hingað til lands á Bridgehátíð, með sveit. Forveri hans í embætti, Jaime Ortiz- Patino kom einmitt hingað til lands í boði Bridgefélags Reykja- víkur, með svissneska landsliðið með sér. í tvímenningsmóti sem BR gekkst fyrir, spilaði Patino á móti Alfreð G. Alfreðssyni, þá- verandi landsliðsfyrirliða okkar og fyrrum forseta BSÍ. Patino er liðtækur spilari, þó aldrei hafi hann verið í fremstu röð. Hann er argentískur að upp- runa, en hefur búið í Sviss um árabil. Lítum á handbragðið hjá honum: S:K87 H: DG32 T: 3 L: DG876 S: 53 S: 642 H: K1076 H: Á98 T: KD109 T: 87654 L: Á32 L: 109 S: ÁDG109 H T: ÁG2 L: K54 Patino var sagnhafi í 4 spöðum. útspil Vesturs var tígulkóngur. Eftir langa yfirlegu, drap Patino á ás og spilaði meiri tígli og trom- paði með sjöunni í borði. Spilaði síðan laufi að kóng, sem fékk að halda, og trompaði síðan tígulg- osa, tók trompin og gaf 3 slagi, tvo á hjarta og einn á lauf. Og hvað er svo merkilegt við þetta, kann einhver að spyrja? I skýringum með þessu spili segir: Spilamennska Patino er pottþétt, á þeirri forsendu að svörtu litirnir eru venjulega skiptir (ha?). Aðalgildran í spil- inu, er eftir byrjunina, að reyna að komast inn á eigin hendi á trompi í 3 slag, til að trompa síðari tígulinn. Ef við gerum það, spilum svo laufi að kóng, drepur Vestur einfaldlega strax á ásinn og skilar laufi um hæl. Borðið einangrast því, og við komumst ekki inn á eigin hendi, til að taka tromið sem úti er. Nokkuð al- geng sjón í tvímenningskeppni, þarsem spilarar reyna að fá sem flesta slagi, oft á kostnað öryggis- ins í spilinu. - Tekið úr Bridge Magazine, aprílhefti 1976. 18 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ 7?^ Föstudagur 13. október 1989

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.