Þjóðviljinn - 30.12.1989, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 30.12.1989, Qupperneq 3
Aramótabretinur á höfuðborgar- svæðinu Hápunktur gamárskvölds hjá mörgum er að fara á brennu og horfa á gamla árið brenna upp við undirspil púðurkerlinga og flug- elda. Hér áður fyrr var brenna í hverju hverfi en þeim hefur fækk- að undanfarin ár. í staðinn eru hlaðnir fáir stærri kestir og hafa bæjaryfirvöld iðulega hönd í bagga með það. Hér á eftir verða taldar upp helstu áramótabrenn- urnar á höfuðborgarsvæðinu. Reykjavík Ægissíða/ Faxa- skjól. íþróttasvæði Fjölnis Graf- arvogi. Upp af Leirubakka í Breiðholti. Á sjávarkambi neðan Fossvogskirkjugarðs. Við Skild- inganes. Seltjarnanes Á Valhúsa- hæð. Kópavogur Á Kársnesi. í gryfjunum við Smárahvamm. í Vatnsendalandi. Garðabær Við Bæjarbraut. Á Vífilstaðatúninu. Á Árnarnesi (að öllum líkindum) Álftanes í Gesthússlandi. Hafn- arfjörður Sunnan Þorlákstúns, syðst í bænum. Undir Ásfjalli. Vestan Heiðvangs, rétt hjá Hrafnistu. Svartur nætur- himininn sprakk út Það er tilkomumikið að horfa til himins á miðnætti hver áramót og sjá hvernig svart hvolfið springur út í litglöðum töfraljós- um. Þessi friðsama þjóð verður skyndilega svo skotóð að engu er líkara en hún ætli í eitt skipti fyrir öll að sprengja burt allt það sem hún hefur bælt hið innra með sér aUt liðið ár. Það mun láta nærri að um 100 tonn af flugeldum fuðri upp um hver áramót og þær eru ófáar miljónimar sem ýlfrandi rakett- urnar þjóta með út í himinhvolf- ið. Við getum þó huggað okkur við að ágóðinn af sölunni rennur að stærstum hluta til góðra mál- efna. Hjálparsveitir, björgunar- sveitir, slysavarnafélög og íþrótt- afélög njóta góðs af skotgleðinni, því þessir aðilar selja tundrið. Yf- irleitt er hægt að kaupa misstóra pakka af sprengiefninu og er verðið á pökkunum á bilinu eitt þúsund krónur þeir minnstu og ódýrustu upp í rúmar 5000 krón- ur. Meðal fjölskyldupakki kostar frá tvö til þrjú þúsund krónur. í þessum pökkum kennir margra púðurgrasa, blys, stjömuljós, rakettur og ýmsar aðrar púður- kerlingar. Einnig er hægt að kaupa einstaka flugelda, blys eða stjörnuljós sér. Rétt er að minna á að flugeldar og annað tundur er ekki fyrir börn að leika sér að. Þetta em hættuleg leikföng og því rétt að sýna fyllstu gætni við meðferð þeirra og ættu menn að sleppa því að skjóta hafi þeir fengið sér neð- aníðí. Biskupinn Beðið fyrir Rúmenum Uíanríkisráðherra lýsiryfirstuðningi við Pjóðfrelsis- ráðið í Rúmeníu Biskupinn hefur hvatt presta og söfnuði til þess að minnast rúmensku þjóðarinnar við guðs- þjónustur um áramótin. í fréttatilkynningu frá Biskups- stofu segir að þjáning rúmensku þjóðarinnar og hetjuleg barátta fýrir frelsi og mannréttindum sé mikið bænarefni öllum kristnum mönnum, ekki síst nú er upp- byggingarstarfið er hafið og unn- ið er að því að koma á lýðræði og réttlæti í landinu. Þá segir að biskupinn hafi leitað eftir því við utanríkisráðu- neytið að það geri sitt fyrir hönd íslensku þjóðarinnar til að styðja baráttu rúmensku þjóðarinnar á þessum örlagatímum í sögu henn- ar. í gær barst svo fréttatilkynning frá utanríkisráðuneytinu þar sem Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra lýsir ánægju sinni með myndun Þjóðfrelsisráðsins í Rúmeníu og með fyrirheit ráðs- ins um að efna til lýðræðislegra og frjálsra kosninga í Rúmeníu í apríl nk. „Utanríkisráðherra óskar hinni nýju stjórn í Rúmeníu góðs gengis í viðleitni hennar til að tryggja frið og stöðugleika í landinu. íslensk stjórnvöld fullvissa hina nýju stjórn enn- fremur um fullan samstarfsvilja þeirra í þessu efni,“ segir orðrétt í tilkynningunni. Utannkisráðherra fól í gær sendiráði íslands í Moskvu, sem jafnframt er sendiráð gagnvart Rúmeníu, að koma þessum skila- boðum á framfæri við rúmensk stjórnvöld. -Sáf GA Hinn 1. janúar 1990 taka gildi sem kunnugt er breytingar á skipulagi sjúkratrygginga innan almannatryggingakerfisins. Þá verða lögð niður öll 40 sjúkrasamlög landsins og starfsemi þeirra falin Tryggingastofnun rlkisins. Sýslumenn og bæjarfógetar munu frá 1. janúar 1990 taka að sér umboð sjúkratrygginga utan Reykjavlkur, eins og gilt hefur um aðra þætti almannatrygginga hingað til, en aðalskrifstofur Tryggingastofnunar rlkisins að Laugavegi 114 og Tryggvagötu 28 munu annast sjúkratryggingar Reykvlkinga. Miðað er við, að flestallar greiðslur, sem sjúkra- samlögin hafa annast fram að þessu, fari fram eftir breytinguna I viðkomandi umboðum Trygg- ingastofnunar rlkisins hjá bæjarfógetum og sýslumönnum eða I útibúum þeirra. Stefnt er að þvl, að innan tveggja ára geti almenningur fengið greiddar hvers kyns sjúkrabætur I hvaöa umboði sem er eða hjá aðalskrifstofunni I Reykjavlk. Þangað til verður þaö hins vegar meginreglan, að hver og einn haldi sig við það umboð (i Reykjavik aðalskrifstofu TryggingastofnunarJ þar sem hann á lögheimili. Séu hins vegar sérstakar ástæður fyrir hendi svo sem tlmabundin dvöl vegna atvinnu eða náms eða annars þess háttar, ér I lagi að skipta við annað umboð eða aðalskrif- stofu. Þetta gildir þó ekki um greiðsiur á sjúkra- dagpeningum eða ferðakostnaði innanlands, en þær verða fyrst um sinn eingöngu bundnar við afgreiðslustað þar sem viðkomandi á lögheimili. HVERT ÁTTU AÐ LEITA? IREYKJAVIK 1. Á skrifstofunni í Tryggvagötu 28 mun fólk sækja áfram alla þá þjónustu, sem það hefur hingað til sótt til Sjúkra- samlags Reykjavíkur nema afgreiðslu lyfjaskírteina og endurgreiðslu á erlendum sjúkrakostnaði, sem hvort tveggja verður á Laugavegi 114. í Tryggvagötu fer því fram eftirtalin afgreiösla til almennings: a) Endurgreiðsla tannlæknareikninga, sem ekki þarf að samþykkja sérstak- lega af hálfu Tryggingastofnunar. b) Afgreiðsla sjúkradagpeninga til Reykvíkinga. c) Greiðsla vegna endurkræfs læknis- hjálparkostnaðar. d) Greiðsla vegna endurkræfs sjúkra- flutningskostnaðar. e) Greiðsla á ferðakostnaði sjúklinga innanlands til Reykvíkinga. f) Útgáfa skírteina til örorku- og ellilíf- eyrisþega vegna 12 skipta hjá sérfraéðingum. g) Útgáfa réttindaskírteina sjúkra- trygginga. h) Val og skráning hjá heimilislæknum í Reykjavík. 2. Á Laugavegi 114 mun fólk sækja áfram þá þjónustu, sem það hefur hingað til sótt til sjúkratryggingadeildar Tryggingastofnunar ríkisins og auk þess afgreiðslu lyfjaskírteina og endur- greiðslu áerlendum sjúkrakostnaði. A Laugavegi fer því fram eftirtalin afgreiðsla til almennings: a) Afgreiðsla hjálpartækjaumsókna. b) Afgreiðsla tannlæknareikninga, sem þurfa sérstakt samþykki Trygginga- stofnunar til greiðslu. c) Útgáfa lyfjaskírteina. d) Greiðsla vegna læknismeðferðar erlendis. Þessi starfsemi verður eingöngu að Laugavegi 114 fyrir allt landið. Til að byrja með verða gömlu sjúkrasamlagsskírteinin látin halda gildi sinu þar til sérstök sjúkratryggingaskírteini leysa þau af hólmi. Þá skal áréttað, að framangreindar breytingar hafa engin áhrif á þjónustu lifeyris- og slysa- trygginga, sem verður því með óbreyttum hætti á sömu stöðum og verið hefur. UTAN REYKJAVIKUR í umboðum Tryggingastofnunar ríkisins hjá bæjarfógetum og sýslumönnum og mögulegum útibúum þeirra mun fólk sækja áfram alla þá þjónustu, sem það hefur hingað til sótt til síns sjúkra- samlags, þó ekki afhendingu lyfja- skírteina og endurgreiðslu á erlendum sjúkrakostnaði. Vegna húsnæðiseklu verða bæjarfógetar á nokkrum stöðum á landinu að nýta tímabundið húsnæði sjúkrasamlaganna fyrir þessa nýju starfsemi. Gildir þettaá Akranesi, Akureyri, í Hafnarfirði og Kópavogi fyrst um sinn. I umboðunum ferþví fram eftirtalin afgreiðsla til almennings: a) Endurgreiðsla tannlæknareikninga, sem ekki þarf að samþykkja sérstak- lega af hálfu Tryggingastofnunar. b) Afgreiðsla sjúkradagpeninga til sjúklinga með lögheimili á svæði umboðsins. c) Greiðsla vegna endurkræfs læknis- hjálparkostnaðar. d) Greiðsla vegna endurkræfs sjúkra- flutningskostnaðar. e) Greiðsla á ferðakostnaði sjúklinga innanlands til þeirra, sem eiga lögheimili ásvæði umboðsins. f) Útgáfa skírteina til örorku- og ellilíf- eyrisþega vegna 12 skipta hjá sérfræðingum. g) Útgáfa réttindaskírteina sjúkra- trygginga. h) Milliganga gagnvart aðalskrif- stofunni á Laugavegi 114 í Reykjavík vegna þeirrar starfsemi, sem eingöngu fer fram þar. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS Laugardagur 30. desember 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.