Þjóðviljinn - 13.10.1989, Qupperneq 16
N
Viö Hátún í Reykjavík er
miðstöð Öryrkjabandalags-
ins: þrjú myndarleg háhýsi
með tengibyggingu og í
brekkunni undir Lauga-
veginum eru verkstæði Múla-
lundar, sem er verndaður
vinnustaður fatlaðra. Neðar í
Hátúninu er svo stórhýsi
Sjálfsbjargar, þar sem fatlaðir
búa einnig. I húsnæði Ör-
yrkjabandalagsins er hvers
konar þjónusta innan seiling-
ar, starfsþjálfun fatlaðra,
verndaður vinnustaður, versl-
un, setustofur og skrifstofur
Öryrkjabandalagsins. Þar
hittum við Ásgerði Ingimars-
dóttur framkvæmdastjóra Ör-
yrkjabandalagsins í tilefni
þess að í dag, föstudag, efna
Öryrkjabandalagið og lands-
samtökin Þroskahjálp til Dags
fatlaðra á íslandi.
Asgerður, þegar þessi aðstaða
fatlaðra sem hér hefur verið
byggð upp erskoðuð blasir við að
hér hefur verið hugsað stórt.
Hvað gerði þetta framtak mögu-
legt?
Jú, það er satt, ég hef fylgst
með þessum húsum vaxa upp síð-
astliðin 20 ár, og eftir á að hyggja
skilur maður varla hvernig þetta
hefur verið hægt. En bjartsýni
Odds Ólafssonar læknis á
Reykjalundi og fyrrverandi al-
þingismanns skipti miklu máli og
svo Lögin um málefni fatlaðra frá
1983, en með þeim var Fram-
kvæmdasjóður fatlaðra stofnað-
ur. Síðustu árin hefur svo hlutur
okkar í Lottóinu valdið byltingu í
starfsemi Öryrkjabandalagsins.
Hér í Hátúninu eru nú 209 íbúðir
fyrir fatlaða auk sjúkrapláss á
vegum Öldrunardeildar Land-
spítalans. Við höfum einnig 41
íbúð fyrir fatlaða í Kópavogi, og
eftir að við komumst í Lottóið
höfum við keypt 50-60 eignir úti í
bæ. Þrátt fyrir þessar miklu fram-
kvæmdir eru ennþá um 300 fatl-
aðir einstaklingar á biðlista hjá
okkur eftir vernduðu húsnæði.
Þar fyrir utan eru svo um 100 fjöl-
fatlaðir einstaklingar á biðlista
eftir að komast í sambýli, sem
veitt geta stöðuga hjúkrun og
umönnun. Uppbygging sambýla
hefur verið á vegum Fram-
kvæmdasjóðs fatlaðra, en hann
hefur því miður ekki fengið þá
tekjustofna sem lögin um málefni
fatlaðra gerðu ráð fyrir.
Nú má segja að hérsé risið lítið
þorp í miðri borginnifyrir fatlaða
einstaklinga. Er æskilegt að
þjappa þessu svona saman?
Þetta hefur verið umdeilt, og
má segja að umræðan sé nú kom-
in í hring. Á tímabili var talað um
að æskilegra væri að byggja þetta
í minni einingum, en nú sjá menn
fram á kosti þess að geta veitt
fjölbreytta þjónustu á sama stað.
Við teljum mikilvægt að geta
boðið upp á báða kostina, en
reynslan sýnir að flestir vilja
koma hingað, þar sem öll þjón-
ustan er við höndina.
Ásgerður Ingimarsdóttir framkvæmdastjóri Öryrkjabandalagsins. Ljósm. Jim Smart.
Húsnæðismál
fatlaðra
Hvaða þýðingu hefur Lottóið
haft fyrir Óryrkjabandalagið?
Það olli nánast byltingu í allri
okkar starfsemi. Fyrst og fremst
höfum við getað keypt húsnæði
fyrir fatlaða úti í bæ, og í öðru lagi
hefur þetta orðið lyftistöng fyrir
alla félagsstarfsemi okkar. Átta-
tíu prósent Lottópeninganna fara
í húsakaup, tuttugu prósent
renna til félagsstarfsemi. Þar höf-
um við m.a. ráðist í að gefa út
fréttabréf og svo höfum við ráðist
í gerð fræðsluefnis um málefni
fatlaðra eins og t.d. sjónvarps-
þættina „Haltur ríður hrossi“,
sem var samstarfsverkefni okkar
og Þroskahjálpar.
Hvað sœkja fatlaðir hingað
Að muna eftir
náunganum
Um 300 fatlaðir íslendingar eru enn á biðlista eftir vernduðu hús-
næði, segir Asgerður Ingimarsdóttir framkvæmdastjóri Öryrkja-
bandalagsins í samtali í tilefni Dags fatlaðra á íslandi, sem er í dag
umfram það sem þeim býðst á al-
mennum húsnœðismarkaði?
í fyrsta lagi þá er húsaleigan
hér undir markaðsverði: hún er
miðuð við örorkubætur og tekj-
utryggingu öryrkja, sem geta
hæst orðið 40-41 þúsund krónur
um þessar mundir. Slíkar tekjur
rísa ekki undir húsaleigu á al-
mennum markaði. í öðru lagi er
engum sagt upp húsnæði hér, hafi
hann ekki brotið af sér. Fólk býr
því hér við öryggi sem ekki gefst
annars staðar. I þriðja lagi er hér
boðið upp á margvíslega þjón-
ustu, sem er hinum fötluðu nauð-
syn.
Hvernig er ástatt í atvinnumál-
um fatlaðra um þessar mundir?
Atvinnumál fatlaðra standa nú
ver en oft áður. Sá samdráttur
sem orðið hefur í atvinnulífinu
hefur bitnað harðar á fötluðum
en öðrum þjóðfélagshópum, og
nú er orðið nokkuð um það að
fólk sem var orðið útskrifað af
vernduðum vinnustöðum og
komið út á almennan vinnumark-
að, snúi til okkar aftur. Þörfin
fyrir verndaða vinnustaði hefur
því aukist. Sérstaklega er það
fólk með geðræn vandamál sem
átt hefur undir högg að sækja á
almennum vinnumarkaði. Þessi
hópur er jafnframt stærsti hópur-
inn af fötluðum, og af þeim 300
sem nú eru á biðlista hjá okkur
eftir húsnæði tilheyrir um þriðj-
ungur þessum hópi.
Hvað eru margir einstaklingar
á ykkar vegum?
Á vegum Öryrkjabandalagsins
og Landssamtakanna Þroska-
hjálpar eru nú 15-20 þúsund ein-
staklingar. Þetta er fólk á öllum
aldri, og aldursdreifingin er trú-
lega ekki ólík því sem gerist í
þjóðfélaginu í heild. Samstarf
Öryrkjabandalagsins og Þroska-
hjálpar hefur farið vaxandi á síð-
ustu árum, en Þroskahjálp sinnir
fyrst og fremst einstaklingum
sem búa við andlega fötlun.
Dagur fatlaðra
Pessi samtök standa sameigin-
lega að Degi fatlaðra á íslandi.
Hver er tilgangur hans?
Við viljum vekja athygli al-
mennings og stjórnvalda á mál-
efnum fatlaðra. Því þótt margt
hafi áunnist, þá er margt ógert.
Viðhorf almennings til fatlaðra
hafa tekið breytingum á þeim 20
árum, sem ég hef starfað að þess-
um málum. Það er ekki síst fötl-
uðum sjálfum að þakka. Þeir
hafa komið fram, kynnt sín mál
og breytt almenningsálitinu. Þó
er enn margt óunnið í þeim efn-
um, einkum hvað varðar afstöðu-
na til þeirra sem búa við geðræn
vandamál. En við íslendingar
látum okkur ennþá varða hvort
annað, og ég vona að svo verði
áfram, að við gleymum ekki
náunganum.
Hvað verður gert á Degi fatl-
aðra?
Við munum hittast á
Hlemmtorgi í Reykjavík kl. 16,
og fara í fjöldagöngu niður á
Austurvöll. Allir sem vilja sýna
fötluðum samstöðu eru boðnir í
þessa göngu. Á Austurvelli ætl-
um við að afhenda forsætisráð-
herra eða staðgengli hans álykt-
un, og þar verða flutt stutt ávörp
formanna samtakanna. Formað-
ur BSRB mun einnig tala fyrir
hönd samtaka launamanna, og
þá verður einnig flutt ávarp um
kröfur fatlaðra. Þetta verður
stutt athöfn, en við hvetjum sem
flesta til þess að sýna samstöðu og
mæta.
Á laugardag munu samtökin
svo gangast fyrir fundi þar sem
sérstaklega verður fjallað um
réttargæslu og siðfræði í málefn-
um fatlaðra annars vegar, og svo
húsnæðismálin sem eru stöðugt
viðfangsefni. Samtökin munu svo
halda aðalfundi sína, sitt í hvoru
lagi, á sunnudag.
Þjóðviljinn hvetur lesendur
sína til þess að sýna fötluðum
samstöðu með því að mæta í
fjöldagönguna frá Hlemmtorgi í
dag kl. 16.
-ólg.
16 SÍÐA — NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 13. október 1989
r