Þjóðviljinn - 13.10.1989, Síða 4
Karvel Pálmason er á beininu
Óttast
að fólkið
taki völdin
Fimmtánda þing Verkamannasambands íslands var
sett í gær og að þessu sinni er það haldið í skugga eins
mesta atvinnuleysis sem verið hefur hérlendis í mörg
ár. Helstu mál þingsins eru atvinnu- og kjaramál, auk
þess sem lagðar verða fram á þinginu álitsgerðir um
þróun kjaramála, horfur í iðnaðarmálum og um f isk-
veiðistefnuna. Þá er óvíst hvort núverandi varaf ormað-
ur VMSÍ, Karvel Pálmason, verður endurkjörinn. Til að
forvitnast um þessi mál og önnur er sjálfur Karvel á
beininu að þessu sinni.
Gefurðu kost á þér til cmbættis
varaformanns VMSI?
- Það er óbreytt ástand. Ég hef
enga endanlega ákvörðun tekið.
Því hefur verið fleygt að verið
sé að plotta á bak við tjöldin um
annan varaformann en þig. Hvað
viltu segja um það?
- Á þessari stundu vil ég ekk-
ert segja um það. Það eina sem ég
vil segja er það sem stundum er
sagt í samningum: Þetta er á við-
kvæmu stigi.
Hver eru aðalmál þingsins að
þínu mati?
- Að sjálfsögðu eru það at-
vinnumálin, kjaramálin og trú-
lega lífeyrissjóðsmálin. Ég geri
ráð fyrir að þetta verði þau að-
almál sem verður tekið á á þing-
inu.
Telurðu að þetta verði átaka-
þing?
- Ég er ekkert viss um að þetta
verði átakaþing. Hins vegar má
hreyfingin ekki vera í lognmollu.
Þar þurfa auðvitað að vera
skiptar skoðanir en málefna-
legar.
Atvinnumálin hafa verið í
sviðsljósinu að undanförnu, sér-
staklega í Ijósi þess mikla atvinnu-
leysis sem er og verið hefur miðað
við síðustu ár. Hvernig líta þessi
mál út frá þínu sjónarhorni?
- Það er auðvitað eðlilegt í því
ástandi sem verið hefur að þá séu
atvinnumálin í brennidepli því
þau eru að sjálfsögðu sá grund-
völlur sem fólkið byggir á. Þegar
menn eru að tala um atvinnuleysi
eins og núna er, þá óttast ég að
það kunni að breytast og aukast á
næstu mánuðum kannski. Við
vitum að fjöldi fyrirtækja til
dæmis úti á landsbyggðinni, í
fiskvinnslunni, eru að gjaldþroti
komin, og sum komin í það. Ef
ekki verður breyting á hvað varð-
ar stuðning við þessi grundvallar
atvinnufyrirtæki sem eru víða í
sjávarplássunum þá eykst
atvinnuleysið enn. Þess vegna
þarf nauðsynlega að taka á þess-
um málum.
Finnst þér vera vilji til að taka á
þeim?
- Mér finnst ekki vera nægi-
lega mikill vilji, og ég held að
stjórnvöld, sem ferðinni ráða geri
sér ekki í reynd grein fyrir því
hversu mikils virði þetta er fyrir
fólkið sem býr á þessum svæðum
og ekki síður fyrir þjóðfélagið
sem heild.
Telurðu kannski að stjórnvöld
hafi fjarlægst þann raunveruleika
sem þau ættu að lifa í?
- Það er enginn vafi á því. Þau
hafa gert það. Því fyrr sem
stjórnvöld snúa af þeirri leið og
hverfa til síns uppruna í samvinnu
við fólkið í landinu, því betra.
Hvaða skoðun hefur þú á þeirri
gagnrýni sem fram hefur komið
innan vcrkalýðshreyfingarinnar
á setu forscta ASÍ í æðstu stjórn
Islandsbanka og því þegar hann
varði nýlega vaxtahækkun einka-
bankana?
-Ég er þeirrar skoðunar og
sagði það við forseta ASÍ fyrir
löngu, aö þetta samrýmist ekki.
Menn geta ekki skipt sér svona.
En auðvitað er það hans að taka
ákvörðun um slíkt. Hvað vaxta-
hækkunina varðar þá var það af-
skaplega óskynsamleg ákvörðun
og tekin á mjög óskynsamlegum
tíma. Á þeim tíma þegar launa-
menn sitja nánast með óbreytt
kaup, minnkandi kaupmátt, að
þá skuli bankar eins og Alþýðu-
bankinn eða íslandsbankinn
hverju nafni menn vilja kalla
hann, ganga á undan með vaxta-
hækkanir sem hefðu ekki átt að
gerast.
Halldór Björnsson varafor-
maður Dagsbrúnar segir það ör-
uggt mál að fram verði borin á
þinginu tillaga sem beinist gegn
setu forseta ASÍ í stjórn íslands-
banka. Heldurðu að þingið sam-
þykki þá tillögu?
- Nú veitégekkert um það. Ég
hef ekkert um það heyrt. Ég er
hins vegar þeirrar skoðunar að
forseti Alþýðusambands fslands
eigi ekki að vera inni í svona
mammonssjónarmiðum ef svo
má orða. Og ég hygg að hann
muni ekki lengi sitja í þeirri að-
stöðu því auðvitað er þetta nán-
ast óframkvæmanlegt því þarna
rekast hagsmunir svo á. Varð-
andi tillöguna frá Halldóri vil ég
ekkert segja. Menn mega nú
heidur ekki að mínu viti fara
mjög persónulega útí svona mál.
Hvað finnst þér um það að
verkalýðshreyfingin sé að fjár-
festa í fyrirtækjum?
- Ja, reynslan hefur nú verið
sú, ég veit ekki hvort eigi að segja
því miður eða sem betur fer að í
vel flestum þeim atvinnugreinum
sem verkalýðshreyfingin hefur
haft afskipti af hefur allt farið á
hausinn. Kannski að menn hafi
lært af þeirri reynslu og geti núna
byrjað uppá nýtt að hafa afskipti
af atvinnumálum. En ég held að
ef að menn fara útí slíka hluti sem
ég er nú ekkert sérstaklega hrif-
inn af persónulega þá þurfa menn
að gæta sín á því að fara ekki þær
troðnu slóðir sem hreyfingin í
reynd hefur klikkað á í atvinnu-
rekstri.
Hvað finnst þér um þá hug-
mynd að í stað þess að selja fersk-
fisk erlendis þá skuli hann boðinn
upp á innlendum fiskmörkuðum?
- Ég held nú að það sé ekki
hægt að afgreiða svona stórmál
bara með einni setningu. Per-
sónulega vil ég að minnsta kosti
fyrst sjá hvernig menn ætla sér að
útfæra slíkar lausnir áður en ég
get stutt það. Hins vegar er ég
þeirrar skoðunar að menn þurfi
að velta upp hugmyndum til
breytinga og útfærslu á kerfinu
því við þurfum að ná meiri verð-
mætasköpun. Líklega verður það
ekki gert í þeim sama farvegi eins
og við höfum verið. Þess vegna er
það nauðsynlegt og skynsamlegt
að fá fram hugmyndir sem menn
geta rætt og þannig kannski
þreifað sig áfram til frekari úr-
bóta.
Ertu sömu skoðunar og ein-
staka forystumenn innan verka-
lýðshreyfingarinnar hafa viðrað
opinberlega að stóriðja sé töfra-
orðið til að bæta og styrkja at-
vinnuöryggið frá því sem nú er?
- Hvað eru menn að tala um í
stóriðju? Hvað eiga menn við?
Fyrst þarf nú að vita það. Eru
menn að tala um álver? Orku-
frekan iðnáð? Hvalstöðvar út og
suður? Eða eru menn að tala um
þá stóriðju til dæmis sem við
Vestfirðingar búum við sem eru
gjöfulustu fiskimið í heimi?
Hvað með álver?
- Út af fyrir sig hef ég ekkert á
móti því að slíkt komi upp ef það
sýnist jákvætt. En það dugar
auðvitað ekkert að vera að tala
um nýtt álver hér á Reykjanesi,
eða álver á Norðurlandi, eða á
Austurlandi, hvalstöð á Austur-
landi. Við Vestfirðingar
heimtum það að við njótum
þeirrar auðlindar sem við höfum.
Þeirrar stóriðju sem fiskimiðin
eru samhliða því sem aðrir fái
svona uppbyggingu.
Það hefur verið haft á orði að
það þurfi að endurskoða vinnu-
löggjöfina. Hvert er þitt álit?
- Það er trúlega ýmislegt þar
sem betur mætti fara. Ég held þó
og óttast að ef menn á annað borð
fara að opna hana þá fari menn
inn með miklu fleiri breytingar
heldur en menn eru núna að tala
um að þurfi að gera. Það eru viss
atriði sem þyrfti að taka á, en ég
er satt að segja mjög blendinn i
afstöðunni til breytinga á vinnu-
löggjöfinni.
A hvað ber að leggja höfuð-
áherslu varðandi kjaramálin á
þessu þingi að þínu mati?
- Við skulum fyrst skoða feril-
inn frá samningunum 1. maí þeg-
ar Alþýðusambandsfélögin
sömdu um óverulegar
kauphækkanir og sýndu þannig
þá samábyrgð sem þau hafa alltaf
sýnt vegna minnkandi þjóðar-
tekna, gerðu þó ráð fyrii að
stjórnvöld kæmu inní þetta dæmi
eins og loforð voru gefin um.
Mánuði síðar sömdu stjórnvöld
við aðra aðila BHMR til dæmis
um verulega meira en samið var
um við verkalýðshreyfinguna og
af því er ég best vissi undir nótum
stjórnvalda. Aðrir komu svo í
kjölfarið með meira og meira
sem er gömul saga sem við þekkj-
um.
Ég tel því að númer eitt þurfi
að ná upp því kaupmáttarhrapi
sem orðið hefur vegna hækkandi
vöruverðs, sama hvort þú kaupir
matvöru, þjónustu ríkis og
sveitarfélaga og allt slíkt hefur
hækkað verulega á sama tíma og
kaupið situr fast. Þetta eru
stjórnvaldsaðgerðir og þarna hef-
ur ríkisstjórnin brugðist. Þarna
átti hún að grípa inní. Þessu verð-
ur að breyta því það hefur sýnt sig
samninga eftir samninga, hjá rík-
isstjórn eftir ríkisstjórn, að það
halda engir samningar gagnvart
verkslýðshreyfingunni nema að
kauptrygging sé inní þeim. Það
veitir stjórnvöldum aðhald og
það veitir líka það aðhald að
launafólk fái sitt ef afurðirnar
hækka. Það gengurekki til lengd-
ar að ailt hækki annað en launin.
Telurðu verkalýðshreyfinguna
í stakk búna til að fara í hart til að
ná inn kauptryggingarákvæðum
við næstu samninga í Ijósi at-
vinnuástandsins víða um land?
7 Ég vona að hún sé í stakk
búin til þess. Auðvitað kunna að
vera svæði sem eru illa sett að því
er þetta varðar. En það dugar
ekki bara að hafa atvinnu ef fólk
hefur ekki þann afrakstur af
henni að það geti lifað. Það á að
sjálfsögðu að fara saman.
Virkni hins ahnenna félags-
manns í vcrkalýðshreyfingunni
virðist fara minnkandi með
hverju ári. Hvert er þitt álit á
þessari þróun?
- Þetta er rétt því miður og er
trúlega vaxandi. Ég hef ekki
neina einhlíta skýringu á þessu.
Sumpart er þetta af því að fólki
þykir gott að gagnrýna utanfrá,
vill ekki koma inn þar sem
auðvitað á að ræða málin. Það er
mjög áberandi að fólk vill ekki
koma nálægt verkalýðshreyfing-
unni, fjöldinn erþannig. Auðvit-
að eru undantekningar á þessu
sem þakka ber. Það sem ég óttast
í þessu er að ef forystumenn
verkalýðshreyfingarinnar, eins
og staðan er í dag, verða of
linikulegir gagnvart stjórnvöldum
og vinnuveitendum þá óttast ég
að fólkið sjálft fari að taka völd-
in
Hefurðu ástæðu til að óttast
það?
- Já, af því mér finnst tónninn
vera þannig. Og það væri slæmt
ef menn misstu þetta allt úr bönd-
um. Einhver stjórn verður að
vera. Það er betra fyrir forustuna
að átta sig á því fyrr en seinna.
Það fer lítið fyrir konum í for-
ustu VMSÍ. Afhverju?
- Nú á ég afskaplega erfitt með
að svara fyrir kvenfólk. Ég er nú
fyrst og fremst þeirrar skoðunar
að þær vilji ekki gefa í það frekar
en hitt að þær fái ekki tækifæri.
Ég veit að minnsta kosti dæmi
þess í mínu heimahéraði að þar
eru þær mun tregari en karl-
mennirnir. Það er ein ástæðan,
en trúlega kunna þær að vera
fleiri.
Að lokum Karvel. Spáirðu
átökum á vinnumarkaði í vetur?
- Ég hef nú ekki spádómsgáfu,
en mér kæmi það ekkert á óvart
að slíkt ætti sér stað. Það fer eftir
því hvernig stjórnvöld, sem eru
nú stærsti atvinnurekandi lands-
ins og hvernig verkalýðshreyfing-
unni tekst að sameinast í sókn til
þess að endurheimta það
kaupmáttarhrap sem átt hefur sér
stað og tryggja það að hinn al-
menni launamaður í hreyfing-
unni njóti þess í samningum sem
hann hefur gert. Þannig að verð-
trygging verður að vera inni í
næstu samningum. Ég hygg að
verkalýðshreyfingin geti ekki
staðið upp frá samningaborðinu
án þess að slíkt sé í samningnum.
-grh
4 SÍÐA — NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 13. október 1989