Þjóðviljinn - 30.12.1989, Page 6

Þjóðviljinn - 30.12.1989, Page 6
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson Ritstjórar: Árni Bergmann, Ólafur H. Torfason Umsjónarmaður Helgarblaðs: Ólafur Gíslason Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson Útlit: Þröstur Haraldsson Auglýsingastjóri: Olga Clausen Afgreiðsla:@’68 13 33 Auglýsingadeild:@68 13 10-68 13 31 Símfax:68 19 35 Verð: í lausasölu 140 krónur Setning og umbrot: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Málgagn sósíalisma, þjóðfreisis og verkalýðshreyfingar Síðumúla 6, 108 Reykjavík 4 Um áramót Það ár sem nú er senn liðið var mikð byltingaár. Þjóðir Austur-Evrópu héldu upp á tvö hundruð ára afmæli frönsku byltingarinnar með eftirminnilegum hætti. Valds- einokun kommúnistaflokkanna hrundi í hverju landinu af öðru, og þeir atburðir, sem urðu með skjótari hætti en nokkurn varði, gerðust friðsamlega og án blóðsúthellinga nema í Rúmeníu. Heimurinn er um margt annar en áður. Járntjaldið fræga rifnar í tætlur og miklir möguleikar opnast á greið- um samgöngum milli fjölskyldna í því „Evrópuhúsi", sem er orðið snar þáttur í pólitísku málfari tímans. Kalda stríðið er úr sögunni og þar með forsendur hernaðarbandalag- anna, sem hafa setið yfir kosti smærri þjóða, skipað þeim á bás og sagt þeim að hafa hægt um sig þar sem þær væru niður komnar, annars væru þær að „hella vatni á myllu andstæðinganna". Vettvangur frelsisins hefur stækkað að miklum mun. Því var einatt haldið fram hér á Vesturlöndum, að mikill eðlismunur væri t.d. á herforingjaeinræði í Rómönsku Amríku og flokksalræði í Austur-Evrópu. Einræðisherr- arnir yrðu skammlífir, völd þeirra takmörkuð í yfirborði þjóðfélagsgerðarinnar. Aftur á móti væri hið kommúníska flokksræði svo algjört og altækt - drægi saman á einni hendi pólitískt vald og hervald, efnahagslegt vald og hug- myndafræðilegt - að þjóðfélög sem lytu slíku valdi gætu eiginlega ekki breyst og síst með friðsamlegum hætti. Atburðir ársins afsönnuðu þessa kenningu með ótví- ræðum hætti. Það kemur á daginn að heimur allur er breytanlegur, ekkert ástand mun vara að eilífu, engin þjóð er dæmd fyrir fullt og allt til ákveðins hlutskiptis. Söguleg nauðhyggja erá undanhaldi. Og möguleikarnar sem þá opnast svo margir reyndar, að það er ekki nema von að marga sundli: hvar skal byrja, hvar skal standa? Verkefni Islendinga á liðnu ári voru náttúrlega öllu hvunndagslegri. Við héldum áfram að bregðast við á- standi sem kreppti að okkur og átti rætur að rekja til mikillar óráðsíu í efnahagsmálum í góðæri því sem næstliðin ríkisstjórn spilaði illa úr. Sem og til þess að við höfum blátt áfram gengið of hart að fiskimiðum okkar. Ýmislegt hefur vel tekist eða sæmilega í björgunarað- gerðum, annað erenn undirspurningarmerkjum. Um leið berja upp á hjá okkur erfiðar spurningar sem varða mögu- leika okkar sem sjálfstæðrar smáþjóðar: hvernig verður tengslum okkar við markaðsheildirnar stóru háttað? Tekst okkur á næstunni að ná samningum við Evrópu- bandalagið sem tryggja góð viðskipti við það, án þess að við séum nauðugir viljugir dregnir inn undir yfirþjóðlegt vald og missum úr höndum okkar forræði yfir þeim auð- lindum sem er forsenda marktæks sjálfstæðis okkar? Á næsta ári verðum við fyrst og síðast um það spurð, hvort við viljum nýta okkar hefðir og aukið olnbogarými frelsis til að leita eigin leiða, eða hvort við ætlum að láta okkur nægja að beygja okkur undir nýja sögulega efnahags- nauðhyggju, láta okkur berast með straumi í þeirri hlé- drægu von að hann muni ekki færa okkur í kaf. Þjóðviljinn óskar lesendum sínum og landsmönnum öllum farsæls komandi árs. ÁB Djass Sveifla í Rauða- gerði Sex djasshljóm- sveitirmeð tónleika klukkan 3 ídag. Margir fremstu djass- arar landsins koma fram I dag klukkan 15 verður haldin djasshátíð á vegum Félags ís- lenskra hljómlistarmanna í sal félagsins að Rauðagerði 27, þar sem Ingvar Helgason var áður Djassararnir sem koma fram á tónleikunum í dag voru á æfingu á fimmtudag. Jim Smart Ijósmyndari Þjóðviljans kíkti á æfinguna og tók þessa mynd. með bflaumboð sitt. Á hátíðinni munu koma fram sex hljómsveitir sem eru skipaðar mörgum af landsins fremstu djasstónlistar- mönnum og stendur sveiflan yfir í tvær klukkustundir. Hljómsveitirnar sem koma fram eru Tómas R. Einarsson og félagar, Tríó Guðmundar Ing- ólfssonar, Ellen Kristjánsdóttir og flokkur mannsins hennar, Andrea Gylfadóttir ásamt hljóm- sveit Carls Möllers, Kvartett Reynis Sigurðssonar og Friðriks Karlssonar og Tentett FÍH, sem kom fram fyrir skömmu og Iék undir stjórn finnska tónskáldsins Jukka Linkola. Saxafónleikarinn Halldór Pálsson verður sérstakur gestur hátíðarinnar en hann starf- ar sem tónlistarmaður í Svíþjóð. Pétur Grétarsson verður kynnir en allur ágóði tónleikanna rennur til uppbyggingar tónleikaaðstöðu félagsmanna. -hmp a--------------- Aramótaveöriö annaf^þurrtUr sunnan °9 su^austanátt og víðast frostlaust. Slydda eða súld á suðvestur- og vesturlandi, en Gamlársdagur Veður á gamlársdag: Suðaustanátt og milt veður um allt land. Súld eða rigning við suður- oq austurströndina þurrt annars staðar. M Nýjársdagur Á nýjársnótt snýst vindátt til suðvesturs og kólnar, fyrst vestanlands, með éljum á suður- og vesturlandi. Léttskýjað norðan og austanlands þegar kemur fram á nýjársdag. Frost verður á bilinu 0-4 gráour. 6 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Laugardagur 30. desember 1989

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.