Þjóðviljinn - 10.11.1989, Blaðsíða 26
gríms. Helgar, þri og fi 13:30-16 fram í
feb.1990.
Slunkaríki, fsafirði, Guðbjartur
Gunnarsson, grafískar myndir. Til
19.11.
Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8
Hf. Opið helgar 14-18, e/eftir
samkomulagi.
Hvað á að gera um helgina?
Friðrik Sophusson
alþingismaður
„Það er nú það, ég er ekki alveg viss. Jú, á föstudagskvöldið ætla ég í
leikhús og síðan fer ég á sjávarútvegsráðstefnu og í eitt afmæli", sagði
Friðrik. Að öðru leyti ætlaði hann að taka það rólega og svo ætlaði
hann auðvitað að lesa Moggann sinn.
Ásmundarsalur v/ Freyjugötu, Aðal-
heiður Valgeirsdóttir, grafík- og
þurrkrítarmyndir. Til 12.11.14-20
daglega.
FÍM-salurlnn, Bautasteinar, málverk
eftir Ingibjörgu Eyþórsdóttur, opn. í
kvöld kl. 20. Til 28.11.13-18 virka
daga, 14-18 helgar.
Gallerí Borg, Þórður Hall, teikningar.
Til 14.11.10-18 virkadaga, 14-18
helgar.
Gallerí 11, SigríðurÁsgeirsdóttir,
málverk. Til 16.11.14-18 daglega.
Gallerí Madeira, Evrópuferðum,
Klapparstíg 25, Björgvin Pálsson,
Ijósmyndastækkanir. Til 24.11. virka
daga 8:30-18.
Gallerí Sævars Karls, Bankastræti
9, Árni Páll, myndlist. Til 24.11.9-18
virka daga.
Hafnarborg, Strandg. 34 Hf, 14-19
alla daga nema þri. verk í eigu
safnsins.
Helgl Jónsson sýnir vatnslitamyndir
á göngum Landspítalans til 11.11.
Hestsháls 2-4, kynning FlM-salarins
og húsg.versl. KristjánsSiggeirs-
sonar á verrkum Bjargar Örvar. Til
nóvemberloka.
Korpúlfsstaðlr, myndhöggvarafé-
lagið sýnir. Opið 13-18 lau og su.
Kjarvalsstaðir, opið daglega 11 -22.
Til 12.11. Syeinn Björnsson, mál-
verk, verkeftir An/id Pettersen,
Kristín fsleifsdóttir, verk unnin í leir.
Llstasaf n ASÍ, Veturliði Gunnars-
son, krítarmyndir. Til 19.11.16-20
virka daga, 14-20 helgar.
Llstasafn Einars Jónssonar opið
helgar 13.30-16, höggmyndagarður-
innalladaga 11-17.
Llstasafn Slgurjóns, járnmyndir
Sigurjóns og gjafir sem safninu hafa
borist undanfarin ár. Lau og su 14-17,
pri 20-22.
Norræna húsið, kjallari: fslensk
graf ík 89,20 ára afmælissýning fé-
lagsins.Til 19.11.14-19daglega.
Nýhöfn, Hafnarstræti 18, Valgerður
Bergsdóttir, blýteikningar. Til 15.11.
10-18virkadaga, 14-18helgar.
Rlddarlnn, Hafnarfirði, Við búðar-
borðið, sýn. tengd verslun fyrri tíma, á
vegum Byggðasafns Hf.
Safn Ásgríms Jónssonar, Berg-
staðastræti, ÞingvallamyndirÁs-
Þjóðmlnjasafnlð, opið þri, fi, lau og
su 11 -16. Bogasalur: Ljósmyndin
150 ára- Saga Ijósmyndunar á fs-
landi. Til nóvemberloka, aðgangur
ókeypis.
TÓNLISTIN
Ljóðatónlelkar, Sigríður Ella Magn-
úsdóttir messosópran og Geoffrey
Parsons píanóleikari halda tónleika í
fslensku óperunni su kl. 15. Á efn-
isskránni íslensk og erlend Ijóð, m.a.
eftir Haydn, Schubert, Delius, Sibe-
lius, Sigvalda Kaldalóns og Árna
Thorsteinsson. Aðgöngumiðar seldir
ÍÓperunni.
Geoffrey Parsons píanóleikari verð-
ur með „Master class" fyrir nokkra
söngvara og undirleikara þeirra í sal
Tónlistarskólans í Reykiavík, Skip-
holti 33, mán kl. 20:30. öllum frjáls
aðgangur til áheyrnar á meðan hús-
rúm leyfir, vægur aðgangseyrir.
Tónlistardagar Dómkirkjunnar
Tónl. íDómk. lau. kl. 17; á efnissk-
ránni verk e/J.S. Bach, HjálmarH.
Ragnarsson, Jón Nordal, Wolf o.fl.
Sunnud. kl. 17 2 ný verk e/Jónas
Tómasson, auk tónsm. e/Buxtehude,
Wolf, Corelli og Bach. Flytjendur
Dómkórinn, stjórn Marteinn H. Frið-
riksson, su. einsöngur Margrét Bóas-
dóttir, einleikur á horn Joseph Ogni-
bene, á orgel Árni Arinbjarnarson.
Barnakór Kársnesskóla flytur nýtt
verk e/Guðmund Hafsteinsson við
messu su.kl. 11.
LEIKLISTIN
Alþýðuleikhúsið, Iðnó, fsaðargell-
ur, aukasýn. su kl. 16.
Frú Emllfa, Skeifunni 3 c, Djöflar,
mán. 20:30, sýningum ferfækkandi.
Haust með Gorkí: Idjúpinu (Náttból-
iðjlauogsukl. 15.
Leikfélag Akureyrar, Hús Bernörðu
Alba,íkvöldoglau 20:30.
Leikfélagið Allt milli himins og jarðar,
Verslunarskólanum, Ofanleiti 1,
Láttu ekki deigan síga Guðmundur,
su og mán kl. 20:30.
Leikfélag Hafnarfjarðar, Leitin að
týnda brandaranum, í kvöld og su kl.
20:30.
Leikfélag Keflavíkur, Félagsbíói,
Grettir, frums. í kvöld kl. 21, lau og su
kl. 21.
Leikfélag Reykjavíkur, Ljós
heimsins, litla sviðinu í kvöld, lau og
su kl. 20. Höll sumarlandsins, stóra
sviðinu i kvöld lau og su kl. 20.
Lltli Leikklúbburinn, ísafirði, Fé-
lagsheimilinu í Hnífsdal, þrír ærsla-
leikir: 15 mínútna Hamlet, Krimmi og
Hórkarlinn, frums. lau kl. 21, su kl. 21.
Nemendaleikhúsið, Lindarbæ,
Grímuleikur, í kvöld, lau og su 20:30.
Pars prototo, Iðnó, Fjögurdans-
verk, í kvöld og lau 20:30.
Þjóðlelkhúslð, Lítið fjölskyldufyrir-
tæki, frums. í kvöld kl. 20, lau og su kl.
20.
ÍÞRÓTTIR
Handbolti. 1 .d.ka. KA-lBVfös. kl.
20.30, Stjarnan-FH, fR-KR, Grótta-
HKIau.kl. 16.30.1 .d.kv. FH-Víkingur
fös. kl. 19.00, Stjarnan-Haukar,
Grótta-Valurlau. kl. 15.00.2.d.ka.
UMFN-UBK fös. kl. 18.00, Valur b-
FH b sun. kl. 14.00.2.d.kv. ÍBK-Þór
fös. kl. 20.00, UMFA-ÍBV kl. 20.15,
ÍR-fBV lau. kl. 13.30, Selfoss-Þór kl.
14.00.3.d.ka.
Pílukast. Forkeppni karla og kvenna
fyrir úrslitakeppni ísl. móts sem fram
fer 18. nóv. Forkeppni bæði lau. og
sun. í Sportklúbbnum, Borgartúni.
HITT OG ÞETTA
Kvikmyndasýning MÍR, Vatnsstíg
10 su kl. 16: Lifi Mexíkó, mynd byggð
á hugmyndum og myndefni sem
Eisenstein, Edvard Tisse og Grígorí
Alexandrov söf nuðu á ferð sinni til
Mexíkó árið 1932. Myndin sækir efni í
sögu Mexíkó. Skýringaráensku, að-
gangur ókeypis og öllum heimill.
Kvikmy ndasýningar fyrir börn í Nor-
ræna húsinu su kl. 15. Tvær danskar
myndir: Ævintýrið um kartöfluna stór-
kostlegu, teiknimynd. Næturriddari
eftir Svend Johansen, mynd um 12
ára telpu, sem dreymir um hesta í
vöku og svefni, hauslausan reið-
mann o.fl. Aðgangur ókeypis fyrir
börn og fullorðna.
Félag íslenskra fræða boðar til mál-
þings í Norræna húsinu á morgun.
Fjallað verður um hlutverk nokkurra
rannsóknarstofnana á sviði íslenskra
fræða. Gísli Sigurðsson setur þingið
9:15,9:30 Sagnfræðistofnun: Ingi
Sigurðsson og Eggert Þór Bern-
harðsson. 10:15Bókm.fr.stofn:Da-
víð Erlingsson og Páll Valsson. 11
Þjóðm.safn: ÞórMagnússon, Inga
Lára Baldvinsdóttir. 13:15Stofn.
Árna Magn. Jónas Kristjánsson, Örn-
ólfurThorsson, 14 Þjóðskjalasafn:
Ólafur Ásgeirsson og Magnús Guð-
mundsson, 14:45 Orðabók H.í. Jón
Aðalsteinn Jónsson, Sigurður Jóns-
son. 16 pallborðsumræður undir
stjórn Árna Sigurjónssonar. Þingið er
öllum opið meðan húsrúm leyfir.
Trésmiðafélag Reykjavíkur boðar
til málþings að Suðurlandsbraut 30
lau kl. 12:30-18, undiryfirskriftinni
Verkalýðshreyfing á nýrri öld. Erindi
flytjaÁsmundurStefánsson, Guð-
mundur J. Guðmundsson, Sigurður
Líndal, Svanhildur Kaaber, Víglundur
Þorsteinsson, Vilborg Þorsteinsdóttir
og ögmundur Jónasson. Stefán Jón
Hafstein stýrir pallborði. Þingið er
opið öllu áhugafólki um málefni
launafólks og stéttarsamtakanna
meðan húsrúm leyfir.
Ráðstefna um kvótamálin á vegum
Sjávarstofn. H.í. verður í Norræna
húsir.u mán kl. 13-18.
Nesklrkja, dr. Hjalti Hugason lektor
flytur erindi um trúarlíf (slendinga
áður fyrr í saf naðarheimili Neskirkju
su kl. 15:15. Guðsþjónustuhald í
kirkjum. Veitingar, öllum heimill að-
gangur.
Félag eldri borgara í Reykjavík og
nágrenni, Göngu Hrólfur hittist á
morgun kl. 11 að Nóatúni 17, opið
hús I Goðheimum, Sigtúni 3 su kl. 14.
Frjálst, spil og tafl, dansað frá kl. 20.
Ferðafélag íslands, dagsferð kl. 13
su, Mosfell, létt gönguferð. Brottför
fráBSÍ.
Hana nú leggur upp í laugardags-
gönguna frá Digranesvegi 12 kl. 10.
Nýlagað molakaffi.
Útlvist, dagsferð su kl. 13: Reykja-
borg - Æsustaðafjall. Kvöldferð mán
kl. 20: Tunglskinsganga og fjörubál á
Álftanesi. Brottförfrá BS(.
Hljómsveitln Loðin rotta leikur á efri
hæð Hollywood um helgina.
íþróttafélag fatlaðra, Boccíanefndin
heldur kökubasar í Blómavali v/ Síg-
tún su kl. 14.Tekiðámótikökumfrá
kl. 11.
Verkakvennafélagið Framsókn
heldur árlegan basar lau kl. 14 að
Skipholti 50 a. Allir munir vel þegnir,
kökur alltaf vinsælar.
FJÖLMIÐLAR
ÞROSTUR
HARALDSSON
Enn um ríkisstyrki til dagblaða
Eins og ég lofaði síðasta föstu-
dag ætla ég að fjalla nokkuð um
ríkisstyrki til íslenskra dagblaða.
Jón Daníelsson hefur í Alþýðu-
blaðinu gert fróðlega úttekt á
þessum styrkjum og leitt þar í ljós
að þeir eru fleiri og margvíslegri
en þessi beini sem rennur um
hendur þingflokka og hefur haft
tilhneigingu til að staðnæmast
þar. Niðurstaða Jóns var sú að
stærstu þiggjendur ríkisstyrkja
væru risamir tveir, Morgunblað-
ið og DV, og næmu sporslurnar
til þeirra hundruðum miljóna,
einkum f formi niðurfellingar á
söluskatti, aðflutningsgjöldum
og fleiri gjöldum sem venjuleg at-
vinnufyrirtæki þurfa að greiða.
Það er óneitanlega broslegt að
þegar helsti fjandmaður ríkis-
styrkja til dagblaða, Guðmundur
Magnússon, svarar þessum skrif-
um Jóns þá þegir hann vel og
vandlega um þessa óbeinu styrki.
Er maður þó vanur að heyra þá
röksemd frá þeim bræðrum í
Hayek-söfnuðinum að ekkert sé
ókeypis í þessari tilveru og að ef
ég borga ekki skattinn þá geri það
bara einhver annar. Samkvæmt
þeirri trúarsetningu hefur ríkið
um langan aldur greitt Morgun-
blaðinu og DV styrki sem gera
miklu meira en að nægja fyrir
arðinum sem hluthafar fá útborg-
aðan.
í Noregi og Svíþjóð hafa menn
langa reynslu af ríkisstyrkjum til
dagblaða en með allt öðrum hætti
en hér. Þar dettur engum í hug að
nota þingmenn sem milliliði,
styrkjum til þingflokka er haldið
vendilega aðskiidum frá blaða-
styrkjunum. Enda allsendis
óskylt mál.
í Svíþjóð námu styrkir hins op-
inbera til dagblaða hvorki meira
né minna en liðlega 4,4 miljörð-
um íslenskra króna á núvirði
fjárlagaárið 1986-7. Það samsvar-
aði um 5% af heildarkostnaði við
útgáfu sænskra dagblaða. Styrk-
urinn var þó alls ekki látinn ganga
jafnt yfir alla eins og hér er gert
heldur nutu hans eingöngu þau
blöð sem áttu í rekstrarerfið-
leikum eða stóðu í fjárfrekum
breytingum á tæknibúnaði eða
byggingum. Nam styrkurinn 20-
30% af útgáfukostnaði þeirra
blaða sem nutu hans.
Styrkurinn í Svíþjóð er þrenns
konar. Blöð sem eiga í erfið-
leikum geta fengið svonefndan
framleiðslustyrk, útgefendur
geta fengið styrk til að stofna ný
blöð og loks er veittur svonefnd-
ur þróunarstyrkur til fyrirtækja
sem standa í fjárfestingum. Slík-
an styrk ættum við hér á Þjóðvilj-
anum að geta fengið til að borga
nýju tölvurnar sem við erum að
fá. Til viðbótar styrkjunum er
rekinn sérstakur lánasjóður fyrir
blöðin sem virkar eins og hver
annar iðnlánasjóður.
Það er hins vegar meginregla í
Svíþjóð að þar fá engir ríkisstyrki
til atvinnurekstrar nema þeir geti
sýnt fram á að fýrirtæki þeirra
þurfi raunverulega á honum að
halda. Einnig þurfa eigendur að
sýna hvemig þeir ætla að beita
styrknum til eflingar fyrirtækis-
ins. Þar gæti það seint orðið að
blað fengi miljónasummur úr rík-
issjóði til að greiða hluthöfum
arð eins og gerist hér á landi.
í Noregi er svipaður háttur
hafður á nema hvað þar virðist
eftirlitið með rekstrarstöðu
blaðanna eitthvað hafa farið úr
böndunum í ár. Þar vakti það
mikla athygli að af 1.350 miljón-
um íslenskra króna sem veittar
eru í styrki til blaðanna á þessu
ári þáði blaðið Dagens
Næringsliv sem er dagblað fyrir
viðskiptalífið liðlega 100 miljónir
þrátt fyrir að blaðið hefði greitt
hluthöfum arð í fyrra. Er nú rætt
um að breyta úthlutunarreglum
og herða eftirlitið með bókhaldi
þeirra blaða sem sækja um styrk-
inn.
Rétt eins og hér halda norskir
hægrimenn þeirri röksemd á lofti
að styrkir af þessu tagi eigi engan
rétt á sér, blöð eigi að standa sig á
markaðnum eins og önnur fyrir-
tæki og ekki rétt að styrkja skuss-
ana frekar en þá sem bjarga sér. í
Noregi og Svíþjóð eru menn hins
vegar almennt sammála um að
ríkisstyrkir til dagblaða (raunar
fá tímarit í Svíþjóð einnig styrki
en það er önnur saga) séu ein af
forsendum þess að hægt sé að tala
um raunverulegt tjáningar- og
prentfrelsi. Markaðsöflin hafa
aldrei þótt sérstaklega hliðholl
þeim sem boða nýjar hugmyndir
eða vilja veita þeim sem ráða að-
hald. Þess vegna þarf að leiðrétta
þau.
Flatur ríkisstyrkur eins og hér
er veittur í formi niðurfellingar
viðheldur hins vegar ranglæti
markaðarins. Og þegar ríkið hag-
ar auglýsingapólitík sinni þannig
að þeir stóru hagnast á henni á
kostnað hinna smærri er það
beinlínis að auka ranglætið,
skerða tjáningarfrelsið í landinu.
Það er nefnilega þannig, hvað
svo sem þeir Hayek-bræður
segja, að markaðsöflunum er
skítsama um tjáningarfrelsið eða
frelsið yfirleitt. Oftar en ekki er
það heldur til trafala og ruglar
hagkvæmnisútreikningana.
26 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 10. nóvember 1989