Þjóðviljinn - 30.12.1989, Page 5
FRÉTTIR
Virðisaukaskattur
Allt klappað og klárt
Fjármálaráðuneytið gafútsíðustu reglugerðirnar ígær um endurgreiðslu afinnlendum matvœlum, greiðslufrest
við innflutning og endurgreiðslur til húsbyggjenda
Fjármálaráðneytið gaf út síð-
ustu þrjár reglugreðirnar í
gser, sem nauðsynlegt var að setja
við upptöku virðisaukaskatts.
Gefin var út reglugerð um endur-
greiðslu hluta virðisaukaskatts-
ins af nýmjólk, léttmjólk, G-
mjólk og undanrennu, kindakjöti
í heilum og hálfum skrokkum,
neyslufiski og fersku innlendu
grænmeti, þannig að þessar vöru-
tegundir beri ígildi 14% skatts í
stað 24,5%. Mjólk á því að lækka
í verði um 9% strax eftir ára-
mótin.
í fréttatilkynningu ráðuneytis-
ins segir að samsvarandi lækkun
eigi að nást fram á kindakjöti í
heilum og hálfum skrokkum en
lækkunin verði eitthvað minni á
unnum kjötvörum og verð á fiski
og grænmeti eigi að geta lækkað
svipað. Meiri óvissa ríkir þó um
verðlækkun á fiski og grænmeti
vegna þess að verðlagning á þess-
um vörum er frjáls. Fjármála-
ráðuneytið og viðskiptaráðu-
neytið hafa byrjað átak til að
kynna verðlagsmál fyrir neytend-
um, til að hvetja þá og kaupmenn
til samstarfs um að endur-
greiðslan skili sér til neytenda.
Munurinn á endurgreiðslum
virðisaukaskatts og hefðbundn-
um niðurgreiðslum er að endur-
greiðslurnar eru ákveðnar í
lögum og fylgja að fullu sveiflum í
verði afurða og endurgreiðslum-
ar eru verðtryggðar á meðan
niðurgreiðslumar em oftast föst
krónutala. Fjármáiaráðuneytið
segir virðisaukaskattinn eiga að
hafa í för með sér 2-2,5% lækkun
á matvælalið framfærsluvísitöl-
unnar en heildaráhrifin á vísi-
töluna verði um 0,5-1%.
Önnur reglugerðin sem gefin
var út í gær er um endurgreiðslur
vegna vinnu manna við byggingu
íbúðarhúsnæðis og verður endur-
greiðslan verðtryggð með láns-
Gó&ur a&búna&ur. Vinnustað Davíðs Axelssonar, byggingameist-
ara, Þverholti 11, Mosfellsbæ, var veitt sérstök viðurkenning Tré-
smiðafélags Reykjavíkur, fyrir góðan aðbúnað, en félagið veitir þessa
viðurkenningu. Segist Trésmiðafélagið vonast til að þessi viður-
kenning verði til þess að hvetja önnur fyrirtæki í byggingariðnaði til að
leggja aukna rækt við aðbúnað og öryggi á vinnustöðum. Myndin var
tekin þegar starfsfólkinu var veitt viðurkenningin í gær. Mynd Jim
Smart.
kjaravísitölu. Einnig er gert ráð
fyrir endurgreiðslum vegna
meiriháttar endurbóta á eldra
húsnæði og er þá miðað við að
endurbæturnar kosti amk. sem
samsvarar 7% af fasteignamati
íbúðar. Virðisaukaskatturinn
ætti því ekki að leiða til meiri
hækkunar á byggingarvísitölu en
1% segir ráðuneytið.
Síðasta reglugerðin fjallar um
greiðslufrest á virðisaukaskatti í
tolli vegna innflutnings. Frestur-
inn tekur fyrst og fremst til hrá-
efnis til iðnaðarframleiðslu og
olíuvara. En aðrir innflytjendur
fá fyrst um sinn líka greiðslufrest,
til að koma í veg fyrir hugsan-
legar verðhækkanir á fyrstu mán-
uðum ársins vegna aukinna fjár-
bindinga, til dæmis í smásölu-
verslun.
Samkvæmt tilkynningu ráðu-
neytisins verður almenna reglan
sú að greiðslufrestur verður
veittur fyrir tvo mánuði í senn,
allt frá 15 dögum upp í 75 daga.
Þessi regla gildir fyrir alla inn-
flytjendur fyrstu 4 mánuði ársins
en eftir það styttist greiðslufrest-
urinn um 15 daga vegna annarra
vara en hráefnis til iðnaðar og
olíuvara.
Greiðslufrestur verður aðeins
fenginn ef innflytjendur leggja
fram yfirlýsingu banka, spari-
sjóðs eða tryggingarfélags um að
sjálfsskuldarábyrgð sé tekin á
þeirri fjárhæð sem lánuð er vegna
virðisaukaskattsins.
-hmp
Þjóðarauður
Vex með
Stöð 2
Leitar á náðir ríkisins
Forráðamenn Stöðvar2 biðja ríkið að ábyrjast400 milljóna lán tilað
forðast gjaldþrot. Verslunarbankinn órólegur vegna skuldastöðu
stöðvarinnarfyrir sameiningu ííslandsbanka. Júlíus Sólnes: Áskrif-
endur yfirtaki stöðina
Forráðamenn Stöðvar 2 hafa
leitað á náðir hins opinbera og
farið fram á það við ríkisstjórn-
ina að ríkissjóður veiti 400
milljóna ríkisábyrgð á lán til að
rétta við skuldastöðu stöðvarinn-
ar.
Ríkisstjórnin hefur ekki tekið
afstöðu til þessarar beiðni en ráð-
Stjórn Fiskveiðasjóðs íslands
ákvað í gær að ganga að til-
boði Odda hf. í skipið Patrek BA
sem hljóðaði upp á 165 miljónir
króna. Sömuleiðis að ganga að
tilboði fyrirtækisins í Hraðfrysti-
hús Patreksfjarðar sem var upp á
52 miljónir króna.
Samkvæmt þessu mun Patrek-
herrarnir Ólafur Ragnar Gríms-
son, Steingrímur Hermannsson,
Júlíus Sólnes og Jón Sigurðsson
hafa málið til athugunar. Versl-
unarbankinn þrýstir mjög á Stöð
2 að bæta stöðu sína gagnvart
bankanum, aðallcga vegna þess
að annars yrði staða bankans
slæm við sameininguna með Út-
ur B A halda brátt til heimahafnar
á nýjan leik en Fiskveiðasjóður
keypti skipið á nauðungarupp-
boði fyrr á árinu, en áður var það
í eigu Jóns Magnússonar útgerð-
armanns á Patreksfirði sem jafn-
framt er eigandi Odda hf.
Alls bárust sex tilboð í Patrek
BA og voru þau frá 120 miljónum
vegsbankanum og Iðnaðarbank-
anum í Islandsbanka um áramót.
Beiðni stöðvarinnar var lögð
fram á ríkisstjórnarfundi á
fimmtudag. Ríkisstjórnin ætlaði
síðan að halda fund í gær en hon-
um var frestað. Júlíus Sólnes ráð-
herra Hagstofu íslands sagðist
lítið hafa um málið að segja þegar
króna og uppí 165 miljónir. Ut-
lagður kostnaður Fiskveiðasjóðs
vegna Hraðfrystihússins og skips-
ins er áætlaður um 300 miljónir
króna og mismunurinn á verði
þessara tveggja eigna og því er
um rúmar 80 miljónir króna sem
Fiskveiðasjóður mun sitja með
uppi. -grh
Þjóðviljinn ræddi við hann í gær.
Hann sagðist reiðubúinn að
skoða málið og þættist halda að
embættismenn væru nú að fara
yfir gögn um fjárhagsstöðu
Stöðvar 2, sem forráðamenn
hennar lögðu fyrir ríkisstjórnina.
Persónulega sagðist Júlíus ekki
telja óeðlilegt að áskrifendur yf-
irtækju Stöð 2. Ef þeir 50 þúsund
áskrifendur stöðvarinnar, sem
hún segðist hafa, keyptu allir
hlutabréf í stöðinni fyrir 2-4000
krónur ætti að vera hægt að rétta
við stöðuna. Hinir nýju hluthafar
gætu síðan kosið stjórn og fram-
kvæmdastjóra og komið málum í
eðlilegan farveg. „Það hljóta að
vera áskrifendurnir sem hafa
mestan áhuga á að reksturinn sé í
lagi,“ sagði Júlíus.
Þjóðviljinn reyndi árangurs-
laust að ná í Jón Óttar Ragnars-
son, einn aðaleigenda Stöðvar 2,
í gær en án árangurs. Beiðni
stöðvarinnar til ríkisstjórnarinn-
ar mun hafa fylgt yfirlýsing um að
núverandi eigendur hefðu áhuga
á að breyta stöðinni í almenn-
ingshlutafélag en þó þannig að
enginn einn aðili ætti meiri hlut
en eina milljón krónur. -hmp
ári hverju
Hvorki landið sjálft
né auðlindir þess talin
með
Þjóðarauður íslendinga í árs-
lok 1988 á verðlagi þess árs nam
658.612 miljónum króna og þar af
var verðmæti íbúðarhúsnæðis
201.271 mifjónum króna. Til
samanburðar var hann 545.651
mi|jón krónur á árið 1987 á verð-
lagi þess árs og þá voru verðmæti
íbúðarhúsnæðis metin á 167.168
miljónir króna.
Þessar upplýsingar koma fram
í desember riti Hagdeildar Seðla-
banka fslands. En í hverju felst
þjóðarauðurinn? Að sögn Har-
aldar Erlingsen hjá Þjóðhags-
stofnun eru það allar fasteignir
nema landið sjálft og auðlindir
þess í hafinu umhverfis það og
jarðhiti svo eitthvað sé nefnt.
Ástæða þess að þessir hlutir eru
ekki reiknaðir inn í þjóðarauðinn
eru ma. vegna þess hversu erfitt
er að meta þá til fjárs. Þá eru
íbúðarhús ekki talin með þar sem
þau eru hluti af einkaeign sem og
einkabflar.
Meðal þess sem telst með í
þjóðarauði íslendinga eru því öll
framleiðslutæki landsins, rækt-
un, atvinnuhúsnæði, innstokks-
munir þess að undanskildu því
sem er í íbúðarhúsnæði, skip,
bátar, flugvélar og atvinnuöku-
tæki, allar byggingar og
mannvirki hins opinbera ss. veg-
ir, brýr, vitar, hafnir, götur og
holræsi.
-grh
Fiskveiðasjóður
Patrekur heim á ný
Oddi hf. bauð mest í Patrek og Hraðfrystihús Patreksfjarðar. Tap
Fiskveiðasjóðs rúmar 80 miljónir
Laugardagur 30. desember 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 5