Þjóðviljinn - 13.10.1989, Page 11
Það var í Benares, þeirri heil-
ögu borg, sem ég öðlaðist nýja
innsýn í nokkur dýpstu vandamál
norðurslóða. Ég hafði farið á fæt-
ur góðri stund fyrir dögun og
gengið í myrkri eftir krókóttum
götunum í áttina niður að
Ganges, meðan mannhafið sem
lá lygnt og sofandi á gangstéttum
og inni í anddyrum var smám
saman að rumska, bæra á sér og
rísa upp í síhækkandi ölduhreyf-
ingu. Fljótlega yrðu langsoltnir
betlarar, þjófar og alls kyns
prangarar farnir að gjálfra í veg-
farendum, en eftir að hafa fært
fljótsguðinum fórn, sem var lítið
kerti í eins konar bát úr
laufblöðum, var ég sjálfur kom-
inn í litla kænu út á fljótið helga,
sem var eins og marmarabraut í
aftureldingunni. Þar horfði ég á
mannhafið flæða eftir bökkunum
í líki hindúa sem böðuðu sig með
miklum seremóníum meðan apr-
flsólin var að koma upp í sefinu á
austurbakkanum. Þá hallaði
leiðsögumaðurinn sér að mér og
sagði:
„Þú veist að í margþættuðum
félagsmálum erum við Indverjar
langt á undan vesturlandabú-
um.“
„Einhvern veginn hefur það nú
farið fram hjá mér,“ varð mér að
orði.
„Hér er mjög vel séð um ell-
ina!“
„Það var og.“
Leiðsögumaðurinn veifaði
hendinni í átt til borgarinnar sem
breiddi úr sér á fljótsbakkanum
með hallir sínar, hvolfþök, palla
fyrir líkbrennur og breiða stiga á
bakkanum, og sagði svo með dá-
lítið undarlegum glampa í
augum:
„Hér í Benares eru elliheimili
fyrir kýr!“
Svigrúm
athafnamanna
„Hér í Benares eru elliheimili
fyrir kýr!“
Á slíkum stundum fer ekki hjá
því, að menn öðlist alveg nýja út-
sýn yfir gjörvalt mannlífið og
vandamál þess, og get ég ekki að
því gert, að í hvert skipti sem
Um kýr
þetta atvik rifjast upp, sveiflast
hugurinn um víða veröld, - til
Nýja-Sjálands, Argentínu og svo
upp á þetta sker okkar, þar sem
vandamálin vaxa eins og þéttur
þaragróður í lognsæ. Nú heyri ég
því hvarvetna haldið fram, að til
sé mjög snjöll lausn á þeim erfið-
leikum sem að okkur steðja, og
er hún sú að taka upp hömlu-
lausan innflutning á landbúnað-
arvörum: í staðinn fyrir að burð-
ast við að framleiða slíkar vörur
uppi á Hólsfjöllum og úti á
Langanesi með ærnum tilkostn-
aði ættum við sem sé að flytja inn
lambakjöt frá Nýja-Sjálandi,
nautakjöt frá Argentínu, mjólk
frá Bandaríkjunum og svo fram-
vegis.
Hvað sem alls kyns spekúlant-
ar hafa um þessa lausn vandamál-
anna að segja, verður því ekki á
móti mælt að hún er svo mjög í
samræmi við dýpstu rök íslensks
efnahagslífs, að það má furðu
sæta að henni skuli ekki hafa ver-
ið hrundið í framkvæmd fyrir
löngu. Það liggur í augum uppi,
að verð á innfluttum landbúnað-
arvörum yrði mjög lágt og hag-
stætt í fyrstu, meðan síðustu
bændurnir væru að fara á hausinn
og flosna upp, en hvflíkt svigrúm
myndi ekki opnast fyrir íslenska
athafnamenn eftir það, svo ekki
sé minnst á yfirvöldin á skerinu!
Umboðsmenn
óskast
Til þess að koma landbúnaðar-
vörunum í hendur fslendinga
þyrfti að sjálfsögðu að stofna
verslunarfélög og þau æðimörg,
t.d. eitt fyrirtæki sem sæi um að
kaupa vörurnar beint af fram-
leiðendum og verðleggja þær í
betra samræmi við hagsmuni
kaupmanna, kannske með því að
hagræða flokkuninni lítið eitt, og
HUGVEKJA
E.M.J.
svo annað fyrirtæki sem sæi um
að kaupa vörurnar af hinu fyrra á
nýja verðinu og kannske með
nýja merkimiðanum og koma
þeim á skipsfjöl. Það væri vitan-
lega mikill vinnusparnaður í því,
að þessi tvískipting væri ekki til
nema á pappírnum og sömu aðil-
ar ættu bæði fyrirtækin. Svo
þyrfti vitanlega mikinn fjölda af
hafskipafélögum til að flytja
lambakjötið frá Auckland og
nautakjötið frá Buenos Aires og
beljudjúsinn frá New York, og
reyndar talsvert fleiri en brýnasta
nauðsyn krefur, þar sem þörf
væri á að hafa nokkur slík félög til
vara fyrir þau sem öðru hverju
færu á hausinn með miklu braki
og brestum. Loks gefur auga leið,
að ekki veitti af mörgum og
vöskum umboðsmönnum á
landinu til að keppa hver við ann-
an um að halda að landsmönnum
hinum ýmsu vörumerkjum á
sama varningnum og vinna pró-
sentur úr öllu saman líkt og
plöntur vinna köfnunarefni úr
lofti.
En þetta er ekki nema ein hlið
málsins, - önnur er svo afskipti
hins opinbera af þessum fram-
kvæmdum. Það sér hver maður
að ekki er hægt að láta svona
viðamikinn innflutning líðast án
þess að leggja á þennan varning
nokkur pínulítil innflutnings-
gjöld, hafnargjöld, aðstöðu-
gjöld, kirkjugarðsgjöld, gang-
stéttargjöld, stimpilgjöld, með-
lagsgjöld, töðugjöld, syndagjöld,
vörutolla, söluskatt, virðisauka-
skatt, skemmtanaskatt, stríðs-
gróðaskatt, matarskatt, bolatoll,
handboltahallarskatt, og margt,
margt fleira, allt sem nöfnum tjá-
ir að nefna og meira en það.
Gróandi líf
Þetta myndi vitanlega örva
mjög gróandi þjóðlíf á skerinu og
ýta því áfram eftir gamalkunnum
brautum: til þess að standa
straum af síhækkandi matarverði
myndu launþegar standa í harðri
kjarabaráttu og uppskera laun
sem sjávarútvegurinn gæti ekki
staðið undir, þannig að athafna-
mennirnir heimtuðu gengisfell-
ingar og fengju þær, og þá hækk-
aði matarverðið ennþá meir og
þannig koll af kolli í stanslausri
og kannske sífellt hraðari hring-
rás uns lúðurhljómurinn gylli við
og styngi menn í hlustirnar. í
þessu gósenlandi matvælainn-
flutningsins er þó eitt vandamál,
sem menn hafa dálítið reynt að
leiða hjá sér: þegar allur land-
búnaður leggst niður og enginn
grundvöllur er lengur fyrir neinu
mannlífi í sveitum landsins, hvað
á þá að gera við allt sveitafólkið
og búsmalann?
Lausnina hafa menn getað les-
ið á síðum blaðanna í sumar, þótt
menn hafi kannske ekki veitt
henni eftirtekt. Fyrir nokkru fóru
menn sem sé að velta því fyrir sér
með talsverðu brambolti, hvað
ætti að gera við Viðey, og sneru
þeir málinu fyrir sér á alla kanta.
En ekki þarf nema sæmilega víð-
sýni til að svarið liggi í augum
uppi: þangað má einfaldlega
flytja sveitafólkið eins og það
leggur sig, þegar landbúnaðurinn
er hruninn, og koma því þar fyrir
í stöðluðum einingahúsum við
götur sem skerast í réttum horn-
um. En hvers vegna Viðey, kynni
nú einhver að spyrja. Vegna þess
hve samgöngumálin eru einföld:
það má sem sé leggja eina góða
vindubrú yfir Viðeyjarsund og út
í eyna, og hafa svo takka í
dómsmálaráðuneytinu, sem ekki
þyrfti annað en ýta á svo brúin
lyftist upp. Þetta væri einkar hag-
kvæmt ef einhverjum hinna ný-
bökuðu eyjarskeggja skyldi nú
detta í hug að mótmæla innflutn-
ingnum með því að ryðjast út í
skipin dulbúnir í fornum litklæð-
um og grýta farminum í sjóinn,
eins og dæmi eru til úr
mannkynssögunni og hafa víst
þótt til fyrirmyndar.
Kúabjörg á
norðurslóðum
En hvað á þá að gera við
búsmalann? Það liggur beint við
að slátra sauðfénu og ala eyja-
skeggja á því, svo að það kinda-
kjöt sé ekki að þvælast fyrir á
markaðnum ogkeppa við af«rð-
irnar fráNýja-Sjálandi. En fleiri
ferfætlingar trítla í sveitum lands-
ins en sauðkindin ein, og þá erum
við komin aftur út á Ganges í sól-
arupprás í aprfl, meðan kertið í
laufblaðsbátnum vaggar rólega í
öldugjálfrinu frá kænunni. í ferð-
um mínum á þessum slóðum
komst ég nefnilega að því að
hindúar eru sárreiðir yfir því
hvernig búið er að kúm á vestur-
löndum. Þeir geta ekki orða
bundist yfir þeirri skelfilegu villi-
mennsku sem vanþróaðir vestur-
landabúar sýna í samskiptum sín-
um við þessi ginnhelgu klaufdýr,
og það sem meira er: háværar
raddir heyrast um að rétt væri að
hindúar legðu eitthvað af mörk-
um, einhverja þróunarhjálp, til
að stuðla að því að leysa þetta
alvarlega þjóðfélagsvandamál í
Evrópu, t.d. með því að flytja
evrópskar kýr á sérstakar stofn-
anir á Indlandi, sem væru sér-
hæfðar til að taka á móti aldur-
hnignum kúm, eða þá veita ríku-
lega aðstoð til að koma upp slík-
um stofnunum á vesturlöndum.
Hér er tækifærið: þegar sveita-
menn eru loksins komnir út í Við-
ey, allir eins og þeir leggja sig,
mætti bjóða góðhjörtuðum Ind-
verjum að flytja íslenska kúa-
stofninn á elliheimili á bökkum
Ganges, að sjálfsögðu gegn því
að þeir sæju um kostnað á flutn-
ingi með íslenskum skipum eða
flugvélum (það er aldrei að vita)
og greiddu útflutningsgjöld,
hafnargjöld, aðstöðugjöld og allt
það fyrir hverja kú, og jafnvel
smákaupverð líka. Þarsem þessir
Indverjar, sem eru svo langt
komnir í félagsmálum, fá heil-
mikla þróunarhjálp frá vestur-
löndum, er ekki nema sanngjarnt
að við fáum okkar skerf af þessu
manna. En ef Indverjar eru tregir
til að koma ellimæddum íslensk-
um kúm til bjargar, mætti sem
auðveldast gera sjónvarpsmynd
um illa meðferð kúa á skerinu til
að ýta við samviskunni, - „Kúa-
björg á norðurslóðum" gæti hún
heitið. Með því fengjust þeir
jafnvel til að veita ríkulega fjár-
styrki til að starfrækja þessi elli-
heimili á skerinu, viðkomandi
bæjarfélögum til mikillar efling-
ar. Þannig er hægt að leysa
vandamál landbúnaðarins í eitt
skipti fyrir öll, og sannast þá það
sem oft hefur verið sagt, að
lausnin er fólgin í austrænni
speki. e.m.j.
Föstudagur 13. október 1989 NYTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 11