Þjóðviljinn - 13.10.1989, Qupperneq 10
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Ólafur Skúli Svanfríður
Alþýðubandalagið á Vesturlandi
Aðalfundur kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Vesturlandi verður hald-
inn í Rein á Akranesi sunnudaginn 15. október.Fundurinn hefst kl. 13.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Staðan í íslenskum stjórnmálum
Frummælendur:
Ólafur Ragnar Grímsson, Skúli Alexandersson og Svanfríður Jónasdótt-
ir.
Almennar umræður.
3. Önnur mál. Stjórn kjördæmisráðs
Æskulýðsfylkingin í Reykjavík
Aðalfundur
Aðalfundur Æskulýðsfylkingarinnar í Reykjavík verður haldinn
fimmtudaginn 19. október klukkan 20,30 að Hverfisgötu 105.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á landsfund Alþýðubandalagsins.
3. Önnur mál.
Félagar hvattir til að mæta. Stjórnin.
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins
Landsþing
Landsþing Æskulýðsfylkingar Alþýðubandalagsins verður haldið laugar-
daginn 21. október klukkan 12.30 að Hverfisgötu 105 Reykjavík. Dagskrá
nánar augiýst síðar. Stjórnin.
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði
Haustráðstefna bæjarmálaráðs
Bæjarmálaráð ABH heldur haustráðstefnu sína laugardaginn 14. október í
Gaflinum við Reykjanesbraut. Megin umræðuefni ráðstefnunnar er undir-
búningur fjárhags- og framkvæmdaáætlunar bæjarins til næstu þriggja ára,
kosningaundirbúningur og framboðsmál.
Ráðstefnan hefst kl. 9.30 og henni lýkur síðdegis með rútuferð um bæinn
þar sem skoðaðar verða helstu nýframkvæmdir.
Hádegisverður og kaffi á staðnum kr. 12.00.
Nánari dagskrá hefur verið póstsend fulltrúum í bæjarmálaráði en ráðstefn-
an er opin öllum félags- og stuðningsmönnum ABH.
Stjórn bæjarmálará&s
Alþýðubandalagið Kóþavogi
Aðalfundur
Alþýðubandalagsins í Kópavogi verður haldinn mánudaginn 16. október kl.
20.30 í Þinghóli Hamraborg 11.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Gestur fundarins verður Ólafur Ragnar Grímsson. Stjórnin
Skrifstofa ABK
Skrifstofa Alþýðubandalagsins í Kópavogi verður opin laugardaginn 14.
október kl. 10-12.
Tekið verður á móti félagsgjöldum á sama tíma. Stjórnin
Alþýðubandalagið á Seltjarnarnesi
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins á Seltjarnarnesi verður haldinn mánudag-
inn 16. október klukkan 20.30 í Félagsheimili Seltjarnarness.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á landsfund AB.
3. Önnur mál. Stjórnin
Alþýðubandalagið á Siglufirði
Félagsfundur
Félagsfundur verður í Alþýðubandalaginu á Siglufirði nk. sunnudag, 15.
október, kl. 16.
Ragnar Arnalds verður á fundinum.
Rætt verður um stjórnmálaviðhorfin og undirbúning landsfundar.
Alþýðubandalagið í Keflavík og Njarðvík
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Keflavík og Njarðvík veröur haldinn
laugardaginn 14. október kl. 14 í Ránni Hafnargötu 19.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á landsfund.
3. Kosning fulltrúa í kjördæmisráð. Stjórnin
4. Önnur mál.
Alþýðubandalagið Neskauþstað
Félagsfundur
Alþýðubandalagið í Neskaupstað heldur félagsfund í fundarsal Egilsbúðar
miðvikudaginn 18. október nk. kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Kosning fulltrúa á landsfund sem haldinn verður 16.-19. nóvember nk.
2. Kosning bæjarmálaráðs.
3. Önnur mál. Stjórnin
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Umhverfi - Umferð - Skipulag
Starfshópur Alþýðubandalagsins í Reykjavík um umhverfis-, umferðar-
og skipulagsmál heldur fund um þessi málefni miðvikudaginn 18. október
klukkan 17.30 að Hverfisgötu 105.
Allir áhugamenn hvattir til að mæta. Stjórnin.
Áfengisbölið á
Glæsivöllum
Jón Baldvin Hannibals-
son utanríkisráðherra hefur
sent fjölmiðlum eftirfarandi
bréf sem honum hefur borist
frá Ríkisendurskoðun, dag-
sett 12.10.:
„Ríkisendurskoðun hefur
að beiðni yðar, hr. utanríkis-
ráðherra, athugað gögn er
þér hafið látið í té um það með
hvaða hætti afmælisveisla
fyrrverandi fjármálaráðherra-
frúar, sem haldin var 9. júlí
1988, var fjármögnuð, og bor-
ið þau saman við tvær úttekt-
arnótur, dags. 19/7 og 5/8
1988, er varða reikningsgerð
Borgartúns 6 á hendur fjár-
málaráðuneyti, vegna áfeng-
isúttektar þess skv. risnu-
heimildum.
Ofangreind athugun hefur
ekki leitt neitt í Ijós sem gefur
ástæðu til að tengja þetta
tvennt saman eða rengja
sannleiksgildi fyrirliggjandi
gagna um að greiðsla
veislugagna hafi verið með
eðlilegum hætti.
Ríkisendurskoðun tekur
skýrt fram að unnið er áfram
að heildarathugun á áfengis-
úttekt ráðuneytanna árið
1988, sem henni var falin af
yfirskoðunarmönnum ríkis-
reiknings 1988.“B
Ný bók um sögu
þjóðveldistímans
Sagnfræðistofnun Háskóla ís-
Iands hefur gefið út ritið Gamlar
götur og goðavald. Um fornar
leiðir og völd Oddaverja í Rang-
árþingi, eftir Helga Þorláksson
sagnfræðing. í ritinu fæst höfund-
ur við að skýra með nýjum hætti
valdasameiningu þjóðveldis-
tímans (930-1262) þá er öll völd
söfnuðust á hendur fárra ætta.
Hann dregur fram að Oddi á
Rangárvöllum muni hafa legið í
þjóðbraut og rekur dæmi þess
hversu mikilvæg slík lega stórbýla
í þjóðbraut var höfðingjum í
valdabaráttu á síðustu öld þjóð-
veldistímans. Höfundur rekur
hvar þjóðleiðir lágu í Rangár-
þingi og sýnir að Oddaverjar
náðu undir sig flestum mikil-
vægum stórbýlum við þessar
leiðir. Valdasókn Oddaverja var
ekki síst fólgin í því, að mati höf-
undar, að ná undir sig slíkum býl-
um, þeir náðu öllum völdum á
svæði því sem núna nefnist Rang-
árvallasýsla og gerðu Odda að
miðstöð fyrir svæðið. Höfundur
bendir á að hvorttveggja, mikil-
vægi Odda sem kirkjustaðar og
hinar miklu tekjur sem þangað
skyldu renna, megi að miklu leyti
skýra með legu staðarins. Enda-
lokin á stórveldistíma Oddverja
um 1220 tengir höfundur ma. við
það að þeir misstu tvö mikilvæg
stórbýli við þjóðleiðir í hendur
annarrar valdaættar.
Ritið er 165 síður, í því eru 20
kort sem Guðjón Ingi Hauksson
hefur teiknað eða útbúið, flest
hver, og með fylgir skrá um
staðaheiti. Dr. Hreinn Har-
aldsson veitti ráðgjöf um jarð-
fræðileg efni. Þetta er 25. ritið í
Ritsafni Sagnfræðistofnunar, rit-
stjóri er Jón Guðnason prófess-
or. Sögufélag, Garðastræti 13b,
hefur söluumboð fyrir þessa rit-
röð.
I
Borgarverkfræðingurinn í
Reykjavík Skúlatúni 2,
Byggingarfulltrúinn
í Reykjavík
Staða byggingarverkfræðings eða tæknifræð-
ings hjá byggingarfulltrúa er laus til umsóknar.
Starfið felur í sér eftirlit með eldvörnum nýbygg-
inga í Reykjavík. Upplýsingar um starfið gefur
Hallgrímur Sandholt á skrifstofu byggingar-
fulltrúa, í síma 623360. Umsóknum á þar til
gerðum eyðublöðum, skal skilatil starfsmanna-
stjóra borgarverkfræðings fyrir 23. október
næstkomandi.
Laus staða
skógarvarðar
Staða skógarvarðar á Austurlandi, með aðsetri
að Hallormsstað, er laus til umsóknar og veitist
frá 1. janúar 1990. Áskilið er að umsækjandi
hafi skógtæknimenntun.
Skógarverðinum er ætlað að hafa umsjón með
eignum Skógræktar ríkisins á Austurlandi og
stýra starfsemi hennar þar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf, sendist landbúnaðarráðuneytinu,
Rauðarárstíg 25, fyrir 15. nóvember 1989.
Landbúnaðarráðuneytið,
10. október 1989
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að
gjalddagi söluskatts fyrir septembermánuð er
15. október.
Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna
ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið
13. október 1989
FÉLAGSMÁLASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Félagsráðgjafa
eða fólk með sambærilega háskólamenntun,
vantar til starfa á hverfaskrifstofu fjölskyldu-
deildaríSíðumúla34. Hlutastarf 50-75% kemur
vel til greina. Upplýsingar gefur Erla Þórðar-
dóttir yfirfélagsráðgjafi í síma 685911.
Umsóknum skal skila til starfsmannahalds
Reyk|avíkurborgar á umsóknareyðublöðum
sem þar fást.
Umsóknarfrestur er til 25. október næstkom-
andi.
Aðalfundur Landverndar
og ráðstefna um skipan umhverfismála
þar á meðal verkefnasvið umhverfisráðuneytis,
verður haldin 10. og 11. nóvember næst kom-
andi í félagsheimili Kópavogs. Dagskrá verður
send aðildarfélögum.
Landvernd
Þökkum innilega þeim er auðsýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför eiginmanns míns, föður og afa,
Ágústar Jóhannessonar
Faxabraut 32c
Keflavík
Bergljót Ingólfsdóttir
Jóhannes Agústsson
Hrólfur Brynjar Ágústsson
Guðrún Ágústsdóttir
Dúa Berg