Þjóðviljinn - 30.12.1989, Síða 4

Þjóðviljinn - 30.12.1989, Síða 4
ISIENSKA AUClfSINCASTOFAN HF. 115 MILUONUM RÍKARI UM ÁRAMÓTIN Hvað er þér minnisstæðast á árinu Þórður Skúlason Lang- ferö á hestum „Persónulega er mér minnisstæð- ust langferð sem ég fór í sumar á hestum; austur yfir vötn og síðan fram Blöndudal og fram Eyvind- arstaðaheiði, yfir Blöndu og Hveravelli, norður Auðkúlu- heiði og Grímsstaðaheiði, Vatnsdalinn og heim. Að auki fór ég utan á árinu til Frakklands og Ítalíu,“ sagði Þórður Skúlason sveitarstjóri á Hvammstanga. Af innlendum atburðum er Þórði ofarlega í huga myndun nýrrar ríkisstjórnar á haustmán- uðum, hneyklismál varðandi brennivfnskaup en eftirminni- legast eru þó atvinnumálin og þróun þeirra á árinu. Þórður sagði að mikil umskipti hafi orðið til hins betra á árinu í þeim efnum og þá sérstaklega með stofnun Atvinnutryggingasjóðs og Hlut- afjársjóðs þó mörg vandamálin varðandi stöðu atvinnumála víðs vegar í landinu séu enn óleyst. Síðustu fréttir um íbúaþróun í landinu sagði Þórður vera ugg- vænlegar og yrðu þjóðinni dýr- keypt ef áfram heldur sem horfir að sífellt fleiri sækja suður á bóg- inn af landsbyggðinni. Af erlendum atburðum ársins vega þyngst að mati Þórðar þeir atburðir sem hafa verið og eru að gerast í ríkjum A-Evrópu og þá sérstaklega að valdhafarnir skuli hafa gefið völdin eftir svo til án átaka. Undantekningar á þessu eru Tékkóslóvakía en þó aðal- lega í Rúmeníu þar sem grimmd- in hefur verið alveg ótrúleg. Innrás Bandaríkjamanna í Pa- nama er einn af þeim atburðum sem minnisstæðir eru á árinu og sú ætlan þeirra að vera eins konar alheimslögregla þegar svo ber undir og sagði Þórður að svo virt- ist sem þeir hafi engu gleymt í þeim efnum. -grh Rétt einu sinni geta Kjörbókareigendur glaðst nú um áramótin. Þá leggst Kjarabót, sem er verðtryggingaruppbót, við allar innstæður sem staðið hafa óhreyfðar síðastliðna 6 mánuði. Kjarabótin er að þessu sinni 115 milljónir króna. Ársávöxtun Kjörbókar á árinu 1989 var því á bilinu 25,04 til 27,29%. Því má heldur ekki gleyma að innstæða Kjörbókar er algjörlega óbundin. Landsbanki Islands Banki allra landsmanna (UÓOVIUINN Tíminn r 68 13 33 r 68 18 66 r 68 63 00 Bladburdur er á BESTA TRIMMIÐ og borgar sigL BLAÐBERAR ÓSKAST Vantar blaðbera víðs vegar , J| i I um J bæinn (\F» Hafðu samband við okkur þlÓÐVILJINN Síðumúla 6 0 68 13 33 Hafirðu smakkað 11111 - láttu þér þá AIJDREI detta í hug að keyra! ilx FERÐAR

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.